Morgunblaðið - 23.03.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.03.1982, Blaðsíða 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1982 Óli S. Runólfs- son — Fimmtugur Sjónþjáirunartæki afhent. Frá vinstri: Ragnheióur Hansdóttir, tannlæknir og formaður Zontaklúbbsins, Hilmir Jóhannsson, héraðslæknir, Ragnar Sig- urðsson, augnlæknir, Loftur Magnússon, augnlæknir, og Jónína Hreinsdótt- ir, sjónþjálfi. Ljósm. Páll. Zontakonur á Akureyri gáfu sjónþjálfunartæki Ilér verður engin æfisaga rituð, aðeins örstutt afmæliskveðja og minnzt nokkurra atriða í lífi velgjörðarmanns míns, minnzt sérstaklega ánægjulegra sam- skipta og verður þó vissulega margs ógetið í stuttri grein. Pingan sem kynnist Ola S. Run- ólfssyni furðar, þó að hann sé vinsæll og njóti virðingar manna. P'ramkoma hans er þannig, að hann laðar alla að sér með föður- legri ástúð. Hann er einn af þeim fáu mönnum, sem vekja það besta hjá öðrum með návist sinni. Ekkert óhreint eða ljótt getur þrifist nærri honum. Að því, er mér er sagt, að staðfest mun vera í prestþjónustubókum Trölla- tungirprestakalls í Strandasýslu, er Oli fæddur á Húsavík í Tungu- sveit 23. marz 1932 og voru for- eldrar hans hjónin Stefanía Guð- rún Grimsdóttir í Húsavík Stefánssonar og Runólfur Jón Sig- urðsson frá Skerðingsstöðum í Rí'ykhólasveit Runólfssonar. Hjónin Stefanía og Runólfur hófu búskap í Húsavík 1928, en móðurætt Ola hafði þá búið þar frá 1867, eða í 61 ár. Oli er yngstur fjögurra alsystk- ina auk hálfbróður sammæðra, en þau eru Sigfríður, Ragnheiður, Agnar, Grímur og Stefán. Óli bjó í foreldrahúsum til 1956. Heimilið í Húsavík var alla tíð fremur veitandi en þurfandi, og hafa margir karlar og konur minnst heimilisins með hlýjum orðum. Óli og systkini hans hlutu ágætt uppeldi, svo ekki varð á betra kos- ið. I nærri 25 ár, eða frá árinu 1957 er hann hóf rennismíðanám, hefir Óli starfað hjá fyrirtækinu Agli Vilhjálmssyni, og gegnir þar starfi aðstoðar-verkstjóra. l \stm Óli er mikill félagsmálamaður og gegnir trúnaðarstörfum í Járnsmíðafélagi Reykjavíkur og er formaður foreldrafélags Alfta- mýrarskóla. Árið 1963 kvæntist Óli Guð- björgu Vilhjálmsdóttur, hinni ágætustu drengskaparmanneskju. Guðbjörg er kona fríð sínum, fíngerð, og létt í bragði. Hún er þrifin og nýtin húsmóðir, sem kann vel að hlúa að heimilisfólki sínu. Dæturnar eru þrjár. Guðrún Heiður og tvíburarnir Ragnheiður og Stefanía. Heimilisfólkið að Háaleitis- braut 15 eru einlægir vinir mínir og barna minna, og er þeim hér með færðar alúðarþakkir fvrir einstaklega mikla vinsemd, fyrir alla hlýjuna og tryggðina, sem þau öll hafa veitt mér og mínum frá því eiginkona mín Guðríður Kar- ólína Eyþórsdóttir (Kæja) lézt, það drenglyndi verður aldrei full- þakkað. Hjartanlegar hamingjuóskir til Óla í tilefni dagsins. Jón H. Hraundal ÞANN 13. þ.m. afhontu félagar í Zontaklúbbi Akureyrar, Ileil.su- verndarstöð Akureyrar að gjöf sjónþjálfunartæki af fullkomn- ustu gerð. Veitti Hilmir Jóhann- esson, héraðslæknir þeim viðtöku fyrir hönd Heilsuverndarstöðvar- innar, en Ragnheiður Hansdóttir, formaður Zontaklúbbsins, afhenti þau. Tækjunum er komið fyrir í húsnæði augnlæknanna á Akur- eyri, en Jónína Hreinsdóttir, sjónþjálfi, sem tækin notar, vinnur í nánu samstarfi við þá. Eðlileg samsjón augna er öll- um mikils virði. Sé henni ábóta- vant á fyrstu árum einstakl- ings, er hætta á sjóndepru á öðru auga og að þrívíddarskyn verði skert. Aðstoð sjónþjálfa við greiningu og meðferð þessa ágalla er nauðsynlegur þáttur í nútíma augnlæknisþjónustu. Sjónþjálfunartækin eru af- rakstur þriggja ára fjáröflun- arstarfs Zontaklúbbsins fyrir sjónskerta og er því verkefni nú lokið, en í Zontaklúbbi Akureyr- ar eru 36 félagskonur. Nú á ári aldraðra hefur Zontaklúbbur- inn ákveðið að styrkja „Systra- sel“, en þar á að koma upp hjúkrunardeild fyrir aldraða. Fyrsta fjáröflunin í þessu skyni verður Páskabasar í Gildaskála Hótels KEA þann 1. apríl kl. 20, en þar verður á boðstólum alls kyns páskaskraut, kökur og brauð. Sömuleiðis verður Nonnahús opið dagana 5.