Morgunblaðið - 16.03.1982, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982
27
Ungir og efnilegir afreksmenn í íþróttum
Þeir vinna flesta
sína leiki með
10 marka mun
5. flokkur KR í handbolta hefur veriö mjög atkvæða-
mikill upp á síðkastiö, íslandsmeistarar í fyrra, unnu
Fylki í úrslitaleik í Reykjavíkurmótinu 12—4, og þegar
tvær umferðir höfðu verið leiknar í riðlinum voru þeir
þegar orðnir öruggir í úrslit. Markatala þeirra er hreint
stórkostleg, þeir hafa um 100 mörk í plús. Þjálfari þeirra
er Ragnar Hermannsson meistaraflokksmaður hjá KR.
Hefur hann náð sérdeilis frábærum árangri með strák-
ana, og er án efa mikið honum að þakka hin frábæra
frammistaða strákanna.
Blaðamaður Mbl. gerði sér því ferð vestur í KR-hús til
að líta á og rabba við þessi ungu efni. Teknir voru tali
þeir Þorsieinn fyrirliði Guöjónsson, Gunnar Gíslason og
Heimir Guðjónsson.
f -;
• Strákarnir í 5. flokki KR í handknattleik sem gera þaö svo gott í íslandsmótinu í ár. Liöiö er jafnframt
íslandsmeistari frá því í fyrra og Reykjavíkurmeistari.
• Gunnar, Þorsteinn og Heimir. Þeir eru mjög efnilegir handknatt-
leiksmenn.
Þorsteinn, hvað hefurðu æft
handbolta lengi? Ég hef æft í tvö
ár, eða síðan ég var 10 ára. Hvað
æfið þið oft í viku? Við æfum
svona frá 2—3 sinnum í viku eftir
því hvort það sé stutt í keppni eða
ekki. Býrðu hér í nágrenninu? Nei,
ég bý úti á Nesi, en ég bjó hér í
nágrenninu eins og flestir gera.
Hvaða stöðu spilar þú? Ég spila á
miðjunni. Þið vinnið flesta ykkar
leiki með 10 marka mun, hvað
skorar þú mörg mörk í leik? Það
er svo misjafnt, ætli það séu ekki
svona 4—6 mörk í leik. Nú ert þú
fyrirliði, er það ekki mikil ábyrgð-
arstaða? Nei, nei, ekki svo mikil-
vægt, en annars er ég næstum
vanur að vera fyrirliði, því ég var
fyrirliði í fyrra þegar við urðum
Islandsmeistarar, og svo var ég
líka fyrirliði í fótboltanum sein-
asta sumar. Hvað eru margir eftir
í 5. flokki sem voru í liðinu í
fyrra? Það eru bara tveir, ég og
Heimir. Hvernig er þjálfarinn?
Hann er alveg frábær, án hans
værum við ekki svona ofarlega.
Telurðu ykkur vera góða í sókn
eða í vörn eða eruð þið með svo
góðan markmann? Bara allt, við
erum sterkir í vörn og svo höfum
við tvo góða markmenn. En Þor-
steinn, hvaða lið finnst þér best í
deildinni, og hvaða menn finnst
þér bestir? Það er ekkert vafamál,
það eru KR og Víkingur, og svo
eru það Þorbergur Aðalsteinsson
og Alfreð Gíslason. Og að lokum,
verðið þið ofarlega í Islandsmót-
inu? Við verðum allavega í verð-
launasæti.
Gunnar, hvað ertu gamall? Ég
er nýorðinn 13 ára. Hvar býrðu?
Ég bý úti á Nesi. Hvað hefur þú
æft handbolta lengi? Ég hef æft í
tvö ár og þá bæði árin með Gróttu,
en ég gekk í KR í haust. Af hverju
skiptirðu um félag og af hverju
fórstu í KR? Það var bara miklu
meira gert fyrir KR-strákana en
okkur, svo er styst í KR. Hvað
spilarðu? Ég spila vinstri bakk.
Hvað skorar þú mörg mörk í leik?
Svona um 4 mörk í leik. Hvernig
finnst þér þjálfarinn? Hann er al-
veg frábær, hann hefur náð okkur
svo vel saman. Ertu í einhverju
örðu en handbolta? Já, ég er í
fótbolta á sumrin. Hvað ganga
margir upp í 4. flokk næsta ár sem
eru í liðinu núna? Það ganga ailir
• Þorsteinn fyrirliöi skorar svona
4 til 6 mörk í hverjum leik.
Ljótm. Karl Ingason
upp nema einn. Er Þorsteinn góð-
ur fyrirliði? Já, já, hann er ágæt-
ur, hann stjórnar svolítið. Hvaða
lið er best í fyrstu deild og hverjir
eru bestir þar? Það eru KR og
Víkingur og svo eru það Kristján
Arason og Alfreð Gíslason. Stefn-
irðu á að verða atvinnumaður í
handbolta? Nei, frekar stefni ég á
atvinnumennsku í fótbolta ef
eitthvað er. Og að lokum, hverjir
verða Islandsmeistarar í 5. flokki?
Pottþétt við.
Heimir, hvað ertu gamall? Ég er
12 ára. Hvar býrðu? Ég bý hér í
KR-hverfinu, eða úti á Neshaga.
