Morgunblaðið - 16.03.1982, Page 42

Morgunblaðið - 16.03.1982, Page 42
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982 Lítil skemmtun er FH lagði KA léttilega að velli FH VANN öruggan sigur á KA í 1. dcildinni í handknattleik fyrir nord- an á sunnudaginn. Lokatölur urdu 30—23, eftir að staðan hafi verið jöfn, 13—13, í hálfleik. í upphafi voru FH-ingar mun ákveðnari og eftir tíu mínútna leik voru þeir komnir með fjögurra marka forystu, 8—4. KA-menn gáf- ust ekki upp og er tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum náði Krlingur Kristjánsson að jafna, 9—9. Síðan var jafnt á öllum tölum upp í 13—13 eins og staðan var í hálflcik. Seinni hluti hálfleiksins var nokkuð spenn- andi, en ekki að sama skapi vel leik- inn. Hafi einhver gert sér vonir um áframhaldandi spennu í leiknum var því ekki að skipta. FH hafði algera yfirburði í síðari hálfleik og náði á tímabili níu marka for- ystu. Þeir skoruðu tvö fyrstu mörk hálfleiksins. KA minnkaði mun- inn niður á eitt mark, en FH svar- aði með þremur mörkum í röð og var staðan þá orðin 18—14. Krist- ján Arason skoraði 19. mark FH ST 23:30 og Valgarður Valgarðsson það 20. áður en Friðjón Jónsson skoraði 17. mark KH. Næstu mínútur gekk hvorki né rak hjá heimamönnum, sem klúðruðu hverri sókninni af annari, mörgum hverjum mjög klaufalega og FH skoraði sex mörk í röð. Staðan breyttist því í 15—17 og stórsigur FH var í höfn. KA náði að laga stöðuna aðeins fyrir leikslok, en eins og áður sagði sigraði FH með 30 mörkum gegn 23. Munurinn á liðunum var mjög mikill í leiknum, KA-menn virtust ekki hafa nóg úthaid er líða tók á og FH-ingar, með hina sterku skyttur Kristján Arason og Hans Guðmundsson í fararbroddi, réðu lögum og lofum á vellinum. KA- mönnum gekk mjög illa að hemja þessa tvo og þeir félagar áttu einnig góðan leik í vörninni. KA- vörnin var oft og tíðum eins og vel smurð vængjahurð, sem FH-ingar fóru í gegn um að vild og var Að- alsteinn Jóhannesson ekki öfunds- verður að þurfa að standa í KA- markinu fyrir aftan slíka vörn. KA-menn geta þó þakkað Aðal- steini fyrir að tapa ekki enn stærra, því hann varði með ágæt- um í leiknum og er sá eini í liðinu sem á hrós skilið. Dómarar voru Jón Friðsteinsson og Hjálmur Sig- urðsson. Mörk KA: Þorleifur Ananíasson 5, Sigurður Sigurðsson 4, Friðjón Jónsson 4, Jóhann Einarsson 4, Erlingur Kristjánsson 4, 3 víti, Magnús Birgisson 2. Mörk FH: Kristján Arason 9, 1 víti, Hans Guðmundsson 7, Guð- mundur Magnússon 6, Valgarður Valgarðsson 3, Sveinn Bragason 2, Sæmundur Stefánsson, Pálmi Jónsson og Finnur Árnason eitt hver. Víti í súginn: Aðalsteinn varði eitt víti frá Kristjáni Arasyni. • Kristjin Arason, stórskyttan úr FH, skoraði 9 mörk gegn KA norður á Akureyri. Einkunnagioím Lið KA: Aðalsteinn Jóhannsson 8 Krlingur Kristjánsson 4 Sigurður Sigurðsson 4 Þorieifur Ananíasson 5 Friðjón Jónsson 5 Jóhann Kinarsson 5 Magnús Birgisson 4 Aðrir léku of lítið. Lið FH: Haraldur Kagnarsson 4 Gunnlaugur Gunnlaugsson 5 Sæmundur Stefánsson 6 Kristján Arason 8 Sveinn Bragason 4 Guðmundur Magnússon 6 Pálmi Jónsson 4 Finnur Árnason 5 Hans Guðmundsson 7 Valgarður Valgarðsson 6 Bayern og Köln eru efst og jöfn í þýsku deildarkeppninni BAYKRN Munchen og FC Köln eru efst og jöfn í þýsku deildarkeppninni í knattspyrnu eftir umferð helgar- innar, en bæði liðin unnu góða sigra. Bayern fékk Borussia Dortmund í heimsókn og sigraði 3—1. Sá sigur var alls ekki öruggur og það var ekki fyrr en á 80. mínútu að Paul Breitn- er skoraði úr víti og breytti stöðunni úr 1 — 1 í 2—1 fyrir Bayern. Dieter llöness hafði náð forystunni fyrir Bayern, en Manfred Burgsmuller jafnaði. Höness skoraði svo þriðja mark Bayern rétt fyrir lcikslok. Úr slit leikja urðu annars sem hér segir: Armenia — FC Núrnberg 2—0 B. Leverkusen — FC Kaisersl. 