Morgunblaðið - 26.01.1982, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 26.01.1982, Qupperneq 28
2 8 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982 3. deildarliöiö sigraði Brighton Watford hélt sínu striki - bikarhafarnir enn með í slagnum • Garry Birtles skoraði þriðja mark Man. l)td. r.ins og venjulega bauð enska bik- arkeppnin upp á slatta af verulega óva'ntum úrslitum. Af nokkrum leikjum er svo sem að taka, en at- hyglisverðasti sigurinn var kannski sá hjá 3. deildarliði Oxford, sem sótti Brii'hton heim, en Hrif'hton er sem kunnugt í efri hluta I. deildar. Kr skemmst frá að segja, að I. deild artröllin áttu aldrei möguleika og sérstaklega stóð Oxford sig vel í fyrri hálfleik, en BBC taldi liðið hreinlega hafa haft mikla yfirburði. Keith ( assels skoraði fyrsta markið með miklu þrumuskoti á 20. mínútu. I'remur mínútum fyrir leikhlé kom annar firnafastur þrumufleyj'ur, að þessu sinni frá l’eter Koley, sem bætti svo þriðja markinu við með skalla snemma í síðari hálfleik. Brit'hton sótti mikið lokakaflann, en gestirnir héldu gestgjöfum sínum bara át'a’tlej'a í skefjum. Drslit leikja urðu annars sem hér segir: Bikark. 3. umferð: Carlisle — Huddersfield 2—3 Bikark. 4. umferð: Bristol City — Aston Villa 0—1 Brighton — Oxford 0—3 Blackpool — QI’R 0—0 Chelsea — Wrexhapt 0—0 Cr. Palace — Bolton 1—0 Gillint'ham — WBA 0—1 Luton — Ipswich 0—3 Man. City — Coventry 1—3 Newcastle — Grimsby 1—2 Norwich — Doncaster 2—1 Sunderland — Liverpool 0—3 Shrewsbury — Burnley 1—0 Hereford — Leicester 0—1 Tottenham — Leeds 1—0 Watford — West Ham 2—0 1. deild: Nott. Forest — N. County 0—2 Southampton — Arsenal 3—1 Stoke — Man. Utd. 0—3 Wolverhampton — Everton 0—3 2. deild: Blackburn — Rotherham 2—0 Charlton — Cambridge 0—0 Derby — Oldham 1—0 Orient — Rarnsley 1—3 1. DEILD IpsWH-h 1X 12 2 4 35 23 :IH S«»uthamplon 21 II 4 a 39 30 37 Manrhi*sK»r t nilfd 20 10 6 4 32 16 36 ManrhcsKr Oty 2) 10 5 a 30 23 35 Kverlon 22 9 <» 7 32 27 33 Swansea 21 10 3 H 31 33 33 Notlinjjham Foresl 20 9 5 6 25 26 32 Ltverp<H)l 10 H f» 5 29 20 30 Brighlon 20 7 9 4 25 19 30 Arxenai IH 9 .1 fi 17 15 30 Tottenham Hotspurl7 9 2 f* 26 19 29 Wesl llam IH 6 H 4 33 26 26 Wesl Bromwk-h IH 6 f» 6 2.1 19 24 Notls County 19 6 5 H 27 31 23 lx»eds I nited 19 0 5 H 20 32 23 Aston Villa 20 5 7 H 23 24 22 < oventry 2) 6 4 II 31 36 22 Stoke Cily 21 G 3 12 24 33 21 Wolverhampton 20 5 4 II 13 30 19 Birmindham IH 4 a H 26 2H IH Sunderland 19 3 r> 11 16 33 14 Middlesbrough IH 2 a 10 16 30 12 2. DEILD Lulon Town 20 14 3 3 44 20 45 < >ldham 24 II H 5 34 25 41 Walford 20 10 5 5 31 24 35 Blarkburn Kovers 24 9 H 7 29 24 35 QPK 21 10 4 7 2H 20 34 Sbeffield Wed. 20 10 4 6 26 25 34 Barnsiey 20 10 3 7 33 22 33 < ’helsea 21 9 6 6 30 29 33 < harlton Athlelir 24 H 7 9 30 33 31 Norwíeb < ity 21 H 4 9 24 30 2H Neweastle I niteri 19 H 3 H 26 21 27 Leieesler < ily 19 6 H 5 25 20 26 Derby < 'ounty 20 7 4 9 26 33 25 < ardiff < ily 20 7 3 10 22 30 24 