Morgunblaðið - 26.01.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982
Sjómt'nn á stóru tofíurunum í Reykjavík og Hafnarfirði:
Hafa verið í verk-
falli í tæpan mánuð
- Aðilar boðaðir á fund með sáttanefnd í dag
SÁTTANEFNDIN hefur boðað samninganefnd útgerðarmanna um kjör sjó-
manna á stóru (ogurunum til fundar klukkan 13.30 á morgun í húsi sátta-
semjara ríkisins. Klukkan 15.30 er si
fulltrúa sjómanna á stóru togurunum
hafa verið í verkfalli síðan um áramót
Mjög hefur verið rætt um, að
fækkun í áhöfn stóru togaranna
úr 24 í 18 gæti bætt úr launakjör-
um sjómanna á þessum skipum til
frambúðar. Fjöldi skipverja er þó
bundinn í lögum og reglugerðum
og er því ólíklegt, að fækkunin
komi til nú og leysi yfirstandandi
deilu. Viðmælendur blaðsins töldu
líklegt, að nefnd yrði sett á lagg-
irnar til að ræða þessi mál og
myndi hún þá skila af sér innan
þriggja mánaða.
Helztu kröfur sjómanna eru við-
víkjandi fjölgun frídaga og hækk-
un launa eftir starfsaldri. Guð-
mundur Hallvarðsson, formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur og
samninganefndar sjómanna um
kjör á stóru togurunum, sagði í
gær, að það væri undrunarefni, að
útgerðarmenn skyldu ekki vera til
viðræðu um hækkun launa sam-
kvæmt starfsaldri.
„Flestir aðrir starfshópar í
þessu þjóðfélagi hækka í launum
eftir ákveðinn tíma í starfi, en hjá
iðan boðaður fundur sáltanefndar og
frá Reykjavík og Mafnarfirði, en þeir
eða í tæpan mánuð.
sjómönnum á stóru togurunum er
ekki um neitt slíkt að ræða. Mað-
ur, sem aldrei hefur migið í saltan
sjó, fær sömu laun í sínum fyrsta
túr og sjómaður, sem í 10—20 ár
hefur verið á slíku skipi og befur
aflað sér reynslu og þekkingar.
Þetta þætti skrýtið annars staðar
og í raun skiljum við ekki óbilgirni
útgerðarmanna hvað þessa kröfu
okkar varðar,“ sagði Guðmundur
Hallvarðsson.
Guðmundur Hallvarðsson benti
á útreikninga Sjómannasambands
Islands um samanburð á launum
háseta á stóru togurunum fyrstu
átta mánuði síðasta árs, 11.400
krónur á mánuði miðað við 318
klukkustunda vinnu eða 12
klukkustundir á dag í 26‘/í dag. A
sama tíma voru laun verkamanna
á höfuðborgarsvæðinu 9.950 krón-
ur á mánuði fyrir 218,8 klukku-
stundir í fiskvinnu og 11.200 krón-
ur fyrir 235 vinnustundir í hafnar-
vinnu á mánuði.
Prófkjör sjálfstæóismanna á Seltjarnarnesi:
Sigurgeir Sigurðs-
son í efsta sæti
SIGURGEIR Sigurðsson bæjarstjóri
lenti í fyrsta sæti í prófkjöri full-
trúaráós Sjálfstæðisflokksins á
Seltjarnarnesi um val frambjóðenda
á lista Dokksins við bæjarstjórnar-
kosningarnar í maí nk. Alls greiddu
868 atkvæði, gildir seðlar voru 840
og enginn auður. Samkvæmt próf-
kjörsreglum er kosningin hindandi í
Annars urðu úrslit þessi:
sjö efstu sætin þar sem viðkomend-
ur fengu meira en 50 prósent at-
kvæða.
Kosningarétt í prófkjörinu
höfðu allir stuðningsmenn D-list-
ans á Seltjarnarnesi sem kosn-
ingarétt hafa í bænum, svo og
flokksbundnir félagsmenn sjálf-
stæðisfélaganna 16—19 ára.
1. sx-li falk\. i I. s.Tli)
2. sæii < aik\. í 1.4-2. s.)
■I. sa-li falkv. í I.
1. sæli falkv. í I.
.». sæli (alkv. í I.
l>. sæii (alkv. i I.
