Morgunblaðið - 26.01.1982, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1982
41
fclk í
fréttum
o Jt .
+ Þessar myndir
voru teknar eftir
flugslysið mikla í
Bandaríkjunum í síð-
ustu viku, þar sem fór-
ust 78 manns, þegar
Boing-þota Air Florida
flugfélagsins rakst á
brú yfir Potomac-ánni
í Washington. Aðeins
fimm komust af úr
þessu hörmulega slysi
og sýnir þessi myndar-
öð björgun einnar
konu upp úr ískaldri
ánni.
Frá blaðamannafundi Leiklistarráðs: Pétur Finarsson formaður, Helga
Hjörvar og Örnólfur Árnason. Ljósm.: Kmíiía lijórnsdóitir.
Um 240 þús. Islendingar
fara í leikhús árlega
Um 240 þúsund manns sækja
leikhús hér á landi árlega, sam-
kvæmt upplýsingum er fram komu á
fundi er Leiklistarráð gekkst fyrir
með blaðamönnum fyrr í vikunni.
Þessi fjöldi skiptist þannig, að ár
lega koma milli 80 og 90 þúsund
leikhúsgestir í Þjóðleikhúsið, um 60
þúsund sækja sýningar Leikfélags
Reykjavíkur í Iðnó, áhorfendur að
verkum Alþýðuleikhússins eru um
30 þúsund, leiksýningar Leikfélags
Akureyrar sækja um 10 þúsund
manns árlega, og sýningar hinna
ýmsu áhugamannaleikhúsa víðs veg-
ar um landið sjá árlega um 50 þús-
und manns, eða samtals 230 til 240
þúsund manns.
Pétur Einarsson, formaður
leiklistarráðs, sagði á blaða-
mannafundinum, að þetta væri
gífurleg aðsókn, og óvenjulegt að
mannfjöldi, er gerði meira en að
samsvara ibúafjölda þjóðar, sækti
leikhús árlega. Tölurnar sagði
hann vera meðaltalstölur, byggðar
á upplýsingum um aðsókn nokk-
urra undanfarinna ára.
A fundinum kom fram sú skoð-
un Leiklistarráðs, að þessi mikla
aðsókn gerði það vissulega að
verkum að leiklistarlíf í landinu
verðskuldaði meiri stuðning hins
opinbera en nú er. „Markaðinn"
fyrir leiklist töldu þau alls ekki
mettaðan, enda virtist svo, að í
hvert skipti er nýtt leikhús kæmi
fram, ykist aðsóknin, og ný leik-
félög tækju ekki frá þeim er fyrir
væru. Meðal annars af þessum
sökum, og til að nýta fjölda lærðra
og ólærðra leikara til starfa, væri
æskilegt ef áhugaleikhús gætu
starfað og þróast í Reykjavík, líkt
og svo víða úti á landi.
Leiklistarráð er stofnað með
leiklistarlögum frá 12. maí 1977,
en ráðið kom fyrst saman til fund-
ar 13. október 1979. Frú Vigdís
Finnbogadóttir var kjörin fyrsti
formaður ráðsins og gegndi for-
mannsstörfum þar til hún tók við
embætti forseta íslands.
Aðild að ráðinu eiga 27 fulltrúar
félaga og stofnana, sem fjalla um
leiklistarmál.
Ráðið kemur saman til fundar
a.m.k. einu sinni á ári, en fram-
kvæmdastjórn þriggja manna fer
með málefni Leiklistarráðs milli
funda. Núverandi framkvæmda-
stjórn skipa Pétur Einarsson, for-
maður ráðsins, Helga Hjörvar og
Örnólfur Árnason.
Hlutverk leiklistarráðs er:
I. Að vera vettvangur umræðna
um leiklistarmál og stuðla að
því að leiklistarstarfi séu búin
þroskavænleg skilyrði.
II. Að vera ráðgefandi aðili fyrir
ráðuneyti, sveitarfélög og
leiklistarstofnanir.
III. Að stuðla að ritun og útgáfu
leikrita.
IV. Að sinna öðrum verkefnum í
þágu leiklistar í samráði við
menntamálaráðuneytið.
Átta prestaköll
nú auglýst laus
Biskup íslands hefur auglýst átta
prestaköll laus til umsóknar. í all-
mörgum þeirra þjóna nú settir prest-
ar, önnur eru laus vegna skipunar
sóknarprests í annað prestsembætti
og nokkrir prestar hafa fengið lausn
frá störfum vegna aldurs eða heilsu-
brests, segir í frétt Biskupsstofu.
Prestaköllin eru þgssi og er um-
sóknarfrestur til 28. febrúar:
Ásar í Skaftafellsprófastsdæmi.
Þar hefur sr. Hanna María Pét-
ursdóttir þjónað sem settur prest-
ur síðan í september 1981.
Bíldudalur í Barðastrandarpró-
fastsdæmi. Sr. Dalla Þórðardóttir
er sett til þjónustu þar og hefur
verið síðan í júní sl.
Borg, Borgarfjarðarprófasts-
dæmi. Sr. Leó Júlíusson prófastur
sem þar hefur þjónað síðan 1946
hefur nú fengið lausn frá embætti.
Melstaður, Húnavatnsprófasts-
dæmi. Sr. Pálmi Matthíasson, sem
þar hefur þjónað, hefur verið
skipaður sóknarprestur hins nýja
Glerárprestakalls á Akureyri.
Þetta prestakall veitist frá 1. júlí.
Mosfell í Grímsnesi, Árnespró-
fastsdæmi. Sr. Ingólfur Ástmars-
son sóknarprestur þar hefur nú
fengið lausn frá embætti vegna
aldurs. Prestakallið er veitt frá 1.
júlí.
Ólafsfjörður, Eyjafjarðarpró-
fastsdæmi. Þar þjónar nú sr.
Hannes Örn Blandon sem settur
sóknarprestur.
Árnes, Húnavatnsprófasts-
dæmi. Þar hefur ekki starfað
prestur um árabil, hvorki settur
né skipaður til embættisins.
Prestakallið nýtur aukaþjónustu
frá nágrannaprestinum, sr.
Andrési Ólafssyni á Hólmavík.
Sauðlauksdalur, Barðastranda-
prófastsdæmi. Sama gildir um
þetta prestakall sem Arnes, þar
hefur verið prestslaust um nokk-
urt skeið. Sr. Þórarinn Þór pró-
fastur á Patreksfirði annast þar
aukaþjónustu.
Þá kemur fram í frétt sr. Bern-
harðs Guðmundssonar, frétta-
fulltrúa kirkjunnar, að enn sé
nokkrum prestaköllum þjónað af
settum prestum, sem auglýst verði
síðar laus til umsóknar. Á síðasta
ári voru vígðir 12 nýir prestar og
margir þeirra voru settir til starfa
í prestaköllum, sem ekki hafa ver-
ið setin um skeið, en aðrir sóttu
um prestaköll er auglýst voru,
hlutu kosningu og síðar skipun til
embættis. Venjan er að þau
prestaköll, sem ekki er þjónað af
skipuðum sóknarpresti, séu aug-
lýst laus til umsóknar einu sinni á
ári. Er það með samkomulagi hins
setta sóknarprests og biskups
hvenær það er gert. Árnes og
Sauölauksdalur eru þau prestaköll
sem ekki njóta fullrar þjónustu og
sést það iðulega er auglýst eru
laus prestaköll. Þá segir í frétt
biskupsstofu að nær tugur manna
muni ljúka guðfræðiprófi frá Há-
skólanum næsta vor og vart sé
útlit fyrir prestaskort í ár.