Morgunblaðið - 26.01.1982, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982
Síðbúið námslánafrumvarp:
Fimmtán mánaða
meðganga f ríkisstjórn
Injjvar Gíslason, m*-nntamálará<V
horra, mælti sl. mánudag fyrir
sljórnarfrumvarpi um námslán og
nainsstyrki. Frumvarpid er samið af
nefnd, sem skipud var vorið 1980, og
skilaði fullbúnu frumvarpi og áliti
daginn eftir þingsetningu sama ár,
haustið 1980. Frumvarpið gerir rád
fyrir því að námslán, sem hafa til
skamms tíma numið 85% af reikn
aðri fjárþórf námsmanna, hækki í
100% í þremur jöfnum áföngum og
nái því niarki í hyrjun árs 1984.
Frumvarpið felur og í sér ákvæði um
brcytt fyrirkomulag endurgreiðslna
námslána, sem talið er að hækki
endurgreiðsluhlulfall úr 66% í 88%,
og verðtryggingu lána miðað við
lánskjaravísitölu (í stað vísitölu
framfæ'rslukostnaðar nú). Þá er gert
ráð fyrir aðild námsmanna að lífeyr-
issjóði, samkvæmt sérstakri reglu-
gerð. Lánasjóður standi skil á ið-
gjaldshluta lánþega ásamt mót-
framlagi sínu, er telst viðbót við lán
eins og það annars reiknast. í frum-
varpinu eru ýmsar aðrar en veiga-
minni efnisbreytingar.
Þingmennirnir Vilmundur
Gylfason (A), Fiðrik Sophusson
(S) og Guðrún Helgadóttir (Abl)
ræddu frumvarpið og tóku öll
jákvæða afstöðu til þess. Friðrik
Sophusson spurði ráðherra,
hversvegna það hefði legið í salti
hjá ráðuneyti hans í eitt og hálft
ár, og væri fyrst flutt nú, svo
löngu eftir að um það varð sam-
komulag í ráðherraskipaðri nefnd.
Ráðherra sagði frumvarpið hafa
verið í umfjöllun ríkisstjórnar og
stjórnarliðs, en nú væri samkomu-
lag um, að flytja það sem stjórn-
arfrumvarp, óbreytt að öðru leyti
en því er varðaði tímasetningu
(gildisákvæði) í ákvæðum til
bráðabirgða, þ.e. um að
100%-markinu skuli náð í ársbyrj-
un 1984 og aðild að lífeyrissjóði í
ársbyrjun 1985 o.fl. Vilmundur
Gylfason (A) sagði samþykkt
frumvarpsins vera „mikið fram-
faraspor" og Guðrún Helgadóttir
(Abl) sagðist vona til að það næði
fram að ganga á þessu þingi.
Fækkun íbúðarlána:
Frumvarp um viðbótarlán
Á sl. ári vóru veitt 1100 færri lán
til íbúðabygginga en árið 1979. Hið
fvrra árið vóru veitt 4854 lán en hið
síðara 3728. Svo mikill hefur sam-
drátturinn verið í lánakerfi hús-
na'ðismála á tveimur árum. Þessar
upplýsingar komu fram í framsögu
Kjartans Jóhannssonar (A), er
hann mælti fyrir frumvarpi sínu og
fleiri þingmanna Alþýðuflokks um
viðbótarlán til íhúðarhyggjenda og
íbúðarkaupenda.
Kjartan brá upp dæmi um
fjárhagsstöðu kaupanda að íbúð-
arhúsnæði í dag miðað við 600
þúsund krónu kaupverð íbúðar
með 480 þúsund krónu útborgun.
Útborgun er fjármögnuð þann-
ig:
1) G-lán 80.000 krónur.
2) Lífeyrissjóðslán 120.000.
3) Eigið fé 80.000.
4) Skammtímalán 200.000,
verðtryggt.
Kjartan Jóhannsson
Afborganir og lánakostnaður
af framangreindum lánum er kr.