7. sæti faikv. í I.
N. sa-ii falkv. í I.
O. sæli (alkv. í I.
10. sæii (alkv. í I.
s.)
-<>. s.)
7. H.)
V s.)
s.)
10. s.)
Siifurjíeir Sijjurósson bæjarsij.
Majjnús Krlendsson fulllrúi
Júlíus Solnes prófessor
(.uömar Majjnú.vson verslunarm.
\sj»eir S. Ásjjeirsson kaupm.
Jón (•unnlaujjsson læknir
\slauj; (.. Ilaróard. húsmódir
Krna \k'kra húsmodir
Krisiin Krióhjarnardóliir fél.m.fulllr.
Jónalan (iuójónsson vélvirkjam.
'l.'Oi alkv. 7U/YÍ, af jjildum alkv.
.i.'t.S alkv. af jjildum alkv.
•'UN alkv. H4,7% af jjildum alkv.
'170 alkv. 72.1% af jjildum alkv.
•401 alkv. .}9,:i% af jjildum alkv.
.450 atkv. .>N,."/i' af jjildum atkv.
42(> alkv. af jjildum alkv.
Í.->0 alkv. 4.7,.'»% af jjildum alkv.
.Jöfi atkv. 44,0^ af jjildum atkv.
2N4 atkv. :t.Í,N'i, af jjildum alkv.
Á kjörskrá voru 2072. í samtali
við Mbl. sagði Gísli Ólafsson,
formaður kjörnefndar, að þeir
væru ánægðir með þessa þátttöku,
en hún var svipuð og 1978 og sagði
Gísli, að hann teldi vilja kjósenda
hafa komið vel fram í þessum
kosningum.
Prófkjör framsóknarmanna í Reykjavík:
Vantaði 50 atkvæði
við nánari athugun
Gerður lenti í 2. sæti en Jósteinn í 3.
í G/EKDAG þegar öll kjörgögn í prófkjöri Framsóknarflokk.sins í Reykjavík voru
yfirfarin áður en þau voru send (il uppsúllingarnefndar, kom í Ijós, að vantaði 50
atkva-ði svo tölur stemmdu í fyrsta og öðru sæti. Við nánari athugun kom í Ijós að
um upplestursskekkju var að ra-ða þar sem lesin var upp talan 24 í stað 74. Breytir
það röð framhjóðenda þannig að í stað þess að Jósteinn Kristjánsson lendi í öðru
sa-ti, eins og sagl hafði verið í fréttum, lendir hann í þriðja sæti en Gerður
Sleinþórsdóllir, sem áður var í þriðja sæti, verður í öðru.
Sagði Gestur Jónsson, formaður
kjörnefndar, að hlutir sem þessir
gætu alltaf gerst. Kjörnefnd lauk
störfum kl. tvö um nóttina og voru
þá kjörseðlarnir settir í kassa og
hann innsiglaður. Ekki var nokkur
möguleiki á að hindra að úrslitin
bærust út, þar sem talið var fyrir
opnu húsi, áður en þau voru yfirfar-
in daginn eftir. Sagði Gestur, að ekki
hefðu borist neinar kærur vegna
þessa eða athugasemdir.
Úrslit í prófkjöri Framsóknar-
flokksins í Reykjavík urðu því þau,
að Kristján Benediktsson hlaut 498
atkvæði í fyrsta sæti, en samtais
942. Gerður Steinþórsdóttir fékk í 1.
til 2. sæti 387 atkvæði en 700 at-
kvæði alls og lenti í öðru sæti en
Jósteinn Kristjánsson hlaut 406 at:
kvæði í 1. til 3. sæti en 494 alls. í
fjórða sæti lenti Sigrún Magnúsdótt-
ir með 433 atkvæði í 1. til 4. sæti,
fjórða sæti hreppti Sveinn G. Jóns-
son með 504 atkvæði í 1. til 5. sæti, í
fimmta sæti lenti Auður Þórhalls-
dóttir með 557 atkvæði og Valdimar
K. Jónsson lenti í sjöunda sæti með
529 atkvæði. Aðrir frambjóðendur
hlutu færri atkvæði.
