Morgunblaðið - 26.01.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982
31
10. Reykjavíkurskákmótið:
20 erlendir stór-
meistarar koma
FINNSKI stórmeistarinn Westerinen hefur boðad komu sína á Reykjavík-
urskákmótid í febrúar og auk þess Bandaríkjamaðurinn Kogan. Hann er
alþjóðlegur meistari og hefur 2450 Klo stig. I>á er Ijóst að Friðrik Ólafsson
mun taka þátt í mótinu og verður hann þriðji stigahæsti maður mótsins. Að
vísu er enn ekki Ijóst, hvaða skákmenn koma frá Sovétríkjunum, en vonast
til að það verði þekktir stórmeistarar.
Kjartan Gunnarsson flytur erindi sitt í Átthagasal Hótel Sögu.
Kjartan Gunnarsson á fundi Varðbergs og SVS:
Krefjumst lagfæringa á
ratsjárvarnakerfi landsins
„ÁBYRGÐIN OG FRUMKVÆÐIÐ í öryggismálum þjóðar hlýtur og verð-
ur ávallt að vera í höndum hennar sjálfrar. Þar er um slíkt fjöregg að
ræða, að það er aldrei hægt að fela erlendum mönnum til ákvörðunar og
mats. En án þekkingar, frumkvæðisvilja og óttaleysis við að viðurkenna
staðreyndir stjórnmálalegs og herfræðilegs umhverfis okkar, verður ör
yggisins aldrei gætt sem skyldi.“ Þannig lauk Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, ræðu sinni á fundi Varðbergs og Sam-
taka um vestræna samvinnu á laugardag. Fundurinn var fjölsóttur og var
góður rómur gerður að framsöguerindinu í umræðum að því loknu.
Erindi Kjartans Gunnarssonar
bar yfirskriftina „íslenskt frum-
kvæði í öryggismálum, aukin
þátttaka íslendinga í vörnum
landsins". Morgunblaðið mun
síðar birta erindið í heild, en hér
fer kafli úr því, er snerist um
loftvarnir Islands:
„Eitt af mikilvægustu verkefn-
um varnarstöðvarinnar hér er að
fylgjast með ókunnum flugvél-
um, sem fljúga um varnarsvæðið
eða nálgast Island. Er þessu eft-
irliti bæði haldið uppi með rad-
arstöðvum á jörðu niðri og fljúg-
andi ratsjárstöðvum. Fyrir all-
nokkrum árum fauk radarstöð
varnarliðsins, sem verið hafði á
Langanesi, og var hún ekki
endurbyggð. Nú er það svo, að
ókunnar flugvélar, sem nálgast
ísland, koma oftast úr austri eða
norðaustri niður eftir Islands-
hafinu og fljúga annaðhvort um-
hverfis landið eða niður í átt til
Bretlands eða enn lengra suður
eftir Atlantshafinu. Meðan ekki
er radarstöð á Langanesi eða á
svipuðum slóðum, er stórt svæði
úti fyrir norður-, norðaustur- og
austurlandi án radareftirlits
nema þegar ratsjárflugvélar
varnarliðsins eru á lofti, en það
eru þær auðvitað ekki allan sól-
arhringinn alla daga ársins,
langt því frá. Þó var auðvitað
mikil bót að fá hinar nýju
AWACS-ratsjár- og eftirlits-
flugvélar, sem stöðugt fljúga
óreglubundið eftirlitsflug. Samt
sem áður er vel mögulegt fyrir
ókunnar flugvélar að laumast að
landinu þessa leið, sérstaklega ef
þeim tekst líka að komast fram-
hjá ratsjárgæslu Norðmanna,
t.d. með því að fljúga fyrst langt
upp eftir Barentshafi og síðan
inn yfir Ishafið og niður eftir
íslandshafinu, þangað til þær
koma að íslandi norðaustanmeg-
in og geta þannig komist fast að
landinu eða yfir landið, án þess
að við þær verði vart.
Þetta er, að mínum dómi, at-
riði, sem Islendingar eiga að
krefjast að lagfært verði. Það
væri hægt að gera án mikilla eða
nánast nokkurra aukinna um-
svifa varnarliðsins, því vel mætti
koma fyrir ómannaðri ratsjár-
stöð þarna, sem sendi upplýs-
ingar sínar annaðhvort til Hafn-
ar í Hornafirði eða til aðalstöðva
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli.“
Alls hafa 40 erlendir. skákmeist-
arar boðað komu sína, þar af 20
stórmeistarar. Þá hefur mexik-
anski alþjóðlegi meistarinn Kenn-
eth Frey, sem hefur 2480 Elo-stig,
tilkynnt þátttöku. Eftirtaldir er-
lendir skákmeistarar hafa til-
kynnt þátttöku (SM = stórmeist-
ari, AM = alþjóðlegur meistari og
F = Fide-meistari):
1. A. Miles Eng. 2575 SM
2. L. Alburt USA 2550 SM
3.A. Adorjan Ung. 2515 SM
4. R. Byrne USA 2510 SM
5. B. Kurajica Ung. 2510 SM
6. Y. Grunfeld Isl. 2505 SM
7. B. Ivanovic Jug. 2485 SM
8. B. Ivkov Jug. 2480 SM
9. L. Shamkovic USA 2470 SM
10. E. Mednis USA 2470 SM
11. De Firmian USA 2470 AM
12. D. Gurevic USA 2470 F
13. A. Kuligowski Pol. 2465 SM
14. M. Knezevic Jug. 2465 SM
15. S. Kudrin USA 2465 SM
16. K. Spraggett Kan. 2465 AM
17. D. Rajkovic Jug. 2460 SM
18. M. Matulovic Jug. 2460 SM
19. D. Sahovic Jug. 2450 SM
B. Kogan USA 2450 AM
V erzlunarbankinn:
Nýr útibússtjóri
í Mosfellssveit
VERZLllNARBANKINN opnaði
nýtt útibú í Mosfellssveit þann II.
