Morgunblaðið - 26.01.1982, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 26.01.1982, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982 Minning — Margrét K. Asgeirsdóttir Hanson Jón Óli Jóns- son - Kveöjuorö Fædd 1. október 1910 Dáin 24. desember 1981 Gréta móðursystir mín er látin. Þessi harmafretfn barst okkur á jóludaf'smori'um, Hún hafði látist á heimili sínu í Gautaborg á að- fanKadaf; jóla. Hún var jarðsett í GautaborK mánudat'inn 4. jan. sl. Marf;rét Kristrún Ásgeirsdóttir Hanson var fædd á Akureyri 1. okt 1910. Hún var dóttir hjónanna Asueirs Péturssonar útgerðar- manns og konu hans Guðrúnar I lalldórsdóttur. Gréta, eins og hún var ávallt kölluð, átti eina systur, tvo bræður og einn uppeldisbróð- ur. Af þeim systkinum lifir aðeins einn bróðir, Jón Vilhelm skrifstofúmaður í Reykjavík. Gréta ólst upp í föðurhúsum. Hún sat í Gagnfræðaskóla Akureyrar á árunum 1923—1925, en lauk ekki prófi þaðan vegna veikinda. Á þessum árum geisaði berklaveikin um landið. Urðu flestar fjölskyld- ur fyrir barðinu á þeim sjúkdómi. Veiktust þær báðar, amma mín og Gréta, af berklum. Fóru þær til Danmerkur á berklahæli. Vegna þessara veikinda þeirra fluttist heimili ömmu og afa til Kaup- mannahafnar og var þar æ síðan. Gréta frænka kom aðeins tvívegis til íslands eftir þetta í stuttar heimsóknir. Gréta var aðeins 15 ára gömul, þegar hún var lögð inn á herklahæli. Var hún á tímabili mikið veik, en náði bata. Hún var þó aldrei fullhraust eftir þetta. Þegar heilsan leyfði settist Gréta í verslunarskóla í Kaupmannahöfn og síðan í Hamborg. Var hún mik- il námskona og fékk sérstaka við- urkenningu fyrir góðan náms- árangur í stærðfræði. Forlögin höguðu því þannig að í Hamborg kynntist hún Svíanum Per Olof Hanson síðar forstjóra, sem þar var einnig við nám. Voru þau gefin saman í hjónaband 24. maí 1933. Virtust þau alla tíð mjög samrýnd og hamingjusöm hjón. Þau áttu barnaláni að fagna og eignuðust tvö börn Gunnel og Sven Ásgeir, sem búa í Gautaborg ásamt mökum sínum og börnum. í raun þekkti ég Grétu frænku mína ekki mikið, þegar ég var barn, þar sem hún var búsett er- lendis. Þó fannst mér ég ávallt þekkja hana vel, vegna þess hve margt móðir mín hafði sagt mér um bernsku þeirra og unglingsár á Akureyri. Hún sagði okkur systr- unum frá þessum skemmtilegu og úhyggjulausu árum af svo mikilli innlifun, að við urðum sem þátt- takendur í hinum björtu endur- minningum hennar. Móðir mín sagði mér oft frá hinum miklu og fjölbreyttu gáfum systur sinnar. Hún var skarpgreind og gædd góðri tónlistargáfu. Auk þess iðk- aði hún íþróttir og þótti góð sund- kona. Gréta var mjög glæsileg kona og hafði til að bera mikla persónutöfra. Mjög eru mér minnisstæðir maídagar vorið 1946. Þá kom Gréta frænka ásamt manni sínum og börnum hingað í heimsókn. Einnig á ég yndisiegar minningar frá dvöl okkar systranna með móður okkar í Gautaborg sumarið 1949. Gerðu þau Gréta og Per Olof allt til að gera dvöl okkar þar sem ánægjulegasta. Það var þó ekki fyrr en ég var sjálf orðin fullorðin, að ég kynnt- ist frænku minni betur og þeim eiginleika hennar, sem ég met mest, en það var kærleikurinn, sem hún átti í svo óvenju ríkum mæli. Hún vildi öllum gott gera og laðaði fólk að sér með elsku sinni. Naut ég þessa eiginleika hennar ríkulega, er ég var búsett þrjú ár í Kaupmannahöfn með eiginmanni mínum, sem var þar við nám og tveim ungum dætrum okkar. Þó að við Gréta hefðum ekki mörg tækifæri til að hittast, var hin umhyggjusama og góða frænka mín óþreytandi og hringja til okkar og fylgjast með fjölskyld- unni. Á