Morgunblaðið - 26.01.1982, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 26.01.1982, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982 Fólk og fréttir í máli og myndum • Vestur-þýsku landsliðsmennirnir í knattspyrnu voru á dögunum að syngja inn á hljómplötu til fjáröflunar fyrir sjálfa sig og þýska liðið. í lið með sér fengu þeir söngkonuna huggulegu Lenu Valitas sem sjá má á myndinni ásamt Haraldi Schumacher markverði frá Köln og þeirra „tvíbura“ Paul Breitner og Karl Heinz Rumenigge frá Bayern Miinchen. Kapparnir sungu 16 lög inn á umræddan vynildisk, en meðal þeirra var Samba Do Futbol, Old Kngland, Football Forever og fleiri knattspyrnuslagara. Talið er að hinir 22 landsmiðsmenn VesturÞjóðverja þéni 60.000 krónur hver fyrir hlut sinn í hljómplötunni. Danir töpuðu 47—0 FYRIK hefur komið að við höfum tapað stórt fyrir Dönum í íþrótta- keppni. Flestir muna sjálfsagt eftir tapinu stóra í fótboltanum, 14—2. Því gladdi það alla þegar danska handknattleikslandsliðið var burst- að á Akranesi með 11 mörkum. En Danir tapa oft stórt í íþróttakeppni og eiga meðal annars heimsmet á þeim vettvangi. Danska landsliðið í íshokkí tapaði í HM-keppninni í Stokkhólmi árið 1949 fyrir Kanada 27—0. Þetta er meira að segja skráð í heimsmetabók Guinness. • Ungi maðurinn brosmildi hér að ofan heitir John Golomb, sem er sannarlega ekki í frásögur færandi, enda er sennilega vandhitt í meira lagi á þann íslending sem veit hver hann er. Golomb þessi gæti þó orðið frægur næstu árin vegna uppfinn- ingarinnar sem hann heldur á í hægri hendinni. Er það flatur hnefa- leikahanski, þumaífingurlaus með öllu. í vinstri hendinni er Nonni hins vegar með hefðbundinn hanska með tilheyrandi risaþumal. Það sem vak- ir fyrir Golomb er að draga úr augnskaða sem hnefaleikamenn verða furðu oft fyrir er risaþumall þessi borast inn í auga hnefaleika- mannsins í hita leiksins. Talið er að 85 prósent þeirra augnmeina sem hnefaleikamenn verða fyrir stafi af þessum klaufalega þumalfingri. Aöalsteinn kjörinn siglingamaður Brokeyjar ADALFUNDUB siglingaklúbbsins Brokeyjar, Reykjavík, var haldinn 28. nóv. síðastliðinn. Dagskrá aðalfundar var með venjulegum hætti. Siglingamaður Brokeyjar var kosinn fyrir árið 1981. Þann heiður hlaut Aðalsteinn Ixiftsson, sem er ungur og áhuga- samur siglingamaður. Ný stjórn var kosin; Sigurður Arason, formaður, Jóhann Gunn- arsson, gjaldkeri, Jóhann Gil- bertsson, ritari. Fundurinn samþykkti að vinna áfram að eflingu siglingaíþróttar- innar þar sem sigiing er holl fjöl- skyldu- og einstaklingsíþrótt. Einnig var samþykkt að kynna betur siglingareglur og öryggis- búnað á sjó. • Aaaaaaa! gæti hann verið að segja þessi í taumlausum gleðilátum sínum yfir frammistöðu sinna manna á knattspyrnuvellinum. Þá veitir ekki að eiga stuðning kunn- ingja sinna undir slíkum kringum- stæðum, en einn þeirra rígheldur í þann æsta. Svona þar fyrir utan má geta þess, að myndin er frá leik- vangi Boca Jouniors í Argentínu og Diego Maradonna var rétt í þessu að senda knöttinn í netið hjá andstæð- ingnum ... • Axel Axelsson, handknattleiksmaðurinn kunni, leikur nú aftur í Vestur Þýskalandi með liði í 2. deild. Axel hefur staðið sig vel í vetur og skorar að venju mikið af mörkum fyrir lið sitt. A myndinni má sjá Axel í leik þar ytra, en greinilega er það mótherjinn sem er að horfa á eftir boltanum í markið að þessu sinni. IÞROTTABANDALAG akramss . -/ • Þetta unga fólk á myndinni er frá Akranesi og stundar það badminton- íþróttina af miklum krafti. Hefur það unnið til verðlauna í sínum aldurs- flokkum á mótum í vetur. • Hjólreiðakappinn kunni Bernard Hinault hélt ærlega upp á daginn sem hann sigraði í hinu geysi um fangsmikla Tour de France hjóla- fltírðtiiin keppni. Kappinn veitti vinum og að- standendum kampavín í lítratali og síðast en ekki síst tertuna rosalegu sem Hinault sneiðir sjálfur niður á meðfylgjandi mynd. Ef grannt er skoðað má sjá gestina ýmist með útkýldar kinnar eða sleikjandi út um. Tekst Bock að rétta úr kút stúdenta? EINS og skýrt hefur verið frá hefur Iþróttafélag stúdenta fengið banda- ríska körfuknattleiksmanninn, I’at- rik Bock, til liðs við sig í stað Denis McGuire. I’at Bock er 2,06 á hæð og hefur undanfarin þrjú ár leikið með þýska liðinu UB(’ Miinster. Á síð- asta ári léku IJBC Miister í 2. deild og varð l*at Bock þá stigahæstur í deildinni með 29 stig að meðaltali. Pat Bock lék áður með Central Michigan University og þá við hlið hins óviðjafnanlega Dirk Dunbar, sem allir, þeir sem heyrt hafa minnst á körfubolta, þekkja. Fyrir þá sem fylgjast með bandarískum körfubolta, þá má þess geta, að Pat lék þá einnig með frægum köppum sem nú eru: Roundfield og McElroy hjá Atlanta og Poquette hjá Utah. Má geta þess, að Roundfield þessi er í svonefndu „All star“ liði, þar sem lítið rúm er fyrir aukvisa. Pat Bock er ætlað að rétta út kút stúdenta og mun hann því hafa ærið verkefni bæði sem leik- maður og þjálfari næstu þrjá mánuði eða svo. Pat Bock er hvorki smásmíði né smáfríður og á hann vafalaust eftir að skjóta einhverjum andstæðinga IS-inga skelk í bringu og þá vonandi fyrst Stew Johnson, KR-ing. Sem dæmi um stærð og styrkleika Pat Bock má nefna tvennt: Hið fyrra er, að fyrir nokkrum árum ók á drenginn Kádilják einn gríðarlegur. Slasað- ist Pat mjög alvarlega og lá lengi milli heims og helju — fylgir sög- unni að Kádiljákinn hafi gereyði- lagst. Hið síðari er, að í hamborg- araáti stenst enginn Pat Bock snúning, enda er drengurinn margfaldur meistari í greininni. Má vitna til hins fornkveðna: ,Takist Pat Bock eigi að bjarga IS-ingum tekst það engum." Þá má geta þess, að Guðmundur Jóhannesson hefur tilkynnt fé- lagsskipti, úr Val í ÍS, en Guð- mundur hefur lengi vermt vara- mannabekk Valsmanna og það stundum of oft. Ætlar Guðmund- ur því að freista gæfunnar hjá ÍS. iltl n ti [íTn, IMMl 'MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.