Morgunblaðið - 26.01.1982, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 26.01.1982, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982 47 Krá afhendingu gjalarinnar. Frá vinstri: Börkur Árnason, Gestur Árnason, Jónína Árnadóttir, Árni Gestsson, Asta Jónsdóttir, en þau eru öll í stjórn Glohus hf., og Valur Valsson, formaóur stjórnar styrktarsjóðsins, sem veitti gjöfinni viðtöku. I.josm.: KM Globus gaf Styrktarsjóði Landakots 100 þús. HINN 11. þ.m. afhenti Arni Gests- son, forstjóri Globus hf., Styrktap sjóði St. Jósefsspítala, Landakoti, kr. 100.000,- að gjöf. Fór afhendingin fram við hátíð- lega athöfn að viðstaddri stjórn Globus hf. og stjórnendum St. Jós- efsspítala. Sagði Árni Gestsson að gjöfin væri gefin af því tilefni, að 35 ár væru liðin frá stofnun Glob- us hf. og að fyrirtækið hefur í 25 ár verið í eigu núverandi eigenda. I gjafabréfi segir ennfremur: „Gjöfin er færð Styrktarsjóðn- um til minningar um foreldra Árna Gestssonar, hjónin Gest Fannkoma, skafrenningur og ófærð í Mývatnssveit komist. Ærin leit mjög vel út, enda ágaetir hagar í eyjunni. Mývetningar héldu þorra- blót í Skjólbrekku sl. laugar- dagskvöld. Mikið fjölmenni var og komu sumir langt að. Vel var tekið til matar og drykkjar. Margt var til skemmtunar, sumt heimagert og síðast dansað fram eftir nóttu. Það var kvenfélag sveit- arinnar sem hafði allan veg af þessu blóti og vanda, nú sem fyrr. Má segja, að konunum hafi farist þetta vel, og sam- dóma álit allra viðstaddra að þeir hafi skemmt sér prýði- iega. — Kristján Myvatnssvoil, 2.'». januar. HÉR (iEKK yfir austanhvass- viðri í nótt og morgun, með fannkomu og skafrenningi, en heldur hefur þó verið vægara veður síðdegis. Víða hefur sett í skafla. Ekkert hefur verið reynt að opna vegi út úr sveitinni í dag- Hér innsveitis er færð farin að þyngjast. Margir áttu í erf- iðleikum með að komast til vinnu í morgun, og kennsla féll niður í skólum fyrir há- degi. I gær fannst ær úr Aðaldal í eyju í Mývatni, það er Sviðins- ey. Ekki er vitað hveraig eða hvenær hún hefur þangað Árnason, prentara (1882—1967), og Ragnheiði Egilsdóttur (1884—1972) í þeirri von, að þessi viðleitni okkar megi verða sjúkra- húsinu og sjúklingum til heilla og blessunar." Valur Valsson, formaður stjórn- ar Styrktarsjóðsins, veitti gjöfinni viðtöku og færði fyrirtækinu þakkir fyrir hina höfðinglegu gjöf. Hann skýrði frá því, að Styrkt- arsjóður St. Jósefsspítala hefði verið stofnaður árið 1979. Hann hefur það hlutverk að styrkja hvers konar starfsemi á St. Jós- efsspítala og bæta aðstöðu sjúkl- inga og starfsfólks með því að leggja fé til tækjakaupa fyrir spít- alann, til heimsókna erlendra vís- indamanna og til námsferða starfsmanna spítalans. Tekjur eru eingöngu gjafir. 'O INNLENT Pétur Eiríksson, forstjóri Álafoss hf.: Við stefnum að halla- lausum rekstri í ár en miðum þá við, að stjórnvöld geri okkur ekki fleiri grikki eins og síðasta ári „ENDANLEGAR tölur um uppgjör liggja ekki fyrir ennþá, en það er Ijóst, að nokkur halli verður af rekslri fyrirtækisins á síðasta ári,“ sagði Pétur Eiríksson, forstjóri Álafoss hf., í samtali við Mbl. — f svari sínu vegna fyrirspurnar á Alþingi í lok október sl. sagði l'étur, að reikna mætti með 2 3 milljón króna tapi á rekstri fyrirtækisins á árinu. Þessi halli yrðu fjármagnaður með því, að skerða eigið fé fyrirtækisins. — Frá