Morgunblaðið - 26.01.1982, Side 34

Morgunblaðið - 26.01.1982, Side 34
3 4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982 1981 var norskum stjórnmálum EFTIR JOHN C. AUSLAND í OSLÓ Ekki er með rökum unnt að halda því fram, að lítið hafi gerst í Noregi á árinu 1981. í ársbyrjun flutti þáverandi forsætis- ráðherra, Odvar Nordli, áramótaávarp, sem olli fjaðrafoki hjá ríkisstjórnum bandalagsþjóða Noregs. Undir árslok var ríkis- stjórnin undir forsæti Káre Willochs að móta stefnu sína gagnvart atburðunum í Póllandi. Þinghúsið í Osló Sá atburður á alþjóðavettvangi, sem líklega hafði mest áhrif í Nor- egi á árinu 1981, var embættistaka Ronald Reagans í Bandaríkjunum. Svo virðist sem honum sé einkar lagið að segja og gera hluti, sem raska ró Norðmanna. Væri forset- inn ekki að úthrópa sovéska leið- toga, þá gæfi hann yfirlýsingar um nauðsyn þess að hefja fram- leiðslu á nifteindasprengjunni. Undir áramótin róaði hann menn þó dálítið með því að hreyfa svonefndri „núll-leið“ og leggja hana fram í samningaviðræðun- um um takmörkun kjarnorku- vopna í Evrópu. A sama tíma og Reagan gerði Norðmenn taugaveiklaða, minntu Sovétmenn þá á það, hver ógnar sjálfstæði þeirra í raun. I júní flaug flokkur Backfire-sprengju- þotna suður með strönd Noregs til að undirstrika hernaðarmátt Sov- étríkjanna. 1 september sigldi sov- éskur kafbátur með að minnsta kosti eina kjarnorkusprengju inn- an borðs í strand við Karlskrona í Svíþjóð. I desember bar það svo til tíðinda í Póllandi, að enn einni lot- unni milli Samstöðu og stjórn- valda lauk með valdatöku hersins. Þótt fjölmiðlar legðu sig fram um að minna Norðmenn á það, að þeir lifðu í vályndri veröid, fjöll- uðu þeir þó mest um stjórnmálin innan lands. Það var kosið til Stórþingsins á árinu 1981 og úr- slitin mörkuðu tímamót. Hægri- flokkurinn bætti við sig fylgi og Verkamannaflokkurinn tapaði. Þetta tap leiddi til valdabaráttu innan Verkamannaflokksins, sem var harðvítugri fyrir þá sök, að nú var kynslóð eftirstríðsáranna að ná öllum lykilembættum í flokkn- um á sitt vald. I upphafi 1981 fóru menn ekki lengur í grafgötur um það, að rík- isstjórn Verkamannaflokksins undir forsæti Nordlis átti við mik- inn vanda að etja. Það eru ekki allir á einu máli um ástæðurnar fyrir þessum vanda, en flestir telja, að ekki hafi verið mikil sam- staða innan flokksforystunnar. Nordli sagði af sér forsætisráð- herraembættinu snemma í febrú- ar vegna heilsubrests. Eftir snörp átök varð Gro Harlem Brundt- land, varaformaður flokksins, for- sætisráðherra. Þótt Gro Harlem Brundtland sæti aðeins í hinu háa embætti í átta mánuði, gerðist svo sannar- lega ýmislegt á þeim tíma. Hún tók síður en svo við góðu búi, en henni heppnaðist með hörku að knýja mál fram og þjappa ríkis- stjórninni saman. Jafnhliða hóf hún kosningabaráttu, sem snerist aðeins í kringum eina manneskju, hana sjálfa. Verkamannaflokkur- inn hélt ekki velli í kosningunum en úrslitin urðu honum þó mun hagstæðari en búist var við á tímabili. Gro Harlem Brundtland stjórn- aði landinu og tók forystu í kosn- ingabaráttunni og hún náði Verkamannaflokknum einnig und- ir sig. Reiulf Steen formaður flokksins gaf ekki kost á sér til endurkjörs, eftir að Gro Harlem hafði lýst því yfir, að hún vildi verða flokksformaður. Landsfund- ur Verkamannaflokksins fór að vilja hennar að þessu leyti en bauð henni einnig byrginn með þeim hætti, sem kann að reynast af- drifaríkur. Landsfundurinn kaus ekki frambjóðanda Gro Harlem sem varaformann heldur Einar Förde, en hann er