0—1 Darmst. 98 — E. Braunschweig2—3 Werder Bremen — Karlsruhe 2—1 Duisburg — Hamburger SV 1—2 Stuttgart — Frankfurt 5—2 Mönchengl.bach — FC Köln 0—2 B. Múnchen — Bor. Dortmund 3—1 Bochum — Dússeldorf 3—0 Köln vann afar athyglisverðan sigur á útivelli gegn Borussia Mönchengladbach og liðið veitir Bayern, HSV og hinum toppliðun- um geysiharða keppni. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik, en Engel og Littbaski skoruðu í síðari hálfleik og tryggðu Köln bæði stigin. HSV sótti botnliðið Duisburg heim og vann mun öruggari sigur en 2—1 gefur til kynna. Yfirburðir HSV voru miklir og þeir Willy Hartwig og Manfred Kaltz komu liðinu í 2—0. Slökuðu HSV-menn síðan á og Rudi Seliger tókst að minnka muninn fyrir Duisburg undir lok leiksins. Stuttgart er heldur betur að rétta úr kútnum, liðið fékk Frankfurt í heimsókn og gersigr- aði gestina í miklum markaleik. Kelsch náði forystunni fyrir Stuttgart í fyrri hálfleik, en Nachtweih jafnaði fyrir hlé. Diet- er Muller endurnýjaði forystu Stuttgart fyrir leikhlé og í síðari hálfleik skoruðu Kelsch, Allgower og Reichert. Stuttgart leiddi því 5—1 þar til undir lok leiksins, er Harald Nickel náði að rétta aðeins úr kútnum fyrir Frankfurt. Atli Eðvaldsson og félagar hjá Fortuna Dusseldorf áttu enga möguleika gegn Bochum og liðið er enn í nokkurri fallhættu. Bochum-mörkin urðu þrjú áður en upp var staðið, en Atli og strák- arnir náðu ekki að svara fyrir sig. Staðan í deildinni er nú þessi: Haycrn Miinchen 24 16 2 6 59:35 34 K Koln 25 14 6 5 4X:21 34 llamburgcr SV 24 13 7 4 67:31 33 Bor. Mönchongl. 25 II 8 6 46:37 30 Werder Bremen 23 II 7 5 39:34 29 Hor. Dortmund 25 12 4 9 44:32 2X KC Kai.MT.slautcrn 24 9 X 7 49:45 26 Kintr. Hraunschwcig 24 13 0 II 4X:44 26 VFB Stuttgart 23 9 6 X 3X:37 24 Kintr. Frankfurt 25 II 2 12 61:58 24 VFL Hochum 24 X 7 9 35:34 23 F(' Nurnberg 25 9 4 !2 39:54 22 Karlsruhc Sí' 23 7 5 II 3X:43 19 Fortuna Dusseld. 25 6 7 12 39:58 19 Hayer Ix'verku.sen 23 6 5 12 29:51 17 Arminia Bielefeld 24 6 5 13 24:38 17 Darmstadt 9X 25 4 X 13 32:58 16 MSV Duisburg 25 6 3 16 32:57 15 Ágæt frammistaða Oskars og Odds „Kg FÓR med þá von í brjósti að verða í einu af þremur efstu sætun- um, en það tókst ekki. Kg er senni- lega enginn innanhússkastari, betur gengur utanhúss, og það skiptir öllu máli hvernig ég stend mig á utan- hússmeistaramóti handarískra há- skóla í sumar, “ sagði Óskar Jak- obsson frjálsíþróttamaður úr ÍR í samtali við Morgunblaðið í gær. Oskar varð fjórði á innanhússmeist- aramóti bandarískra háskóla, sem fram fór í borginni Pontiac í Michig- an um helgina. Óskar varpaði 19,37 metra, og vann til þess heiðurstitils, sem bandarískir kalla „All-Americ- an“. „Oddur Sigurðsson vann einnig til þessarar viðurkenningar, þeir stóðu sig með miklum sóma í boðhlaupinu, urðu fimmtu á 3:12,22 mínútum, sem er nýtt skólamet," sagði Óskar. Það gerir frammistöðu Texas-sveitarinnar Oddur Sigurðsson athyglisverðari, að þegar til móts- ins kom, hafði hún næstlakasta árangur 35 boðhlaupssveita, sem þar voru mættar. Þá varð félagi Óskars, Kelly Brooks, sjötti í kúluvarpinu með 19,22 metra og samtals urðu því sex frjálsíþróttamenn af 13 frá Texas „All-American“ á mótinu, sem þykir góð frammistaða. Þriðji kúluvarparinn frá Texas náði lág- marki til mótsins, en komst ekki í úrslit. Sigurvegari varð Mike Leh- man með 20,50 metra, annar Kev- in Atkins með 19,72 og þriðji Aug- ust Wolf með 19,62. Atkins og Lehman eiga báðir yfir 21 metra í kúluvarpi og hafa báðir varpað yf- ir 20,50 innanhúss í vetur. Alls kepptu 27 kúluvarparar á mótinu. Frjðlsar flirðltlr • Dieter Sex skoraði mark í stóraigri Stuttgart gegn Frankfurt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.