-8. apríl frá kl. 5—6. „Litla sæta rauða skýlið“ í UMRÆÐUM um málefni Stræt- isvanga Reykjavíkur, fimmtudag- inn 18. mars kom fram í ræðu Guðrúnar Ágústsdóttur (Alþýðu- handalagi) stjórnarformanns SVR, að hún taldi „litla sæta rauða skýl- ið“ eins og hún kallaði það, sem risið hefur fvrir neðan Landspítal- ann, ekki eina afrek vinstri meiri- hlutans á kjörtímabilinu. Meiru skipti, að unnið væri að endur- skoðun leiðakerfisins frá 1970. Elín Pálmadóttir (Sjálfstæð- isflokki) spurði að því, hvað „litla sæta rauða skýlið“ hefði kostað og samkeppnin um ný skýli. Kom fram hjá Guðrúnu Ágústsdóttur, að skýlið hefði kostað 64.400 krónur, en sam- keppnin um 15 milljónir gamlar. Hins vegar teldú sérfróðir menn, að yrði farið að setja upp fleiri slík skýli yrði kostnaður- inn við hvert þeirra rúmar 30 þúsund krónur. Kornakúnst - ný lína frá Glit hf. GLIT hf. er nú að setja á markaðinn nýja línu i blómapottum og vösum. I’essi nýja lina hefur hlotið nafnið Kornakúnst. Kornakúnst er unnin í steinleir blönduðum muldu vikurhrauni af Reykjanesi, sem hefur svipað brennslu- stig og leirinn, og samlagast honum því mjög vel. Vikurinn bráðnar og verður að glerungi sem gefur þessa skemmti- legu kornóttu áferð. I Kornakúnst eru fáanlegir blóma- pottar af öllum stærðum, veggpottar, hengipottar svo og vasar og skálar. Höfundar Kornakúnstar eru þau Þór Sveinsson, leirkerasmiður, og Eydís Lúðvíksdóttir, myndlistarkona. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Kópavogur Kópavogur Spilakvöld Sjálfstaeöisfélag Kopavogs auglýsir: Okkar vinsælu spilakvöld halda áfram þriöjudaginn 23. mars í Sjálf- stæöishúsinu kl. 21.00 stundvíslega. Glæsileg kvöld- og heildarverö- laun Allir velkomnir. Kaffiveitingar. Stjórn Sjálfstæöisfélags Kópavogs. Spilakvöld Sjáltstæðisfelag Arbæjar- og Selásshvertis heldur spilakvöld. þriðju- daginn 23. mars kl 20.30 í húsi félagsins, Hraunbæ 102, viö hliöina á Skalla Aögangur ókeypis. Heimdallur — Ræðumennska Heimdallur gengst fyrir framhaldsnámskeiöi í ræöumennsku í vikunni 21.—27. mars. Sér- staklega eru hvattir til þátttöku þeir sem áöur hafa hlotiö byrjendaþjálfun á vegum félags- ins. Upþl. og skráning á skrifstofu Heimdall- ar, sími 82900. Hvöt Námskeið í ræðumennsku veröur haldiö á morgun, þriöjudag og miö- vikudag 24. þ m. kl. 20.30—22.30 í Valhöll, kjaltara. Lelöbelnandl Bessi Jóhannsdóttir. Innritun á skrifstofutíma í sima 82900 og 82779, ekkert gjald. Félagsmala- og fræösiuskrifstofa Hvatar. Fella- og Hólahverfi — Bakka- og Stekkjahverfi — Skóga- og Seljahverfi Rabbfundur Félög sjálfstæöismanna í Breiöholti halda fund um borgarmál fimmtu- daginn 25. marz kl. 20.30 aö Seljabraut 54, (hús Kjöts og tisks). Frambjóöendurnir Sigurjón Fjeldsted og Július Hatstein koma og spjalla viö fundarmenn. Mætum og höfum áhrif. Stjórnirnar Félag sjálfstæðismanna í Austurbæ, Norðurmýri Miövikudaginn 24. marz nk. veröur haldinn fundur meö umdæma- fulltrúum felagsins Fundurinn veröur í Valhöll, Háaleitisbraut 1 og hefst kl. 20 30 Gestir fundarins veröa Ragnar Júlíusson og Júlíus Hafstein. Umdæmafulltrúar hvattir til aö fjölmenna. Stjórnin. Spilakvöld Félag Sjálfsfæöismanna í Hlíöa og Holtahverfi, heldur spilakvöld í Valhöll, Háaleifisbraut 1, fimmtudaginn 25. mars kl. 20.30. Góö verö- laun. Stjórnin. Keflavík Aðalfundur Sjálfstæöisfélags Keflavíkur veröur haldinn miövíkudaginn 24. mars og hetst kl. 20.30 í Sjáltstæö- ishúsinu Keflavík. Dagskrá: 1 Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Bæjarmál og kosningaundirbúningur. 3. Önnur mál. Félag Sjálfstæðismanna í vesturbæ — miðbæ Fimmtudaginn 25. marz veröur haldinn fundur meö umdæmafulltrúm félagsins. Fundurinn veröur í Valhöll, Háaleitisbraut 1 og hefst kl. 20.30. Gestir fundarins veröa Markus Örn Antonsson og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson. Umdæmafulltrúar hvattlr til aö fjölmenna. Stjórnin. Stjórnin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.