Morgunblaðið - 23.03.1982, Blaðsíða 1
48 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
64. tbl. 69. árg.
I’RIÐJUDAGUR 23. MARZ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Frú Walesa æf
út í stjórnvöld
Narsjá, 22. marz. AP.
DANUTA WALESA sagði í dag að hún bæri „mikinn kala“ til ráðamanna,
sem hún hefur kallað „djöfla í mannsm),nd“, fyrir að leyfa ekki Lech Walesa
að mæta við skírn dóttur þeirra, Maríu Viktoriu. „Ég hélt aldrei að þeir
mundu gera okkur þetta,“ sagði hún í símaviðtali.
Talið er að 6.000 til 10.000 manns
hafi mætt við skírnina. Svo margt
fólk hefur sjaldan safnazt saman
síðan herlögin voru sett og það er
túlkað þannig að almenningur hafi
viljað sýna andstöðu sína við stjórn
Jaruzelski hershöfðingja.
Vestrænn fulltrúi kvaðst gera ráð
fyrir að þessi mikli mannfjöldi hefði
valdið stjórninni þó nokkrum
áhyggjum.
Hann sagði að Pólland væri „of
mikil púðurtunna" til þess að
stjórnin hefði getað leyft Walesa að
sækja skírnina. „Ef þau geta fengið
10.000 til skírnar dóttur hans er
aldrei að vita hvað mundi gerast ef
Walesa gengi laus,“ sagði hann.
„Sleppið Walesa," hrópaði
mannfjöldinn við skírnina í Gdansk.
Einni viku áður mættu 20.000
manns í kirkju Ursus skammt frá
Varsjá þar sem Jozef Glemp erki-
biskup hvatti til þess að Walesa yrði
sleppt.
Sérfræðingar telja málið bera
vott um harðlínustefnu stjórnarinn-
ar. Yfirvöld ætli að „þrauka", halda
kúguninni áfram og hafa harðan
kjarna Samstöðuleiðtoga áfram í
haldi.
Frú W'alesa sagði að hún mundi
heimsækja Walesa seinna í vikunni
og hafa Maríu Viktoríu með sér, en
hann hefur aldrei séð hana.
Ríkisfjölmiðlar, sem hafa þagað
um skírnina, segja að stofnað hafi
verið nýtt Blaðamannafélag, sem
lýsti því yfir að það mundi standa
„innan ramma almennt viður-
kenndra meginregina pólitískrar
menningar og þjónustu í þágu hags-
muna sósíalisma."
„Kjarvora Walesa .. .** Sjá hls. 19.
Frú Walesa og María litla Viktoría.
Myndin var tekin á miðvikudag í
síðustu viku á heimili Walesa.
Dani geymdi
„leynisjóð“
Kaupmannahofn, 22. marz. Al*.
INGMAR WAGNER úr miðsljórn
danska kommúnistaflokksins var
yfirheyrður í dag, þar sem 500.000
d. kr í erlendum gjaldeyri var stol-
ið úr ieynilegum peningaskáp á
heimili hans.
Wagner, sem er fyrrverandi
þingmaður, hefur ekki verið
ákærður. Hann sagði í yfirlýs-
ingu að hann hefði haft féð til
geymslu um stundarsakir á
heimili sínu og nota hefði átt féð
við svokallað „alþjóðlegt sam-
stöðustarf" danska kommún-
istaflokksins. En Poul Emanuel
flokksritari sagði að flokkurinn
kannaðist ekkert við leynisjóð-
inn.
Við venjulega hassleit á
fimmtudaginn handtók lögregl-
an 16 ára ungling, sem lögreglan
sagði að hefði reynt að fela lykil
að hólfi á aðaljárnbrautarstöð-
inni. í hólfinu fundust 36.000
mörk, sem unglingurinn kvaðst
hafa stolið úr eldtraustum pen-
ingaskáp á heimili Wagners
með hjálp nokkurra vina sinna
þegar Wagner var í Sovétríkjun-
um.
Þetta leiddi til handtöku ann-
ars unglings í gær og dómari
sagði að málið yrði ekki gert
opinbert. Seðlabankinn ætlar að
yfirheyra Wagner, sem kom
heim í dag, til að kanna hvort
hann hafi brotið gjaldeyrislögin.
Rúmlega 300 afganskir útlagar efndu til háværra mótmæla fyrir utan sovézka sendiráðið í Nýju Delhí á
sunnudaginn, sem var tileinkaður Afganistan í mörgum löndum.
Columbia farin í
lengstu ferð sína
kanavcralhöfóa, 22. marz. Al\
BANDARÍSKA geimferjan Columbia fór í þriðju og lengstu
ferð sína í dag, einni klukkustund á eftir áætlun, þriggja
milljóna kílómetra ferð sem á að reyna hæfni ferjunnar til að
standast mikinn hita í geimnum.
Leiðangursstjórinn, Jack R.
Lousma, og aðstoðarmaður hans, £.
Gordon Fullerton, hófust strax
handa um vísindalegar tiiraunir og
hitaprófanir sem gera munu þessa
ferð þá annríkustu sem hefur verið
farin. Ferðin á að standa í sjö daga
og farnar verða 116 hringferðir.
„Fyrsti kafli ferðarinnar var
virkilega spennandi," sagði
Lousma, sem tók þátt í 59 daga ferð
geimrannsóknastöðvarinnar Skylab
II. Hjartslög hans mældust 132 á
mínútu, en Fullertons 92.