Orieal 22 7 3 12 20 29 24 < rvsial 1‘alare IH 7 2 9 15 16 23 Shrewsbury IM 6 5 7 19 24 23 l’ambridge 19 7 1 11 25 29 22 Koiherham 19 6 3 10 25 29 21 Boitnn Wanderers2l 6 3 12 19 31 21 Wrevham 19 5 4 10 21 27 19 < .rimshy 17 4 5 H IH 20 17 Watford við sama heygaröshorniö 2. deildarlið Watford gerir það ekki endasleppt. í gegn um árin hefur liðið slegið út fleiri 1. deild- arliö heldur en tölu verður á kom- ið og í 3. umferðinni sigraði liðið Manchester Utd. örugglega á heimavellinum. Liðið tók á móti öðrum frægum 1. deildarmótherja á lauKardaginn, West Ham, og sigraði Watford enn örugglega. Watford sótti mjög í fyrri hálf- leik, fékk góð færi, en tókst ekki að skora. A 46. mínútu kom loks markið langþráða, en þó ekki fyrr en að Phil Parkes í marki WH hafði orðið á slæm mistök er hann missti frá sér háa fyrirgjöf. Gerry Armstrong var til staðar til að refsa Parkes. Enn sótti Watford og á 73. mínútu bættist heldur betur við uppskeruna, er hinn 19 ára gamli Nigel Gallaghan skoraði annað markið með laglegri hæl- spyrnu. West Ham lék betur í síð- ari hálfleiknum en þeim fyrri þrátt fyrir mörkin, en liðinu tókst ekki að skora úr nokkrum góðum færum og sigur Watford var afar sanngjarn. Bikarhafarnir enn með Tottenham er enn með í slagn- um, en Leeds lék af festu og þeir Tottenham-menn fengu að hafa ærlega fyrir hlutunum á laugar- • Kric Gates - tvö mörk gegn Lut- on. daginn. Heimaliðið sótti meira, en vörn Leeds var afar föst fyrir og liðið náði auk þess nokkrum eitr- uðum skyndisóknum. Það var síð- an ekki fyrr en á 72. mínútu, að Tottenham tókst að brjóta ísinn. Mick Hazzard hafði komið inn á sem varamaður fimm mínútum áður en hann átti allan heiðurinn af markinu sem Garth Crookes skoraði og reyndist vera sigur- markið. Aörir leikir: Ken Daiglish var Sunderland- mönnum erfiður á Roker Park, en eftir 20 mínútna leik var hann nánast búinn að gera út um leik- inn með tveimur stórgóðum mörk- um. Sunderland náði sér aldrei á strik eftir þessa byrjun Liverpool, sem bætti þriðja markinu við í síðari hálfleik, en Ian Rush var þá á ferðinni með 13. mark sitt á þessu keppnistímabili. Dagurinn varð leikmönnum Manchester City ekki til sannrar gleði. Coventry kom í heimsókn, ekki eitt af betri útivallarliðum ensku knattspyrnunnar, en engu að síður gersigraði Coventry heimaliðið. Það fór í skapið á sum- um og Asa Hartford var rekinn af leikvelli. Steve Hunt, Mark Hately og Peter Bodak skoruðu mörk Cov- entry, en Kevin Bond svaraði fyrir Man. City með marki úr víta- spyrnu. Margir bjuggust við því að Lut- on myndi veita Ipswich mikla keppni og harða, enda lang efsta lið 2. deildar. En núverandi foringi 1. deildarinnar reyndist 2. deild- arliðinu erfiður. Að vísu sótti Lut- on framan af, en um yfirburði var aldrei að ræða og eftir því sem leið á leikinn náði Ipswich æ betri tök- um á leiknum. Alan Brazil skoraði síðan fyrsta markið á 62. mínútu og eftir það stóð ekki steinn yfir steini hjá Luton. Eric