Morgunblaðið - 16.03.1982, Síða 19

Morgunblaðið - 16.03.1982, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982 19 Eiginkona Moammars GaddaH Líbýuleiðtoga spássérar um Karntn- ersstrasse í Vínarborg í verzlunarerindum, meðan eiginmaður hennar ræðir við Bruno Kreisky kanzlara. Frúin heitir Aommar. Sveinninn ungi er sonur hennar, en lífvörður fylgdi þeim vid hvert fótmál. Málaliðaárás á Ghana áformuð London, 15. marz. HÓPIIR málaliða hyggst myrða þjóðhöfðingja Ghana, Jerry Kawlings flugliðsforingja, og taka stjórn lands- ins í sínar hendur með fjárhagslegum stuðningi (’IA að sögn blaðsins News of the World. Blaðið segir að byltingin verði gerð um næstu helgi og leiðtogi hennar sé Nick Hall, fyrrverandi brezkur hermaður, sem barðist sem málaliði í Angola 1976. Nýr aðstoðar- yfirmaður KGB Moskva, 15. mars. Al*. GEORGY K. Tsinev hefur verid skipaður aðstoðaryfirmaður sov- ézku leynilögreglunnar KGB, í stað Seymon Tsvigun sem lézt í janúar. Engin formleg tilkynning var gefin út um skipan Tsinevs í starfið, en Tass taldi hann upp í fréttum af yfirmönnum KGB. Tsinevs er sjötíu og fjögurra ára gamall og hefur verið í kommún- istaflokknum í hálfa öld og gegnt trúnaðarstörfum innan KGB. Núverandi yfirmaður KGB er Yuri Andropov. Hall ræddi fyrirætlanir sinar í síðustu viku við andófsmenn frá Ghana — Kwesi Ofori, gjaldkera Þjóðlega alþýðuflokksins (PNC), sem er bannaður, og frænda Ofori, Boakye Djan majór, sem er í útlegð. Hall á að hafa sagt: „Ofori er ný- kominn frá Washington með pen- inga frá CIA.“ Blaðakonan Gloria Stewart hafði eftir Djan að Rawl- ings væri að búa þannig um hnút- ana að Moammar Khadafy Líbýu- leiðtogi tæki völdin í Ghana. Auk þess að myrða Rawlings er Hall sagður ætla að gera árás á Kumasi með 30 stuðningsmönnum, leggja undir sig helztu byggingar og þjónustufyrirtæki og koma af stað borgarastyrjöld með hergögnum sem verður smyglað frá Suður- Afríku. Síðan á að afla stuðnings uppreisnarhermanna og lögreglu- manna og gera árás á höfuðborgina Accra. Hall var rekinn úr hernum 1972 fyrir að selja vopn til mótmælenda á Norður-írlandi og sat tvö ár í fang- elsi. Rawlings steypti stjórn Hilla Liman forseta á gamlaársdag og sakaði hana um spillingu. Rawlings kom stjórn Limans til valda 1979 eftir aðra byltingu. Banna Rússar þorsk- veiðar í Barentshafi? Osló, 15. marz, frá Jan Krik Laure fréttaritara Mbl. SOVÉTMENN munu banna all- ar þorskveiðar í Barentshafi, ef þorskstofninum þar er stefnt í hættu, eins og nokkrir vísinda- menn halda fram, sagði Vladim- ir Kametsev sjávarútvegsráð- herra Sovétríkjanna í viðtali við norsk blöð. Kametsev sagði að ljóst væri að grípa þyrfti til sérstakra ráðstaf- ana til verndunar þorskstofninum í Barentshafi. Hann sagðist vona í lengstu lög að ekki þyrfti að grípa til algerrar stöðvunar, því það mundi stefna afkomu íbúa strandhéraðanna í nyrstu hlutum Noregs og Sovétríkjanna í voða. Ljóst mun vera, að gengið hefur verið um of á hrygningarstofnana í Barentshafi, og næstum hefur tekist að útrýma vissum þorskár- göngum bar. Fiskifræðingar full- yrða að sjómenn séu á góðri leið með að útrýma stofninum. Norðmenn og Rússar eru ekki á einu máli um með hvaða hætti takmarka skuli veiðarnar í Bar- entshafi. Vilja Rússar til dæmis alls ekki fallast á að stækka möskva, sem forðað gæti ungvið- inu frá ótímabæru drápi. Jenkins spáð ósigri í aukakosningunum London, 15. marz. Al*. ROY Jenkins, frambjóðanda kosn- ingabandalags Jafnaðarmanna- flokksins og Frjálslynda flokksins, er spáð ósigri í aukakosningunum í Hillhead, samkvæmt úrslitum tveggja skoðanakannana, er kunn- gerð voru um helgina. Osigur í þessum kosningum gæti þýtt, að vonir Jenkins um að verða leiðtogi kosningabandalagsins á þingi yrðu að engu. Hann er hinn eini fjögurra stofnenda Jafnaðar mannaflokksins, sem ekki á sæti á þingi. Samkvæmt könnun blaðsins Observer á afstöðu kjósenda í Hillhead, naut Jenkins aðeins fylgis 23% kjósenda og var í þriðja sæti. David Wiseman, frambjóðandi Verkamannaflokks- ins, naut fylgis 33% og Gerry Mal- one, frambjóðandi Ihaldsflokks- ins, 30%. í könnun, sem gerð var fyrir skozka blaðið Sunday Standard og BBC, var Malone efstur með fylgi 30% kjósenda, en Jenkins og Wiseman