Kosningarétt höfðu þeir sem voru
16 ára og eldri og flokksbundnir
framsóknarmenn. Menn gátu skráð
sig í flokkinn áður en kjörstað var
lokað. Ekki er enn vitað hvað margir
þeir voru en að sögn Gísla Tómas-
sonar er giskað á að þeir hafi verið
um 500. Kosning var ekki bindandi í
neinu tilvika þar sem enginn fram-
bjóðenda hlaut yfir 50% atkvæða.
— Sjá viðtöl á bls. 46.
Mjög auóvelt er að fara inn í slönguna, það er bara að taka af sér skóna,
halda þeim yfir höfðinu og láta sig síga niður.
Kjó.smynd Mbl. ÓI.K.M.
Björgunarbúnaðurinn í notkun.
Menn síga 17 metra niður frá
þakbrún í slöngunni með eins til
tveggja metra hraða á sekúndu.
Einn er nýkominn niður og annar
er ofarlega í slöngunni.
I.josmvnd Mbl. OI.K.M.
„Alíka bylting og þegar gúmmíbjörg-
unarbátarnir voru teknir í notkun“
- Samvinnutryggingar taka nýjan brunabjörgunarbúnað í notkun
„ÞETTA NÝJA björgunartæki veldur að mínu mati álíka mikilli byltingu
og þegar gúmmíbjörgunarbátarnir voru teknir í notkun af íslenzka flotan-
um. Það getur flutt fólk ofan af hæstu húsum á augnabliki á algjörlega
hættulausan hátt,“ sagði Héðinn Emilsson hjá Samvinnutryggingum í
samtali við Morgunhlaðið í tilefni þess að Samvinnutryggingar hafa tekið
í notkun nýtt björgunartæki vegna hugsanlegra eldsvoða.
Sagði Héðinn að í kjölfar
endurbóta á húsi Samvinnu-
trygginga við Ármúla 3, hefði
þessi björgunarbúnaður verið
settur upp. Hann væri kallaður
„Rauði haninn" og upprunninn
frá Japan. Þetta væri fyrsti
búnaður sinnar tegundar hér á
landi, erf nú væru í notkun um
62.000 slíkir víða um heim og
framleiðendur teldu sig hafa
fuilvissu fyrir því að þegar hefði
um 400 manns verið bjargað með
þessum björgunarbúnaði. Þessi
búnaður væri eins konar fiber-
hólkur eða slanga, sem næði frá .
þakbrún hússins og niður á jörð.
Sérstakur búnaður væri á þak-
brúninni, sem gerði það alveg
hættulaust fyrir fólk að fara inn
í slönguna og það sígi síðan
niður á jörð með um það bil 1 til
2 metra hraða á sekúndu. Slang-
an væri það þröng að hún drægi
úr fallhraðanum, menn færu úr
skóm og héldu þeim yfir höfði
sér og gætu þá stjórnað hraðan-
um með því að spenna handlegg-
ina út i slönguna. Niðri væri svo
eins konar dýna, sem fólk kæmi
niður á. Þessi búnaður þyldi
einnig 1.200 gráðu hita í 20 mín-
útur og væri það nægur timi til
að koma fjölda fólks niður, því
hægt væri að fara viðstöðulaust
í slönguna. Því væri ekki um það
að ræða að fara þyrfti niður
stiga, kaðla eða stökkva niður í
útbreitt segl. Þá væri hægur
vandi að koma ungbörnum, löm-
uðum og fötluðum niður í slöng-
unni og því væru kostir þessa
útbúnaðar augljósir og ætti
hann að vera í hverju háhýsi. Þá
tæki ekki nema um 20 sekúndur
að setja búnaðinn upp, hann
væri einfaldur, auðveldur í notk-
un og ódýr, kostaði aðeins um
40.000 krónur.
Miklar breytingar í rekstri
matsölustaða í Reykjavík
TALSVERDAR sviptingar hafa átt sér stað í rekstri matsölustaða í höfuð-
borginni að undanfömu, eða munu eiga sér stað á næstunni. Snerta þessar
breytingar matsölustaðina Hlíðarenda, Tommahamborgara, Borgarann,
Vesturslóð, Matstofu Austurbæjar og rekstur Asks í Reykjavík.
