Morgunblaðið - 23.03.1982, Blaðsíða 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1982
Framarar kafsigldu
Valsmenn í byrjun
FRAMARAR luku leikjum sínum i
úrvalsdeildinni á sama hátt og þeir
hófu þá, er þeir mættu Valsmönnum
í Magaskólanum á sunnudagskvöld.
Nefnilega meó sigra. Þótt titillinn
hafi hafnaó í höndum Njarðvíkinga
annaó árið i röó eru flestir sammála
um, aó lió Fram stóó Suóurnesja-
mönnunum ekkert aó baki og þaó
sönnuðu þeir bláklæddu rækilega
gegn Val. Sigurinn var öruggur,
98—88, eftir aó munurinn hafði ver-
ió 15 stig í hálfleik, 58—43. Með
geysilega góóri baráttu tókst Vals-
mönnum að brúa bilió örlítið i síóari
hálfleiknum og varó munurinn
minnstur ein 5 eóa 6 stig. Framarar
hristu þá hins vegar endanlega af
sér á lokasprettinum og sigruóu ör-
ugglega.
læikurinn hófst mjög fjörlega.
Liðin léku maður-á-mann vörn og
hraðinn var því mikill. Framarar
beittu hraðaupphlaupum með góð-
um árangri og áður en varði var
staðan orðin 8—0 þeim í vil og
síðan 20—8 eftir 5 mínútna leik.
Varnarleikur Framaranna var
sterkur en Valsmenn gáfu þeim
ekkert eftir í fráköstunum. Ber
það vörn ekki gott vitni að Vals-
menn fengu 5 skottækifæri undir
körfunni í sömu sóknarlotunni.
Valsmenn virtust ekki finna sig
almennilega og munurinn varð
mestur 17 stig, 46—29 er 6 mínút-
ur voru til hálfleiks.
Síðari hálfleikurinn hófst eins
og þeim fyrri lauk. Framarar juku
enn við forskotið, en með því að
beita svæðisvörn tókst Vals-
mönnum að draga úr hraðanum og
ná leiknum niður á þann hraða,
sem þeir réðu betur við. Þetta fór í
taugarnar á Frömurum sem létu
æsa sig upp í vitleysu og minnstu
munaði að þeir misstu leikinn úr
höndum sér. Þeir héldu þó haus
það sem eftir lifði og innbyrtu
bæði stigin. Nokkur spenna var
undir lokin aðeins munaði 6 stig-
um á liðunum, 90—84 og 3 mínút-
ur til leiksloka. Framarar tóku þá
tíma og innbyrtu sigurinn með vel
útfærðum sóknarleik.
I liði Fram voru það þeir Viðar
Þorkelsson og Símon Ólafsson,
sem báru af. Viðar hreint frábær í
fyrri hálfleiknum, en óeðlilega
mikið hvíldur. Kannski var það
með ráðum gert til að koma Guð-
steini Ingimarssyni í leikæfingu
fyrir úrslitaleikinn í bikarnum í
vikunni. Guðsteinn á enn töluvert
langt í land með að ná fyrri getu.
Einkum er hann óöruggur í skot-
um, enda e.t.v. ekki nema von eft-
or nokkurra mánaða fjarveru.
Símon átti sannkallaðan glansleik
og hitti stórvel auk þess að hirða
fjölda frákasta. Brazy var sterkur,
en hefur oftast nær skorað meira.
Þá var Þorvaldur Geirsson sterk-
ur, en varð að fara út af með 5
villur en skammt var til leiksloka.
Valsmenn náðu sér vel á strik I
síðari hálfleiknum, en það dugði
bara ekki til. Torfi Magnússon var
eins og oft áður þeirra besti mað-
ur, en Ríkharður Hrafnkelsson
stóð honum ekki langt að baki.
Torfi þó markfalt sterkari varnar-
maður. Kristján Agústsson tók
seint við sér en átti góðan leik loks
þcgar hann fór í gang. Þá lék Jón
Steingrímsson að vanda vel. Skor-
aði reyndar lítið, en lék svo til all-
an leikinn án þess að fá á sig villu.
Ramsey kom vel frá leiknum. Þá
er rétt að geta Bjartmars Bjarna-
sonar. Leikmaður, sem lítið fer
fyrir, en skilar sínu vel og átti
prýðistakta gegn Fram.
Stigin, Fram: Símon Ólafsson
32, Viðar Þorkelsson 24, Val Brazy
18, Þorvaldur Geirsson 12, Ómar
Þráinsson 8, Björn Magnússon og
Hörður Árnason 2 stig hvor.
Valur: Ríkharður Hrafnkelsson
26, Torfi Magnússon 25, John
Ramsey 24, Kristján Ágústsson
11, Jón Steingrímsson 2. — SSv.