63.700 á ári, eða 40,4% af at-
vinnutekjum verkamanns og
37,5% af atvinnutekjum iðnað-
armanns.
Samkvæmt frumvarpi því, er
Kjartan mælti fyrir, skal taka
upp hjá innlánsstofnunum sér-
stakan útlánaflokk til íbúðar-
bygginga og íbúðarkaupa. Lán
þessi skuli vera til 20 ára og
nema 200.000 krónum miðað við
verðlag í desember 1981 og breyt-
ast með byggingarvísitölu árs-
fjórðungslega, fullverðtryggð
eftir lánskjaravísitölu og með
2—3% ársvexti. Ef slík lán væru
til staðar, í stað skammtímaláns,
eins og dæmi var tekið um hér að
framan, lækkaði árleg greiðslu-
byrði, miðað við framangreindar
forsendur, úr 40,4% af atvinnu-
tekjum verkamanns í 14,4%. Með
þessum hætti má gera venjulegu
fólki kleift að fjármagna eigið
húsnæði með eðlilegum og við-
ráðanlegum hætti, sagði Kjart-
an, en núverandi kringumstæður
setja stórum hópi fólks stólinn
fyrir dyrnar, varðandi eigið hús-
næði.
Kvipmynd úr Alþingi: Tveir hinna yngri þingmanna þenkjandi um „efna-
hagsmálapakkann“ — eða önnur viðfangsefni: Guðmundur G. Þórarins-
son (F) og Halldór Blöndal (S).
Viðhald og fasteigna-
gjöld skattfrádráttur?
• Steingrímur Hermannsson, sjáv-
arútvegs- og samgönguráðherra,
mælti fyrir þrcmur frumvörpum sl.
mánudag, tveimur í efri deild, einu í
neðri deild Alþingis.
1) Frumvarpi um flutninga-
samninga og ábyrgð vöruflutninga
á landi.
2) Frumvarpi til breytinga á
lögum um útflutningsgjald af
sjávarafurðum, 5,5%, með tíma-
bundnu undanþáguákvæði um
3,575% gjald af loðnuafurðum.
3) Frumvarpi um lækkun tíma-
bundins oliugjalds til fiskiskipa,
þ.e. 7% gjald af fiskverði 1982 í
stað 7,5% 1981.
• Ingvar Gíslason, menntamála-
ráðherra, mælti fyrir frumvarpi
um námslán og námsstyrki og
Kjartan Jóhannsson (A) fyrir
frumvarpi um viðbótarlán til
íbúðarhúsnæðis (sjá fréttir á síð-
unni).
• Halldór Blöndal (S) hefur lagt
fram frumvarp til breytinga á
tekjuskattslögum, þess efnis, að
viðhald, fasteignagjöld og iðgjald
af húseigendatryggingu á íbúð-
arhúnsæði verði frádráttarliðir
frá skattskyldum tekjum. Eftir að
húsaleiga sé að hluta til viður-
kennd frádráttarliður sé ósam-
ræmi í því, að sama gildi ekki um
þennan kostnað, enda hér um
kostnað að ræða, sem flokka megi
undir varðveizlu verðmæta.
Samdráttur 1982:
Lánsgeta húsnæðis-
kerfís stórlega skert
Byggingarsjóður ríkisins hafði 300
m.kr. til ráðstöfunar á sl. ári en
Byggingarsjóður vcrkamannahú-
staða 100 m.kr, samtals 400 m.kr. f
árslok var Byggingarsjóður ríkisins í
40 m.kr. skuld. A yfirstandandi ári
eru samsvarandi tölur um ráðstöfun-
arfé sjóðanna 373,7 m.kr. (almenna
kerfið) og 268,3 m.kr. (verkamanna-
bústaðir) eða samtals 642 m.kr. Frá
þessari samtölu dregst síðan skuld
frá fyrra ári, 40 m.kr., svo til ráðstöf-
unar verða samtals 602 m.kr.
