Morgunblaðið - 26.01.1982, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982
33
smáauglýsingar — smáauglýslngar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Víxlar og skuldabréf
í umboössölu
Fyrirgreiösluskrifstofan, Vestur-
götu 17, sími 16233, Þorleifur
Guömundsson, heima 12469.
Hilmar Foss
Löggiltur skjalaþýöandi.
231 Latym, er Court, LONDON
V6 7 LB simi 01-748-4497.
Framtalsaðstoð
Upplýsingar í símum 16012 og
29019.
Leiðarvisir,
Hafnarstræti 11, 3. hæö.
Skattframtöl 1982
Tek aö mér gerö skattframtala
fyrir einstaklinga og rekstraraö-
ila, husbyggingarskýrslur og
frágang launaseöla.
Gissur V. Kristjánsson hdl.
Reykjavikurvegi 62, Hf., sími
52963.
Skattskýrslur
Aöstoöum einstaklinga viö gerö
skattframtala, húsbygginga-
skýrslur og fl. Upplýsingar og
tímapantanir í síma 72525 til kl.
21.00 alla daga.
Egill G. Jónsson, Bókhaldsstofa,
Ármúla 11.
Innflytjendur
Get tekiö aö mér aö leysa út
vörur. Umsóknir sendist auglýs-
ingad Mbl. merkt: „T — 8252".
Framtalsaðstoð
Upplýsingar i simum 16012 og
29018.
Leiðarvísir,
Hafnarstræti 11, 3 hæö.
• félagslif }
A A....Á...A AÍ\—..4 J
IOOF Rb. 1 = 1311268VÍ — E.I.
□ Helgafell 59822617 — IV/V
□ Hamar 59821267 — 1
□ Edda 59821267 = 7.
Til sölu
Vatnsrör tomma, galv-
aniseruö, stór kæliskápur til
breytinga í frystiskáp. Ný Ijós-
prentunarvél af eldri gerö og
járn í 150 fm hús. Selst ódýrt.
Uppl. í síma 92-6519.
Skemmtikvöld
Skemmtikvöld veröur föstudag
29. janúar ’82 kl. 21.30 aö Lauf-
ásvegi 41. Mætum öll og spilum
félagsvist, siöan hressum viö
okkur á kaffi.
AD
Fundur í kvöld aö Amtmanns-
stíg 2b kl. 20.30.
Frá sólarupprás til sólarlags.
Kvöldvaka i umsjá Elísabetar
Magnúsdóttur og fl. Kaffi.
Allar konur velkomnar.
Fíladelfiía
Almennur bibliulestur i kvöld kl.
20.30.
Ræöumaöur Einar J. Gislason.
Kvenfélag
Langholtssóknar
boöar til aöalfundar, þriöjudag-
inn 2. febúar kl. 20.30.
Venjuleg aöalfundarstörf. Kaffi-
veitingar.
Stjórnin.
Námskeið
sem hefjast í febrúar:
Vefnaöur fyrir börn, 8. febr.
Þjóöbúningasaumur. telpnabún-
ingar, 8. febr.
Bótasaumur 9. febr.
Hnýtingar, 11. febr.
Þjóðbúningasaumur, kvenbún-
ingar, kennsla fer fram alla virka
daga, 19.-27. febr. Utanbæjar-
fólk hefur forgang aö þessu
námskeiði.
Innritun og upplýsingar aö Lauf-
ásvegi 2, sími 17800.
raðauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
tilkynningar
Verkamannafélagið Hlíf,
Hafnarfirði
Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaðarráös
félagsins um stjórn og aðra trúnaðarmenn
Hlífar fyrir árið 1982, liggja frammi frá og
með þriðjudeginum 26. janúar, öðrum tillög-
um ber að skila fyrir kl. 17.00, föstudaginn
29. janúar 1982, á skrifstofu Hlífar, Reykja-
víkurvegi 64 og er þá framboðsfrestur út-
runninn.
