Morgunblaðið - 26.01.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.01.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982 37 hér á landi og snýr því talinu að klakanum. Hvað finnst þér um inn- lendar hljómsveitir? — Eg veit eiginlega ekki hvað skal segja. Ég hlusta sjálfur helst á Purrkinn. Mér finnst margar hljómsveitir hérna leggja of mikið upp úr flóknum tækjabúnaði og miklum sólóum. Persónulega finnst mér að rokk eigi að vera eins hrátt og mögulegt er. Það er dauðadómur yfir því að ofhlaða tónlistina. Þetta hefur sýnt sig t.d. með Bítlunum sem mörgum fannst mjög hráir í upphafi og hálfgerður skandall á sínum tíma. Svo var farið að yfir- hlaða tónlistina. í kjölfarið kom svo hipparuglið og þungarokkið. Það eru svo Sex Pistols sem rífa hlutina upp aftur. — Finnst þér kannski að þaer hræringar sem áttu sér stað eftir 1976 séu hliðstæður við það sem skeði eftir 1960. Kannski meiri upp- lausn í þjóðfélaginu í dag og þar af leiðandi róttækari og grófari tón- list? — Já, alveg tvímælalaust. Þetta er álíka stórt stökk. — En hvaða skýringu telur þú á því að t.d. pönkið hefur ekki náð jafn mikilli útbreiðslu og tónlist Bítlanna og Stones gerði á sínum tíma? — Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því. Það eru náttúrulega miklu fleiri tónlistarstefnur sem hafa skotið upp kollinum hin síðari ár, en þá. Diskóið og allt það. Pönkið var mjög róttæk breyting. Kannski grófari í vissum skilningi en það sem var á ferðinni upp úr 1960. — Hvernig finnst þér undirtekt- irnar hafa verið hér? — Mér virðist tónleikaaðsókn vera bundin við ákveðinn hóp. En það er líka góður hópur. Reglur um aldurstakmörk á Hótel Borg og öðr- um vínveitingahúsum útiloka sjálfkrafa stóran hóp tóniistar- manna og hljómleikagesta. Yngri hljómsveitirnar eiga mjög erfitt með að fá að spila fyrir hinn fasta hóp tónleikagesta. Að lokum spyrjum við Þorvar nánar út í nafn hljómsveitarinnar. Hvort plata sé væntanleg með henni og hvað sé framundan á næstunni? — Nafnið er samansuða af ýms- um hugdettum. Bróðir minn hafði einhverntíma á orði að hann ætlaði að skýra son sinn Jón Jón. Nú svo má nefna Devo-lagið „Come back Jonee“ og sjálfur var ég búinn að pæla lengi í þessu nafni. Hvað plötuútgáfu varðar er alls ekkert ákveðið. Maður bara bíður og vonar. Eina sem er á hreinu er það, að við spilum í Fjölbraut í Breiðholti á fimmtudagskvöldið og þá líklega með Purrki Pillnikk. BV Úr Rokk í Reykjavík: Vonbrigdi. Rokk í Reykjavík... Söngkonur Q4U slappa af í upptökuhléi. Ný íslensk kvikmynd Nú í vetur hefur verid unnið að gerð nýrrar íslenskrar kvikmyndar sem fjallar um hina miklu grósku í tónlistarlífinu hér að undanförnu. Kvikmyndin, sem ber nafnið Kokk í Keykjavík, er unnin af kvikmyndafélaginu Hugrenningi sf. Pokahornið sló á þráðinn til eins forsvarsmanna Hugrennings, Friðriks Þórs Friðrikssonar, kvikmyndagerðarmanns með meiru, og innti hann frétta af gangi mála. Að hans sögn hefur nú verið myndað efni með rúmlega tuttugu hljómsveitum. Þar á meðal eru Egó, Jonee-Jonee, Purrkur Pillnikk, Lojpippos og Spojsippus, Þeyr, Þursar, Bodies, Fræbbblarnir, Start, Friðrvk, Q4U, Vonbrigði, Sjálfsfróun, Baraflokkurinn og Grýlurnar. Auk þeirra koma fram nokkrar fleiri hljómsveitir sem hafa verið að hasla sér völl upp á síðkastið, að ógleymdum Sveinbirni Beinteinssyni allsherj- argoða. Áætlaður sýningartími myndarinnar er um 95 mínútur, en nú er til efni sem tæki um sólarhring að sýna, þannig að af nógu er að taka, þegar til klippingar kemur. þess má geta til gamans að þegar kvikmyndin frá Woodstock hátíðinni var gerð, voru myndaðir um 48 tímar. Það kom einnig fram í samtalinu við Friðrik Þór, að stefnt er að útgáfu tvöfaldrar plötu með tónlistinni úr myndinni. Hljóðupptökurnar eru gerðar á 8 rása tæki og mun það vera einsdæmi við kvikmyndir hér á landi. Þær hafa verið í höndum þeirra Tómasar Tómassonar og Þórðar Árnasonar Þursa og Júlíusar Agnarssonar hljóðstjóra hljómsveitarinnar, þannig að þar ætti ekki að vera kastað til höndunum. Áætlaður frumsýningardagur Rokks í Reykjavík er á öðrum í páskum og að sjálfsögðu verður hún sýnd í einhverju af kvikmyndahúsum borgarinnar. Það þarf víst ekki að fara mörgum orðum um það hversu merkileg og jafnframt skemmtileg heimild þessi kvikmynd er um uppganginn í rokktónlistinni hér síðustu árin. BV Tónlist í nýjasta hefti