Morgunblaðið - 16.03.1982, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982
21
Einokun Mahre-
bræðranna í
Tékkóslóvakíu
Mahre-bræðurnir kunnu voru í
miklum ham á heimsbikarkeppninni
á skíðum um helgina, en að þessu
sinni var keppt í Jasna í Tékkóslóv-
akíu. Steve Mahre, heimsmeistar
inn, hóf sigurgöngu fjölskyldunnar á
laugardaginn er hann sigraði í stór
sviginu, tími hans var samtals
2:15,07. Annar varð Hans Gnn frá
Austurríki á 2:15,10, en heimsbik-
arhafinn l’hil Mahre varð þriðji á
2:15,21.
A sunnudaginn sneri Phil Mahre
taflinu við og sigraði í svigkeppn-
inni, tími hans var 1:27,92. Annar
var Ingemar Stenmark, sem fékk
tímann 1:29,51. Þriðji varð svo Steve
Mahre, en Anton Steiner frá Austur
rfki varð fjórði.
Pétur valinn
besti leikmaður
Trailblazers
• Pétur Guðmundsson var kjörinn
besti maður Portland Trailblazers,
er lið hans tapaði rétt einum leikn-
um í NBA-deildinni um helgina, að
þessu sinni gegn Houston Rockets
107—112. Pétur lék lengst af í vörn-
inni og var þar teflt fram gegn ein-
um af sterkustu sóknarmönnum
NBA-deildarinnar, Moses Malone.
Pétur þóti standa sig frábærlega vel
og í sjónvarpslýsingu af leiknum var
hann óspart lofaður fyrir framgöng-
una, sem sögð var hans besta í bún-
ingi Portland tii þessa. Þá bætti Pét-
ur um betur er hann fékk að leika
lausum hala í sókninni, skoraði 9
stig.
FrétUritari Mbl. l'ortland.
• Pétur Guðmundsson tekur víti I leik gegn Knicks á dtígunum. Eins og sjá
má á Ijósatöflunni efst á myndinni er staðan 99—98 fyrir Blazers og var
leiknum að Ijúka. Það var því mikilvægt að Pétri tækist vel upp í skotunum.
Pétur skoraði úr skotinu.
• Ronnie Whelan, til vinstri, fagnar öðru marki sínu í úrslitaleiknum I deildarbikarnum á Wembley á laugardag.
Mark þetta kom í síðari hluta framlengingarinnar og kom Liverpool yfír (leiknum 2—1. Ray Clemence, markvörður
Tottenham, getur greinilega ekki dulið vonbrigði sín þar sem hann liggur á jörðinni. Og bakvörðurinn Chris
Houghton stendur hjá. Sjá bls. 28. Símamynd AP
ísland gerði jafntefli við Kuwait
fáum áhorfendum viðstöddum.
Kuwait-menn sýndu talsverða leikni
með knöttinn, en leikskipulagi og
hörku var ábótavant.
Tvö ný heimsmet
ísland og Kuwait gerðu jafntefli í
landsleik í knattspyrnu sem fram fór
í Kuwait um helgina. Kuwait leikur
sem kunnugt er í lokakeppni HM á
Spáni í sumar og var leikurinn liður
í undirbúningi liðsins. Gkkert mark
var skorað í leiknum og er ekki að
sjá á þeim úrslitum að mikið sé í
Kuwait spunnið, þar sem íslensku
leikmennirnir eru allir tiltölulega
nýbyrjaðir að undirbúa sig fyrir
sumarið og fjarri því að vera komnir
í góða æfingu.
Leikurinn fór fram á stórgóðum
grasvelli, í miklum hita, en að frekar
Sovéski sundmaðurinn Vladimir
Salnikov setti um helgina tvö heims-
met í 1500 og 400 metra skriðsundi,
en hann keppti á móti í Moskvu.
Tími Salnikovs í 1500 metrunum var
14:56,35 mínútur, en sjálfur átti
hann gamla metið sem hljóðaði upp
á 14:58,27 mínutúr. Á þessu sama
móti setti AusturÞjóðverjinn Jurgen
Wojthe Evrópumet í 100 metra
skriðsundi, synti á 49,95 sekúndum.