Kjörstjórn verkamannafélagsins Hlífar
Húsbyggjendur
Getum boöiö eldhús og baöinnréttingar auk svefnherbergisskápa
meö sérlega hagstæöum magnafslætti tll afhendingar á tímabtlinu
marz—júli 1982 sé pantað fyrir 1. febrúar nk.
Innréttingaval hf.,
Sundaborg, (inng. frá Kleppsvogi).
Símar 84333 — 84660
Spilakvöld
Félag sjálfstæöismanna i Hliöa- og Holtahverfi heldur spilakvöld í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, fimmtudaginn 28. janúar kl. 20.30. Góö
spilaverölaun. Kaffiveitingar. Húsiö opnar kl. 20.00.
iV6 Stjórnin
,nut;!
Málfundarfélagið Óðinn
heldur félagsfund fimmtudaginn 28. janúar
1982 kl. 20.30 í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Fundarefni:
Davið Oddsson borgarfulltrúi ræöir um borg-
armálefni.
Félagar fjölmenniö.
Stjórnin.
Sauðárkrókur — prófkjör
Athygli skal vakin á því a framboösfrestur í prófkjöri sjálfstæöisfélag-
anna á Sauöórkróki vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor, rennur út
kl. 20, fimmtudaginn 28. janúar 1982.
Kjörnefnd
Stofnfundur
nemendasambands Verkalýösskólans veröur haldin þriöjudaginn 26.
janúar kl. 20.30 i Valhöll, Háaleitisbraut 1. Allir fyrrum nemendur
verkalýðsskólans velkomnir.
Undirbúningsnefnd.
Kópavogur — Spilakvöld
— Kópavogur
Sjálfstæöisfélag Kópavogs auglýsir: Okkar vinsælu spilakvöld halda
áfram þriöjudaginn 26. janúar kl. 21.00 i Sjálfstæóishúsinu. Allir vel-
komnir. Glæsileg verölaun. Kaffiveitingar.
Stjórn Sjálfstæóisfelags Kópavogs.
Stjórnmálaskóli
Sjálfstæðisflokksins
Stjórnmálaskóli Sjálfstæöisflokksins veröur starfræktur dagana
15.—27. febrúar nk.
Skólinn veröur aö þessu sinni kvöld- og helgarskóli. Skólahald fer
fram í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Innritun nemenda fer fram í sima 82900 á venjulegum skrifstofutíma.
Skólanefnd.
Aöalfundur Heimis félags ungra sjálfstæöismanna
í Keflavík
veröur haldinn laugardaginn 6. febr. kl. 14.00.
Dagskrá: 1. Venjulega aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Hafnarfjörður
Stefnir, félag ungra sjálfstæöismanna, efnir til almenns félagsfundar í
Sjálfstæöishúsinu, Hafnarfiröi, þriöjudaginn 26. janúar kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Kosningaundirbúningur
2. Umræöur hvort hafa beri prófkjör eöa uppstillingu á lista flokksins
í komandi bæjarstjórnarkosningum.
3. Forval fulltrúa félagsins í kjörnefnd.
Félagsmenn mætiö stundvíslega.
Stjórnin
Dalvík:
Skíðafélagið fær
snjótroðara
Dalvík, II. janúar.
Á UNDANFÖRNUM árum hefur
Skíðafélag Dalvíkur unnið mikið
uppbyggingarstarf fyrir skíðaiðkun
almennings á Dalvík. Hefur félagið
staðið að uppsetningu á tveimur
skíðalyftum í Böggvisstaðafjalli ofan
Dalvíkur, T-lyftu og spjaldalyftu,
ásamt allri annarri aðstöðu. Hafa fé-
lagar í Skíðafélaginu unnið þetta
verk í sjálfboðavinnu og aflað fjár til
framkvæmda.
Hefur félagið á undanförnum
árum fengið nokkurn fjárstyrk frá
baejarfélaginu til þessara fram-
kvæmda ásamt framlagi úr
íþróttasjóði ríkisins. Nú síðustu 2
ár hefur skíðafélagið haft mann í
hálfu starfi til umsjónar með
skíðalyftum og skíðakennslu.
