Morgunblaðið - 23.03.1982, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1982
21
• Víkingur varð íslandsmeistari í handknattleik, þriöja árið í röð, um helgina eftir að hafa sigrað FH í æsispennandi úrslitaleik. Á meðfylgjandi mynd má sjá Víkinga hefja til
skýjanna þjálfara sinn, Bogdan Kowalzic, en hann á að baki merkilega sigurgöngu. Hann á nú að baki 10 meistaratitla á 11 síöustu árunum, 7 í Póllandi með Slask Wroclaw og
svo þrjá meö Víkingum á Islandi. Sjá nánar á blaðsíöum 23, 24 og 25. Ljósm. EmUla.
Stórsigur Þróttar
í fyrri leiknum
• Ólafur H. Jónsson, þjálfari og fyrirliði Þróttar, hefur leitt lið sitt í 4-liða
úrslit Kvrópukeppninnar í handknattleik.
Þróttur í 4-liöa
úrslit Evrópukeppninnar
ÞRÓTTUR nánast tryggði sjeti sitt í
4-liða úrslitum Kvrópukeppni bik-
arhafa í handknattleik með því að
sigra ítalska liðið Tacca l'allamano
32—19 i Laugardalshöllinni á
sunnudagskvöldið. Þó siðari leikn-
um hafi ekki verið lokið er þessar
línur eru ritaðar, virtist aðeins
formsatriði að Ijúka honum, ítalska
liðið virtist fjarri því að hafa styrk-
leika til að vinna upp 13 marka tap.
Annars var frammistaða Þrótt-
ar ekkert til að hrópa húrra yfir á
sunnudaginn, síðari hálfleikurinn
var reyndar oft laglega leikinn hjá
Þrótti, en sá fyrri var naestum
brandari. Virtust Þróttarar hafa
vanmetið mótherja sína svo hrap-
allega að þeir þyrftu aðeins að
mæta til leiks og þá væri sigurinn
í höfn. Var kæruleysið slíkt að yf-
irþyrmandi mátti heita, Sigurður
og Páll með hvert skotið hátt yfir
eða langt fram hjá italska mark-
inu. Var það hin mesta synd, því
ítölsku markverðirnir voru eins og
liðið, slakir. Einhvern veginn
VKGNA fráfalls Jóns Gunnlaugs
Sigurðssonar, sem lézt af slysförum
18. marz sl. hafa foreldrar hans,
Rakel Viggósdóttir og Sigurður
Jónsson stofnað sjóð til minningar
um son sinn.
Sjóðurinn heitir Minningarsjóð-
ur Víkings og er stofnfé 20 þúsund
krónur. Tilgangur sjóðsins er
fyrst og fremst að stuðla að því að
tókst þó Þrótti að leiða allan fyrri
hálfleik, alloft tókst Tacca þó að
jafna, t.d. mátti sjá jafnteflistöl-
urnar 2—2, 3—3, 6—6, 9—9 og
10—10, en Þrótti tókst aldrei að
ná meira en tveggja marka for-
ystu.
Sjálfsagt hefur Óli messað
rækilega yfir sínum mönnum í
hvíldartímanum, en til að byrja
með í síðari hálfleik virtist ætla
að standa á betrun. Hver mistökin
af öðrum hjá Þrótti. En á móti
kom að þeir ítölsku voru farnir að
þreytast, enda reyndi liðið lengst
af að leika á hraða sem það réði
engan veginn við. Tacca skoraði
ekki mark fyrstu 11 mínútur síð-
ari hálfleiks, en þrátt fyrir alls
kyns klúður hjá Þrótti skoraði lið-
ið þó fjögur mörk á því tímabili.
Breytti liðið því hálfleiksstöðunni
12—10 í 16—10. Var þar með um
algera uppgjöf að ræða hjá Tacca
og eftirleikurinn var Þrótti auð-
veldur. Má gjarnan fylgja hér
með, að Þróttur lék hörkuvel síð-
ustu tuttugu mínúturnar enda eig-
Knattspyrnufélagið Víkingur
eignist íþróttahús fyrir starfsemi
sína.
Jón Gunnlaugur Sigurðsson lék
um árabil með mfl. Víkings í
handknattleik og var virkur í
starfi félagsins unz hann flutti til
Fáskrúðsfjarðar 1978, þar sem
hann tók við starfi sveitarstjóra.
in taugaspenna og mótstaða Tacca
úr sögunni. Til dæmis skoraði Sig-
urður Sveinsson hvert markið af
öðru og mataði þess á milli félaga
sína með fallegum línusendingum.
