Morgunblaðið - 16.03.1982, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982
3
Stefnuskrárstefna — Frambjódendur SjálfsUedisflokksins tíó borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík héldu rád-
stefnu í Borgarnesi um síðustu helgi. Var þar lögð síðasta hönd á stefnuskrá flokksins fyrir kosningarnar í vor.
Málefnanefndir höfðu unnið að undirbúningi og lágu fyrir drög frá þeim á ráðstefnunni. Að sögn Markúsar Arnar
Antonssonar, borgarfulltrúa, sem tók þessa mynd af hluta þátttakenda á ráðstefnunni var þetta „gagnlegur og góður
fundur".
Samningar flestra
lækna eru nú lausir
SAMNINGAR flestra lækna eru nú lausir og hafa að undanförnu staðið
yfir viðræður milli Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur og
hinna ýmsu viðsemjenda þeirra. Hafa sumir læknar haft lausa samninga
allt frá 1. nóvember 1979 og aðrir frá 1. mars sl.
Sérfræðingar er starfa utan
sjúkrahúsa og semja við Trygg-
ingastofnun ríkisins og Sjúkra-
samlag Reykjavíkur hafa sagt
upp gildandi samningi frá 1. júlí
nk. Hafa yfir 100 sérfræðingar
sagt upp þeim samningi. Samn-
ingar þeirra hafa verið lausir frá
1. nóv. 1979 og hafa þessir lækn-
ar fengið vísitöluhækkanir á
kaup þennan tíma en ekki grunn-
kaupshækkanir. Viðræður
standa yfir.
Samningar sjúkrahúslækna
voru lausir 1. mars sl. og er þar
um heildarkjarasamning þeirra
að ræða. Samningurinn er gerður
var í júní sl. sumar var aðeins
breyting á gildandi samningi.
Viðræður LÍ og LR standa nú yf-
ir við ríki og borg og er fundur í
dag, þriðjudag.
Þá hafa samningar heimilis-
lækna verið lausir frá því í nóv-
ember 1979 og hafa málsaðilar
ræðst örlítið við. Eru það annars
vegar heimilislæknar er starfa
eftir svokölluðu númerakerfi, en
mál þeirra hefur að nokkru verið
í biðstöðu vegna breytinga sem
nú er rætt um að gera á því kerfi.
Hins vegar er um að ræða gjald-
skrá lækna á heilsugæslustöðv-
um, en laun þeirra lækna hafa
tekið breytingum þennan tíma.
Þá standa yfir viðræður við ýmsa
aðra lækna, sem t.d. starfa við
ýmsar stofnanir.
V
CITROÉN* GSA PALLAS — FRONSK FEGURÐ AÐ UTAN SEM INNAN
Örfáum bílum óráðstafað á ótrúlega hagstæðu verði
Kr. 127.000«—.
Þetta er sama verö og viö sömdum um viö vérksmiðjuna í október 1981.
• CITROÉN^ dregur ekki magann — Hin sjálfvirka hæöarstilling sér um sömu fjarlægð frá jöröu, óháö
hleðslu auk þess þrjár hæðarstillingar. Ómetanlegt í snjó og ófærö. • Vökvafjöörunin (aöeins á
CITROÉN^) skapar eiginleika og öryggi, sem enginn annar bíll getur boöiö upp á, t.d. þó hvellspringi á
miklum hraöa er þaö hættulaust, enda má þá keyra bílinn á 3 hjólum. • Framhjóladrif eins og
á öllum CITROÉN^-bílum síöan 1936. • Sænskar skýrslur sanna aö CITROÉN^ er einn af 4
endingarbestu bílum þar í landi.
Komiö
— Reynsluakið
Sannfærist
CITROÉN*