breska tónlistar bladsins New Musical Express eru birtir tveir athyglisverðir vinsælda- listar. Annars vegar er listi sem valinn var af hlustendum hins virta og vinsæla útvarpsmanns hjá BBC, John Peel, og hins vegar listi yfir vinsælustu danslögin í Skotlandi í fyrra. Á iista hlustenda John Peel svífur andi Ian Curtis heitins yfir vötnum. Hljómsveitirnar Joy Division og New Order koma ótrúlega vel úr því vali. Af 50 efstu lögunum eiga þessar tvær hljómsveitir 10 lög, þar af 5 í topp tíu. Enskir rokkunnendur muna einnig vel eftir brautryðj- endunum Sex Pistols, sem eiga t.d. lagið í öðru sæti á John Peel listanum. Á skoska danslagalistanum, sem settur var saman af diskó- tekurum þar í landi, eru ný- rómantískar hljómsveitir einna mest áberandi. Hljómsveitin Human League, sem væntanleg er hingað til lands, á greinilega sterk ítök í dansunnendum í Bretlandi. Einnig virðast diskó- fríkin kunna vel að meta Ultra- vox og Spandau Ballet svo að dæmi séu nefnd. Við birtum hér tíu efstu lögin á þessum tveim listum. Listi John Peel: 1. Almosphere — Joy Division 2. Anarchy in Ihe l'K — Sex INslols 3. Love Will Tear Is Appari — Joy Division 4. (’eremony — New Order 5. New Dawn Kades — Joy Division 6. Teenage kicks — Tndertones 7. Dt'cades — Joy Division 8. A Korest — (’ure 9. Iloliday inCambodia — Dt'ad Kennedys 10. White Man in llammersmith IMace — Oash. llumu League njóta hylli víða. Listi skoskra diskótekara: 1. ('an’l No. I — Spandau Hallet 2. Dón’l Vou Wanl Me — lluman Ix'ayue 3. Tainted lÆve — Sofl ( 'ell 4. Back To My Koots — Odyssey 5. Vienna — Tltravox 6. Ilappy Birlhday — Stevie Wonder 7. Ia»I’s (iroove — Karth, Wind and Kire 8. (’an You Keel It — The Jacksons 9. Love Action — lluman lx»ague 10. I'lanet Karth — Duran Duran BV Joy l)ivision/New Order eiga sterk ítök í breskum tónlistarunnendum. tveggja heima 4 istle, bassaleikari Who, um þann orðróm að hljómsveitin sé um það bil að leggja upp laupana. Hljómsv- eitin heldur í hljóðver í byrjun febrúar. Ætti því nýrrar breiðskífu að vera að vænta með haustinu ef að líkum lætur. Samkvæmt upplýsing- um Melody Maker var síðasta plata Who, Face dances, ein af 50 sölu- hæstu plötum síðasta árs í Engl- andi. -O- Stevie Wonder verður líkast til í sviðsljósinu á nýjan leik á árinu. Eftir upplýsingum, sem Pokahornið hefur krækt í, mun safnplötu með bestu lög- um hans vera að vænta á næstunni. Ber gripurinn nafnið Stevie Wonder's Original Musiquarium. Mun þar vera að finna lög á borð við Superstition, Your Are the Sunshine of My Life, Master Blaster, Sir Duke, Isn’t She Lovely og fleiri af perlum hans. — O — Sameiginleg könnun á vegum Stiff og breska stúdentablaðsins komst að þeirri niðurstöðu að Adam og maurarnir væru lélegasta hljómsveitin á Bretlandseyjum. Þá var Shakin’ Stevens útnefndur slak- asti söngvarinn. Toyah hlaut hins vegar þann vafasama heiður að vera útnefnd bæði besta og versta söng- konan. Skrýtnir þarna á Bret- landi .. . SV Mikið um að vera hjá Jazzvakningu l>ad er mikið um að vera hjá Jazzvakningu um þessar mundir. í byrjun mars munu þeir hefja starfssemi nýs jazzkjallara í Djúpinu við Hafnarstræti, en nú er unnið að stækkun og breytingum á þeim stað. Stefna þeirra Jazzvakningarmanna er að halda tónlistar- kvöld þar þrisvar í viku: fimmtudags-, föstudags- og laugar- dagskvöld. í vor ætla þeir svo aö gefa út tvöfalda hljómplötu í minn- ingu Gunnars Orm- slevs. Upptökurnar á þessari plötu eru frá 1951 til 1979, þannig að hún ætti að gefa góða yfirsýn yfir sögu íslensks jazz. Flestir helstu jazzistar lands- ins spila á þessari hljómplötu Jazzvakn- ingar. Einnig koma fram á henni ýmsir erlendir tónlistar- menn. Rúsínan í pylsuend- anum hjá Vakning- unnni er svo án efa fyrirhugaðir hljóm- leikar hinnar frábæru hljómsveitar Art En- semble of Chicago sem verða í Þjóðleik- húsinu 5. apríl. Hljómsveit þessi hef- ur verið valin jazz- hljómsveit ársins síð- ustu tvö árin af gagn- rýnendum tónlistar- blaðsins Down Beat, sem er víðlesnasta jazztímarit í heimi. Down Beat valdi einn- ig plötu þeirra, Full Force, hljómplötu árs- ins 1981. Hljómeikar Art Ensemble of Chic- ago verða þvi örugg- lega einn af hápunkt- um tónlistarlífsins hér á þessu ári. Poka- hornið mun gera hljómsveitinni nánari skil síðar. BV llmsjón: llalldór Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.