Miðað við verðlagsþróun milli
ára þýða þessar tölur að lán
standa til 700 færri íbúða hjá
Byggingarsjóði ríkisins 1982 en
1981 en hinsvegar 150 íbúðum
fleiri í verkamannabústöðum.
Nettófækkun íbúða milli sl. árs og
yfirstandandi verður því 550 íbúð-
ir, eða 1650 færri íbúðir ef sam-
anburður er gerður við árið 1979.
Þessar tölur komu fram í ræðu
Kjartans Jóhannssonar (A), er
lánamál húsnæðiskerfisins komu
til umræðu í efri deild Alþingis sl.
mánudag.
Gjaldþrot stjórnarstefnunnar
e/tir Sighvat
Björgvinsson, alþm.
Þegar þetta er ritað — á
fimmtudegi — hefur ríkisstjórnin
ekki orðið sammála um hvað hún
hyggst fyrir í efnahagsmálum.
Hvað eftir annað hafa ráðherr-
arnir tilkynnt hvenær niðurstaðan
verði kunngerð. Hvað eftir annað
hafa þeir orðið að tilkynna lands-
lýð að þær áætlanir fái ekki stað-
ist. Að ríkisstjórnin sé ekki orðin
sammála enn. Þurfi meiri tíma.
Nú síðast var sagt, að ráðstaf-
anirnar yrðu kunngerðar um helg-
ina 23.-24. janúar. Rætist sú spá
er líklegt að boðskapur ríkis-
stjórnarinnar hafi verið kunn-
gerður þegar þessi orð birtast. Þar
sem fátt liggur fyrir um þann
boðskap þegar þetta er ritað er
þess því ekki að vænta, að umsögn
um hann fylgi hér.
Hvert er viðfangsefnið?
Þótt engin samstaða hafi orðið í
ríkisstjórninni þegar þetta er rit-
að er þó sitthvað vitað bæði um
viðfangsefnið og þau viðbrgð, sem
rædd hafa verið í stjórnarherbúð-
unum. Þykir fólki ekki undáriegt, 1
að allan þann tíma, sem efna-
hagsvandamálin hafa gengið á
milli ráðherranefnda, efnahags-
nefnda og þingflokka stjórnarliðs-
ins, þá skuli lítið sem ekkert hafa
frést um eðli þeirra vandamála,
sem ríkisstjórnin glímir við? Allar
athuganir, sem fram hafa farið á
stöðu þjóðarbúsins og allar upp-
lýsingar, sem um hana hafa verið
gefnar, hafa að undirlagi ríkis-
stjórnarinnar vandlega verið
merktar trúnaðarmál. Látum vera
þótt ríkisstjórnin vilji ekki greina
frá þeim aðgerðum, sem verið er
að skoða á hennar vegum — slíkt
er skiljanlegt. En hvers vegna vill
hún halda leyndri lýsingu
vandans? Hvers vegna má fólkið í
landinu ekki fá að vita hvert er
umfang og inntak þeirra vanda-
mála, sem við er að fást í þjóðar-
búskapnum? Hvaða tilgangi þjón-
ar að halda slíkum upplýsingum
leyndum? Ætti það ekki þvert á
móti að greiða fyrir ríkisstjórn-
inni að hún gerði þjóðinni sem ýt-
arlegasta grein fyrir vandanum,
sem við er að fást, svo fólk áttaði
sig á nauðsyn aðgerða af hennar
hálfu?
Gægst á bak vid grímuna
Ástæðán fyrir því| að þjóðin fær '
ekki frá ríkisstjórninni lýsingu á
þeim vanda, sem við er að fást, er
mjög einföld. Ástæðan er einfald-
lega sú, að efnahagsvandinn er
draugur sá, sem ríkisstjórnin taldi
fólki trú um að hún væri búin að
‘kveða niður. Það er skiljanlegt að
ríkisstjórnin kæri sig ekkert um
að skýra þjóðinni frá því. Það er
skiljanlegt, að ríkisstjórnin vilji
alls ekki láta vitnast að vandinn,
sem hún er að fást við, er sá sami
og hún sagðist hafa leyst í fyrra.
