Morgunblaðið - 26.01.1982, Page 19

Morgunblaðið - 26.01.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982 19 Chirac kosinn flokksleiðtogi Toulouse, 25. janúar. AP. BORGARSTJÓRl Parísar, Jacques Chirac, var kosinn leiðtogi aðalstjórnar andstöðuflokksins í Frakklandi, RPR, í gær, sunnudag, einni vikur eftir yfirburdasigur flokksins í aukakosningum. Chirac hlaut 99,1% greiddra atkvæða á þingi 2.000 nokksfulltrúa í Toulouse um helgina. Hann var einn í kjöri. Kosningin treystir stöðu hans sem aðal- mótherja Francois Mitterrand forseta. Þetta er í þriðja sinn sem Chirac er kjörinn leiðtogi RPR. Hann var einnig einn í kjöri í fyrri kosningunum. Chirac sagði af sér sem leiðtogi RPR í febrúar í fyrra til að einbeita sér að forsetakosningunum, en fékk ekki nógu mörg atkvæði til að geta keppt við Mitterrand og lýsti yfir dræmum stuðningi við Giscard d’Estaing. Hann hefur gert harða hríð að Mitterrand-stjórninni fyrir stefnu hennar í Póllandsmálinu. „Sósíalistar hafa gert mikið veð- Jacques Chirac ur út af Póllandi, en í rauninni hafa þeir ekki hreyft legg né lið,“ sagði hann á þingi RPR. Chirac sagði að stjórnin ætti að grípa til efnahagslegra refsiað- gerða gegn Rússum. Hann gagn- rýndi einnig 25 ára samning, sem Frakkar gerðu við Rússa á laugar- daginn um kaup á jarðgasi frá Síb- eríu. Þetta er fyrsti meiriháttar samningur vestræns ríkis og Rússa síðan herlög voru sett í Póllandi. Chirac sagði einnig á þingi RPR að hægri öflin yrðu að reyna að ná til fleiri franskra kjósenda. „Ef við viljum sigra sósíalista verðum við að fá verkamennina, unga fólkið og konur í raðir okkar," sagði hann. Flokkur Chiracs sigraði í þremur kjördæmum af fjórum þar sem aukakosningar fóru fram fyrir viku, en fjórði sigurvegarinn var úr flokki Giscard d’Estaings, UDF. Sigur íhaldsmanna var óvæntur, þar sem sósíalistar höfðu unnið þrjú hinna fjögurra þingsæta í kosningunum í júní í fyrra. Auka- kosningarnar voru fyrsti próf- steinninn á vinsældir sósíalista eft- ir kosningasigur þeirra í fyrra. Neyðarástand í kjarnorkuveri New Vorh, 25. jan. Al’. NEYÐARÁSTANDI var lýst yfir í dag, mánudag, í Ginna-kjarnorkuverinu í Ontario, New York-ríki, eftir að bilun varð í leiðslu í kælikerfi þess og geislavirk efni fóru út í andrúmsloftið. Kjarnorkuverinu var lokað. Það er 29 km norðvestur af Rochester. „Almenningur er í engri hættu eins og stendur," sagði talsmaður Roch- ester gas- og rafmagnsfyrirtækis- ins, sem rekur kjarnorkuverið. Algeru neyðarástandi var ekki lýst yfir, heldur svokölluðu „neyðar- ástandi á staðnum", öðrum mesta viðbúnaði sem gripið er til. Fyrst var lýst yfir „óvenjulegum atburði“, síðan „viðbúnaði“ og loks „neyðar- ástandi á staðnum", einni klukku- stundu eftir að lekans varð vart. Slökkvilið á þessum slóðum var sett í viðbragðsstöðu, en brottflutn- ingur var ekki fyrirskipaður. Um 45.000 manns búa í innan við 16 km fjarlægð frá kjarnorkuverinu. Roch- ester er þriðja fjölmennasta borg New York-ríkis. Neyðaræfing fór fram í verinu í síðustu viku. DC-10 þota World Airways er hafnaði í höfninni í Boston eftir að renna fram af flugbraut 33 á Logan-flugvelli. Flugstjórnarklefinn hefur brotnað af og marar í kafi, en inn um gatið má sjá fremstu sætaraðir í farþegarými breiðþotunnar. DC-10 þotur eru þannig gerðar úr garði að trjónan brotnar af í brotlendingu. símamtnd ap. Flugslysið f Boston: Enginn alvarleg slys á fólk- inu, sem öslaði sjáift í land Koslon, 25. janúar. Al’. , j vi DC IO-FARÞEGAIKÍT V frá flugfé- laginu World Airways með 208 manns innanborðs rann út af brautarenda og lenti í höfninni í Boston aðfaranótt laugardagsins. Slysið átti sér stað eftir að flugvél- in hafði lent á Logan-flugvellinum, en mikil þoka var og nokkur rign- ing auk þess sem flugvöllurinn var ísilagður. Kngin alvarleg slys urðu á fólki og þykir það mikilli furðu gegna. „Flugvélin bara einfaldlega rann út af brautinni," sagði einn starfsmanna vallarins, sem varð vitni að slysinu. „Þegar ég komst á vettvang voru farþegarnir þeg- ar teknir að vaða í land.