Morgunblaðið - 23.03.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1982
3
Gunnar Kvaran einleik
ari með Sinfóníunni
Almenna verkfræðistofan og Orkustofnun:
Ókunnugt um stöðuna
í Helguvíkurmálinu
FIMMTÁNDU áskriftartónleikar
Sinfóniuhljómsveitar íslands á
þessu starfsári verða næstkomandi
fimmtudag, þ.e. fimmtudaginn 25.
þ.m. í Háskólabíói kl. 20.30.
Á efnisskrá eru eftirtalin verk: K.
Haidmayer: Sinfónía nr. 4, Jón
Nordal: Canto Elegiaco, Marx
Bruch: Kol Nidrei og Schubert: Sin-
fónía nr. 3.
Stjórnandi er að þessu sinni Páll
P. Pálsson. Fæddur í Graz í Austur-
ríki, en er löngu orðinn íslenskur
borgari og hefur starfað með SI í
rúm 30 ár, eða frá því hún var stofn-
uð. Hann fluttist hingað 1949 og tók
til starfa við hljómsveitina sem 1.
trompetleikari árið eftir. Hann hef-
ur undanfarin 20 ár stjórnað
hljómsveitinni í æ ríkari mæli og
átt mikinn og merkan þátt í upp-
byggingu hennar og tónlistarlífs í
landinu. Hann er stjórnandi Karla-
kórs Reykjavíkur og er ennfremur
afkastamikið tónskáld.
Einleikarinn, Gunnar Kvaran, er
fæddur í Reykjavík 1944. Hann nan
sellóleik í Tónlistarskólanum í
Reykjavík, og var Einar Vigfússon
kennari hans. Árið 1964 hélt hann
til Kaupmannahafnar til fram-
haldsnáms við Konunglega tónlist-
arskólann og var þar í fimm ár.
Kennari hans þar var Erling Blön-
dal Bengtsson. Meðan Gunnar var
enn við nám varð hann aðstoðar-
kennari Erlings allt til ársins 1974.
1969 voru Gunnari veitt tónlistar-
verðlaun þau sem kennd eru við
Jósep Gade. Gunnar stundaði enn
Cunnar Kvaran sellóleikari.
framhaldsnám hjá Rein Flachot í
Basel og París. Hann hefur haldið
tónleika á öllum Norðurlöndum og
auk þess í Þýskalandi, Hollandi,
Frakklandi og Bandaríkjunum.
Gunnar Kvaran er nú kennari við
Tónlistarskólann í Reykjavík.
Svavar JónaCansson hjá Almennu
verkfræðistofunni sagði í samtali við
Morgunblaðið i gærkvöldi að sér
hefði enn ekki borizt svar iðnaðar-
ráðuneytisins til Orkustofnunar um
niðurstöður athugana þess á samn-
ingnum milli Orkustofnunar og Al-
mennu verkfræðistofunnar um jarð-
vegsrannsóknir í Helguvík. Því hefði
hann ekki haft samhand við hið
bandaríska fyrirtæki, sem verk-
fræðistofan væri umboðsaðili fyrir
og vissi því ekki afstöðu þess.
Morgunblaðið hafði ennfremur
samband við Jakob Björnsson,
orkumálastjóra í gærkvöldi.
Sagði hann að sér væri ekki
kunnugt um það hver staða mála
væri nú, þar sem hann hefði ekki
náð sambandi við forsvarsmenn
Almennu verkfræðistofunnar.
Hvað varðaði það að samið hefði
verið um greiðslu í dollurum,
sagði hann að rétt væri að upp-
hæðin hefði verið tilgreind í doll-
urum í samningnum, en að öðru
leyti hefði ekki komið fram um
það sérstök ósk frá Orkustofnun
að svo væri. Það hefði verið talið
eðlilegt að svo væri þar sem er-
lendur aðili greiddi Almennu
verkfræðistofunni, en það væri
ekkert því til fyrirstöðu að greitt
yrði í íslenzkum krónum.
FEtÍl f hipili
pih.i *•»/*• »r <nuM V k
JJ :
ARKITEKTINN-UMHVERFQJ
DG KORRUGALPL
Arkitektur er starfsgrein sem gerðar eru miklar kröfur til. Af
almenningi, umhverfinu og arkitektunum sjalfum. Enda skiptir miklu
að þeir vinni störf sin af smekkvisi og vandvirkni.
Hér segir frá einum slíkum. Hannhafðiþað verkefni að hanna nýtt
hús í gömlu hverfi. Það getur verið erfitt svo vel fari. Að rata hinn
gullna meðalveg milli gamla og nýja tímans.
En það tókst.
Fallega formað hus,-fallegt, traust þak og fallegar veggklæðn-
ingar. Allt í fallegu litasamræmi. Þakið var úr Korrugal áli og vegg-
klæðningarnar líka. Frábær og varanleg lausn.
Arkitektinn hefði ekki getað gert betur. Jafnvel þótt hann væri að
vinna við sitt eigiö hús. (Hann var reyndar að því - hann á húsið!)
Korrugal ál er lausnin. Það er sama hvort þú hugsar um uppsetn-
ingu utlit, eða endingu.
TÖGGURHF.
BYGGINGAVÖRUDEILD
Bíldshöföa 16
Síml 81530