kveðjustund eru mér efstar í huga þakkir til elskulegrar frænku minnar fyrir allt það, sem hún var okkur og allt það góða, sem hún kenndi okkur með lífi sínu. Ég sendi Per Olof, börnum hans og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Þau eiga fagrar minningar um mæta og góða konu. Guð blessi minningu hennar. Sigrún Erla Sigurðardóttir Birting afmælis- og minningar- greina ATHYGLI skal vakin á því, ad afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðst- ætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendi- bréfsformi. Þess skal einnig get- ið, af marggefnu tilefni, að frum- ort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Fæddur 14. desember 1957 Dáinn 9. janúar 1982 Mig langar til að minnast fyrr- verandi nemanda míns, Jóns Óla, hér með nokkrum kveðjuorðum, en hann lést í bílslysi ásamt bróð- ur sínum, Hjálmari, laugardaginn 9. janúar. Þegar fregnir berast af svo hörmulegu slysi stendur mað- ur orðvana frammi fyrir því óréttlæti að ungir menn skuli vera hrifnir burtu í blóma lífsins. Bilið milli lífs og dauða getur verið svo örskammt, það vorum við kennar- ar og nemendur Fiskvinnsluskól- ans minnt hastarlega á, haustið 1977, þegar þrír nemendur þriðja bekkjar lentu í alvarlegu umferð- arslysi á Reykjanesbrautinni, sem kostaði einn þeirra lífið, en hinir slösuðust. Þessi atburður tengdi okkur öll fastari böndum, því fá- mennum bekk er hver einstakling- ur svo mikils virði. Það hefur áreiðanlega engan órað fyrir því haustið 1976, þegar ég hóf kennslu við Fiskvinnslu- skólann og tók þar við fámennum öðrum bekk, að tveir nemendanna ættu eftir að enda líf sitt á hörmu- legan hátt á svo til sama stað. Hann Jón Óli var nemandi í þess- um bekk og þar hófust kynni okkar. Tengslin milli nemenda og kennara í skólanum voru meiri en í flestum öðrum skólum, eins og gengur og gerist í litlum skóla þar sem nemendur eru fáir. Maður kynntist vel persónulegum eigin- leikum hvers og eins. Jón Óli var einn af mínum betri nemendum, hann var vel gefinn og skemmti- legur, fljótur að hugsa og hnittinn í tilsvörum. Öðrum eiginleikum í fari hans kynntist ég betur, þegar ég fór með bekknum hans i tveggja vikna ferðalag um Noreg og til Danmerkur. Þar var sam- stæður og glaðvær hópur á ferð, og kom vel í ljós í þessari ferð hversu skapgóður, einlægur og til- litssamur Jón Óli var. Bekkjar- bræður Jóns Óla, og hann reyndar einnig, áttu til að líta inn hjá mér ef þeir voru á ferð í bænum, og hefur verið mjög ánægjulegt að fá þessar heimsóknir. Nú um jólin kom einn þeirra í heimsókn og barst þá Jón Óli í tal. Ég frétti þá að hann væri búinn að stofna heimili og hamingjan virtist blasa við. Svo voru áramótin varla liðin, þegar hin hörmulegu tíðindi bár- ust. Það er erfitt að skilja og sætta sig við svo hræðilegar frétt- ir. Eigi má sköpum renna. Örlögin hafa gripið í taumana, en eftir lif- ir minningin um góðan dreng. Unnustu Jóns Óla, foreldrum, systkinum og öðrum aðstandend- um votta ég mína dýpstu samúð. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Kveðja frá bekkjarfélögum úr Fisk- vinnsluskólanum Er sú harmfregn spurðist út að tveir ungir menn hefðu látist í umferðarslysi á Keflavíkurvegin- um að kveldi laugardagsins 9. janúar sl., setti mann hljóðan. Enn mannslát á þessum voðalega vegi. Er ég síðan frétti hverjir þessir ungu menn voru, varð ég harmi sleginn. Jón Óli Jónsson, bekkj- arbróðir okkar og félagi, hafði verið kallaður burt yfir móðuna miklu ásamt hálfbróður sinum, Hjálmari Hjálmarssyni. Jón Óli, eins og við kölluðum hann, hóf námjneð okkur