Gates skor- aði tvívegis áður en yfir lauk, á 70. og 86. mínútu. WBA átti í geysilegum erfið- leikum gegn Gillingham, sem sótti látiaust allan leikinn. Voru yfir- burðir 3. deildarliðsins umtals- verðir, en heppnin ekki á bandi þess. A síðustu mínútu leiksins léku WBA-menn fram völlinn og bakvörðurinn Derek Statham spyrnti knettinum glæsiiega í net- ið af 20 metra færi, sigurmarkið. Annar varnarmaður skoraði einnig sigurmark liðs síns á glæsi- legan hátt eins og Statham, það var Larry May, miðvörður Leicest- er, sem skoraði með þrumufleyg af 26 metra færi á 28. mínútu gegn Hereford. Yfir 10.000 manns hvöttu heimaliðið, sem leikur í 4. deild, til dáða, en allt kom fyrir ekki þrátt fyrir góða viðleitni. Bristol City, úr 3. deild, var lengi vel sterkari aðilinn gegn Aston Villa, en seint í leiknum Sunderland. skoraði Garry Shaw mikið heppn- ismark fyrir Villa og markið fleytti liðinu í næstu umferð keppninnar. Sigurmark Crystal Palace gegn Bolton skoraði Jim Cannon úr mjög umdeildri vítaspyrnu snemma leiks, dómarinn taidi einn leikmanna Bolton hafa hand- leikið knöttinn innan teigs. Ekki voru allir sannfærðir um það og þeirrar skoðunar að ef knötturinn hafi í raun farið í hönd kappans, þá hafi það verið óviljaverk. En þáð þýðir ekki að deila við dómar- ann og Cannon skoraði sigur- markið úr vítinu. Neðsta lið 2. deildarinnar, Grimsby, kom mjög á óvart gegn Newcastle, sem. leikið hefur vel síðustu vikurnar. Ekkert var skor- að fyrr en á 62. mínútu, er Kil- more skoraði fyrir Grimsby og tíu mínútum fyrir leikslok bætti Drinkell öðru marki við. Heima- liðið gat aðeins svarað fyrir sig óbeint, þ.e.a.s. Crosby nokkur skoraði sjálfsmark á 88. mínútu. Ross Jack og Dave Watson skor- uðu mörk Norwich gegn Doncaster Rovers, sem náð hafði forystunni snemma í leiknum með marki Greg Powells. Þá skoraði maður að nafni Bates sigurmark Shrewsbury gegn Burnley. 1. deild: Southampton skaust í annað sæti deildarinnar með stórgóðum sigri á heimavelli gegn Arsenal. David O’Leary náði forystunni fyrir Arsenal, en á 39. mínútu jafnaði Dave Armstrong með góðu skallamarki. O’Leary lék ekki með í síðari hálfleik vegna meiðsla, og mátti þá sjá hvern brestinn öðrum verri í vörn Arsenal. 21 árs gamall piltur að nafni David Puckett, sem lék í stað Steve Moran, nýtti sér veilurnar, hann skoraði tvívegis í síðari hálfleiknum og innsiglaði sigur Southampton. Manchester Utd. hertók 3. sæti deildarinnar með góðum stórsigri á útivelli gegn Stoke. Steve Copp- ell náði forystunni fyrir United á 11. mínútu og átti Stoke erfitt uppdráttar eftir það. Það var þó ekki fyrr en á síðustu þremur mín- útunum, að MU gekk endanlega frá heimaliðinu. Fyrst skoraði Frank Stapleton úr víti á 87. mín- útu og rúmri mínútu síðar bætti Garry Birtles þriðja markinu við. Nottingham-liðin mættust sem 1. deildarlið í fyrsta skipti í 57 ár og þarf vart að taka fram að nær allir töldu Forest mun sigur- Bayern Miinchcn hélt eins stigs forystu sinni í þýsku deildarkeppn- inni í knattspyrnu um helgina, er lióið gersigraði Darmstadt 98 í vetr arkulda miklum í Miinchen að að- eins 6000 áhorfendum viðstöddum. 