Morgunblaðið - 23.03.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.03.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1982 39 Kristján Friðþjófur Sigurjónsson - Minning Fæddur 30. september 1905 I)áinn 13. tnarz 1982 Laugardaginn 13. marz síðast- liðinn lézt Kristján Friðþjófur Sigurjónsson á Borgarspítalanum í Reykjavík eftir stutta sjúkdóms- legu þar. Um nokkurra mánaða skeið hafði Kristján fundið fyrir sjúkdómi, sem að lokum dró hann yfir landamæri lífs og dauða. Kristján var fæddur á Bíldudal 30. september 1905. Foreldrar hans voru, Sigurjón Kristjánsson frá Hagaseli í Staðarsveit á Snæ- fellsnesi og Hjálmfríður Marsibil Kristjánsdóttir frá ísafirði. Tvö yngri systkini átti Kristján, sem bæði lifa bróður sinn. Þau eru Guðríður Kjartanson, húsfrú í Reykjavík og Sigurgeir Sigur- jónsson, hæstaréttarlögmaður í Reykjavík. Foreldrar Kristjáns slitu sam- vistum er Kristján var 13 ára að aldri. Það kom því í hlut móður- innar að vera börnum sínum bæði móðir og faðir. Báðum hlutverk- unum skilaði hún með mikilli sæmd, en Kristján sem var elztur sinna systkina, studdi móður sína með ráðum og dáð. Móðir Kristján hvatti hinn unga son sinn til náms og frama, lagði honum lífsregl- urnar og innrætti honum guðstrú og góða siði. Kristján reyndist móður sinni góður sonur og sinni barnatrú hélt hann til æfiloka. Kristján fór oft hlýjum orðum um móður sína og hann gleymdi aldr- ei þeirri umhyggju er hún í fátækt sinni og umkomuleysi sýndi þeim systkinum við þessar erfiðu að- stæður. Kristán var tvíkvæntur. Fyrri konu sinni, Sigríði ísleifu Ág- ústsdóttur frá Vestmannaeyjum, kvæntist hann 19. september 1931. Hún dó 16. september 1961. Þau eignuðust tvö börn, sem bæði eru á lífi. Fríðu, búsett í Garðabæ, gift Rögnvaldi Bergsveinssyni, skip- stjóra hjá Hafskip og Ágúst vél- virkja, búsettur í Kópavogi, giftur Heklu Þorkelsdóttur. Kristján giftist seinni konu sinni, Ástu Einarsdóttur frá Reykjavík 7. október 1962 og lifir hún mann sinn. Þau áttu engin börn saman, en Kristján ól upp ungan son Ástu, Einar Guð- mundsson, frá fyrra hjónabandi hennar. Einar var fimm ára er Kristján giftist Ástu. Fóstursyni sínum reyndist Kristján góður uppalandi. Hann hvatti hann til náms og hefur þá haft í huga hvatningarorð móður sinnar í bernsku. Kristján nam rennismíði í vélsmiðjunni Hamri frá 1921—25. Árið 1927 útskrifaðir hann frá Vélskóla íslands. Prófi í raf- magnsfræðum lauk hann frá sama skóla 1936. Meistarabréf í renni- smíði fékk hann 1949. Að loknu vélskólaprófi var Kristján vélstjóri á ýmsum togur- um. Eftir þá frumraun sigldi hann til Kaupmannahafnar og vann um tíma hjá Burmeister & Wain við smíði og samsetningu dísilvéla. Frá 1929—62 starfaði hann ósiitið sem undir- og yfirvélstjóri hjá Skipaútgerð ríkisins og Landhelg- isgæzlunni. Frá 1962—70 starfaði hann sem eftirlitsmaður með skipum Landhelgisgæzlunnar. Eftir seinni heimsstyrjöldina lét Skipaútgerð ríkisins byggja tvö strandferðaskip í Skotlandi og hafði Kristján yfirumsjón með niðursetningu vélanna í bæði skip- in. Að loknum löngum starfsdegi til sjós, réðist Kristján til starfa sem dyravörður hjá utanríkis- ráðuneytinu, en þar starfaði hann um 6 ára skeið. Það var eins og þetta starf hefði alltaf beðið eftir honum, þarna var réttur maður á réttum stað. Fljótlega breyttist þetta starf í höndum Kristjáns úr einföldu dyravarðarstarfi