minum sjónarhóli er útlitið á nýbyrjuðu ári ekkert of gott. Við stefnum hins vegar að hallalausum rekstri á árinu. Við munum hiklaust skera niður kostnaðarliði ef það reynist nauðsynlegt. Ef okkur á að takast að koma út réttum megin við strikið á árinu, er forsendan sú, að stjórnvöld geri okkur ekki fleiri grikki eins og á síðasta ári í sambandi við gengismálin og fleira. Ég reikna með í mínum rekstraráætlunum að Evrópu- gjaldmiðlar styrkist eitthvað gagnvart dollarnum. Pétur Eiríksson sagði að- spurður, að hann reiknaði með, að framleiðsluaukning fyrir- tækisins á yfirstandandi ári yrði eitthvað í námunda við 10%. Sömuleiðis gerði hann ráð fyrir, að auka útflutning fyrir- tækisins um 5—10% í magni talið, en útflutningurinn vegur um 70% í rekstri fyrirtækisins. — Ef okkur tekst að auka út- flutninginn um 5—10% er ég mjög ánægður, miðað við það efnahagsástand, sem nú ríkir í heiminum, sagði Pétur Eiríks- son ennfremur. Þá kom það fram hjá Pétri, að hjá fyrirtæk- inu starfa nú liðlega 300 manns. Fallþungi dilka á Grænlandi Athugasemd vegna ummæla Sighvats Björgvinssonar Eífir Stefan Sc/i. T/iorsteinsson í umræðum um landnýtingar- áætlun í Sameinuðu þingi, sem skýrt er frá í Morgunblaðinu föstudaginn 22. þ.m., kemur fram að Sighvatur Björgvinsson, al- þingismaður, hefur gert saman- burð á afurðum sauðfjár á Græn- landi og Islandi. Hann getur þess að meðalfallþungi dilka á Græn- landi sé um 22 kg og að hver ær gefi af sér 1,6 lömb til jafnaðar. Samsvarandi afurðir á íslandi segir hann vera 14,0 kg og 1,3 lömb. Þennan afurðamismun not- ar hann svo til að sýna fram á að minni afurðir á Islandi stafi af ofbeit og rányrkju landsins. Hvað- an Sighvatur Björgvinsson hefur fengið upplýsingar sínar um með- alfallþunga lamba og frjósemi áa á Grænlandi veit ég ekki, en þar sem þessar tölur eru svo langt frá sannleikanum að engu tali tekur, þá get ég ekki látið hjá líða að leiðrétta þær. Ég tel mig þess um- kominn, þar sem ég hef undanfar- in fimm ár verið Grænlendingum til ráðuneytis um sauðfjárrækt og því kynnst sauðfjárrækt þeirra allnáið. Hin konunglega grænlenska verslun, KGH, sem rekur eina sláturhúsið í Grænlandi, kaupir allt fé til slátrunar á fæti. Þar er slátrað um % hlutum fjárins, en 'A hluta er slátrað heima og selt af bændum sjálfum. Samkvæmt tölum frá sláturhúsi KGH er með- alþungi sláturlamba á fæti síð- astliðin 15 ár (1965—1979) um 36,0 kg með 2,2 kg meðalárasveiflu. Miðað við 41,5% kjöthlutfall er meðalfallþungi þessara ára um 15 kg. Frá 1975 hafa átt sér síað um- talsverðar framfarir í sauðfjár- rækt á Grænlandi, einkum vegna bættrar fóðrunar. Meðalþungi lamba á fæti frá 1975—1979 er því nokkru hærri en á árunum þar fyrir eða um 38,0 kg sem mundi gefa af sér tæplega 16 kg fall. Varðandi frjósemi grænlenska fjárins, þá er ekki vitað með vissu hver hún raunverulega er, en ráðunautur Grænlendinga hefur sagt mér að hún muni vera um 1,0 lamb á á til jafnaðar. Af framangreindu má því ljóst vera að meðalfall dilka og meðal- frjósemi áa á Grænlandi er hvergi nærri því sem Sighvatur Björg- vinsson vill vera láta og notar til samanburðar við afurðir íslenska fjárins. Þess ber þó að geta að til er a.m.k. eitt fjárbú af u.