í Fisk- vinnsluskólanum í Hafnarfirði, haustið 1975. Árið 1975 var Fisk- vinnsluskólinn aðeins fimm ára gömul menntastofnun, skólastarf- ið var sífelldum breytingum háð og aðstaða til náms oft ekki upp á marga fiska. Hinn ungi skóli virt- ist veltast hálf utanvelta við skólakerfi landins og framtíð hans og tilvera virtist oft hanga á blá- þræði. Ofan á þetta bættist óvissa og kvíði okkar nemenda um það hvað tæki við að námi loknu. Starfsréttindi okkar voru þá á huldu og enginn vissa fyrir því hvort nám okkar hefði einhvern tilgang eða yrði einhvers metið í framtíðinni. Það þurfti því tals- vert áræði og kjark til þess að ganga ótrauður til þessa náms. Samt sem áður var það galvaskur hópur ungra manna sem hóf nám við Fiskvinnsiuskólann haustið 1975. Jón Óli var einn af þeim. Þessi hópur lét ekki bugast þó á móti blési, heldur þvert á moti varð mótlætið til þess að styrkja hann og efla og þjappa honum saman. Oftsinnis reyndi á sam- stöðu og kjark bekkjarins, vegna réttindamála, kennslufyrirkomu- lags og eða annarra brýnna hags- munamála. I þessum málum stóð allur bekkurinn fast saman. Þar stóð Jón Óli í fremstu víglínu, en var jafnframt ómissandi og reynd- ar óþrjótandi við að bæta oft lævi- hlandið andrúmsloftið og halda uppi góðum anda innan hópsins, með sinni alkunnu glettni og kóm- íska húmor. Það var þessi aðdáun- arverði húmor og léttleiki Jóns Óla sem svo oft kom manni í betra og léttara skap sem gerði hann ógleymanlegan öllum sem hann þekktu. Vorið 1978 þegar við útskrifuð- umst, fórum við allur bekkurinn í skoðunar- og skemmtiferð til Nor- egs. Farið var alla leið norður til Tromse og síðan haldið suður eftir með viðkomu í ýmsum fisk- vinnslufyrirtækjum, endað í Osló og síðan farin stutt ferð til Kaup- mannahafnar og síðan heim. í þessari ógleymanlegu ferð nutum við félagarnir þess saman að nú voru þrjú ströng og erfið ár að baki og nú blastið lífið við okkur með öllum sinum lystisemdum. í þessari ferð var Jón Óli hrókur alls fagnaðar eins og svo oft áður. Ekki gat mann órað fyrir því þá að t Móöir mín, GYÐA JÓNSDÓTTIR, Laufásvegi 9, lést að morgni sunnudagsins 24. januar. Matthías Einarsson. t Móðir mín og systir, SIGFRÍDUR SIGURDARDÓTTIR frá Patreksfirði, Torfufelli 29, Reykjavík, lést laugardaginn 23. janúar. Fyrir hönd ættingja. Erla Jennadóttir Wiium, Jóhanna Sigurðardóttir. t andaðist siðar. SIGRÍDUR JONSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, Reykjavík 22. janúar 1982. Jarðarförin veröur auglýst Steinunn Sigurðardóttir, Jón Hjaltason. t Utför MARÍU GUOMUNDSDÓTTUR frá Árnagerði, Fáskrúösfirði, fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 27. janúar nk kl 3. Systrabörn hínnar látnu. t Eiginkona mín og móðir mín, PÁLfNA ármannsdóttir, Blönduhlíð 10, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 28. janúar, kl. 15. Kristján Sigurðsson, Svala Kristjánsdóttir. t Maöurinn minn, faðir okkar og tengdafaöir, AGNAR NORDFJÖRD, Kjartansgötu 6, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 28. janúar, kl. 10.30. Ingibjörg Noröfjörð, • Sverrir Norðfjörð, Alena Anderlova, Kristín Norðfjörö, Þorvaldur Búason, Ingibjörg Nanna Noröfjörö, Agnar Óttar Norðfjörð. t Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinsemd viö andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa, ÞÓRS SKAFTASONAR, yfirvélstjóra, Blönduhlíö 11, Rvk. Sérstakar þakkir til Eimskipafélags Islands Guð blessi ykkur öll Hulda Helgadóttir, Guörún K. Þórsdóttir, Páll Þorsteinsson, Hildigunnur Þórsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.