Morgunblaðið - 16.03.1982, Síða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982
Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri á fundi í KEA:
Framkvæmdir hljóta að
stöðvast, er yfirstand-
andi verkefnum lýkur
- verði verðbólga og vaxtakjör svo óhagstæð sem nú
„VERÐBÓLGAN setur eins og und-
anlarin ár mikið svipmót á allar
veltutölur og veldur sívaxandi erfid-
leikum í fjármögnun rekstrarins og
fjármögnun framkvæmda. Fram-
kvæmdir hljóta að stöðvast að miklu
leyti eftir að lokið er yfirstandandi
verkefnum, verði verðbólga og
vaxtakjör svo óhagstæð sem nú.
Jafnframt kalla vaxtakjörin á sér
stakar hagræðingaraðgerðir f rekstri
félagsins." Þetta voru niðurlagsorð
Vals Arnþórssonar kaupfélagsstjóra
KKA á nýafstöðnum félagsfundi í
Kaupfélagi Eyfirðinga.
Á fundinum lýsti Valur Arn-
þórsson því að samkvæmt bráða-
birgðatollum hefði velta félagsins
á síðasta ári numið 770,8 milljón-
um króna. Árið 1980 var veltan
508,8 milljónir króna, svo að aukn-
ing milli ára varð 51,5%. Frá
þessu er skýrt í nýútkomnum
Sambandsfréttum, en þar segir
ennfremur:
Veltuaukningin er nokkuð mis-
jöfn eftir greinum. í verslun er
hún 56,8%, í iðnaði 57,4%, í þjón-
ustu 66,4% og í sjávarútvegi
60,9%. I vinnslu og sölu landbún-
aðarafurða var hún þó áberandi
lægst, eða 34,2%, sem þó er eðli-
legt miðað við ríkjandi aðstæður,
þar sem búvöruframleiðsla hefur
farið minnkandi í kjölfar kvóta-
kerfis og kjarnfóðurskatts.
Laun og launatengd gjöld hjá
félaginu námu 101,9 millj. kr., og
eru laun sláturhússreiknings þá
ekki meðtaiin. Hækkun launa-
kostnaðar á milli áranna er 50,1%.
Vörubirgðir félagsins í árslok í
verslun, iðnaði og þjónustu námu
62,7 millj. og hækkuðu um 43,2%.
Nettó fjárfestingar félagsins á
árinu námu 23,3 millj. Á móti
þeim fékk félagið ný fjárfest-
ingarlán að upphæð 13,7 millj., en
greiðslubyrði afborgana og vaxta
af eldri lánum var 15,4 millj.
Opinber gjöld og innheimtur fyrir
ríkissjóð námu 39,3 millj. á árinu.
Fjölmenn leit að
tveimur skátastúlkum
MIKIL leit var gerð að tveimur 15
ára gömlum skátastúlkum á Hellis-
heiði á laugardagskvöld og aðfara-
nótt sunnudags. Stúlkurnar fundust
um klukkan 2.30 um nóttina og
höfðu þá búið um sig inni í stein-
byrgi á heiðinni. Þær voru kaldar
eftir 16 tíma hrakninga, en voru
fljótar að ná sér og varð ekki meint
af volkinu. Mikill fjöldi leitarmanna
úr björgunarsveitum SVFÍ, Flug-
björgunarsveitinni og Hjálparsveit-
uni skáta tók þátt í leitinni frá því
um klukkan 22.30 og voru þeir ýmist
á bílum, vélsleðum, skíðum eða fót-
gangandi. Þyrla Landhelgis-
ga'/lunnar var einnig kölluð til að-
stoðar. Þá leitaði sporhundur með
leitarmönnum og átti hann 60 metra
eftir ófarna að byrginu er menn á
vélsleðum komu að stúlkunum.
Stúlkurnar fóru með áætlun-
arbifreið frá Umferðarmiðstöð-
inni klukkan 8 á laugardagsmorg-
un og ætluðu síðan að ganga frá
þjóðveginum ofan við Hveradali í
skátaskálann Jötunheima inni á
heiðinni. Fljótlega eftir að þær
lögðu af stað jókst snjókoman og
hvessti, en eftir að hafa hugsað
ráð sitt ákváðu stúlkurnar þó að
halda áfram. Þær mættu eldri
skáta á skíðum eftir talsverða
göngu. Hann lánaði þeim áttavita,
sýndi þeim stefnuna á skálann og
loks lánaði hann þeim tvo álpoka.
Enn bætti í veðrið og stúlkurnar
villtust af leið. Þær komu að
steinbyrginu um hádegisbilið, en
héldu áfram eftir nokkra hvíld
þar. Ekki tókst þeim að finna
réttu leiðina og er þær komu á ný
að byrginu ákváðu þær að láta
fyrir berast þar þangað til þeim
bærist hjálp.
„Veðrið var orðið mjög vont og
okkur var orðið kalt,“ sögðu stúlk-
urnar, þær Sigurveig Halldórs-
dóttir og Steinunn Sveinsdóttir,
sem báðar eru 15 ára gamlar, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Við þéttum byrgið með snjó að
utan og bjuggum síðan um okkur í
svefnpokum og álpokum. Okkur
hlýnaði lítið og fórum því í sama
poka og sungum allt sem við kunn-
um að syngja; skátasöngva og
aðra söngva, til að reyna að halda
á okkur hita. Um kvöldið tókst
okkur síðan að sofna og vöknuðum
ekki fyrr en við drunur vélsleð-
anna er björgunarmennirnir
komu. Þá höfðu þeir farið einu
sinni rétt framhjá okkur, en við
heyrðum ekki til þeirra.
