Morgunblaðið - 26.01.1982, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982
Iþróttasamband Islands 70 ára 1912—1982
íþróttasamband íslands á 70 ára afmæli um þessar
mundir. í tilefni afmælisins veröur efnt til hátíðarsýn-
íngar í Þjóöleikhúsinu næstkomandi laugardag kl. 14.00.
ÍSI eru nú stærstu félagasamtök í landinu meö 76.599
íþróttaiðkendur. ÍSÍ hefur vaxið og dafnaö með ólíkind-
um á síöustu árum og hér má sjá á tölum hversu starfið
hefur vaxið frá því sambandiö varð fimmtugt árið 1962.
Árið 1962 voru innan ÍSÍ 7 sérsambönd, 26 héraðssam-
bönd og 232 félög með 16.211 íþróttaiðkendur. Nú eru
innan ÍSÍ 17 sérsambönd, 27 héraðssambönd og 282
félög með 76.599 íþróttaiökendur, þannig að aukning
íþróttaiðkenda á þessu tímabili er 377,51%.
Hér á eftir verður getíð nokkurra atriöa um upphaf og
skipulagningu ÍSÍ.
• Framkvæmdastjórn ÍSÍ ásamt framkvæmdastjóra
og skrifstofustjóra
Frá vinstri: Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóri, Jón Ármann Héðinsson medstjórnandi, Hannes Þ. Sigurðs-
son varaforseti, Sveinn Björnsson forseti, l*órður Þorkelsson gjaldkeri, Alfreð Þorsteinsson ritari, Björn Vilmundar
son skrifstofustjóri.
Stofnun íþrótta-
samhands Islands
Fimmtud. 18. janúar 1912 boðaði
Sigurjón l'étursson frá Áiafossi
ásamt Axel V. Tulinius f.v. sýslu-
manni og Guðmundi Björnssyni
landlækni stjórnir allra (9) íþróttafé-
laga í Reykjavík til fundar í Báru-
búð.
Á þeim fundi var kosin undirbún-
ingsnefnd til að athuga lagauppkast
og tillögur Sigurjóns 1‘éturssonar
um stofnun íþróttasambands.
Stofnfundur íþróttasambands ís-
lands var síðan haldinn í Bárubúð
sunnudaginn 28. janúar 1912.
Þar mættu fulltrúar frá 7
íþróttafélögum í Reykjavík;
Glímufélaginu Ármanni, Iþrótta-
félaginu Kára, íþróttafélagi
Reykjavíkur, Ungmennafélagi
Reykjavíkur, Ungmennafélaginu
Iðunni, Knattspyrnufélagi
Reykjavíkur og Knattspyrnufélag-
inu Fram.
P'yrir stofnfundinn lágu tilmæli
frá 5 félögum öðrum en þeim sem
hér eru áður talin, um stofnaðild
að sambandinu en þessi félög
voru: Skautafélag Reykjavíkur og
Sundfélagið Grettir í Reykjavík og
3 Akureyrarfélög, íþróttafélagið
Grettir, Glímufélagið Héðinn og
Ungmennafélag Akureyrar. Þann-
ig voru stofnaðilar að íþróttasam-
bandinu 12 íþróttafélög.
Á stofnfundinum voru sam-
þykkt bráðabirgðalög fyrir sam-
bandið og kosin stjórn. Forseti var
kosinn Axel V. Tulinius fyrrver-
andi sýslumaður, en aðrir í stjórn
voru dr. Björn Bjarnason, Guð-
rnundur Björnsson, Björn Jak-
obsson og Halldór Hansen.
Svo sem áður segir var Axel V.
Tulinius fyrsti forseti ISI, var
hann það frá 1912—1926. Þá tók
við af honum Benedikt G. Wáge
1926—1962, síðan Gísli Halldórs-
son 1962—1980 og frá 1980 hefur
Sveinn Björnsson skipað sæti for-
seta ÍSÍ.
Verndarar ÍSÍ
í mörgu var reynt að fara að
dæmi Íþróttasambandanna á
Norðurlöndum, en m.a. var það
hefð hjá þeim, að þjóðhöfðingjar
landanna væru verndarar íþrótta-
sambandanna. Var því snemma á
árum ÍSÍ leitað eftir því að þjóð-
höfðingi Íslands, þá Kristján X
konungur íslands og Danmerkur
gerðist verndari ÍSí og árið 1919
varð hann verndari þess til sam-
handsslitanna við Danmörku 1944.