Teitur skoraði sitt 16. mark
og færði Lens kærkominn sigur
TEITIIR Þórðarson er enn að í
frönsku knattspyrnunni. Hann skor
aði sigurmark Lens gegn Nantes um
helgina og hefur því skorað 6 mörk í
fjórum síðustu leikjum Lens. í þeim
hefur Lens tekið inn 7 stig af 8
mögulegum og er komið þremur
stigum upp fyrir fallsætin. Góður
kippur hjá liðinu, en lengst af í vetur
hefur staða liðsins og gengi verið
afar bágborin. Úrslit leikja urðu sem
hér segir:
Monaco — Lyon 3—1
St. Etienne — Nice 2—0
Sochaux — Valenciennes 2—0
Paris St.G. — Nancy 1—2
Lens — Nantes 1—0
Brest — Auxerre 2—2
Tours — Lille 4—1
Laval — Montpellier 2—1
Metz — Bordeaux 1—1
Strasbourg — Bastia 0—0
Karl Þórðarson og félagar hjá
• Teitur Þórðarson hefur skorað 16
mörk með Lens og leikið mjög vel.
Laval sigruðu Montpellier frekar
naumlega. Karl lék með en skoraði
ekki. Laval er í sjötta sæti deildar-
innar með 37 stig eins og Paris
St.G., sem hefur aðeins betri
markatölu. Sochaux er í fjórða
sæti með 38 stig, St. Etienne er í
þriðja sætinu með 41 stig, Bord-
eaux í öðru sæti með 42 stig, en
efst er Monaco með 43 stig. Laval
berst því öðru fremur fyrir sæti í
UEFA-keppninni að ári og vissu-
lega á liðið möguleika á því að
hreppa það. Lens hefur með fjör-
kipp sínum skotist upp í 17. sæti,
en liðið hefur nú 23 stig. Valenci-
ennes hefur einnig 23 stig, en liðin
í fallsætunum eru nú Montpellier
með 20 stig og Nice með 17 stig.
Næstu lið fyrir ofan Lens eru nú
Metz og Lyon með 24 stig hvort,
Auxerre og Strasbourg hafa 25
stig hvort félag.
Þorvaldur setur íslandsmet
í 110 metra grindahlaupi
„ÞE'lTA small engan veginn saman,'
svo ég tel líklegt að ég eigi meira
inni, þótt metið hafi falíið að þessu
sinni. Það er hálfgerður bægslagang-
ur á manni ennþá, á ennþá töluvert í
land með að fínpússa stílinn í hlaup-
inu,“ sagði Þorvaldur Þórsson frjáls-
íþróttamaður úr ÍR í spjalli við Mbl.
í gær, en hann stóð sig með ágætum
á frjálsíþróttamóti í San Jose í Kali-
forníu um helgina, og setti nýtt ís-
landsmet í 110 metra grindahlaupi,
hljóp á 14,4 sekúndum. Gamla metið
var í eigu Péturs Rögnvaldssonar,
var 14,6 sekúndur, sett á Melavellin-
um endur fyrir löngu.
Þorvaldur Þórsson hefur um ára-
bil verið efnilegasti grindahlaupari
íslendinga, en oft hafa meiðsli hald-
ið honum fjarri góðu gamni. Nú virð-
ist hann hins vegar í góðu formi, og
tæpast lætur hann staðar numið hér,
heldur bætir metið enn frekar þegar
líður á vorið, og íslandsmetið í 400
metra grindahlaupi er innan seil-
ingar.
„Kg varð annar í hlaupinu, hljóp
við hlið stráks sem hljóp á 14,1 um
fyrri helgi. /Etlaði að berjast við
hann upp á líf og dauða, náði sæmi-
legu starti og var undan honum allt
þar til við vorum að fara yfir níundu
grind. Þá krækti ég í grindina, hras-
aði og missti hann fram úr mér, “
sagði Þorvaldur. Keppinautur hans
hljóp á 14,3 sekúndum að þessu
sinni. Meðvindur mældist 0,2 metr
ar á sekúndu.
Þorvaldur keppir nánast um
hverja helgi fram í maí, um næstu
helgi hleypur hann 110 og 400
metra grindahlaup á móti, sem
sjónvarpað verður í Kaliforníu og
Oregon-ríki, og hyggst hann
standa sig vel á þessu móti.