Sigurður var vissulega atkvæða-
mestur í liði Þróttar, en gallalaus
var frammistaða hans þó engan
veginn, enda skiptist frammistaða
Þróttarliðsins svo ákveðið í
tvennt. Má segja að hver Þróttar-
ar hafi leikið öðrum verr í fyrri
hálfleiknum, en síðan hver öðrum
betur í þeim síðari. Þó má ekki
gleyma því að Páll Ólafsson stóð
sæmilega fyrir sínu í hinum lélega
fyrri hálfleik. Var liðið mjög jafnt
í síðari hálfleik, Ólarnir tveir þó
kjölfestan. Italska liðið virtist lak-
ara en slakt 1. deildarlið, vörn
liðsins var léleg, markvarslan
nánast engin og sóknarleikurinn
einhæfur og fálmandi. Þó hefur
liðið á að skipa einum frábærum
leikmanni, sem er Júgóslavinn
Balic. Stórkostlegur leikmaður og
réðu Þróttarar ekkert við hann,
enda skoraði hann 11 af 19 mörk-
um liðsins.
Mörk Þróttar: Sigurður Sveinss-
on 10, 3 víti, Páll Ólafsson 6, Ólaf-
ur H. Jónsson 4, Jens Jensson og
Magnús Margeirsson 3 hvor,
Gunnar Gunnarsson og Gísli
Óskarsson 3 hvor, Jón Viðar Sig-
urðsson og Lárus Lárusson eitt
hvor.
Mörk Tacca: Balic 11, 3 víti,
Fachetti 3, Preti 3, Langiano og
Petazzi eitt hvor.
Þróttarar áttu tvö vítaköst í
stangir ítalska marksins og Ólafur
Benediktsson varði eitt víti í
leiknum. Þróttarar voru utan vall-
ar í 10 mínútur, ítalirnir í aðeins 4
mínútur. Dómararnir norsku
sluppu nokkuö bærilega frá leikn-
um.
— m
ÞAð ÞURFTI ekki merkileg tilþrif
af hálfu Þróttara til að tryggja sæti
sitt í undanúrslitum IHF-keppninnar
í ár. ítalska liðið Tacca Paliamano
reyndist léttur biti að kyngja — án
síns besta manns — þó svo Þróttur
léki langt, langt undir getu. Lokatöl-
urnar í síðari leik liðanna í gær urðu
29—19 Þrótti í vil, eftir að staðan
hafði verið 14—11 í leikhléi.
Þróttarar settu sér eitt mark-
mið fyrir leikinn, að fá ekki á sig
meira en 6—7 mörk í hvorum hálf-
leik. Þó svo besti maður Tacca,
Júgóslavinn Balic, léki ekki með,
reyndist þetta áhugalausum
Þrótturum um megn. Varnarleik-
urinn var ekkert annað en orðin
tóm og efndir litlar á þeim vett-
vangi.
Italirnir komust yfir í leiknum,
1—0, en síðan ekki söguna meir.
Þróttur komst í 4—1, 7—2, en
tókst ekki að fylgja því nægilega
vel eftir. Hið reynslulitla lið ítal-
anna lagði allan sinn metnað í að
standa sig betur, en kvöldið áður
og tókst það bærilega.
Framan af síðari hálfleiknum
gekk hvorki né rak. Munurinn enn
3 mörk, 18—15 er 18 mínútur voru
til leiksloka. Þá loks tóku Þróttar-
ar smákipp og gerðu út um leik-
inn. Skoruðu fjögur mörk í röð.
Ekki svo að skilja að sigur liðsins
hafi nokkurn tíma verið í hættu.
ítalirnir reyndu enn að klóra í
bakkann. Góð tilþrif Marco Mor-
etti (nr. 20) fleyttu þeim áfram.
Skemmtilegasta atriði kvöldsins
var þó tvímælalaust vítakast Jens
Jenssonar. Áhorfendur orguðu af
fögnuði er hann sneri sér í heil-
hring á vítapunktinum áður en
hann skoraði. Sirkustilþrif, sem
hæfðu þessum leik vel. Ef ekki
hefði komið til upplausn í báðum
liðum undir lok og Þróttarar fært
sér það í nyt hefði munurinn ekki
orðið nein 10 mörk. Þrátt fyrir það
hlýtur þessi leikur að lifa í minn-
ingunni, sem einhver lélegasti
Evrópuleikur í handknattleik, sem
hér hefur verið boðið upp á.
Mörk Þróttar: Sigurður Sveins-
son 9, 1 víti, Gunnar Gunnarsson
7, Ólafur H. Jónsson 4, Páll
Ólafsson 3, Magnús Margeirsson
3, Lárus Lárusson, Einar Sveins-
son og Jens Jensson 1 hver. Mor-
etti skoraði 5 fyrir Tacca og þeir
Petazzi og Langiano 3 hvor.
— SSv.
Handknattlelkur
Minningarsjóður
Víkings stofnaður