Bilun varð í rafmagnskerfinu áð- *
ur en Columbia komst á braut, en
talsmaður geimvísindastofnunar-
innar NASA sagði að hún mundi
engin áhrif hafa á lengd eða öryggi
ferðarinnar. Ekki þarf að nota tæk-
ið sem bilaði fyrr en í lok ferðarinn-
ar. Sams konar bilun varð til þess
að annarri ferð Columbiu í nóv-
ember var frestað í átta daga.
I ferð Columbiu verða gerðar
hitamælingar á öllum hliðum geim-
ferjunnar. í kvöld áttu geimfar-
arnir að beina stéli ferjunnar að
sólu og halda henni í þeirri stöðu í
28 tíma.
A miðvikudaginn beinir Lousma
nefi geimferjunnar að sólu og held-
ur henni í þeirri stöðu í 80 tíma. A
laugardaginn kemur röðin að far-
angursgeymslunni sem mun snúa
að sólu í 28 tíma. Tæki Columbiu
verða að þola allt að 93 stiga hita á
Celcius.
Lousma og Fullerton voru fullir
áhuga í byrjun ferðarinnar og
sendu sjónvarpsmyndir til jarðar.
Reagan forseti fylgdist með flug-
takinu í sjónvarpi og kallaði það
„glæsilegt afrek“. Rétt fyrir flug-
takið sendi hann geimförunum árn-
aðaróskir og sagði: „Öll þjóðin er
hreykin af ykkur og þeim sem gerðu
þetta kleift."
Geimskotinu var frestað vegna
bilunar í áfyllingartæki. Ein millj-
ón manna fylgdist með flugtakinu. I
tveimur fyrri ferðum fór Columbia
4.459.000 •’km, en nú fer ferjan
4.774.000 km.
Rúm 10.000 fómarlömb
rússneskra eiturvopna
Washington, 22. marz. Al\
Bandaríkjasljóm hélt því fram í
dag að eiturvopn frá Rússum
hefðu orðið rúmlega 10.000 manns
að bana í Afganistan, Laos og
Kambódíu og skoraði á aðrar ríkis-
stjórnir að fordæma slíkt athæfi.
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins sagði að einnig bærust
fréttir um dularfullt, óþekkt og
óséð eiturefni, sem væri notað
gegn andsovézkum frelsishetjum
í Afganistan.
Alls hafa 6.310 látizt af völd-
um svokallaðrar „gulrar rign-
ingar" — sérstaks sveppaeiturs
— í Laos, 981 í Kambódíu og
3.042 í Afganistan samkvæmt
skýrslu utanríkisráðuneytisins
um sannanir Bandaríkjastjórn-
ar.
Flestar ásakanirnar hafa ver-
ið bornar fram áður, en stjórnin
segir að skýrslan eigi að eyða
efasemdum um ásakanirnar.
Hún segir ásakanirnar byggðar
á frásögnum sjónarvotta og sýn-
ishornum frá svæðum þar sem
eiturhernaður hefur verið stund-
aður.
Walter J. Stoessel jr. aðstoð-
arutanríkisráðherra sagði að
skýrslan yrði send Þjóðþinginu,
framkvæmdastjóra SÞ og öllum
aðildarríkjum SÞ.
„Sovétríkin og bandamenn
þeirra fremja gróf og ítrekuð
brot á alþjóðalögum og alþjóða-
samningum," sagði Stoessel.
Hann sagði að vopnunum væri
beitt gegn þjóðum sem erfiðast
ættu með að verja sig.
The Times segir að franskir
læknar, sem hafa starfað með
skæruliðum í Afganistan, saki
Rússa og stjórnarhermenn um
eiturefnahernað og miskunnar-
lausa útrýmingarherferð í land-
inu.
Rússar beita óbreytta borgara
æ meiri grimmd og árásum
þeirra er helzt beint gegn varn-
arlausu fólki í þorpum og bæj-
um, segir The Times. Þeir drápu
1.400 manns í dalnum Pansjir í
febrúar, flesta með vélbyssu-
skothríð. Þeir helltu benzíni yfir
18 öldunga í einu þorpinu eða
brenndu þá lifandi, segir blaðið.
„Dagur Afgani.stans**. Sjá bls. 18.
Tilræði
í Beirút
Bcirúl, 22. iiiar/. Al*.
ÞRIDJI sendiráósritari íraska sendi-
ráðsins í Beirút var skotinn til bana í.
dag og herferð gegn fulltrúum er-
lendra ríkja í Líbanon hefur harðnað.
Sendiráðsmaðurinn Ali Hajem
Sultan var stöðvaður þegar hann ók
i bíl sínum frá nýrri bækistöð sendi-
ráðsins til vesturhluta Beirút. Hann
var skotinn af dauðafæri í höfuðið
þegar hann hafði opnað dyrnar á
hílnum og ætlaði að stíga út.
Óþekktir menn voru að verki.
Atburðurinn gerðist um 500
metra frá þeim stað þar sem fyrr-
verandi sendiherra Bandaríkjanna
var sýnt misheppnað banatilræði í
ágúst 1980.
Sendiráð Iraks var flutt í nýtt
húsnæði þegar bygging, þar sem það
var áður til húsa, eyðilagðist í
sprengingu, sem varð 64 að bana,
þeirra á meðal Abdul Razzak Lafta
sendiherra og 23 starfsmönnum
hans 15. desember sl.
ísraelskar herþotur flugu yfir
Beirút í dag og urðu fyrir harðri
skothríð úr loftvarnab.vssum. Isra-
elskir fallbyssubátar sigldu inn í
líbanska landhelgi við Sidon og Tyr-
os í gær og urðu fyrir skothríð
skæruliða, en svöruðu henni ekki.
Vopnahlé hefur verið samið eftir
þriggja daga átök stuðningsmanna
Irana og Iraka.