andstæðingur aðildar Noregs að NATO. í kosningunum 14. september staðfestu kjósendur niðurstöður skoðanakannana. Stærstu borg- araflokkarnir, Hægriflokkurinn, Kristilegi þjóðarflokkurinn og Miðflokkurinn unnu hreinan meirihluta í Stórþinginu. Sá galli var á gjöf Njarðar, að flokkarnir þrír gátu ekki myndað samsteypu- stjórn. Helsta ágreiningsefnið var afstaðan til fóstureyðinga, en fleira kom og til. Því fór svo, að 14. október myndaði Káre Willoch, leiðtogi Hægriflokksins, minni- hlutastjórn og varð sjálfur forsæt- isráðherra. Hinir tveir borgara- flokkarnir féllust á þessa ráðstöf- un og hétu því að veita stjórninni lið í Stórþinginu — svo framar- lega sem þeir gætu af og til hlaup- ist undan merkjum í vinsælum málum hjá kjósendum án þess þó að stofna lífi stjórnarinnar í hættu. Fram að jólaleyfi Stórþingsins gekk þetta samstarf snurðulaust. Samstaða myndaðist um fjárlög, sem enginn var fyllilega ánægður með, en borgaraflokkarnir töldu samrýmast meginstefnu þeirra í kosningunum. Undir árslok boðaði ríkisstjórnin, að efnahags- starfsemi myndi eiga undir högg að sækja á árinu 1982. í Noregi finna menn nú talsvert fyrir nin- um alþjóðlega efnahagssamdrætti og norskar framleiðslugreinar standa halloka í samkeppni við erlenda keppinauta. Olía hækkar hægt í verði og lækkar jafnvel, sem hefur í för með sér minni tekjur norska ríkissjóðsins en við hafði verið búist. Það er því mun erfiðara en áður að halda atvinnu- leysi í skefjum með niðurgreiðsl- um til þeirra atvinnugreina, sem bera sig ekki. A hinn bóginn reyna Norðmenn í lengstu lög að halda starfsemi óarðbærra fyrirtækja áfram ekki síst vegna þess, hve tregir þeir eru til að flytja búferl- um. Olíuvinnslan í Norðursjó minnkaði síður en svo á árinu 1981, þrátt fyrir lækkun á olíu- verði. I júni samþykkti Stórþingið tillögu ríkisstjórnarinnar um að gas frá Statfjord-svæðinu (út af Björgvin) skyldi tekið á land í Noregi. I norskum stöðvum verður gasið skilið og síðan verður „þurri“ hluti þess sendur út á Eko- fisk-svæðið í Norðursjó og þaðan til Þýskalands. Með þessari tilhög- un lauk miklum vangaveltum um það, hvort selja ætti gasið til Bretlands eða meginlandsins. Statoil, norska ríkisolíufyrirtæk- ið, færði sér ágreining um með- ferðina á gasinu í nyt til hins ítr- asta og hækkaði verðið. Niður- staðan varð fyrirtækinu í vil — gasið er selt til meginlandsins,. eftir að það hefur farið um norsk- ar hendur. Akvarðanir Norðmanna í olíu- málum mótast eðlilega mjög af aðstæðum í Noregi, ekki síst bar- áttunni gegn atvinnuleysi, en at- burðir utan Noregs vega þó einatt þyngra. Það kom til dæmis í ljós, þegar ríkisstjórn Reagans hvatti Norðmenn til að auka gasvinnslu sína til að draga úr þörf íbúa á meginlandi Evrópu fyrir gas frá Sovétríkjunum. Evrópumenn lögðu Bandaríkjamönnum þó ekk- ert lið í þessari baráttu, þeir segj- ast vilja bæði norskt og sóveskt gas. Hafi þrýstingur Bandaríkja- stjórnar haft einhver áhrif á Norðmenn, blöstu þau ekki við öll- um. Varnarmál voru meira til um- ræðu í norskum stjórnmálum á árinu 1981 en oft áður. Má rekja umræðurnar til þess, að Norð- menn mundu aftur eftir kjarn- orkuvopnum eins og aðrir Evrópu- búar. Fyrir tuttugu árum ákváðu Norðmenn, að ekki skyldu vera kjarnorkuvopn í Noregi á friðar- tímum. Síðan hafa flestir Norð- menn látið sér líða vel undir svonefndri „kjarnorkuregnhlíf" og hugað að öðru. Upp á síðkastið hafa Norðmenn tekið til við að at- huga úr hverju „regnhlífin" væri. Margt kom þeim til þess, meðal annars forsetafyrirmæli