Morgunblaðið - 16.03.1982, Page 13
13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982
i
yfirleitt í stórborgum ytra og hann
gerði það um margt áður en kirkjan
kom, þvi að opna svæðið þar bauð
upp á dýrlegt útsýni á sumarkvöld-
um er margir nýttu sér og þá ekki
síst erlendir gestir. Nú er búið að
loka þessu upphafna útsýni með
jarðtengdri kirkju, sem er í hróp-
andi ósamræmi við umhverfið og
holtið. Hér hefði jafnvel mátt grafa
og sprengja kirkjuna inn í holtið og
skal vísað til þess, að ein fegursta og
frægasta kirkja Helsingforsborgar,
er sprengd inn í klöpp í miðri borg-
inni. Það skiptir ekki máli hvort
kirkja sé ofan jarðar eða neðan sé
andrúmið upphafið og guðdómurinn
borinn fram af eldmóði.
Vísa vil ég einnig til þess, að til að
rýma fyrir byggð í holtinu hefur
Náttúruverndarráð gert undantekn-
ingu á settum reglum um afstöðu
náttúruverndarsvæða ef stefnt er að
því að viðhalda sem mestri fjöl-
breytni ósnortinnar náttúru. Hér er
um að ræða gamalt fjöruborð þakið
sérkennilegum gróðri og ísaldar-
klöppum.
Illar tungur vilja meina að allt
þetta verði komið undir bílastæði
fyrr en varir þvi að auðvitað þarf
kirkjan fjölda bílastæða, eða álíta
menn að íslendingar leggi á sig að
ganga spottakorn til að þjóna Guði
sínum á tyllidögum?
Spyrja má einnig hvort það sé af
trúarlegum ástæðum sem menn
byggja háhýsi á hæðum en flathýsi
á flötum? Merkileg árátta það.
— Það mátti sjá svo margt
hrifmikið og athyglisvert í hug-
myndum Þórðar Ben. Sveinssonar á
sýningu hans að Kjarvalsstöðum í
haust. Hún var hugsuð sem innlegg
i umræðu um framtíðarskipulag
borgarinnar og var alls ekki
óframkvæmanleg draumsýn.
Dregið saman í hnotskurn má'
telja að þétting byggðar sé vel fram-
kvæmanleg án þess að við þessum
þrem svæðum verði hróflað, —
hækka má hús, rífa kvisti, stækka
og nýta betur eldri svæði. Allt ann-
að ber vott um skammsýni og vilji
menn marka sér nafn í söguna, sem
víðsýnir umbótamenn um umhverfi
og fegurð, er það vænlegra allri
húsavernd að falla frá öllum fyrri
hugmyndum um að fylla upp í opin,
áður skipulögð og jafnvel friðuð
svæði.
Bæjarstjórn ísafjardar
skorar á ríkisstjórn:
Hrint verdi í fram-
kvæmd áformum um
jöfnun orkuverðs
Á FÞNDI bæjarstjórnar ísafjarðar í síd-
ustu viku var samþykkt eftirfarandi
ályktun um orkumái og fylgir henni
einnig greinargerð:
Bæjarstjórn ísafjarðar vill benda
hæstvirtri ríkisstjórn á, að skipuleg
nýting innlendra orkugjafa á hóflegu
verði er forsenda fyrir bættum lífs-
kjörum í landinu. Því skorar bæjar-
stjórn ísafjarðar á ríkisstjórn íslands
að hrinda í framkvæmd áætlunum um
uppbyggingu innlendra orkugjafa
þannig að allir landsmenn geti átt
kost á nýtingu þeirra. Jafnframt skor-
ar bæjarastjórn ísafjarðar á núver-
andi stjórnvöld að hrinda í fram-
kvæmd samþykktum áformum sínum
um jöfnun orkuverðs um land allt.
Bæjarstjórn ísafjarðar lítur svo á,
að jöfnun orkuverðs sé forsenda fyrir
jafnri búsetu í þessu landi og það
verði að teljast eðlilegt réttlæti að
jöfnun orkuverðs nái fram að ganga
sem allra fyrst.
Greinargerð
Framangreind ályktun er fram
komin vegna þess uggvænlega ástands
sem nú ríkir í orkumálum þessa
landshluta.
Bæjarstjórn ísafjarðar vill vara við
þeirri stefnu í verðlagningu orku til
almennra nota er ríkir nú á þessu
svæði og þeim afleiðingum sem það
fyrirsjáanlega mun hafa á búsetu-
þróun svæðisins. Með fyrirheiti núver-
andi stjórnvalda í stjórnarsáttamála,
vöknuðu vonir manna um að tekist
yrði skelegglega á þessu mikilvæga
máli. Þær vonir hafa brugðist veru-
lega til þessa. Bæjarstjórn ísafjarðar
vill nú vekja athygli hæstvirtrar ríkis-
stjórnar á þeim mikla vanda sem
sveitarstjórnir og allur almenningur
hér á Vestfjörðum stendur frammi
fyrir í þessum efnum.