Um 100 keppendui: frá 9
félögum kepptu á Islands-
mótinu í borðtennis
Fvrri hluti íslandsmóLsins i borð-
tcnnis var haldinn í I.augardalshöll-
inni 20.—21. mars. Skráðir keppend-
ur voru tæplega 100 talsins frá 9
félögum og héraóssambrindum.
Þann 20. mars var keppt í eftirtöld-
um flokkum:
Einliðaleikur telpna 13
ára og yngri:
1. Fjóla María Lárusdóttir UMSB
2. Guðbjörg Jónasdóttir UMSB
3. Kamilla Gísladóttir KR
4. Heiða Erlingsdóttir Vík.
Fjóla hafði yfirburði í þessum
flokki, hún sigraði Guðbjörgu í úr-
slitaleiknum 21—9 og 21—10.
Fjóla er aðeins 10 ára gömul og
má því búast við miklu af henni í
framtíðinni. Kamilla sigraði svo
Heiðu í leik um 3. sætið 21—18 og
21-11.
Einliðaleíkur meyja og
stúlkna 13—17 ára:
1. Rannveig Harðard. UMSB 6 v.
2. Arna Sif Kjærnested Vík. 6 v.
3. Sigríður Þorsteinsd. UMSB 5 v.
4. Elísabet Ólafsd. Erninum 5 v.
í þessum flokki kepptu allar við
allar og sannaðist það að þá eru
allir leikir úrslitaleikir. Rannveig
sigraði Örnu 19—21, 22—22 og
21 — 11 en tapaði svo fyrir Elísa-
lætu 18-21, 21-17 og 12-21. Sig-
ríður vann svo Elísabetu 24—22 og
21—17 en tapaði fyrir Örnu
21—15, 14-21 og 12-21. Fyrir
síðasta leikinn milli Elísabetar og
Ornu var staðan í flokkum þannig,
að sigraði Elísabet yrði hún sigur-
vegari, en sigraði Arna yrði Rann-
veig meistari. Þannig fór að Arna
sigraði Elísabetu 21 — 19 og 21 — 17
og tryggði Rannveigu titilinn og
sjálfri sér annað sæti.
Tvíliðaleikur sveina 15
ára og yngri
.Bergur Konráðsson / Friðrik
Berndsen Víkingi
2. Hörður Pálmason Víkingi /
Sigurbjörn Bragason KR
3. Trausti Kristjánsson / Þórir
Örn Þórisson Erninum
4. Hermann Bárðarson / Jóhann-
es Haraldsson HSÞ
Friðrik og Bergur unnur þá Sig-
urbjörn og Hörð 21—12 og 21—18
í úrslitaleiknum. Trausti og Þórir
sigruðu Hermann og Jóhannes í
spennandi leik um 3. sætið 23—25,
21—18 og 21—17. Mesta athygli
vakti þó leikur Bergs og Friðriks
við 11 ára KR-inga, Kjartan
Briem og Valdimar Hannesson en
þeir voru þeir einu sem tóku lotu
af Víkingunum. Þeirra leikur fór
10—21, 21—11 og 21—16 fyrir Vík-
ingana. KR-ingarnir eru greini-
lega mjög efnilegir.
Einliðaleíkur drengja
15—17 ára:
1. Kristinn Már Emilsson /
Björgvin Björgvinsson KR
2. Kristján Viðar Haraldsson /
Vignir Þorgeirsson HSÞ
3. Einar Einarsson / Andri Mart-
einsson Víkingi
Úrslitaleikurinn í þessum flokki
var æsispennandi. Þeir Kristinn
og Björgvin unnu Húsvíkingana
21— 19, 22—24 og oddalotan fór
22— 20 eftir að Húsvíkingarnir
höfðu yfir 20—18. í þessum flokki
kepptu allir við alla.
Tvenndarkeppni ungl-
inga 17 ára og yngri:
Gróa Sigurðardóttir / Kristinn
Már Emilsson KR
2. Fjóla María Lárusdóttir UMSB
/ Bergur Konráðsson Víkingi
3. Elísabet Ólafsdóttir / Trausti
Kristjánsson Erninum
Gróa og Kristinn unnu Berg og
Fjólu 16-21, 21-10 og 21-16 í
úrslitaleiknum.
Einliðaleikur öldunga
(30 og eldri):
1. 1. Emil Pálsson Erninum
2. Gunnar Hall Erninum
3. Þórður Þorvarðarson Erninum
4. Jóhann Ö. Sigurjónss. Erninum
Emil vann Gunnar 21—10,
21—13 og 21—10 og varði þar með
titilinn frá því í fyrra.
