Morgunblaðið - 26.01.1982, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 26.01.1982, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982 Rokkið á að vera hrátt Jonee-Jonee á sviði. I samrædum l'okahornsins við ýmsa þá, sem gleggst hafa fylgst með þróun rokktóniistarinnar hér upp á síðkastið, hafa margir látið í Ijós þá skoðun sína að umfjóliun hlaðamanna um hinar fjólmörgu nýju hljómsveitir sem hér hafa skotið upp kollinum að undan- fórnu hafi verið nokkuð á einn veg. Orðatiltæki eins og; „ein efnilegasta hljómsveit sem fram hefur komið í langan tíma," „hljómsveit sem lofar góðu“ eða „athj'glisverð hljómsveit sem á eftir að láta mikið af sér kveða,“ hafi verið mjög algeng á poppsíðum dagblaðanna. Minna hafi farið fvrir gagnrýni og umfjöllun um það sem miður hafi farið hjá viðkom- andi tónlistarmönnum. Nokkuð er til í þessu og þar er Pokahornið örugglega engin undan- tekning. Margvíslegar skýringar eru eflaust á þessu. Ein sú veigamesta kanna að vera sú ánægja sem ríkir meðal þeirra sem skrifa um rokk í blöðin með þær gífurlegu hræringar sem átt hafa sér stað í þeirri tónlist hér síðustu eitt til tvö árin. Enda verða þau að skoðast sem eitt mesta uppgangs- og umbrotatímabil ís- lenskrar rokksögu, þegar málin eru skoðuð í heild. Sjaldan eða aldrei hafa jafn margar nýjar hljómsveitir sem glíma við að spila eigið efni komið fram og það eitt hlýtur að vera mjög jákvætt. En það er aftur á móti rétt, sem ýmsir hafa bent á, að þessar nýju hljómsveitir eru ekki allar „stórgóðar" og að orðatiltækin sem áður voru upptalin hafa verið notuð fulloft. Jonee-Jonee Astæðan fyrir þessum vangavelt- um nú er sú staðreynd að þegar Pokahornið stóð frammi fyrir því að ætla að segja frá hljómsveitinni Jonee-Jonee rak það sig illilega á það, að mikið er til í þessari gagn- rýni á okkur poppskríbenta. Það er nefnilega bjargföst skoðun Poka- hornsins að Jonee-Jonee sé ein besta hljómsveit sem fram hefur komið hér síðustu mánuðina og að þarna séu á ferðinni tónlistarmenn sem vert sé að fylgjast náið með. En vegna ofnotkunar á slíkum fullyrð- ingum eru þær kannski farnar að missa marks og lesendur jafnvel farnir að missa trú á því að eitthvað sérstakt sé á ferðinni þegar þeim er beitt. Jonee-Jonee er skipuð þeim Bergsteini Björgúlfssyni trommara, Heimi Barðasyni bassaleikara og Þorvari Hafsteinssyni söngvara (hann grípur einstaka sinnum í gít- ar og blæs aðeins í saxafón þar að auki). Þeir eru allir búsettir í Garðabænum og eru, að því er Poka- hornið kemst næst, fyrsta „ný- bylgjusveitin" þaðan sem vekur verulega athygli. Eins og sést á hljóðfæraskipan þeirra er hún ekki samkvæmt því sem almennt tíðkast í rokkinu. Það er aðeins örsjaldan sem Þorvar slær á gítarstrengina eða þenur saxafóninn. í flestum lög- um þeirra eru bassinn og tromm- urnar einu hljóðfærin. Tónlist þeirra verður kannski helst skil- greind sem hrátt, kröftugt og einfalt rokk (ef það útskýrir eitthvað). Pokahornið hefur tvisvar séð Jon- ee-Jonee á tónleikum og bæði skipt- in hefur þeim félögum tekist vel upp og náð skemmtilegri stemningu 1>ÖRVAR í JONEE-JONEE í FOKAHORNI meðal áheyranda. Þeir hafa ekki öðlast mikla sviðsreynslu enda hef- ur hljómsveitin ekki starfað lengi, eða aðeins síðan í september í fyrra. Þessa gætir kannski aðeins í keyrsl- unni hjá þeim, en það eru hlutir sem þeir þurfa ekki að hfa stórar áhyggjur af. Æfingin skapar meist- arann, segir máltækið allavega. Bassi eða ekki bassi Pokahornið fékk Þorvar Haf- steinsson í heimsókn eitt kvöldið til. að forvitnast frekar um hljómsveit- ina. Það sem okkur datt fyrst í hug að spyrja hann um, var hvers vegna hann og félagar hans hafi farið út í það að stofna hljómsveit. Eg fékk smáídeu vestur í New York í fyrra. Hafði heyrt ýmsar trylltar hugmyndir, bæði um bassa- lausar hljómsveitir, svo og aðrar með bassatríó. Við ákváðum að gera smá tilraun og nota eingöngu bassa og trommur, allavega til að byrja með. Við höfðum samt alltaf í bak- höndinni að nota annað hvort saxa- fón eða gítar. Ég reyndist svo slæm- ur