í starf móttökustjóra og það var eins og ráðuneytið hefði fengið andlits- lyftingu. Kristján tók öllum, sem í ráðuneytið komu með alúð og hlýju. Hann hjálpaði fólki úr yfir- höfninni og leiddi það síðan inn til réttra aðila. Að lokum var öllum fylgt að lyftudyrunum og kveðju kastað á kurteislegan hátt. Ef- laust hafa starfsmenn ráðuneytis- ins kunnað að meta þennan ein- staka starfsmann, reglusemi hans í hvívetna og diplómatískt yfir- bragð. Gestir sem sóttu ráðuneyt- ið heim á þessum tíma fóru ekki leynt með ánægju sína yfir þess- um frábæru móttökum. Kynni okkar Kristjáns hófust fyrir 28 árum, er við vorum sam- skipa á varðskipinu Þór, sem lá í vélaviðgerð úti í Álaborg í Dan- mörku. Þessi góðu kynni héldust alla tíð á meðan Kristján lifði. Kristján var hár maður, fríður sýnum og bauð af sér góðan þokka. Hann átti gott með að samlagast fólki og um borð var hann hrókur alls fagnaðar. Kristján var gædd- ur mörgum góðum eðliskostum. Honum reyndist einkar auðvelt að mæla falleg orð til hins veika kyns, án þess að slíkt ylli neinum efasemdum, svo einlægur var hann. Vissulega mun margt fljóð- ið minnast ljúfra orða hans á þessari stundu. Ekki má gleyma hans aristó- kratíska yfirbragði og fágaðri framkomu, sem leiddu fljótlega til þess að hann hlaut einskonar heiðursnafnbót til sjós frá skips- félögum sínum. Um borð var hann alltaf ávarpaður maskinsjef eða í daglegu tali sjeffinn. Kristján var sæmdur ýmsum viðurkenningum fyrir störf sín. Hann hlaut heiðurspening úr silfri og viðurkenningarskjal fyrir för til Petsamó á m/s Esju. Fyrir störf sín hjá Landheigisgæzlunni hlaut hann fálkaorðuna 1976 og finnsku þjónustuorðuna úr gulli fékk hann í starfstíð sinni hjá utanríkisráðuneytinu. Kristján var einn af máttar- stólpum Frímúrarareglunnar á Is- landi. Löng vera í þeim félagsskap lyfti honum til vegs og virðingar meðal sinna félaga. Eftirlifandi eiginkonu, fóstur- syni, börnum Kristjáns og systk- inum flyt ég innilegar samúðar- óskir og bið þeim guðs blessunar. Garðar Pálsson Nú er horfinn af sjónarsviðinu kær vinur og samferðarmaður, Kristján F. Sigurjónsson yfirvél- stjóri, en hann lést á Borgarspítal- anum 13. þ.m. eftir nokkurra missera veikindi. Eg, sem þessar fátæklegu línur skrifa, átti því láni að fagna að kynnast Kristjáni fyrir nokkrum árum, en þá hóf hann starf sitt hjá okkur í utanríkisráðuneytinu, eftir að hafa skilað giftudrjúgu starfi fyrir Landhelgisgæsluna. Kristján var starfsmaður gæsl- unnar í yfir 40 ár og var lengst af yfirvélstjóri á skipum hennar, en þar voru honum falin ýmis trún- aðarstörf t.d. yfirumsjón með byggingu nýrra gæsluskipa. Kristján var fæddur vestur á Bíldudal 1905. Hann flutti suður ásamt foreldrum sínum og tveim- ur systkinum, en þau ólust upp að mestu í Reykjavík. Þegar Kristján var 13 ára slitu foreldrar hans samvistum og kom það í því í hans hlut að vera móður sinni stoð og stytta við uppeldi systkina sinna, en þau eru Sigur- geir lögfræðingur og Guðríður húsmóðir, bæði búsett hér í Reykjavík. Kristján fór ungur til náms og varð strax vélstjóri að loknu námi. Hann var t.d. á togurum og flutn- ingaskipum áður en hann gerðist starfsmaður gæslunnar. Hann kvongast ungur fyrri konu sinni, Sigríði Ágústsdóttur frá Vest- mannaeyjum. Þau áttu saman tvö börn, Ágúst, sem er vélsmiður og býr í Garðabæ, og Fríðu, en hún er húsfreyja og býr