Ef ríkisstjórnin aflétti trúnaðin-
um af þeim upplýsingum um hag
þjóðarbúsins, sem hún hefur með
höndum, þá færi ekki hjá því að
sérhvert landsins barna myndi
óðara segja: „Heyriði, er þetta
ekki vandamálið, sem þið sögðust
hafa tekið til úrlausnar í fyrra?"
Á bak við járngrímuna, sem ríkis-
stjórnin hefur kosið að fella yfir
alla úttektir og lýsingar á efna-
hagsvandanum býr nefnilega
sama glottandi draugsandlitið og
hinn sléttmáli forsætisráðherra
landsins fullyrti í stefnuræðu
sinni á Alþingi í haust að hann
væri búinn að kveða niður. Það er
leyndarmálið, sem ekki má vitn-
ast. Gunnay ^horpddsen hefúr
enga' drauga niður kveÖið. Þeir
ríða þvert á móti húsum okkar
enn.
Kitthvað vitum við
Ríkisstjórnin hefur beitt stjórn-
arandstöðuna sömu launung og al-
menning. Engar upplýsingar hef-
ur stjórnarandstaðan fengið fyrir
milligöngu ríkisstjórnarinnar um
stöðu þjóðarbúsins og umfang
efnahagsvandans. Þó höfum við,
þingmenn stjórnarandstæðunnar,
einvörðungu stöðu okkar vegna
sem alþingismenn getað fengið
nokkrar upplýsingar um efna-
hagsmálin frá sérfræðistofnunum,
sem lögum samkvæmt geta ekki
neitað alþingismönnum um upp-
lýsingar sé eftir þeim fengið.
Þannig vitum við sitthvað um
stöðu mála, sem almenningur veit
ekki, þótt við höfum hvergi nærri
fengið að sjá heildarmyndina
vegna fyrirstöðu ríkisstjórnarinn-
ar. Það, sem við höfum fregnað, er
m.a. þetta:
Verðbólgan 58%!
Um áramótin síðustu tilkynnti
forsætisráðherra þjóðinni, að rík-
isstjórnin hefði náð takmarki sínu
í baráttu v^. veróþólgu, jSíðustu
verðbólgumælingar hefðu verið
gerðar 1. nóvember og bentu þær
til, að verðbólguhraðinn á árs-
grundvelli væri ekki yfir 43% og
verðbólgan frá upphafi til loka árs
yrði 42%.
Síðan 1. nóvember hefur hraði
verðbólgunnar ekki verið mældur.
En síðan þá hefur ríkisstjórnin
gripið til ýmissa aðgerða, sem hún
fullyrðir að séu óhjákvæmilegar,
sem samtals hafa aukið hraða verð-
bólgunnar á ársgrundvelli um
23—25%. Hluti þeirrar auknu
verðbólgu er þegar kominn fram.
Nýjustu upplýsingar benda til, að
hækkun framfærsluvísitölu, sem
mæla á þann 1. febrúar nk. vérði
a.m.k. 12,2%i sem samsvarar því, að
vcrðbólguhraðinn er nú þegar kom-
inn upp í 58% á ársgrundvelli.
Þetta vill ríkisstjórnin hafa sem
algert trúnaðarmál því þetta þýð-
ir, að hin svokallaða niðurtaln-
ingarstefna ríkisstjórnarinnar er
ekkert nema loftið og öll fallegu
orðin forsætisráðherrans frá því í
fyrra eru innantómt skrum.
Seðlaprentun tvöfölduð
Eitt af meginatriðunum í boð-
skap ríkisstjórnarinnar frá í fyrra
var aðhaldssöm stefna í pen-
ingamálum og áframhaldandi
verðtrygging sparifár.
Hvað segja trúnaðarupplýs-
ingar ríkisstjórnarinnar um ár-
angurinn? Dregið hefur verið úr
aukningu innlána í peningastpfp-
unum — m.ö.o. verðtrygigng