saxisti þegar til kom að ég fékk ekkert að blása fyrr en nú um jólin. Þá fékk ég rafmagnsmunnstykki á saxann og um leið annað tækifæri. — En gítarinn? Ég prófaði hann í upphafi, en það fór út í gripavitleysu. Við tókum svo aftur upp þráðinn og tókst þá að fá það fram sem við vildum. Engin grip. Engin sóló. — Hvernig verður tónlistin til hjá ykkur? Við semjum öll lögin saman á æf- ingum. Textarnir eru flestir samdir af vinum og vandamönnum og hefur Gísli Þorsteinsson verið hvað at- kvæðamestur í þeim efnum. Hverja telur þú vera helstu áhrifavalda á tónlist ykkar, ef þeir eru þá einhverjir? — Ja, hvað hljóðfæraskipan varðar þá svipar okkur til PIL. í upphafi vorum við uppfullir af hugmyndum frá þeim um hvernig ætti að reka hljómsveit sem fyrir- tæki. Eftir tvenna tónleika gáfumst við upp á því fyrirkomulagi. Við höf- um fengið að heyra það, að við líkt- umst Purrknum, en ég er nú ekki sammála því. Annars hlustum við þrír á svo ólíka tónlist, þannig að áhrifavaldar ef einhvejir eru, koma úr ólíkum áttum. — A hvað hlustar þú helst? — PIL er uppáhaldið.Að vísu á ég bara eina plötu með þeim. Svo hef ég líka mjög gaman af Iggy Pop og Lou Reed. Annars hlusta ég ekki mikið á plötur. Síðasta mánuðinn hef ég til dæmist bara hlustað á kassettur með okkur. Ég er ekki sammála því sem Bubbi sagði í blaðaviðtali, að nauðsynlegt sé að hlusta mjög mikið á aðra tónlist- armenn þó maður sé að fást við tónlist. — Telur þú að það gæti haft óæskileg áhrif á eigin tónsmíðar? — Já. Menn geta orðið bundnir af því sem er að gerast í kringum þá. Hvað selst, hverjir eru að gera snið- uga hluti o.s.frv. I»ad er dauðadómur að ofhlaða rokkið Pokahorninu leikur forvitni á að fá skoðanir Þorvars á gangi mála stóru strákunum Snjórinn lék Phil Mogg og félaga hans í IIFO grált. Toyah sú besta og versta. Fréttir af Fæstir stórpopparar þurfa að hafa áhyggjur af buddunni sinni. Svo er heldur ekki um þá félaga í Dire Straits. Þeir hafa nú ákveðið að gefa Amnesty International allan hagnað af plötusölu fiokksins í SuðurAfríku. Amnesty-samtökin fengu fyrir nokkru fyrsta framlagið í formi 7.000 punda ávtsunar. — O — Nýjasta breiðskífa AC/DC, For Those About to Rock, seldist í ótölu- legum fjölda eintaka og selst enn grimmt. Framan á plötuumslaginu er mynd af heljarmikilli fallbyssu. Til þess að standa nú almennilega undir nafni bauð flokkurinn að- dáendum sínum upp á 21 fallbyssu- skot úr tveimur fallbyssum á öllum tónleikum sínum í Bandaríkjunum nýverið. „Heavy metal“ skal það heita. -O- Strákarnir í Damned urðu fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu fyrir skemmstu að þurfa að fá lánuð hljóð- færi á lokatónleika hljómsveitarinnar í nýafstaðinni tónleikaferð um Bret- land. Flutningsfyrirtækið gleymdi ein- faldlega að koma með hljóðfærin í Lyreum-tónleikahöllina þótt fyrirfram hefði verið um það samið. — O — Oveðrið, sem geisað hefur á Bret- landseyjum hefur komið illa við fleiri en knattspyrnumenn landsins. Popparar hafa heldur ekki farið varhluta af geðvonsku veðurguð- anna. Þannig lenti Duran Duran í árekstri í fljúgandi hálku á leið á tónleika í Cardiff. Sú borg kom heldur betur við sögu nú í vikunni er UFO varð að aflýsa tónleikum í Sophia Gardens í Cardiff, sem fram áttu að fara í gær. Orsökin var sú að þakið á tónleikasalnum hrundi und- an snjóþunganum. Ozzy Osbourne, fyrrum söngvari Black Sabbath, er ekki dauður úr öll- um æðum. Hann heldur úti hljómsveit í eigin nafni. Ilún sendi nýverið frá sér aðra breiðskífu sína og þykir hún betri en sú fyrri. Velgengnin hefur þó leikið Ozzy grátt. Hann varð fyrir nokkru að af- lýsa tónleikaferð vegna heilsubrests. Adam og maurarnir fengu háðulega út- reið í vinsældavali Stiff og breska stúd- entablaðsins. Var honum fyrirskipað að taka sér a.m.k. 6 vikna hlé frá tónleikahaldi. Þegar fiokkurinn treður upp næst mun Don Airey, fyrrum hljómborðsleikari Kainbow, hafa bæst í hópinn. — O — „Við erum ekkert á þeim buxun- um að hætta" segir John Entwh-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.