Morgunblaðið - 20.02.1982, Blaðsíða 28
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982
25
möguleikarnir
við Alpafjöllin
Flestir
miðast
Almennur áhugi landsmanna á skíða-
íþróttinni er fyrir löngu orðinn annálaður.
Með aukinni og bættri aðstöðu ár hvert
hefur áhugi fólks farið vaxandi jafnt og þétt
og.nú er svo komið, að fjöldi manna notar
hverja þá frístund sem gefst frá dagsins
önn og amstri til skíðaiðkana.
En það er ekki aðeins að almenningur
renni sér á skíðum hér innanlands. Skíða-
ferðir til annarra landa hafa færst mjög í
aukana undanfarin ár með auknu úrvali og
viðráðanlcgra verði. Hundruð manna fara
nú árlega utan til skíðaiðkana. Einkum eru
það þrjár ferðaskrifstofur, sem boðið hafa
lerðir til annarra landa, Samvinnuferðir,
Úrval og Útsýn.
Fjölhreytnin í ferðum skrifstofanna er
talsverð þótt eðlilega miðist meginhluti
þeirra við Alpana. Útsýn býður einnig upp á
ferðir til Noregs, en engin ferðaskrifstof-
anna hefur tekið upp fastar ferðir til Aspen
í Colorado, sem þó er afar vinsæll skíða-
staður. Veldur þar líkast til mestu sú stað-
reynd að skíðaferðalag til Bandaríkjanna er
mun dýrara en til Evrópu. Væntanlega geta
þó ferðaskrifstofurnar skipulagt ferðir
þangað, að óskum viðskiptavina.
Hér verður lesendum kynnt hvaða val-
kostir eru fyrir hendi, stefni hugurinn á
erlenda skíðaparadís. Munum við leitast
við að ganga þannig frá hnútunum að fólk
viti nokkurn veginn fyrir víst að hverju það
gengur ef af ferð á eftirtalda staði verður.
Aðaláherslan
lögð á Lech
og Geilo
Útsýn eina ferðaskrifstofan sem býður
ferðir til Noregs
l»eir skíðastaðir erlendis, sem Út-
sýn leggur áherslu á, auk þeirra,
sem aðrar skrifstofur bjóða upp á,
eru Lech í Austurríki og Geilo í Nor
egi. Auk þess er Útsýn með ferðir til
Kitzbiihel og Selva á Ítalíu og þar
eru gististaðir þeir sömu og hjá Úr
valL
Lech
Skíðasvæðin við Lech, Ober-
leich, Ziirs og Zug, sem af flestum
eru talin ákaflega fögur vetrar-
lönd, hafa að bjóða eitthvert það
fullkomnasta þjónustukerfi kláfa,
stóla- og T-lyfta, sem um getur.
Þar er að finna fullkomin skilyrði
fyrir byrjendur, jafnt sem þá, sem
lengst eru komnir í skíðaíþrótt-
inni. Lech er sannkallað kjörsvæði
alpagreinanna, en þar er skíða-
göngumönnum heldur ekki
gleymt. Þar eru um 15 kílómetra
langar brautir og þeim vel við
haldið. Notalegir skemmtistaðir
eru innan seilingar öll kvöld.
Útsýn bauð í vetur upp á þrjár
tveggja vikna ferðir til Lech. Sú
síðasta er þann 27. febrúar. Ferða-
langar geta valið um þrjú hótel.
Hotel Gasthof Stúlzis kostar kr.
10.100 með hálfu fæði, Haus Mall-
aun kr. 7.470 með morgunverði og
þriðji kosturinn er íbúðahótelið
Bergheim. Annars vegar er um að
ræða íbúðir með einu svefnher-
bergi, ætlaðar fyrir 2—4, og kosta
á bilinu 6.800 kr. til 9.900 allt eftir
því hversu margir eru. Hins vegar
er um íbúðir að ræða fyrir 4—6,
sem kosta frá 6.300 krónum upp í
7.600 krónur — einnig eftir fjölda.