einnig í Garða- bæ. EFtir nokkurra ára sambúð missti hann konu sína en kvongast ht*l er forljald hinum megin birtan er. Sig. Kr. Pélursson. Kristján B. Þórarinsson Það er undarleg tilfinning að frétta andlát manns sem hefur verið sterklega tengdur manni og vita að ekki munu fleiri tækifæri gefast til að heyra og sjá hann í þessu lífi. Sú tilfinning er bundin tómleika og söknuði eins og hluti af manní sjálfum sé numinn brott. Þannig varð tilfinning mín er ég frétti um andlát stjúpföður míns, Kristjáns Sigurjónssonar. í mínum huga hefur Kristján skipað sér þann fasta sess að vera fyrst og fremst maður gæddur miklum heiðarleika sem varð til þess að fjölskylda hans lifði ætíð í miklu öryggi í hans umsjá. Hef ég orðið fyrir miklum áhrifum af þessum gæðum sem uppeldissonur hans. Þó auðvitað megi finna það innra með sér, að margt hefði ef til vill mátt fara betur í samskip- um við hann, með þá vitnesku að hann var ekki alltaf ánægður með árangur uppeldisins og ég af hans aðferðum til að ná þeim árangri. Þá met ég kærast þá miklu löngun hans að gera mig hæfari að manni með góða siði sem gæti gengið inn í lífið reynslunni ríkari. Því gleðst ég innilega yfir því tækifæri að hafa átt hann sem stjúpföður og vona að hann hafi kvatt þennan heim með þann hug að eitthvað af því markmiði hafi náðst. Það verða þó að lokum alltaf góðar minningar tengdar Krist- jáni. Megi guð ávallt fylgja honum. Finar Guðmundsson nokkrum árum síðar núlifandi konu sinni, Ástu Einarsdóttur, en hún átti fjögur börn af fyrra hjónabandi. Ásta og Kristján áttu engin' börn saman. Eg veit að Kristján reyndist börnum Ástu eins og sínum sem besti faðir, enda hygg ég að þau hafi þegið af honum mörg holl ráð sem hafa komið þeim vel á lífsleið- inni. Eins og að framan getur, hófust kynni okkar Kristjáns fyrir nokkrum árum, en þau kynni hafa orðið mér til mikillar gæfu. Eg hygg að á engan sé hallað, er ég segi að kynni mín af honum hafi orðið mér til meiri gæfu en margt annað. Kristján var eitt hið mesta snyrtimenni sem ég hef kynnst. Framkoma hans öll og kurteisi var með slíkum fá dæum að ég þekki ekki annað betra, auk þessa var hann orðvar og gætinn. Ég hygg að hann hafi aldrei lagt illt til neins manns. Ég trúi því að við nafni eigum eftir að hittast handan landa- mæra sem nú skilja okkur að, en þangað til vil ég biðja algóðan Guð að gæta hans. Einnig bið ég þess að Guð sem öllu ræður, aldrei spyr, en allt skilur, megi vera Ástu, ástkærri eiginkonu hans, börnum, fósturbörnum og barna- börnum styrk stoð í söknuði þeirra yfir horfnum vini og þau minnast þess að „þi'gar awirödull ronnur rökkvar fyrir sjónum þér. 11 ra-ósiu eigi Áhugahópar — íþróttafélög Höfum lausa nokkra tíma í stóra íþróttasalnum. Til leigu strax, í lengri eöa skemmri tíma. Einnig höfum viö annan minni sal til leigu (64 fm) hentugan fyrir ýmsa starf- semi. í salnum eru stórir speglar á veggjum, mjúkar dýnur á gólfi (sem hægt er aö fjarlægja). Sér inngang- ur, snyrtileg aöstaða og síö- ast en ekki síst er gufubaö á staönum. Hafiö samband og fáiö nánari upplýsingar í síma félagsins eöa hjá Jóni í síma 15435. íþróttafélagið Gerpla, Skemmuvegi 6, Kópavogi. Sími 74925. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Al (ILYSINGA- SÍMINN ER: 22480 ORUnDIG GÓÐ KJÖR- EINSTÖK GÆÐI LAUGfíÆGI D, SÍMI27788

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.