Við erum mjög þakklátar öllum
þeim, sem leituðu okkar, og Helga
Grímssyni, skáta í Landnemum,
sem lánaði okkur álpokana og
áttavitann," sögðu þær Steinunn
og Sigurveig að lok'um.
Steinunn Sveinsdóttir og Sigurveig Halldórsdóttir voni fljótar að jafna sig
eftir hrakningana á heiðinni. (Ljósm. Kristján.)
%
3U '
l- * 1 ... nrfe-. 1 zjit18 * itii 11ji3
r.l " • 4;' 1 ~.
« mxi ,n 'ifi WfgZzr “
S sr j "X /r~a»r
~ i fk _3 ' _ . ffn
"TM «,'-“• «■£ mil ■■ , V- I
trr 7. ...
■'iiSc c !
!_ á:
;í:<
) ■>
i li
y
75.; ijÞn
--•*—1*1 IV “1 I—, m£5£r*\ ^‘C'/’ A. f'J
4.
__., sý' — k w-----------------------
L ■■ < ■ " ,J(A> ■ .. é/S/Í0
=■ : .-viPöowoopoeSf-6^
r*1'ty
• c /
r
'lfö? t
l.
. ©~
*
íbúðabyggð í Ártúnsholti
Lóðaúthlutun í Ártúnsholti og Suðurhlíðum:
Umsóknarfrestur rennur
út þann 19. þessa mánaðar
- áætluð gatnagerðargjöld á meðal einbýlishús um 150.000
NÍJ IIAFA á vegum borgarinnar
verið auglýstar lóðir til úthlutunar
í efsta hluta Huðurhlíða og Ártúns-
holti. I Suðurhlíðum er um að ræða
4 einbýlishúsalóðir, 17 raðhúsalóð-
ir með aukaíbúðum sumum hverj-
um og atvinnustarfsemi á tveimur
þeirra. í Ártúnsholtinu eru einbýl-
ishúsalóðirnar 134, raðhúsalóðirn-
ar 61 og íhúðir í fjölbýlishúsum 70.
Einbýlishúsalóðirnar í Ártúnsholt-
inu eru ferns konar og öll raðhúsin
tveggja hæða. llmsóknarfrestur er
til lostudagsins 19. þessa mánaðar.
Reiknað er með því að gatnagerð-
argjöld á meðal einbýlishúsi á
þessum svæðum eftir hækkun
byggingarvisitölu um næstu
mánaðamót verði um 150.000
krónur.
Gert er ráð fyrir því að lóðirn-
ar í Suðurhlíðum verði bygg-
ingarhæfar upp úr miðju þessu
ári, það er götur malbikaðar og
allar lagnir tilbúnar. í Ártúns-
holtinu er gert ráð fyrir því að
lóðirnar verði byggingarhæfar
að hluta til seint í haust, en ekki
er gert ráð fyrir því að bygg-
ingar hefjist almennt þar fyrr en
vorið og sumarið 1983. Stafar
það að hluta til af því að fjár-
veitingar til framkvæmda hafa
verið skornar niður og einnig af
því að á svæðinu eru miklar upp með uppgreftri frá öðrum
gryfjur, sem ætlunin er að fylla stöðum á svæðinu.
Sá hluti þessa uppdráttar, sem er ofan línunnar, er það svæði, sem nú
kemur til úthlutunar í Suðurhlíðum.
Prófkjörið í Grindavfk:
Sjálfstæðisflokkurinn fékk
100 atkvæðum fleira en við síð-
ustu bæjarstjórnarkosningar
SAMEIGINLEGT prófkjör allra
flokka í Grindavík fór fram um heig-
ina og hlaut Hjálfstæðisflokkurinn
flest atkvæði, 315, sem er 100 at-
kvæðum meira en í síðustu sveitar-
stjórnarkosningum. Alls kusu 690
manns. Alþýðuflokkurinn hlaut sam-
tals 159 atkvæði, Framsóknarflokk-
urinn 154 atkvæði og Alþýðubandal-
agið 62.
„EG er að sjálfsögðu mjög
ánægð með þann stuðning, sem ég
fékk í prófkjörinu um helgina, en
mest er ég ánægð með það mikla
fylgi, sem Sjálfstæðisflokkurinn
fékk í prófkjörinu, en flokkurinn
fékk 315 atkvæði og er það ná-
kvæmlega 100 átkvæðum fleira, en
flokkurínn fékk í síðustu sveita-
stjórnarkosningum," sagði Olína
Ragnarsdóttir, húsmóðir í Grinda-
vík, þegar Morgunblaðið ræddi við
hana, en hún fékk flest atkvæði í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
vegna sveitarstjórnarkosninganna
í vor.
Þrjú efstu sætin á lista Sjálf-
stæðisflokksins voru bindandi og
þau skipa: 1. Ólína Ragnarsdóttir
húsmóðir, 2. Guðmundur Krist-
jánsson framkvæmdastjóri og 3.
Eðvarð Júlíusson útgerðarmaður.
I 4. sæti í prófkjörinu var Viktóría
Ketilsdóttir skrifstofumaður og í
5. sæti Stefán Tómasson útvarps-
virki.
Efstu sæti Alþýðuflokksins
skipa Jón Hólmgeirsson, Magnús
Olafsson og Sigurður Ólafsson.
Hjá Framsókn urðu efstir Krist-
inn Gamalíelsson, Bjarni Andr-
ésson og Gunnar Vilbergsson. Hjá
Alþýðubandalaginu urðu efst
Kjartan Kristófersson, Hinrik
Bergsson og Helga Enoksdóttir.
Leiðrétting
I FRÉITT um málverkasýningu
Jóns Baldvinssonar í Keflavík var
sagt að hún væri í Strandgötu. Hið
rétta er að sýningin er í Hafnar-
stræti 28, Keflavík.