Geilo
Geilo, þessi sívinsæla skíða-
miðstöð Norðmanna, er um það bil
miðja vegu á milli Oslóar og Berg-
en. Óvíða er að finna jafngóða að-
stöðu fyrir göngumenn, en í Geilo
eru um 90 km af veí merktum
göngubrautum. Alpagreinafólki er
ekki gleymt. Yfir 20 góðar brekkur
er þar að finna. Ferðamenn geta
valið um tvö hótel, Geilo Mountain
Lodge með hálfu fæði eða Geilo
Hotel með fullu fæði. Farið er til
Geilo alla föstudaga út marzmán-
uð, en síðan verður efnt til páska-
ferðar 2. april. Er verð í hana frá
krónum 5.195.
Kitzbiihel og Selva
Eins og Úrval býður Útsýn upp
á ferðir til Kitzbúhel og Selva á
Ítalíu. Gististaðir eru þeir sömu
og hjá Úrvali svo og öll ferðatil-
högun. Er því óþarfi að fara nánar
út i þá sálma.
Frá Geilo í Noregi — paradís skíðagöngumanna.
Ferdir til stærsta skíða-
svædis í Austurríki í boði
— Samvinnuferðir-Landsýn leggja mikla áherslu á skíða-
ferðir og bjóða upp á Sölden, Zillertal og Niederau
Samvinnuferðir-Landsýn ákváðu í
haust að efna til fimm skíðaferða í
vetur. Þeim er ölluni lokið, utan
einni, sem farin verður nú 27. febrú-
ar. Það eru þrír staðir, Sölden,
Zillertal/Aschau og Niederau, sem
Santvinnuferðir-Landsýn bjóða upp
á.
Að sögn voru áðumefndir staðir
valdir sérstaklega með hliðsjón af
sem fjölbrcyttustum skíðamöguleik-
um. /Ettu allir að finna brekkur þar
við sitt hæfi, jafnt ungir sem aldnir.
íslenskur fararstjóri er í öllum ferð-
um og sér um að taka á móti farþeg-
um á flugvelli og annast ýmsa fyrir-
greiðslu.
Engum ætti að lciðast í þessum
Austurríkisferðum því á kvöldin eru
rómaðir skemmtistaðir heimsóttir,
auk þess sem haldnar eru sérstakar
kvöldvökur fyrir íslcnsku farþeg-
aíia. Ferðatilhögun er þannig, að
flogið er milliliðalaust til Miinchen
og þaðan er ekið til áfangastaðar.
Sölden
Sölden er stærsta skíðasvæði
Austurríkis og þá er ekki svo lítið
sagt. Lætur nærri að það nái yfir
um 470 ferkílómetra í um 1300
metra hæð. Sú hæð er þó aðeins
áfangi á leið til enn hærri staða
því lyfturnar flytja fólk upp í allt
að 3000 metra hæð. Ef fólk gerir
sér ekki allskostar grein fyrir
hversu hátt það er sakar ekki að
geta þess að Hvannadalshnjúkur
— hæsti fjalltoppur Islands — er í
2119 metra hæð.
Afar góð þjónusta er veitt í
Sölden. Þar eru ávallt um 270
skíðakennarar til staðar svo allir
ættu að finna sér leiðbeinanda við
hæfi sé þess þörf. Sundlaugar og
gufuböð eru til staðar og þægilegt
er að láta þreytuna líða úr sér þar
áður en tekið er til við skemmt-
analífið. Rúmlega 20 diskótek og
næturklúbba er þar að finna svo
auðvelt ætti að vera að fá útrás.
Til Sölden er um þriggja og
hálfrar stundar akstur frá Múnch-
en og þar er gist á Gasthof Der
Grauer Bár og nokkrum öðrum
gististöðum í allra næsta ná-
grenni. Ferð til Sölden þann 27.
febrúar kostar 7.175 og er þá mið-
að við herbergi án baðs, en með
morgun- og kvöldverði inniföld-
um. Sama verð var á ferðinni, sem
farin var 13. febrúar svo og jóla-
ferð, sem farin var 19. desember.