Eigendaskipti hafa orðið á veit-
ingahúsinu Hlíðarenda. Þeir
Haukur Hermannsson og Ólafur
Reynisson hafa selt fyrirtækið
þeim Úlfari Eysteinssyni, mat-
reiðslumanni í Laugarási, Sigurði
Sumarliðasyni matreiðslumanni
hjá Flugleiðum í Keflavík, og
Tómasi Tómassyni, sem á Tomma-
hamborgara. Tómas sagði í sam-
tali við blaðamann Morgunblaðs
Spurt og
svarað um
skattamál
MORGI NBI.ADID mun veita
lesendum sínum þá þjónustu í
sambandi við skattaframtöl að
þessu sinni að leita eftir svörum
og upplýsingum við spurningum
lesenda um skattamál. Hefst
þessi þjónusta mánudaginn 25.
janúar nk.
Eru lesendur hvattir til að
notfæra sér þessa þjónustu og
hringja í síma 10100 kl. 13-15
virka daga þar til framtals-
frestur er útrunninn. Verða
spurningar teknar niður og
svara síðan aflað við þeim.
Nauðsynlegt er að nafn og
heimilisfang fyrirspyrjanda
fylgi með.
ins í gærkvöldi, að hann væri þó
aðeins mjög lítill hluthafi á móti
þeim Úlfari og Sigurði, sem væru
aðaleigendur. Ekki sagði hann
ákveðið hvað staðurinn myndi
heita, en fyrri eigendur halda
Hlíðarendanafninu. Tómas sagði
ákveðið að staðurinn opnaði á ný
eftir breytingar um miðjan mars,
og þá sem salatbar án vínveitinga,
þar sem salat og súpa fylgdu öll-
um réttum, en slíkir staðir eru al-
gengir í Bandaríkjunum og víðar.
Þá hafa Tómas og Ásgeir Hann-
es Eiríksson, sem rekur pylsu-
vagninn í Austurstræti, nýlega
keypt Borgarann við Lækjartorg.
Þar verður í byrjun febrúar
opnaður hamborgarastaður undir
nafninu Tommahamborgarar,
mjög svipaður matsölustaðnum
við Grensásveg, að sögn Tómasar í
gærkveldi.
Af öðrum breytingum má nefna
að Birgir Viðar Halídórsson, sem
rekur heilsuræktarstöðina Apollo,
hefur keypt bæði Matstofu Aust-
urbæjar og veitingahúsið Vestur-
slóð.
Enn má nefna að þær breyt-
ingar hafa nú orðið á Aski, að
Haukur Hjaltason hefur selt hlut
sinn í fyrirtækinu, en Pétur
Sveinbjarnarson verður einn aðal-
eigandi fyrirtækisins. Loks má svo
minna á að veitingahúsið og
skemmtistaðurinn Broadway sel-
ur gestum einnig mat, og þar rúm-
ast fleiri matargestir en á nokkr-
um hinna eiginlegu matsölustaða.
Ólafur Reynisson, annar þeirra
er nýlega seldi Hlíðarenda, sagði í
samtali við Mbl. í gær, að markað-
urinn sé yfirfullur, og enn eigi þar
eftir að þrengjast. Frá því staður-
inn hafi opnað hafi sex matsölu-
staðir bæst við í Reykjavík, auk
Broadway, sem taki jafnmarga í
mat um helgar eins og fimm til
sex aðrir staðir til samans. Á
sama tíma og stöðum hafi fjölgað,
hafi kaupgeta fólks minnkað, og
eigi trúlega enn eftir að minnka.
Að öllu þessu athuguðu hafi verið
ákveðið að hætta, en rekstur Hlíð-
arenda verður óbreyttur út febrú-
armánuð.
Sjálfstæðisflokkurinn:
Enginn fundur
í þingflokki á
fimmtudag
„ÉG GET staðfest það, að það var
ekki haldinn fundur í þingflokki
sjálfstæðismanna á fimmtudag-
inn,“ sagði Ólafur G. Einarsson,
formaður þingflokks sjálfstæð-
ismanna, í samtali við Mbl. í gær,
vegna fréttar í Alþýðublaðinu á
laugardaginn. „Albert Guð-
mundsson verður ekki krafinn
sagna um gjörðir sínar í borgar-
málum, eða framboðsmál sín á
þingflokksfundum, og það hefur
ekki verið gert,“ bætti Ólafur G.
Einarsson við.