Árið 1948 varð Sveinn Björnsson,
forséti Íslands, verndari ÍSÍ og
var það þar til hann féll frá 1952.
Þá varð forseti íslands, Ásgeir
Ásgeirsson, verndari ÍSÍ til ársins
1968 en 1969 tók þáverandi forseti
íslands, dr. Kristján Eldjárn að
sér að vera verndari ÍSÍ. Núver-
andi verndari ÍSÍ er Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands.
Heiðursforsetar ÍSÍ
Á íþróttaþingi ÍSí 1962 var
Benedikt G. Wáge kosinn heið-
ursforseti íþróttasambands ís-
lands. Hann lést 8. nóv. 1966. Nú-
verandi heiðursforseti ÍSÍ er Gísli
Halldórsson, var hann kjörinn
heiðursforseti á íþróttaþingi ÍSÍ
1980.
Erindrekstur
Þýðingarmikill þáttur í starfi
ISI er og var erindrekstur. Strax á
frumbýlisárunum fóru erindrekar
ÍSÍ um landið og heimsóttu félög-
in og voru fyrstir í þessum hópi
Jón Þorsteinsson, íþróttakennari
og Sigurður Greipsson, Haukadal.
Síðan komu ýmsir þjóðkunnir
íþróttaforystumenn. Þá hefur
framkvæmdastórn ISI og fram-
kvæmdastjóri mætt á ársþingum
héraðs- og sérsambanda.
Skipuiag ÍSÍ
íþróttalögin, sem Alþingi sam-
þykkti 1940 ákváðu veigamikla
breytingu á hinni frjálsu íþrótt-
astarfsemi í landinu. Þar segir
m.a. að íþróttasamband íslands sé
æðsti aðiii um frjálsa íþrótta-
starfsemi áhugamanna í landinu
og að öll opinber íþróttakeppni
skuli fara fram skv. reglum sem
ÍSÍ setur svo og að landinu skuli
skipta í íþróttahéruð eftir legu og
aðstöðu til samvinnu um íþrótta-
iðkanir.
Sem afleiðing af íþróttalögun-
um gerðist það, að fjöldi íþróttafé-
laga og héraðssambanda gekk í
ÍSI og verulegar breytingar voru
gerðar á lögum ISI árið 1943.
Skipulagsmálum þessum var síðan
framhaldið með lagabreytingum
1946 og 1949. Síðan hefur lögum
ÍSÍ ekki verið breytt í verulegum
atriðum. Það er nú fastbundið
þannig að ÍSí er samtök allra
þeirra félaga og félagasamtaka er
iðka íþróttir, landfræðilega skipt
niður í héraðssambönd sem eru 27
talsins og eftir íþróttagreinum í
sérsambönd sem nú eru 17.
Æðsta vald samtakanna er í
höndum íþróttaþinga, er koma
saman annað hvert ár.
Milli íþróttaþinga kemur sam-
bandstjórn ÍSÍ saman til fundar
en framkvæmdastjórn ÍSÍ, skipuð
fimm mönnum fer með fram-
kvæmdavaldið. Æðsta dómsvald
er í höndum íþróttadómstóls, en í
héruðum hjá héraðsdómstólum og
sérráðsdómstólum og einnig eru
sérstakir dómstólar sem starfa í
sérsamböndunum. Fjöldi nefnda
starfar einnig innan ÍSÍ og skulu
hér nokkrar nefndar.
Fræðslunefnd, er annast
fræðslumál og útgáfu á reglugerð-
um og fræðsluritum, unglinga:
nefnd er sér um æskulýðsmál svo
og heilbrigðisnefnd er sér um heil-
brigðismál og heilsugæslu.
Trimmnefnd, er sér um undirbún-
ing að áróðri og skipulagi til auk-
ningar íþrótta fyrir alla svo og
kvennanefnd er vinnur að auknu
starfi kvenna í íþróttum og félags-
málum. Þá er starfandi afreks-
mannasjóður ÍSÍ og gerir stjórn
hans tillögur til framkvæmda-
stjórnar um styrki til sérsam-
banda vegna afreksíþrótta.