Hins vegar voru ferðirnar tvær i
janúar ódýrari — kostuðu kr.
6.290. Lyftugjald í Sölden er 1.920
austurrískir schillingar fyrir full-
orðna (um 1.200 kr. ísl.) og er mið-
að við 12 daga. Fyrir börn er
gjaldið 1.140 schillingar.
Zillertal
Ziller-dalurinn er almennt við-
urkenndur sem eitt skemmtileg-
asta skíðasvæðið í Austurríki.
Meira að segja stæra heimamenn
sig af því að þetta sé skemmtileg-
asti dalur veraldar og ekkert
minna — jafnt að sumri sem vetri
til.
Hestasleðaferðir eru vinsælar í
Zillertal og þá má einnig nefna
hópferðir að kvöldi til á svokölluð-
um toboggan-sleðum. Skautasvell
er víða að finna, auk sundlauga og
gufubaða. Skíðasvæði það, sem
Samvinnuferðir-Landsýn bjóða
upp á, er rétt við bæinn Aschau,
en gist er á Aschauer Hof. Þaðan
er um þriggja km akstur að aðal-
lyftustöðinni og sér hótelið um
ókeypis flutning þangað kvölds og
morgna. Hins vegar er ekkert til-
tökumál að renna sér þangað
hvenær sem er dagsins. Aschau er
í um 600 metra hæð, en skíðasvæð-
ið er einkum í 1600—2300 metra
hæð.
Um tveggja tíma akstur er til
Zillertal frá Múnchen. Ferðin 27.
febrúar kostar kr. 6.790 og svo var
einnig um ferðina 13. febrúar, en
janúarferðirnar tvær voru ódýrari
eða kr. 5.880. Lyftugjaldið fyrir
tvær vikur er 1.690 schillingar
fyrir fullorðna og 1.030 fyrir börn.
Herbergin á Aschauer Hof eru án
baðs, en innifalinn er morgun- og
kvöldverður.
Niederau
Niederau er þriðji staðurinn,
sem boðið er upp á hjá Samvinnu-
ferðum-Landsýn. Bærinn liggur í
hinum geysifagra Wildschönau-
dal, en þar er talið eitthvert snjó-
öruggasta svæði Kitzbúhel-
Alpanna. Bærinn er í um 800
metra hæð, en með lyftunum má
komast allt upp í 1900 métra hæð.
Líkt og á hinum stöðunum er
fjöldi leiðbeinenda á staðnum.
Bobsleðabrautir, hestaleigur,
bowling-salur, skautasvell, sund-
laugar og sauna eru á meðal þess
sem finna má í Niederau og ná-
grenni.
Austurrískt and-
rúmsloft
og ítölsk
lipurð í Selva
Úrval býður ferdalöngum upp á þrjá staði,
Badgastein, Kitzbuhel og Selva
Úrval býður upp á þrjá staði fyrir
þá sem hafa áhuga á að bregða sér
út fyrir landsteinana. Fyrstan þeirra
staða ber að telja Badgastein í Aust-
urríki, sem hefur áunnið sér hylli
fjölmargra skíðaiðkenda.
Badgastein er lítill en sérlega
vinalegur bær í austurrísku Ölp-
unum. Skíðalöndin þar og í næsta
nágrenni eru afar fjölbreytt, í hæð
frá 850 og allt upp í 2700 metra.
Um 60 skíðalyftur eru á svæðinu
troðnar brautir af öllum gerðum
og stærðum þannig að allir ættu
að finna eitthvað við sitt hæfi.
Auk þess er boðið upp á skíða-
kennslu. Fjöldi veitinga- og dans-
staða er í bænum, auk bjór- og
kaffistofa. I bænum er stór sýn-
ingarhöll, frægt heilsuhæli, spila-
víti, innisundlaug og skautahöll
svo það helsta sé nefnt.
stæðilegt. Sérstakur skíðapassi
veitir frían aðgang að lyftum,
skíðavögnum og nýrri og glæsi-
legri sundlaug.