Tvíliðaleikur öldunga:
1. Jóhann Örn Sigurjónsson /
Þórður Þorvarðarson Erninum
2. Alexander Árnason / Gunnar
Hall Erninum
3 Birkir Þ. Gunnarsson / Aðal-
steinn Eiríksson Erninum
Einliðaleikur pilta 13
ára og yngri:
1. Kjartan Briem KR
2. Valdimar Hannesson KR
3. Eyþór Ragnarsson KR
4. Magnús Þorsteinsson KR
Kjartan sigraði Valdimar
21—13 og 21—18 og Eyþór sigraði
Magnús í leik um 3. sætið 21—12
og 21-19.
Einliðaleikur sveina
13—15 ára:
1. Friðrik Berndsen Víkingi
2. Bergur Konráðsson Víkingi
3. Sigurbjörn Bragason KR
4. Snorri Páll Einarsson Gerplu
Þeir Friðrik og Bergur höfðu
nokkra yfirburði yfir keppinauta
sína og var úrslitaleikurinn á milli
þeirra mjög vel leikinn og spenn-
andi. Friðrik sigraði í fyrstu lot-
unni 21—14, Bergur í þeirri næstu
21—16. I oddalotunni náði Bergur
forystu og komst í 9—2, en Friðrik
sýndi mikið keppnisskap og jafn-
aði 11—11 og sigraði síðan 21—15.
Sigurbjörn sigraði Snorra í leik
um 3. sætið 21—18 og 21—13.
Einliðaleikur drengja
15—17 ára:
1. Einar Einarsson Víkingi '
2. Kristinn Már Emilsson KR
3. Kristján Viðar Haraldsson HSÞ
4. Þorsteinn Bachmann Víkingi
Einar tapaði fyrstu lotunni í úr-
slitaleiknum 21—19 en sigraði svo
í hinum tveim 21—16 og 21—12.
Kristján sigraði Þorstein 13—21,
21—19 og 21—16 í leik um 3. sætið.
Einar varði titil sinn frá í fyrra í
þessum flokki.
• Símon Ólafsson átti mjög góðan leik gegn Val. Símon hefur átt hvern
stórleikinn af öórum með Fram í vetur og verið í stöðugri framför sem
körfuknattleiksmaður.
Valur:
Torfi Magnússon 8
Ríkharður Hrafnkelsson 8
Kristján Ágústsson 6
Jón Steingrímsson 6
Kjartmar Rjarnason 5
Leifur Gústafsson 4
Valdimar Guðlaugsson 4
Ilelgi Sigurðsson 3
Fram:
Símon Olafsson 8
Viðar Þorkelsson 8
Þorvaldur Geirsson 7
Omar Þráinsson 6
Hörður Arnason 5
Guðsteinn Ingimarsson 5
Björn Magnússon 4
Lið Fram:
Sigurður Þórarinsson 8
Hannes Iæifsson 6
Bjöm Kiríksson 6
Egill Jóhannesson 7
Jón Árni Rúnarsson 5
Björgvin Björgvinsson 7
Dagur Jóhannsson 5
Hinrik Olafsson 5
Hermann Björnsson 7
Gauti Sigurðsson 6
Lið HK:
Einar Þorvarðarson 7
Hörður Sigurðsson 5
Sigurbergur Sigsteinsson 4
Ragnar Olafsson 6
Kristinn Olafsson 6
Bergsveinn Þórarinsson 4
Gunnar Eiríksson 4
Hallvarður Sigurðsson 4
Magnús Guðfinnsson 4
Guðni Guðfinnsson 6
Lið KR:
Gísli Felix Bjarnason 8
Jóhannes Stefánsson 6
Alfreð Gíslason 9
Haukur Ottesen 6
Haukur Geirmundsson 4
Gunnar Gislason 6
Kangar Hermannsson 5
Guðmundur Albertsson 7
Lið KA:
Aðalsteinn Jóhannsson 6
Sigurður Sigurðsson 5
Þorleifur Ananíasson 4
Friðjón Jónsson 7
Jóhann Einarsson 4
Erlingur Kristjánsson 4
Guðmundur Guðmundsson 5
Kristinn Sigurðsson 4
Skólamótió í blaki
ÚRSLITALEIKIRNIR í fram
haldsskólaflokki voru leiknir á Ak-
ureyri um helgina.
I kvennaflokki
sigraði lið Menntaskólans á Akur-
eyri lið Víghólaskóla í úrslitaleikn-
um með tveimur hrinum gegn engri.
í þriðja sæti varð Menntaskólinn í
Kópavogi og F'jölbrautaskólinn á
Akranesi hafnaði í fjórða sæti.
í karlaflokki sigraði lið Fjöl-
brautaskólans í Garðabæ óvænt lið
Menntaskólans á Akureyri í tveimur
hrinum gegn engri. í þriðja sæti varð
Menntaskólinn við Sund og í fjórða
sæti Verslunarskóli íslands.