Fjármálin
Frá öndverðu hefur fjárskortur
staðið auknu íþróttastarfi í land-
inu fyrir þrifum. Hefur því eitt af
meginverkefnum ÍSÍ verið að
bæta fjárhag sambandsins og
sambandsaðila. Nokkuð hefur þó
raknað úr þessu á síðustu árum,
bæði vegna aukinna fjárframlaga
frá ríkisvaldinu og eigin fjáröflun-
arleiða íþróttasambandsins. Fyrst
með landshappdrætti og síðan
með starfi Getrauna. Þrátt fyrir
það er fjarri því að nóg sé að gert,
því enn er fjárskortur stærsti
þröskuldurinn á vegi íþróttahreyf-
ingarinnar til eðlilegs vaxtar og
starfs.
íþróttamiðstöðvar ÍSÍ
Árið 1964 var tekin í notkun
íþróttamiðstöðin í Laugardal í
Reykjavík, sem ISI hafði, í sam-
vinnu við ÍBR, látið byggja og síð-
an stækkuð í samvinnu við ÍBR og
KSÍ 1973.
í þessum húsakynnum hefur ÍSÍ
nú aðsetur sitt ásamt flestum sér-
samböndunum og ÍBR. Skrifstofa
ÍSÍ annast mikil og margvísleg
þjónustustörf fyrir sérsamböndin
og aðra sambandsaðila ÍSÍ.
Nú er áformað að stækka veru-
lega íþróttamiðstöðina með 3ja
hæða byggingu er rúmi gijtiað-
stöðu og aðstöðu til smærri fund-
arhalda, kennslu o.fl.
1967 eignaðist ÍSÍ 'A hluta í
heimavistarálmu íþróttakennara-
skólans að Laugarvatni og rétt til
afnota af eignarhluta íþrótta-
kennaraskólans og íþróttamann-
virkjum hans þann árstíma er
skólinn starfar ekki. 10. júlí 1969
var þar hafinn rekstur sumar-
íþróttamiðstöðvar ISI, sem síðan
hefur verið rekin á hverju sumri
með góðum árangri, þangað sem
íþróttafélög, héraðssambönd
ásamt sérsamböndum hafa sent
flokka til þjálfunar og sumarbúða.
Þá má geta þess í þessu sambandi,
að ÍSÍ hefur ávallt styrkt með
fjárframlögum sumarbúðarekstur
félaga og héraðssambanda víðs-
vegar um landið.
Íþróttahátíð ÍSÍ
Á íþróttaþingi 1966 var sam-
þykkt að ÍSI skyldi efna til alls-
herjarmóts eða íþróttahátíðar á
10 ára fresti og þá fyrst 1970.
Sú íþróttahátíð fór fram og var
langstærsta íþróttamót, sem hald-
ið hafði verið til þess tíma á ís-
landi. Var það vetraríþróttahátíð
á Akureyri og sumaríþróttahátíð í
Reykjavík, með samanlagt 5.000
þátttakendum.
1980 var svo íþróttahátíð ÍSÍ,
önnur í röðinni haldin á Akureyri
fyrir vetraríþróttir og í Reykjavík
fyrir sumaríþróttir.
Þessi íþróttahátíð tókst enn bet-
ur en sú fyrri og tóku um 20.000
manns þátt í henni, beint og
óbeint.
Megin tilgangurinn með
íþróttahátíðunum tveimur var að
vekja, og auka áhuga þjóðarinnar
á íþróttum og sýna hvers íþrótta-
hreyfingin væri megnug og hvaða
afl stæði að baki henni og verður
að álykta að hvortveggja hafi tek-
ist.
íþróttir fyrir
alla — „Trimm“
Árið 1%8 hóf íþróttasambandið
mikla áróðursherferð fyrir íþrótt-
um fyrir alla, svonefnt „Trimm",
og hefur sú herferð staðið síðan og
skilað umtalsverðum árangri í
aukinni iðkun íþrótta, einkum
sundi og skíðaiðkunum.
Ákveðið var að á afmælisárinu
1982 yrði gert sérstakt átak til
framgangs íþrótta fyrir alla —
Trimm —.