þ.b. 83 þar sem ær skila afurðum á borð við það sem þingmaðurinn telur meðalafurðir á Grænlandi, en það er tilraunastöðin í Upernaviarsuk við Julianeháb. Þar hefur meðal- fallþungi dilka leikið frá 20—22 kg sl. 5 ár og frjósemi ánna frá 1,5—1,7 lömb á á til jafnaðar. Þessar afurðatölur sýna að Grænland er vel fallið til sauð- fjárræktar þegar góð vetrarfóðrun og unihirða fjárins fylgjast að við afbragðs sumarhaga. Um afurðir íslenska fjárins ræði ég ekki enda þótt tölur Sighvats séu þar líka brenglaðar, þar sem tilgangur minn var ekki að metast um hvort lömb væru þyngri á Grí*nlar . eða íslandi, heldur lt iðr. ita blekkjandi samanburð. Stefán Sch. Thorsteinsson búljárfræðingur Rannsókna stofnunar landbúnaðarins /■ Fallþungi lamba á Is- landi og á Grænlandi Eftir Svein Hallgrímsson I blaði þínu föstudaginn 22. þessa mánaðar var sagt frá um- ræðum á Alþingi um landnýting- aráætlun. Þar kom fram að fall- þungi dilka á Grænlandi væri 22,0 kg en 13—14,0 kg á íslandi. Sömu- leiðis kom þar fram, að á Græn- landi kæmi 1,6 lömb eftir hverja á, en 1,3 lömb hér á landi. Af þessu tilefni vil ég koma eft- irfarandi upplýsingum á fram- færi: Island (ira-nlaml Fjtfldi áa I9H»—Kl BK.r» þús. 20 þús. I.omlnim slálraö haustió lOMIOIó þús. 21 þús. Kallþunui im ó nvrmör I i,.l ki; 14.7 láimhum slálraó cTlir \«*lrarfnöraóa a |,,14 1,05 Kjöl oflir vcirarfóóraóa á 10,0 hn 15,5 ku Tekið skal fram til að fyrir- b.vggja misskilning, að upplýs- ingar um fallþunga og fjölda slát- urfjár á Grænlandi voru fengnar símleiðis í dag hjá Lasse Bjerge, starfsmanni á Sauðfjártilrauna- stöðinni Upernaviarssuk við Juli- aneháb á Grænlandi. Þær eru í samræmi við upplýsingar, er fyrir lágu frá fyrri árum. Lasse Bjerge sagði, að lífþungi sláturlamba hefði verið 35 kg haustið 1981, og að kjötprósenta væri 42. 35,0 kg lifandi þungi gefur 14,7 kg fall- þunga niiðað við 42% kjöt. I grein eftir Soren S. Nilausen í Dansk fáreavl (tímarit danskra fjár- bænda) nr. 5 1981 segir, að kjöt- prósenta sé ca. 45. Sé miðað við 45% kjöt gefur 35 kg þungi lifandi 15,75 kg fallþunga. I sömu grein er sýnt línurit yfir lifandi þunga lamba á Grænlandi frá 1965 til 1979. Þar kemur fram, að lífþungi lamba hefur sveiflast frá 33 kg (1972) upp í rúm 40 kg (1977—1979). Þetta gefur fall- þunga frá 13,9 upp í 17,0 sé miðað við 42% kjöt. Sé hins vegar miðað við 45% kjöt, eins og segir í grein Nilausen, gefur þetta fallþunga frá 14,9 upp í 18,2 kg. Fjöldi sláturlamba fa Græn- landi haustið 1981 var 14.000. Lasse Bjerge áætlaði að auk þess væri slátrað heima um 7.000 lömb- um, samtals um 21.000 lömb. Á Islandi var slátrað tæplega 895.000 dilkum þetta haust. Aætl- að er að um 20.000 dilkum hafi verið slátrað heima, eða af sam- tals hafi verið slátrað um 915.000 dilkum á íslandi haustið 1981. Hér er ekki, hvorki á Grænlandi né íslandi, tekið tillit til þeirra lamba sem sett eru á til viðhalds stofninum. Upplýsingar um fallþunga og fjölda sláturlamba á íslandi eru frá Framleiðsluráði landbúnaðar- ins og fjöldi vetrarfóðraðra áa er úr forðagæsluskýrslum. Samkvæmt upplýsingum Lasse Bjerge eru föll á Grænlandi vegin með nýrmör, en á íslandi án nýrmörs. Talið er að bæta megi við fallþungann 5% vegna þessa. Fallþungi á Íslandi haustið 1981 er samkvæmt skýrslum Framleiðslu- ráðs 13,65 kg. Sé bætt við hann 5% vegna nýrmörs verður hann 14,33 kg- Keykjavík, 22.1. 1981. Sveinn Hallgrím.sson, sauðfjárra'ktarráðunautur Búnaðarfélags íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.