Skíðafélagsmenn láta ekki deig-
an síga því á laugardaginn 9. jan.
sl. kom til llalvíkur snjótroðari.
sem félagið hefur fest kaup á.
Snjótroðarinn er af gerðinni
I^itner H250 og er það fyrirtækið
Istraktor sem flytur tækið inn.
Tækið er ítalskt og kostar hingað
komið um kr. 500.000,00.
Haustið 1979 fór félagið fram á
að Dalvíkurbær veitti ábyrgð á
erlendu láni til kaupa á snjótroð-
ara. Sá bæjarstjórn sér ekki fært
að verða við beiðni Skíðafélagsins
þá en nú í sumar var það sam-
þykkt í bæjarstórn að veita um-
beðna bæjarábyrgð á erlendum
lánum og jafnframt að greiða 40%
af verði troðarans. íþróttasjóður
greiðir 40% en Skíðafélagið greið-
ir 20% kostnaðar.
Fullvíst er að tæki þetta verður
til að bæta mjög alla aðstöðu til
skíðaiðkunar á Dalvík en auk þess
verður það liður í öryggismálum
Snjótroðarinn kominn til Dalvíkur
m.a. með tilliti til vegarins um
Ólafsfjarðarmúla. Hefði tæki sem
þetta getað komið að miklum not-
um í fyrravetur þegar vegur til
Akyreyrar var lokaður um langan
tíma og engum var fært nema ýt-
um og snjóbílum.
Það var mikið ánægjuefni fyrir
Skíðafélagið þegar það eignaðist
sinn fyrsta íslandsmeistara á
skíðum á meistaramótinu á Siglu-
firði sl. vor. Þá sigraði Daníel
Hilmarsson í stórsvigi karla
ásamt því að verða þrefaldur ungl-
ingameistari í fyrra, í svigi, stór-
svigi og alpatvíkeppni. Binnig var
ánægjuleg frammistaða barna á
Andrésar Andar-leikunum um
sumarmál og má segja að Dalvík-
ingar séu farnir að láta að sér
kveða á skíðamótum. En þó sigrar
séu sætir er þó ánægjulegust hin
almenna þátttaka Dalvíkinga á
skíðum. Hefur Skíðafélagið staðið
fyrir skíðakennslu svo og hefur fé-
lagið lagt göngubrautir fyrir þá
sem vilja frekar fara á gönguskíð-
um en að renna sér í brekkum
Böggvisstaðafj alls.
Formaður Skíðafélags Dalvíkur
er Þorsteinn Skaftason.
Fréttarharar.
Akranesskaupstaður
fertugur í dag
í DAG verður þess minnst á Akra-
nesi, að 40 ár eru liðin síðan Akra-
nes varð kaupstaður. Lögin um
kaupstaðaréttindi Akraness miðast
að vísu við 1. janúar 1942, en Skaga-
menn sjálfir miða við 26. janúar.
Ástæðan er sú, að 25. janúar 1942
fóru fram bæjarstjórnarkosningar,
en daginn eftir, hinn 26. janúar, kom
hin nýkjörna bæjarstjórn saman til
fyrsta bæjarstjórnarfundar á Akra-
nesi og við þann athurð er miðað.
Bæjarstjórnarfundur verður á
Akranesi í dag klukkan 18, þar
sem afmælisins verður minnst, en
síðan hefst almenn samkoma eða
kvöldvaka í Bíóhöllinni klukkan 21
í kvöld.
Á kvöldvökunni mun forseti
bæjarstjórnar, Valdimar Indriða-
son, flytja ávarp, Lúðrasveit
Akraness leikur, Kirkjukórinn
syngur nokkur lög, sagðir verða
þættir úr sögu Akraness, og loks
verður sýnd kvikmynd frá Akra-
nesi sem tekin var árið 1947, af
Sören Sörensen.
íbúar Akraness eru nú um 5.300
talsins, en voru árið 1942, fyrir 40
“árúfii, úrAT.800. ”**"**’ ^ * * *'