Dagskrá
Hátíðarsýningar í
Þjóðleikhúsinu
30. janúar 1982 kl. 14.00.
í tilefni 70 ára
afmælis ÍSÍ.
1. Upphaf: Stúlkur frá Fim-
leikafél. Björk, Hafnarfirði.
Stjórnandi: Inga ívarsdóttir.
Ræða: Forseti ÍSÍ, Sveinn
Björnsson.
2. Bændaglíman: Kvæði Gríms
Thomsen.
Glímumenn í Glímufél. Ár-
manni, Knattspyrnufél.
Reykjavíkur og Umf. Vík-
verja glíma.
Þulur: Rúrik Haraldsson.
Þorsteinn Einarsson æfði og
bjó til flutnings.
3. Aðdragandi að stofnun ÍSÍ:
Gils Guðmundsson f.v. al-
þingismaður og rithöfundur.
4. Nemendur íþróttakennara-
skóla íslands: Stúlkur sýna
leikfimiæfingar, sem Björn
Jakobsson lét stúlknaflokk
Umf. Iðunnar, Reykjavík,
sýna á Melavelii í Reykjavik
1911. Stjórnandi Mínerva
Jónsdóttir.
5. Ræða: Dr. Gunnar Thor-
oddsen, forsætisráðherra.
6. Fimleikafél. Björk, Hafnar-
firði: „Fonsur" — yngsti
flokkur — leikfimi. Stjórn-
andi: Anna Kristín Jóhanns-
dóttir. Knattspyrnufél.
Reykjavíkur: leikfimi — 2
stúlkur. Stjórnandi: Sigríður
Jakobsdóttir. Konur úr
Garðabæ: „Grikkjalaust
gaman". Stjórnandi: Ijovísa
Einarsdóttir. íþróttafél.
Fylkir, Reykjavík: „Jass“-
leikfimi. Stjórnandi: Jónina
Karlsdóttir. íþróttafél.
Gerpla, Kópavogi og Fim-
leikafél. Björk, Hafnarf: 3
stúlkur, jafnvægisæfingar á
slá.
7. Þjóðdansafélag Reykjavíkur:
íslenskir þjóðdansar. Stjórn-
andi: Kolfinna Sigurvinsdótt-
ir.
8. Karlakór Reykjavíkur:
Stjórnandi: Páll Panpichler
Pálsson.
9. Upplestur: Óskar Halldórs-
son, lektor.
10. íþróttafél. Gerpla, Kópavogi:
Dýnustökk. Stjórnandi: Ás-
laug Dis Ásgeirsdóttir. Leik-
fimi við hljómlist. Frjálsar
gólfæfingar. Stjórnandi:
Kristín Gísladóttir.
11. Judó: Félagar úr Júdósam-
bandi ísl. sýna, stjórnandi:
Eysteinn Þorvaldsson.
12. Glímufél. Ármann, Reykja-
vík: Drengir, staðæfingar og
stökk. Stjórnandi: Guðni Sig-
fússon. Leikfimi við hljóm-
list. Stjórnendur: Björk
Ólafsdóttir og Vilborg Niels-
en. Frjálsar gólfæfingar,
Davíð Ingason.
13. Gamanmál: Ómar Ragnars-
son, fréttamaður.
14. Skólanemendur Garðabæjar:
„Árstíðirnar". Stjórnendur.
Elín Birna Guðmundsdóttir
qg Oddgerður Oddgeirsdóttir.
íþróttafélag Reykjavíkur:
Yngsti fl. stúlkna, lejkfimi
við hljómlist. Stjórnandi:
Gunnhildur Úlfarsd. Fim-
leikafél. Björk, Hafnarf.:
Dýnustökk, stúlkur. Stjórn-
endur: Sigurður T. Sigurðs-
son og Karóiína Valtýsdóttir.
15. Lokaatriði: íþróttafél.
Gerpla, leikfimiæfingar við
hljómlist. Stjórnandi Berg-
lind Pétursdóttir.
16..Ávarp: Hannes Þ. Sigurðs-
son, varaforseti ÍSÍ.
Kvatt — Uppröðun íþrótta-
fólks.
Áöur en hátíðarsýningin
hefst, í hléi og við lok sýningar
leikur Lúðrasveit Reykjavíkur.
Stjórnandi: Björn R. Einarsson.