Morgunblaðið - 23.03.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.03.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1982 19 Fjarvera Walesa áberandi vid skírn yngsta barns hans Varsjá, 22. mars. AP. POLSKI verkalýðsleiðtoginn, Lech Walesa, var ekki látinn laus úr haldi af yfirvöldum til að vera viðstaddur skírn yngsta barns síns um helgina. Aður höfðu þær fregnir borist, að hann fengi að vera viðstaddur, en þær voru aldrei staðfestar. Blákaldur raunveruleikinn kom í Ijós um helgina. leg. Biskupinn í Gdansk tók á móti Danuta, eiginkonu Walesa, við kirkjuna. Var henni lýst við góða heilsu en augsýnilega þunglyndri. Meira en 6.000 manns voru sam- an komin við skírnarathöfnina í Gdansk og vakti hún feikilega at- hygli víða um heim. Fjarvera Wal- esa var mjög áberandi og autt sæti við hlið konu hans í kirkjunni var táknrænt. Athöfnin þótti látlaus, en virðu- Stórárás á Irani Nikósiu, 22. marz. AP. IRANIR hófu meiriháttar árás í morgun, mánudag, til að frelsa mest allt það svæði, sem írakar hafa her- setið síðan Persaflóastríðið hófst fyrir 18 mánuðum, að sögn írönsku fréttastofunnar. Deildir úr hernum og islamskir byltingarverðir gerðu árásina til að fylgja eftir fyrri hernaðarað- gerðum á suðurvígstöðvunum. Fréttastofan sagði að margir ír- akar hefðu verið teknir til fanga. Tilkynningin um helgina um hina nýju árás írana fylgir í kjöl- far harðra bardaga á mestallri víglínunni, sem er 480 km löng. Irakar höfðu tilkynnt að herlið þeirra sækti inn í olíuhéraðið Khuzestan, en íranir sögðust hafa hrundið árásum óvinarins á öllum vígstöðvunum. Dóttirin, sjöunda barn þeirra hjóna, hlaut nafnið Maria Viktoria. Athöfnin stóð yfir í 45 mínútur og að henni lokinni dreifðist mann- fjöldinn, sem er einhver sá mesti samankominn á einum stað eftir að herlög gengu í gildi. Pólska sjónvarpið sýndi á sunnu- dagskvöld 70 mínútna þátt um at- burðarásina í landinu síðan í janú- ar í fyrra. Var Walesa þar sakaður um að hafa færst „nær haukunum" á meðal leiðtoga Samstöðu. Sagði einnig í þættinum, að Samstaða gældi við einræðishugmyndir. Þá sagði einnig, að ástandið í landinu væri óðum að færast í eðlilegt horf. Hins vegar var ekki minnst einu orði á skírnina í Gdansk í opinber- um fjölmiðlum. E1 Salvador: Hollensku fréttamennirnir, sem drepnir voru í El Salvador í fyrri viku. Jan Kuiper, Jacobus Koster, Joop Willemsen og Hans der Laag. Myndin var tekin snemma í síðustu viku þegar þeir voru teknir til yfirheyrslu í fimm tíma, vegna þess að miði með nafni eins þeirra fannst í fórum skæruliða. Duarte sakar hægriöfgamenn um ofbeldi gegn fréttamönnum Tveir myrtir Bilbao, 22. mars. AP. TVEIR lögreglumenn létu lífið og tveir til viðbótar særðust er aðskilnaðar- sinnaðir Baskar réðust inn á veitinga- hús í borginni Bilbao og héldu uppi skothrið. Lögreglunni tókst að særa einn árásarmannanna áður en þeir kom- ust undan í stolinni bifreið. Með þessum morðum er tala látinna, sem Baskar eru taldir eiga sök á, komin í 7 á þessu ári. Baskar eru taldir ábyrgir fyrir 49 dauðsföllum í fyrra. New York, Washington, Amsterdam, 22. mars. AP. JOSE Napoleon Duarte, forseti El Salvador, sakaði í gær, sunnudag, hægrisinnaða öfga- menn í landinu um að beita ofbeldisaðgerðum gegn frétta- mönnum og viðurkenndi jafn- framt, að „ef til vill“ ætti herinn þar nokkra sök á. „Það er hreyfing hægrisinnaðra öfgamanna í landinu, sem hefur miklar áhyggjur af því að við vinnum í kosningunum. Þeir gera hvað þeir geta til að hindra það, þ.á m. með því að skelfa fólk,“ dagði Duarte í viðtali við CBS-sjónvarpsstöðina bandarísku. Stjórn Duartes heldur því fram, að hollensku fréttamennirnir fjór- ir, sem drepnir voru sl. miðviku- dag, hafi fallið í átökum her- manna við skæruliða, en aðrir telja, að þeir hafi verið myrtir. í gær, sunnudag, fór fram minn- ingarathöfn um mennina í Amst- erdam og voru viðstaddir hana 3000 manns. Guillermo Ungo, forsvarsmaður skæruliðasamtakanna í E) Salva- dor, sagði í Managua í Nicaragua í gær, að engar sérstakar aðgerðir væru fyrirhugaðar til að trufla kosningarnar í landinu nk. sunnu- dag, 28. mars. Einnig sagði hann, að fólk, sem styddi skæruliða, kynni að taka þátt í kosningunum og þyrfti enginn að óttast hefnd- araðgerðir þess vegna. Hann spáði því þó, að 60—70% þjóðarinnar myndu sitja heima á kjördag. I kosningunum á sunnudaginn takast á sex flokkar, Kristilegir demókratar undir forystu Duartes og fimm hægri flokkar. Menn frá yfir 20 þjóðum munu fylgjast með framkvæmd kosninganna og í dag var haft eftir Nancy Kassebaum, öldungadeildarþingmanni og formanni bandarískrar nefndar, að öruggur sigur Duartes gæti boðað samningaviðræður við vinstrisinnaða skæruliða. Bandaríska vikuritið Newsweek segir í næsta hefti, að Mitterrand Frakklandsforseti hafi fallist á það í heimsókn sinni til Banda- ríkjanna nú nýlega að fresta af- hendingu vopna, sem Frakkar hafi selt Nicaragua fyrir 17 milljónir dollara. Það hafi hann gert í trausti þess, að Reagan íhugaði al- varlega friðartillögur Portillos Mexikóforseta. 18. apríl 11. maí 1. og 22. júní 13. júlí 3. og 24. ágúst 14. sept. 8. okt. mMMijfiíM BENIDORM 18. apríl 24 dagar verö írá 5.900 kr. Ath. Barnaaísláttur imMúiopáíá • / L* Jdd-. m MIÐSTÖDIIM AÐALSTRÆTI 9 S. 28133

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.