Hefurðu æft lengi? Ég hef æft í 2
ár, alltaf með KR. Þú varst í liðinu
í fyrra, skoraðir þú eitthvað af
mörkum þá? Já, ég skoraði akkúr-
at 81 mark. Hvað spilar þú? Ég
spila hægri bakk, við erum þrír
fyrir utan, ég, Þorsteinn og Gunn-
ar. Hvernig finnst þér þjálfarinn?
; Hann er mjög góður, enda hefur
hann alveg reddað þessu hjá
' okkur. Gerir þú eitthvað annað en
að spila handbolta? Já, ég er í
fótbolta á sumrin. En Heimir,
hvaða lið er best í deildinni og
hvaða menn eru bestir? Bestu lið-
in eru alveg tvímælalaust KR og
Víkingur, og bræðurnir Gunnar og
Aifreð Gíslasynir eru bestir. Eftir
hverju ferðu þegar þú segir að þeir
séu bestir? Bara! Þeir skora mikið
af mörkum og svo eru þeir báðir í
landsliðinu. Hvernig heldur þú að
ykkur muni ganga í Islandsmót-
inu? Við verðum örugglega mjög
ofarlega.
igi
ÍSÍ berst merkileg gjöf
í tilefni 70 ára afmælis íþrótta-
sambands íslands 28. janúar sl.,
færði frú Sigríður Sigurjónsdóttir
ÍSÍ merkilega gjöf. Er hér um silfur
skjöld að ræða, sem föður hennar,
Sigurjóni Péturssyni, verksmiðjueig-
anda að Alafossi, hafði verið gefinn
1919, en þá hafði Sigurjón verið
ósigrandi í glímu frá 1910 og glímu-
kóngur íslands í öll þessi ár. Skjöld-
urinn er gerður úr sterlingsilfri og er
eftirmynd af skildi þeim, sem prýðir
„Grettisbeltið" svonefnda, en það
eru verðlaun, farandgripur, sem
glímukóngur íslands hlýtur hverju
sinni og fyrst var keppt um 1906.
Við afhendingu gjafarinnar voru
frú Sigríði færðar sérstakar þakkir
af forseta ÍSÍ, Sveini Björnssyni, og
framkvæmdastjórninni.
I árbók íþróttamanna árið 1951
ritaði Kjartan Bergmann Guðjóns-
son, skjalavörður Alþingis, um
nokkra glímukappa og m.a. eftirfar
andi um Sigurjón Pétursson glímu-
kappa íslands 1910—1919.
fíprotllrl
„Eftir hina frægu Þingvalla-
glímu 1907, þar sem Sigurjón Pét-
ursson, þá aðeins 19 ára gamall,
vakti á sér mjög mikla athygli,
hófst raunverulega frægðarferilí
hans sem glímumanns, þar sem
glíma þessi var svo mjög umtöluð
í þá daga vegna þeirrar miklu
keppni, er var á milli norðan- og
sunnanmanna.
Árið eftir var Sigurjón Péturs-
son einn af sjö glímumönnum, sem
þátt tóku í Olympíuförinni til
Lundúna, og sumarið 1909 fór
hann ásamt Guðmundi A. Stef-
ánssyni norður til Akureyrar á ís-
landsglímuna. í þeirri glímu sigr-
aði Guðmundur Stefánsson, en
Sigurjón gekk næstur honum.
Þótti þetta ein hin mesta frægð-
arför.
Næsta vor var svo Islandsglím-
an háð í Reykjavík í fyrsta skipti.
Fór þá Sigurjón með sigur af
hólmi. Hélt hann Grettisbeltinu
og glímukappatitlinum þar til árið
1919, en árin 1915-1918 féll
keppni niður. Á þessu timabili var
Sigurjón talinn ósigrandi.
Ármannskjöldinn vann Sigurjón
fyrst árið 1910 og samfleytt í 6 ár
í röð og tvo Ármannsskildi til
eignar. Árið 1912 tók Sigurjón í
annað sinn þátt í Ólympíuleikun-
um, sem þá fóru fram í Stokk-
hólmi. Auk ísl. glímunnar tók
hann þátt í grísk-rómverskri
glímu og stóð þar mjög framar-
lega. Helstu brögð Sigurjóns voru:
klofbragð, sniðglíma á lofti og
krækja.
Um íþróttaferil Sigurjóns væri
vissulega ástæða til að skrifa
langt mál, því þó hann sé sérstak-
lega frægur sem glímumaður, þá
var hann og frábær íþróttamaður
í mörgum íþróttagreinum, svo sem
skautaíþrótt, frjálsum íþróttum,
róðri og sundmaður var hann góð-
ur og forystumaður um sund-
mennt. Ber íþróttaskóli hans á
Álafossi því bezt vitni. Sigurjón
var einn af aðalhvatamönnum að
stofnun íþróttasambands ís-
lands."
Þess skal að lokum getið, að
framkvæmdastjórn ÍSI hefur
komið upp vísi að Minjasafni
ÍÞróttasambands íslands. Eru þar
geymdir margir gamlir verðlauna-
gripir og gjafir. Einnig eru í því
ýmsir gripir, sem voru í eigu
Benedikts G. Waage fyrrum for-
seta ISI. Allir gripir í safninu
verða skráðir sérstaklega og kom-
ið fyrir í skápum í húsakynnum
ÍSÍ.
• Hinn fagri skjöldur Mm frú Sigriöur fsarði ÍSf að gjöf.