4—1 urðu lokatölur leiksins, en staðan í hálfleik var 2—0. Dieter Höness skoraði tvívegis og Augcnth- aler það þriðja, er Bayern náði 3—0 forystu. Cestonaro tókst að minnka muninn tíu mínútum fyrir leikslok, en Karl-lleinz Rummenigge skoraði fjórða mark Bayern á síðustu mínút- unni. Ásgeir Sigurvinsson lék ekki með Bayern frekar en í síðustu leikj- um. Úrslit leikja urðu þessi: Bayern Munchen — Darmst. 98 4—1 B. Mönchengl — Fort. Dusseld. 3—0 FC Köln — Núrnberg 4—1 Arm. Bielef. — Werder Bremen 0—2 Frankfurt — Bor. Dortmund 1—4 Atli Eðvaldsson lék aðeins með Dússeldorf síðustu 15 mínútur leiksins gegn Mönchengladbach, sem hafði öll völd á vellinum. Sig- ur heimaliðsins hefði hæglega get- að orðið þrisvar sinnum stærri ef marka má frásögn AP, en mörkin þrjú skoruðu Bruns, Wuttke og Pinkall. stranglegri aðilann. Annað kom í ljós er leikurinn hófst, County gaf hinum frægari nágrönnum sínum ekkert eftir og í síðari hálfleikn- um var liðið meira að segja mun betri aðilinn. Paul Hooks og Trev- or Christie skoruðu þá fyrir County, en í fyrri hálfleiknum gerðist það markverðast, að John Robertson brenndi af vítaspyrnu. Everton „rúllaði Úlfunum upp“ á Molineaux-leikvanginum í Wolv- erhampton og þyrfti enginn að kippa sér upp við það þó Úlfarnir hafi deildarskipti í vor. Kevin Richardson skoraði snemma leiks fyrir Everton og var ekki heil brú í leik heimaliðsins eftir það. Alan Irwine bætti öðru marki við fyrir hlé og skoraði síðan aftur í síðari hálfleik. 2. deild: Blackburn 2 (Stonehouse, Arnott) — Rotherham 0 Derby 1 (Swindlehurst) — Oldham 0 Orient 1 (Moores) — Barnsley 3 (Walker, Banks, Aylott) Tony Woodcock skoraði tvívegis, er Köln náði sér vel á strik og gersigraði Núrnberg. Engels og Littbarski bættu mörkum við, en Heck svaraði með eina marki Núrnberg. Þá kom stórsigur Dortmund á útivelli gegn Frankfurt frekar á óvart. Klotz, Burgsmúller (2) og Falkenmayer skoruðu mörk liðs- ins eftir að Bruno Pezzey hafði náð forystunni á 6. mínútu fyrir Frankfurt. Loks, áður en við lítum á stöð- una í deildinni, Maier skoraði bæði mörk Werder Bremen gegn Arminia Bielefeld. Bayern Miinrhen 19 13 2 4 44:27 L*K Bor. Monehenhl. 19 10 7 2 37:25 27 1. FC Köln IH II 4 3 3H: 14 26 Werder Bremen 19 9 5 5 31:29 23 Bor. Dorlmund 19 9 4 6 33:22 22 llamhurger SV 16 H 4 4 43:21 20 Fintr. Frankfurt IH 9 2 7 46:36 20 Kinlr. Braunsehw. IH 10 0 H 32:2M 20 VFB Stuttgart IH 6 6 6 StsSR IH VFL Boehum IH 5 6 7 2H:29 1 K 1. FC Kai.M-rsl. 16 4 7 5 33:33 15 1. FC Núrnb. 19 6 3 10 2H:40 15 Darmsladl 9H 19 4 6 9 22:42 14 Fort. DÚNseld. IH 4 5 9 27:3H 13 Bayer Ix-verkusen IH 4 5 9 22:3M 13 Arminia Bieleí. 19 4 5 10 IH 2H 13 Karlsruher SC 16 4 3 9 24:34 II MSV Duishurt; 17 4 2 11 23:42 10 Stórsigur hjá Bayern

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.