Carters númer 59 (PD 59) um skotmörk bandarískra kjarnorkuvopna. í öðru lagi má nefna ákvörðun utanríkisráðherra NATO-ríkj- anna í desember 1979 um að endurnýja kjarnorkuherafla Bandaríkjanna í Vestur-Evrópu. í þriðja lagi má minna á ákvörðun Reagans, að hafin skuli fram- leiðsla á nifteindasprengjunni. Og loks vakti það Norðmenn af vær- um blundi, þegar Reagan sagði ekki óhugsandi, að háð yrði tak- mörkuð kjarnorkustyrjöld í Evr- ópu. Kvenréttindafélag íslands Þær sem unnið hafa að undirbúningi 75 ára afmælis KKFÍ frá vinstri: Ásdís Kafnar, Ester Guðmundsdóttir, Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir og Sigrún Sig- urðardóttir. Kvenréttindafélag íslands verður 75 ára 27. jan. nk. Á afmælisdaginn verður móttaka á llótel Borg kl. 16.00 til 18.30 fyrir félagsmenn og aðra velunnara félagsins. Boðið verður upp á kaffi og kökur, formað- ur félagsins, Kster Guðmundsdóttir, flylur ávarp en auk þess mun Nigríð- ur Klla Magnúsdóttir syngja nokkur lög, Selma Kaldalóns spilar á píanó og Sigrún Kdvaldsdóttir leikur á fiðlu ásamt Nínu Margréti Gríms- dóttur sem leikur á píanó. Fyrsti formaður KRFÍ var Bríet Bjarnhéðinsdóttir en það var hún sem 27. jan. 1907 boðaði 15 konur til fundar á heimili sínu, Þing- holtsstræti 18, til að ræða stofnun félags er hefði réttindamál kvenna á stefnuskrá sinni og var þar ákveðið að stofna slíkt félag. Hét það í fyrstu Hið íslenska kvenrétt- indafélag en var síðar breytt í það nafn sem það nú hefur. í fvrstu lögum félagsins sagði m.a. að markmið þess væri að starfa að því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálalegt jafn- rétti við karlmenn: kosningarétt og kjörgengi, einnig rétt til emb- ætta og atvinnu með sömu skil- yrðum og þeir. Það kom fram á fundi, sem stjórn KRFI hélt með blaðamönnum til að kynna 75 ára afmælið, að þó kvenmenn væru búnir að fá lagalegan rétt til emb- ætta og atvinnu með sömu skil- yrðum og karlmenn, þá væri slíkt ekki í reynd. Því væru konur enn að berjast fyrir sömu málum og fyrir 75 árum. Á landsfundi félagsins 1980 var í fyrsta skipti í sögu þess sam- þykkt stefnuskrá, en í upphafi hennar segir: „Markmið Kvenrétt- indafélags íslands hefur frá upp- hafi verið að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu karla og kvenna á öll- um sviðum þjóðlífs. Með setningu laga nr. 78/1976 Um jafnrétti karla og kvenna voru mörg af stefnumálum félagsins lögfest. Raunverulegt jafnrétti hefur hins vegar ekki náðst og leggur félagið megináherslu á, að konur og karl- ar fái sömu aðstöðu og tækifæri til að njóta hæfileika sinna." Á þeim landsfundi var einnig 75 ára samþykkt að á næstu fjórum árum ynni félagið sérstaklega að því að auka hlut kvenna við ákvarðana- töku í samfélaginu. Aðaláhersla verði lögð á að auka hlut kvenna í stjórnmálastarfi og fjölga konum í sveitarstjórnum og á Alþingi. í tilefni 75 ára afmælis félags- ins verður útvarpsþáttur nk. sunnudag 24. janúar kl. 14.00, til- einkaður félaginu. Þær konur, sem unnið hafa að dagskrárgerðinni, hafa ákveðið að gefa félaginu þau laun, sem þær kunna að fá fyrir útvarpsþáttinn. Þessar konur eru: Elfa Björk Gunnarsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Sigrún Valbergsdóttir og Sólveig Olafsdóttir. Stjórn Kvenréttindafélagsins ákvað því á fundi 18. janúar sl., að upphæð sú er félagið kann að fá, skuli renna óskipt í sjóð — söguritunarsjóð — svo hægt verði að hefja fram- kvæmdir við heimildasöfnun. Sig- ríður Erlendsdóttir, sagnfræðing-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.