voru jafnir að vinsæld- um með 27% fylgi hvor. Þeir sem framkvæmdu könnun- ina sögðu, að Jenkins nyti ekki al- mennrar hylli meðal kjósenda í Hillhead, kjósendum þætti hann ekki eftirsóknarverður fulltrúi þeirra, eða, eins og einn aðspurðra sagði: „Höfum lítið að gera við einhverja druslu frá Englandi, og hann er velskur í þokkabót." Jenkins vildi engu spá sjálfur og sagðist aldrei hafa lagt dóm á niðurstöður skoðanakannana. E1 Salvador: Skæruliðar ráðast á lögreglustöð San Salvador, 15. marz. Al*. TIittUGU skæruliðar vinstri manna í El Salvador réðust á lögregluvarðstöð við borgina Metapan á laugardag, drápu einn lögregluþjón og særðu annan, að sögn yfirvalda hersins. A öðrum stað fundust tveir efn- aðir bræður skotnir til dauða, sem skæruliðar höfðu rænt nokkrum dögum áður. Þá brenndu skærulið- ar tvo almenningsvagna og nokkr- ar bifreiðir þar sem þeir reyndu að loka þjóðveginum til austur- hluta landsins. Að sögn hernaðaryfirvalda var sókn hersins gegn skæruliðum í San Vicente hætt á sunnudag, eft- ir sjö daga bardaga. Engin yfirlýs- ing var gefin út um árangur af sókninni, né mannfall í röðum hersins. Erkibiskupinn í E1 Salvador hvatti til þess t dag, að teknar yrðu upp samningaviðræður við skæruliða að loknum kosningum í landinu 28. marz nk. Gullhéraleitinni er loksins lokið FÓLK á öllum aldri hefur velt vöngum yfir „Masquerade“-gull- héranum í langan tíma og grafið litlar holur út um allt England í leit að honum. En nú getur það andað rólegar því hérinn er fund- inn. 48 ára gamall verkfræðingur fann hann í Ampthill sem er lít- ill bær um 50 km fyrir norðan London í síðasta mánuði. Finn- andinn varð gagntekinn af bók listamannsins Kit Williams þeg- ar hún kom út og hefur leitað hérans, sem bókin fjallar um, í 18 mánuði en bókin er full af ljósum og óljósum ábendingum um hvar hérann væri að finna. Williams gróf gullhérann, sem þá var um 60.000 kr. virði, í ágúst 1979 til að draga athygli að barnabókinni „Masquerade" og myndunum í henni. Hún fjall- ar um hetjuna Jack Hare sem stekkur um himininn og ber mikilvæg skilaboð frá mánanum til sólarinnar. Bókin hefur selst í yfir milljón eintökum og verið meðal best seldu bóka bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Nýliðum frá FBI var meðal ann- ars sagt að lesa hana og spreyta sig á gátunni um grafna gullhér- ann. Myndatextinn „One of six to eight", sem er undir fyrstu myndinni í bókinni, reyndist mikilvægasti lykillinn að lausn gátunnar. Þar er átt við Kathar- ine frá Aragon sem var ein af sex eiginkonum Hinriks VIII en hérinn var grafinn nærri minn- isvarða um hana. Nafn finnand- ans hefur ekki verið látið uppi en hann sagði London Times að hann hefði fljótt áttað sig á Katharine. Hann ætlaði þó tvisvar að gefast upp og gaf sitt eintak af bókinni. En í bæði skiptin keypti hann sér hana aft- ur. Hann leitaði gullhérans lengi í Kimbolton þar sem Katharine lést en fór til Ampthill þegar hann heyrði að Williams hefði eytt hluta bernskuáranna þar. Hundurinn hans kom honum loks á rétta sporið þegar hann var úti að ganga með kærust- unni og hundurinn hljóp í burtu og lyfti fætinum við stein, finn- andinn sá þá minnismerkið um Katharine sem á er letrað „Full of thy richers" og sannfærðist um að hérinn væri á næstu grös- um. Hann leitaði í kringum minnismerkið með skóflu að nóttu til og rakst loks á gullhér- ann 24. febrúar. Hann ofreyndi sig á nætur- bröltinu og var lagður á sjúkra- hús með slæmt kvef í nokkra daga, en hann lét það ekki á sig fá og var himinlifandi yfir fund- inum þótt hann segði að honum fylgdi nokkur tómleikatilfinning eftir svo langa leit. Williams sagðist vera mjög ánægður með að hérinn væri fundinn og fegn- astur því að einhver hefði ekki bara óvart rekist á hann á rölti við minnismerkið. Gunnar Gunnarsson hefur um langt skeið verið emn virtasti höfund ur á Norðurlöndum Ritsafn Gunnars Gunnarssonar Saga Borgarættarinnar Vargur i véum Svartfulg Sælir eru einfaldir Fjallkirkjan I Jón Arason Fjallkirkjan II Sálumessa Fjallkrikjan III Fimm fræknisögur Vikivaki Dimmufjöll Heiðaharmur Fjandvinir V Almenna Bókafélagiö Austuratraati 18, •<mi 25544. Sk«mmuv«gur 36 •ími 73055.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.