“ Þegar vélin lenti í sjónum brotnaði flugstjórnarklefinn af skrokkn- um og við það lentu flugmenn- irnir í ísköldu vatninu. Öllum tókst þeim þó að komast í land og flestir farþeganna fóru út um neyðarrennu aftast á vélinni og ösluðu þaðan upp á þurrt. Aðeins afturendi vélarinnar stendur upp úr sjónum. „Guð hefur vissulega verið með okkur,“ sagði einn farþeg- anna, kona, sem hélt á litlu barni sínu í fanginu. A.m.k. 33 farþeganna voru fluttir í sjúkra- hús til rannsóknar, einkum vegna eymsla í baki, en allir fengu þeir að fara þaðan fljót- lega. HRÓÐUG — Gleðin skín úr and- liti Kathryn Floriea er hún faðmar dóttur sína Devon að sér skömmu eftir að þær björguðust úr flaki DC-10 þotu World Airways sem rann fram af flugbraut á Logan- fiugvelli í Boston á laugardag og hafnaði Út í sjó. Símamynd AP. Dr. Kissinger varar NATO >ið upplausn \Va.shington, 25. janúar. Al*. I)R. HENRY KISSINGER, fyrrum utanríkisráðherra, gaf í skyn í gær að Atlantshafsbandalagið gæti smám saman leyst upp, nema því aðeins að það gæti sýnt meiri einingu í meðhöndlun hættumála í heiminum. Dr. Kissinger sagði að það mótaði ekki einu sinni fyrir samkomulagi innan bandalagsins um sambúð austurs og vesturs, Mið-Ameríku, Afríku og Miðausturlanda. „Hve lengi getur þetta haldið áfram?“ spurði Kissing- er. „Við látum reka á reiðanum, höldum reglulega fundi, ítrekum einingu fyrir siðasakir, breiðum yfir ágreining og býst við að þannig geti þetta haldið áfram í mörg ár, en Hann sagði þetta á fundi „Nefnd- ar hins frjálsa heirns", samtaka sem beita sér fyrir íhaldssamri utanríkisstefnu. Dr. Kissinger sagði að megin- málið, sem bandalagið stæði frammi fyrir, væri „hve mikla ein- ingu við viljum og hve mikið sund- urlyndi við þolum. Einhver tak- mörk hljóta að vera fyrir einhliða ákvörðunum þátttakendanna á kostnað nauðsynjar sameiginlegra aðgerða". „Ef þessi takmörk verða til þess, sem ég hef kallað samstöðu hinna óttaslegnu, ef þau leiða til lömunar og aðgerðarleysis, þá mun bandar l4íið"lcysast npp, að'-þafr mun ég ekki að eilífu. ekki skipta máli í flestum þeim málum sem upp koma.“ Kissinger taldi einn hugsanlegan kost að Bandaríkjastjórn gerði til- lögu um úttekt á bandalaginu með það fyrir augum að endurskil- greina markmið þess. Dr. Kissinger gagnrýndi ekki Reagan-stjórnina, þótt hann ylli uppnámi í síðustu viku með birt- ingu tveggja greina, þar sem hann átaldi viðbrögð bandaríkjastjórnar við setningu herlaga í Póllandi. Aðspurður hvort Bandaríkin ættu í vændum langt hnignunar- skeið sagði hann: „Eg held að ef einhver kæmi til þessa heims frá annarri reikistjörnu og athugaði keppinautanna dytti þeim ekki í hug að spyrja þyrfti slíkrar spurn- ingar. I Sovétríkjunum horfum við upp á heimsveldi, sem er greinilega í hnignun. Ef við getum staðið sam- an í 10 til 15 ár er ég i engum vafa um að Sovétríkin verða þá orðin hinn sjúki maður Evrópu og að á 21. öld muni koma upp allt öðru vísi árekstrar og deilumál." Kissinger ítrekaði einnig and- stöðu sína við lagningu jarðgas- leiðslunnar frá Spvétríkjunum til Vestur-Evrópu. „Ég held að gas- leiðslan muni gera Vesturveldin háðari pólitískum þrýstingi en þau eru nú,“ sagði hann. „Atburðirnir í auðtíhdti' o&’ fYan’itíðáfhórftih PðnaftðrhafS SfaðféSf þáð.' Kóm, 25. janúar. Al*. BLADI í Róm barst í dag, mánudag, fréttatilkynning frá Rauðu herdeild- unum um ránið á bandaríska hers- höfðingjanum James L. Dozier og með fylgdi Ijósmynd af horshöfðingj- anum, skeggjuðum. Þetta var fimmta fréttatilkynn- ingin frá Rauðu herdeildunum síð- an hershöfðingjanum var rænt í Verona 17. desember. Einn ritstjóra Rómarblaðsins „II Giornale d’Italia” sagði að blaðamaður hefði fundið tilkynn- inguna í ruslakörfu þegar maður nokkur, sem hringdi í blaðið án þess að láta nafns síns getið, hafði sagt hvar fréttatilkynninguna Tilkynning um Dozier væri að finna. Lögreglan kom strax á vettvang og tók fréttatil- kynninguna og ljósmyndina í sína vörzlu. Ritstjórinn sagði að í skjalinu væru hvorki settar fram kröfur né ééitfáV * úþþlýsíngá? ' 'um ‘ áfdrif Doziers. í því voru aðeins hug- sjónafræðileg slagorð, sagði hann. En fulltrúi lögreglunnar sagði að ljósmyndin, sem hann kvað sýna Dozier með „sítt og þykkt“ skegg, benti til þess að hershöfð- "ingfnn væ'rí'enn’á 1 ffÍ. ’

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.