desember sl. Einvarður Jósefsson,
útibússtjóri í Grensásútibúi bankans
í Reykjavík, var settur í starfið til
bráðabirgða og staðan síðan auglýst
innan bankakerfisins í samræmi við
ákvæði kjarasamninga.
Á fundi bankaráðs þann 19.
janúar sl. var samþykkt að veita
stöðuna Geir Þórðarsyni, fulltrúa
í aðalbanka. Geir Þórðarson er 28
ára gamall og hefur starfað í
Verzlunarbankanum í rúmlega 9
ár. Að undanförnu hefur hann
verið fulltrúi við ráðgjafarþjón-
ustu bankans. Geir er kvæntur
20. B. Abramovic Jug. 2445 AM
H. Westerinen Fin. 2440 SM
21. V. Raicevic Jug. 2430 SM
22. C. Höi Danm. 2425 AM
23. P. Ostojic Jug. 2420 SM
24. K. Burger USA 2420 AM
25. G. Forintos Ung. 2410 SM
26. W. Martz USA 2405 AM
27. V. Zaltsman USA 2405 AM
28. J. Plaskett Eng. 2405 F
29. L. Bass USA 2405
30. T. Manouck Frakkl. 2405
31. T. Horvath Ung. 2400 AM
32. G. Iskov Danm. 2380 AM
33. M. Uic Jug. 2380
34. D. Janosevic Jug. 2355 SM
35. M. Bajovic Jug. 2345 F
36. A. Savage USA 2310
37. R. Griinberg V-Þýskal. 2310
38. G. Kráhenbuh! Sviss 2305
Auk Friðriks er ljóst, að Guð-
mundur Sigurjónsson, Helgi
Ólafsson, Jón L. Árnason, Karl
Þorsteins og Jóhann Hjartarson
munu taka þátt í mótinu en þar
sem enn er opið að tilkynna þátt-
töku er nafnalisti íslensku þátt-
takendanna ekki til búinn enn.
Geir l>órðarson
Gyðu Olversdóttur og eiga þau 2
börn. Hinn nýi útibússtjóri tekur
við þann 1. febrúar nk.
sparifjár er á undanhaldi — pen-
ingamagn í umferð jókst um
meira en 80% á árinu. Seðlabanki
íslands var sem sé látinn prenta
og gefa út nýja seðla fyrir tvöfalt
meira verðgildi en nam rýrnun
krónunnar á árinu.
Fastgengisstefnan ?
Alþýðubandalagið segist ekki
viðurkenna gengisbreytingr sem
efnahagsúrræði og því var það
með miklu yfirlæti, sem sá flokkur
hrósaði sér af því höfuðatriði í
efnahagsaðgerðum ríkisstjórnar-
innar frá því í fyrra, að nú ætti að
hætta slíkri ósvinnu og binda
gengið fast. Fastgengisstefna var
það kallað hvernig var hún fram-
kvæmd?
Frá því í maí í vor og fram á
þennan dag hefur gengið fjórum
sinnum veriðfellt. Fjórum sinnum
á átta mánuðum. Annan hvorn
mánuð að meðaltali! Þetta er köll-
uð fastgengisstefna.
Sé miðað við vísitölumælingar
ríkisstjórnarinnar var nýja krón-
an um sl. áramót orðin 31 eyri
verðminni en þegar hún gekk í
gildi tólf mánuðum fyrr. Sé miðað
við gengi erlendra mynta er nýja
krónan orðin jafnvel ennþá verð-
minni. það mun taka núverandi
ríkisstjórn aðeins fimmtán ár til
viðbótar að gera nýju krónuna
jafn verðlausa og sú gamla var
orðin þegar myntbreytingin átti
sér stáð.