Nýr Mazda 929
þáttaskil í hönnun lúxusbíla.
Af hverju ?
Stílhrein innrétting
Að innan er Mazda 929
bæði rúmgóður og þægi-
legur og sker sig frá öðrum
bílum í sama stærðar-
flokki.
Öll innréttingin er stílhrein
og án skarpra brúna. Auk
þess að auka þægindi, þá
eykur slíkt öryggi farþega
og ökumanns.
ÖII sæti í bílnum eru klædd
vönduðu tauáklæði,
klæðning á hurðum, lofti
og sætum er í samræmdum
litum, til að gleðja augað
og gætt er samræmis við
liti á bílnum að utan.
Að innan er Mazda 929
einn hljóðlátasti bíllinn í
sínum stærðarflokki. Þykk
hljóðeinangrun er notuð
bæði í gólf og milli vélar og
farþegarýmis til að billinn
verði sem hljóðlátastur.
Hljóð inni í bílnum mælist
aðeins 64.5 decibel á 80
km. hraða. Innilýsingin er
með tímarofa, þannig að
ljós logar í nokkrar
sekúndur eftir að hurðum
er lokað meðan farþegar
koma sér fyrir og öku-
maður ræsir bifreiðina.
Þægindi
Er þú sest undir stýri, þá
finnur þú strax hve öku-
mannssætið er þægilegt.
Það er stillanlegt á 8 mis-
munandi vegu, og þvi
auðvelt að stilla það þannig
að það henti hverjum og
einum án tillits til stærðar
eða líkamsbyggingar.
Höfuðpúðinn er þar að
auki stillanlegur á 4 vegu,
upp og niður og fram og
aftur.
Sætisbak ökumanns í LTD
gerðum er tvískipt og hvor
hluti stillanlegur fyrir sig.
Sætissetan er stillanleg upp
og niður að framan og
hægt er að færa allt sætið
upp og niður. Sérstök still-
ing er í sætisbakinu fyrir
stuðning við mjóhrygg.
Allt sætið er svo auðvitað
færanlegt fram og aftur,
þannig að jafnvel þeir
leggjalengstu hafa nóg
fótarými.
Farþegar í aftursæti taka
lika strax eftir hve þægilegt
sæti er. Það er lika læknis-
fræðilega hannað, þannig
að fólk þreytist síður, jafn-
vel eftir margra klukku-
stunda akstur.
Vel útbúið mælaborð
Mælaborðið í Mazda 929
er taugamiðstöð bílsins.
Öll stjórntæki eru rétt
staðsett og flestir rofar eru
veltirofar, sem eru neðar-
lega á mælaborði og í
góðu sjónmáli ökumanns.
Allir mælar eru með sjálf-
lýsandi vísum og með still-
anlegri lýsingu, þannig að
ökumaðurinn les auðveld-
lega á þá eftir að skyggja
tekur. Nákvæm tölvu-
klukka er í öllum gerðum.
Auk venjulegra viðvör-
unarljósa eru sérstök ör-
yggisljós, sem gefa öku-
manni til kynna nokkur
atriði sem varða öryggi:
hvort lítið bensín sé á bíln-
um, hvort vanti vatn á raf-
geymi, eða rúðusprautu,
hvort bílbelti hafi ekki
verið spennt, hurðir falli
ekki vel að stöfum og hvort
farangursgeymslan sé opin.
Allt er því gert til að
tryggja að ökumanninum
verði aksturinn sem
auðveldastur, öllum stjórn-
tækjum og mælum er
þannig fyrir komið að
hann þurfi aldrei að teygja
sig eða taka augun af veg-
inum.
Útlitshönnun
Allir geta verið sammála
um að Mazda 929 er falleg-
ur bíll. En útlitshönnun
bílsins þjónar einnig
frekari tilgangi en bara að
gera bílinn fallegan.
Lág vélarhlíf, sléttur ljósa-
búnaður, grannir glugga-
póstar, ávalur fram högg-
deyfír sem virkar eins og
vindkljúfur og margt fleira
orsakar að Mazda 929
hefur sérlega lágt loftmót-
stöðuhlutfall, eða aðeins
0.39 Q. Þetta er eitt lægsta
hlutfall, sem þekkist meðal
fólksbíla af þessari stærð.
Það veldur því, að Mazda
929 verður stöðugri í akstri
og einnig minnkar bensín-
eyðslan verulega.
Stórir gluggar og grannir
gluggapóstar auka öryggi,
þvi ökumaðurinn hefur
óhindrað útsýni til allra
átta.
Fyrst og fremst er Mazda
929 hannaður með það í
huga að verða góður fjöl-
skyldubíll. Rúmgott og
þægilegt farþegarými, með
margvíslegum búnaði, sem
eykur þægindi og
ánægju, er einmitt það sem
gerir hann frábæran sem
slikan.
Mest seldi bíllinn á íslandi
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23, sími 812 99.