Fjöldi góðra hótela er í bænum,
auk veitingastaða, bjór- og kaffi-
stofa. Þá eru þar mörg diskótek,
spilavíti, leikhús og margt annað
forvitnilegt.
Farið er til Kitsbúhel alla laug-
ardaga út marsmánuð. Úrval býð-
ur gestum sínum upp á fimm mis-
munandi gistimöguleika. Að sjálf-
sögðu eru þeir misjafnlega dýrir,
en hægt er að fá íbúðir í Haus
Horn fyrir rétt rúmlega 6.000
krónur í tvær vikur. Það dýrasta
er Zum Jágerwirt á 9.176 kr. í
tvær vikur með hálfu fæði.
Selva (Wolkenstein)
Selva er ein elsta og rómaðasta
skíðaparadís Ítalíu. Selva er í
Kvipmynd
frá
hóteli
í Badgastein.
Úrval býður ferðalöngum upp á
þrenn mismunandi hótel í Badga-
stein. Bergfriede kostar kr. 6.880
ef miðað er við hálft fæði í tvær
vikur. Gletschermúlle kostar kr.
6.880 með baði og morgunverði og
Krone kostar. 8.030 með hálfu
fæði og baði. Því miður er of seint
að ætla sér í ferð til Badgastein á
þessu ári. Aðeins tvær ferðir voru
farnar, önnur 9. febrúar og hin 23.
febrúar. Gott er þó að hafa stað-
inn í huga þegar fram líða stundir
og hugurinn tekur að reika út á
ný.
Kitzbiihel
Líkast til er Kitzbúhel einhver
allra frægasti skíðastaður heims.
Þetta er 8000 manna rólegur bær í
rómantísku umhverfi. Skíðasvæð-
ið í nágrenninu skiptist í þrennt,
Hahnenkamm (Hanakambur),
Pass Thurn og Kitzbúhlerhorn.
Skíðalandið er einkum á svæði
sem liggur í 800—2000 metra hæð
og þar er að finna um 60 lyftur,
troðnar brautir og nánast allt það
sem getur gert skíðalandið ómót-
Suður-Týról við Dolomiti. Þessi
staður er nokkuð sérstakur fyrir
þær sakir, að hann ber með sér
andblæ tveggja þjóða. Annars
vegar austurrískt andrúmsloft og
hins vegar ítalska lipurð — ber
því keim af því besta frá báðum
þjóðum.
Aðalskíðaland Selva er í næsta
nágrenni bæjarins, en reyndar má
segja að allur Gardena-dalurinn
sé meira og minna eitt allsherjar
skíðaland. Hvorki meira né minna
en 90 skíðalyftur er að finna í ná-
grenninu svo ekki ættu að vera
vandkvæði á að komast upp
brekkurnar á þeim bæ. Góð hótel
er þarna að finna, auk fjölmargra
möguleika til skemmtunar og af-
þreyingar.
Valið stendur á milli þriggja
hótela. Sun Valley og Savoy kosta
um 7.000 krónur með hálfu fæði í 2
vikur, en Pension Elvis kostar
tæpar 5.000 krónur í tvær vikur,
morgunmatur innifalinn. Vakin er
athygli á sérstökum barnaaf-
slætti. Farið er til Selva alla laug-
ardaga út marsmánuð.
í jólaferðinni var gist á VIP-
Club Hotel, sem er í ósviknum
„lúxus-klassa". Kostaði sú ferð þó
ekki nema 7.920 krónur. Janúar-
ferðirnar tvær kostuðu 6.210 krón-
ur, en þá var gist á Gasthaus
Sonne, sem og í febrúarferðunum.
Verðið í þeirri einu ferð, sem enn
er eftir — 27. febrúar — er kr.
6.710. Lyftugjaldið í Niederau er
1.280 schillingar fyrir fullorðna,
1.030 fyrir börn, miðað við tvær
vikur.