;,t j(i;/. 'Ci
I II í I M
'fi
L‘Jrl' * 1 Í»J
11
Allt ber að sama brunni
Af fjölmörgu fleiru má taka —
t.d. að greiðslubyrði af erlendum
lánum verður á yfirstandandi ári
19% af heildargjaldeyristekjum
þjóðarinnar þótt ríkisstjórnin segi
í stjórnarsáttmála sínum, að þessi
greiðslubyrði megi ekki fara yfir
15% gjaldeyristekna. Greiðsluby-
rði erlendra lána í hlutfalli af
gjaldeyristekjum þjóðarinnar er
orðin jafn mikil og hún var á þeim
árum 1967—1968, þegar síldveið-
arnar hrundu, alvarlegur afla-
brestur varð í þorksveiðum og út-
flutningsafurðir okkar féllu í verði
á Bandaríkjamarkaði niður í ýösk
„Síðan 1. nóvember
hefur hraði verðbólg-
unnar ekki verið mæld-
ur. En síðan þá hefur
ríkisstjórnin gripið til
ýmissra aðgerða, sem
hún fullyrðir að séu
óhjákvæmilegar, sem
samtals hafa aukið hraða
verðbólgunnar á árs-
grundvelli um 23—25%.
Hluti þeirrar auknu
verðbólgu er þegar
kominn fram. Nýjustu
upplýsingar benda til,
að hækkun framfærslu-
vísitölu, sem mæla á
þann 1. febrúar nk.
verði a.m.k. 12,2%, sem
samsvarar því, að verð-
bólguhraðinn er nú þeg-
ar kominn upp í 58% á
ársgrundvelli.“
19 cent pundið. Njótum við íslend-
ingar þó nú mesta þorskafla, sem
nokkru sinni hefur á land borið og
hæsta, verðs fyrir afurðir okkar,
sem fengist hefur. Hvernig halda
menn að gangi fyrir þjóðina að
standa undir erlendri skuldasöfn-
un ríkisstjórnarinnar ef eitthvað
bjátar á?
Allt ber þetta að sama brunni.
Þær upplýsingar, sem ríkisstjórn-
inni hafa borist, og hún hraðað sér
að stimpla sem trúnaðarmál, eru
allar á eina lund. Þær segja aliar
upp þá sögu, að ríkisstjórnin hafi
engan vanda leyst og það, sem
nýtt er í þeim upplýsingum, lýtur
allt saman að viðbótarvanda, sem
ríkisstjórnin hefur skapað.
Kemur ekki á óvart
Ekkert af þessu kemur í raun-
inni á óvart. Það eiga ekki að vera
nein tíðindi fyrir neinn, að afnám
vísitölubóta, aukning niður-
greiðslna úr ríkissjóði, mála-
myndaverðstöðvun, gengiskukl og
fleira af sama toga eru engin efna-
hagsúrræði, sem vonir má við
binda. Svo oft hefur slík drullu-
kökugerð verið reynd á íslandi
með engum árangri.
Þegar forsætisráðherra boðaði
um áramótin 1980—1981 að ríkis-
stjórn hans hyggðist enn taka til
við sömu grautargerðina sögðum
við Alþýðuflokksmenn þá þegar,
að með slíkum úrræðum yrði eng-
inn vandi leystur. Menn gætu
vissulega fleytt sér á slíkri graut-
argerð um nokkurra mánaða skeið
en að því búnu ræki allt aftur í
str^nd því vandamálin v*ru ekki
n., — ooiu OE ,.vr i i /i u tu > i "
leyst, þeim bara skotið á frest í
blekkingarskyni.
Ymsir voru þeir, sem vildu ekki
trúa þessu; sem vildu a.m.k fá að
lifa í voninni. Og ekki urðu slétt-
mæli forsætisráðherrans til þess
að draga úr þeim vonum manna.
En nú horfist þjóðin í augu við
staðreyndirnar. Ríkisstjórnin ger-
ir að vísu allt sem hún getur til
þess að leyna þeim með því að
stimpla allar upplýsingar trúnað-
armál í bak og fyrir svo þjóðin fái
sem minnstar fregnir af ástand-
inu. Samt sem áður fer nú ekki
lengur hjá því, að öllum almenn-
ingi sé ljóst orðið, að í viðureign
við vandamál efnahagslífsins hef-
ur ríkisstjórnin ekkert spor stigið
fram heldur staðið gersamlega í
stað.
Ég veit ekki hvort einhverjir
þeir eru enn til, sem halda, að enn
sé von. Þótt ekkert sé enn komið
fram um áform ríkisstjórnarinnar
þykist ég vita af reynslunni, að
þaðan sé ekki annars að vænta an
nýrra skammta af sömu lyfjagjöf
— vísitölumöndl, gengiskukl og
skollaleikur í verðlagsmálum. Af-
leiðingarnar verða auðvitað þær
sömu og ávallt áður — nokkurra
vikna eða mánaða frestanir á
vandanum með mörgum og fögr-
um ræðum forsætisráðherra við
mikinn fögnuð forystu ASI, sem
þá loks kemur í leitirnar, og svo
nýtt þrot, ný stöðvun atvinnulífs
og ný verðbólguholskefla ef að lík-
umjætur, ' V' ' V
t'4> r;* i J ’jtx i r; .•< it"