Rétt er að geta þess í lokin, að
barnaafsláttur er kr. 1.000 fyrir
þau börn, sem eru á aldrinum
2—12 ára. Sé farið í 10 manna hóp
eða stærri nemur hópafsláttur kr.
500 á mann. Loks skal þess getið
að ferðalangar eiga þess kost að
fara í sérstaka skíðaskóla. Kennt
er 4 tíma á dag og kostar 780
schillínga áð fara á 6 daga nám-
skeið, en 580 sé þriggja daga nám-
skeið tekið.
Frá einum skíðastadanna
sem SamvinnuferðirLand-
sýn bjóða upp á.
Helgarferðir
innanlands fvrir
skíðafólk
Fyrir þá sem vilja bregða sér í stuttar
helgarferdir, á skíði innanlands, koma
þrír staðir til greina ef fólk vill bregða sér
af höfuðborgarsvædinu. llpplagt er að
velja á milli ísafjarðar, Húsavíkur og
Akureyrar. Nú, vilji fólk utan af landi
bregða sér á skíði sunnanlands og njóta
helgarinnar í Reykjavík, má velja á milli
Bláfjalla og Skálafells.
ísafjörður
Seljalandsdalur er á stundum kallaður vetr-
arparadís skíðamanna. Þar er eitt fegursta
skíðaland sem völ er á. Það nær upp í 620
metra hæð og er aðeins um fjóra kílómetra frá
bænum. Aðstaðan til skíðaiðkana þar er mjög
góð. Þrjár lyftur þjóna svæðinu og flytja um
13.000 manns á klukkustund. Auðvelt er að
komast úr bænum upp í Seljalandsdal því
rútuferðir eru daglega.
I skíðaskálanum Skíðaheimum er hægt að fá
svefnpokagistingu. Setustofa er fyrir gesti með
sjónvarpi og hægt er að fá sturtuböð. Á ísa-
firði er sundlaug, gufubað, gott bókasafn,
kvikmyndasýningar og böll um helgar. Svefn-
pokagistingu er hægt að fá í Skíðaheimum og
er kostnaður við það, ásamt morgunverði og
lyftukortum, er kr. 935.
Húsavík
Húsavíkurfjall er 417 metra hátt og í hlíðum
fjallsins eru skíðabrekkur við allra hæfi. Þá er
nánast allt í kringum Húsavík gott gönguland.
Aðeins 3 mínútna gangur er frá hótelinu í
fyrstu lyftuna af fjórum, sem flytja skíðamenn
alveg upp á topp á fjallinu. Til afþreyingar á
Húsavík eru kvikmyndasýningar, böll, þar er
sundlaug með heitum potti og gufubaði. Helg-
arferð til Húsavíkur á skíði kostar aðeins 895
krónur. Ef dvalist er í miðri viku, frá sunnu-
degi til föstudags í 3 til 4 nætur, er boðið upp á
afsláttarkjör.
Akureyri
Eina bestu skíðaaðstöðu á landinu er að
finna á Akureyri. Skíðasvæðið þar er um 7 km
frá Akureyri er í 500—1000 metra hæð yfir sjó.
Þar eru allar brautir véltroðnar og flestar eru
flóðlýstar á kvöldin. Fjórar skíðalyftur flytja
um 3.000 manns á klst.
í skíðahótelinu Skiðastöðum er seldur matur
og veitingar allan daginn. Þá er boðið upp á
skíðaleigu og skíðakennslu. Bílferðir eru úr
bænum þrisvar á dag, og taka þær aðeins um
20 mínútur upp í fjall. I hótelinu fæst svefn-
pokapláss og gisting í herbergjum. Þar er
gufubað og góð setustofa. Hægt er að velja um
2, 3 og 4 daga ferð. Verð í tvíbýli, með morgun-
verði í 2 nætur, er 829 krónur. Nánar er sagt
frá aðstöðunni á Akureyri á öðrum stað í þessu
blaði.