Morgunblaðið - 23.03.1982, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 23.03.1982, Blaðsíða 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1982 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1982 25 Það var greinilegt á leikmönnum FH og Víkings á laugardag að þeim gekk illa að hemja taugaspennuna er þeir hófu úrslitaleik íslandsmóts- ins í handknattleik. Það er ekki hægt að lá þeim það. Andrúmsloftið í íþróttahúsinu í Hafnarfirði var þrungið ótrúlegri spennu. Áhorfendur voru eins margir og frekast rúmaðist í húsinu. Svo mikil voru þrengslin að áhorfendur stóðu jafnvel inná sjálfum vellinum. Stemmningin ólýsanleg. Sjálfur leikurinn bauö uppá allt sem hægt er að fara fram á í slíkum ieik. Spennu, mikla baráttu, hörku og síðast en ekki síst, svo jafnan leik aö aldrei mátti á milli sjá hvort liðið myndi standa uppi með pálmann í höndunum. Liði Víkings tókst að vinna nauman sigur í leiknum 16—15 og vinna sinn þriðja íslandsmeistaratitil í röð, eftir aö staðan í hálfleik hafði verið 9—8 fyrir FH. Spenna frá fyrstu mínútu Leikmenn FH byrjuðu með bolt- ann og þreifuðu fyrir sér en misstu boltann fljótlega frá sér og Víkingar hófu sókn en það sama skeði hjá þeim. Leikmönnum gekk illa að finna rétta taktinn í leik sinn fyrstu mínúturnar. Það var ekki fyrr en á sjöttu mínútu leiks- ins að Steinar Birgisson lyfti sér upp og gat skorað fyrsta mark leiksins með góðu skoti. Víkingum tókst að ná frumkvæðinu og komst í 3—1. Þá voru liðnar 9 mínútur af leiknum. A 14. mínútu var staðan orðin 4—2 fyrir Víking. Virtust Víkingar vera að ná góðum tökum á liði FH. En hinir ungu leikmenn FH fóru þá að bíta vel frá sér og tókst að jafna metin 4—4. Þá var fyrri hálfleikur rúmlega hálfnað- ur. FH-ingar fengu þá dæmd víti og áttu möguleika á að komast yf- ir 5—4. En Kristján Sigmundsson, markvörður Víkings, varði skot nafna síns Arasonar mjög vel. Steinar kom Víkingum aftur yf- ir á 20. mínútu, en FH náði að jafna. Það er svo ekki fyrr en á 28. mínútu fyrri hálfleiks sem FH tókst að ná forystunni í leiknum 8—7. Og á sömu mínútu tókst Kristjáni Arasyni að skora 9. mark FH og skyndilega var FH komið með tveggja marka forystu. En sú dýrð þeirra stóð ekki lengi. Með fádæma klaufaskap tókst þeim ekki að halda boltanum síð- ustu 30 sekúndur fyrri hálfleiksins og leika rólega og yfirvegað. Þeir misstu boltann beint í handurnar FH — Víkingur 15—16 á Guðmundi Guðmundssyni sem þakkaði fyrir sig með því að skora örugglega 4 sek. áður en dómarar flautuðu til leikhlés. Góður fyrri hálfleikur Þrátt fyrir nokkra taugaspennu leikmanna framan af leiknum var fyrri hálfleikurinn mjög vel leik- inn af hálfu beggja liða. Sérstak- lega þó varnarleikurinn. Boitinn fékk að ganga mjög vel í sókninni og oft sáust laglegar leikfléttur hjá báðum liðunum. Leikurinn var og nokkuð hraður. Jafn síðari hálfleikur Það var alveg ljóst á upphafs- mínútum síðari hálfleiksins að bæði liðin ætluðu að selja sig dýrt. Mikill kraftur og barátta var í leikmönnum beggja liða strax frá upphafi til loka leiksins. Bæði liðin brugðu á það ráð í síðari hálfleiknum að taka mann úr umferð. FH-ingar létu elta Pál Björgvinsson lykilmann Víkinga í spilinu og leikkerfum liðsins. En Víkingar tóku Kristján Arason, sterkasta leikmann FH, úr um- ferð, og munaði um minna. Olafur Jónsson skoraði fyrsta mark síðari hálfleiksins með fal- legu marki úr horninu og jafnaði metin 9—9. Það segir nokkuð um hversu leikurinn var jafn að jafnt var á öilum tölum upp að 14—14. En Víkingsliðið var þó ávallt fyrra til þess að skora. Páll skoraði ann- að mark hálfleiksins og náði for- ystu fyrir Víking 10—9. Þessi slæma byrjun síðari hálfleiksins varð FH-ingum dýrkeypt. Leikur þeirra var ekki nægilega beittur fyrstu mínútur síðari hálfleiksins í sókninni. Eins og í fyrri hálf- leiknum var varnarleikur beggja liða mjög sterkur og því var erfitt að skora. Hart og óvægilega var tekið á leikmönnum ef þeir reyndu gegnumbrot og línumenn fengu óblíða meðferð. Þrátt fyrir að bæði liðin hafi leikið vörnina fast, voru leikmenn Víkinga mun gróf- ari og fastari fyrir en FH-ingar. A 44. mínútu leiksins var staðan jöfn 12—12. En þá náðu Víkingar góðum kafla. Ólafur Jónsson náði að skora tvö falleg mörk úr horn- inu. En Guðmundur Magnússon FH var mjög illa á verði gagnvart Ólafi í bæði skiptin, og hreinlega svaf á verðinum. En með seiglu tókst FH-ingum að jafna metin og á 53. mínútu var staðan jöfn 14—14. Allt var þá á suðupunkti í húsinu. Þá var einum FH-ingi vís- að af leikvelli. Næstu sókn klúðr- uðu FH-ingar illa. Valgarð Val- garðsson reyndi skot mjög fljót- lega úr alveg vonlausri stöðu, í stað þess að leika skynsamlega og halda boltanum. Þetta notfærðu Víkingar og sér Þorbergur skoraði með þrumuskoti og kom Víking yfir 15—14. Þá voru eftir 2,48 mín. af leiknum. Þessar lokamínútur leiksins kom leikreynsla Víkinga vel í ljós. A sama tíma og leik- menn FH gerðu örlagarík mistök í hita leiksins var öryggi og festa í leik Víkings og leikmenn þoldu spennuna vel. Boltanum haldið og ekki reynd skot nema í upplögðum færum. Guðmundur Guðmunds- son skoraði 16. mark Víkings úr horninu og gerði þar með út um leikinn. En Víkingum nægði jafn- tefli til þess að verða meistarar. Kristján Arason minnkaði mun- inn niður í eitt mark og á síðustu mínútunni skoraði FH fullkom- lega löglegt mark og jafnaði leik- inn 16—16. En dómarar leiksins voru á öðru máli og tóku markið ekki gilt. Eftir leikinn sagði Gunnlaugur Hjálmarsson að hann hefði verið búinn að flauta auka- kast áður en markið var skorað. Víkingar sigruðu því í þessum æsispennandi úrslitaleik með einu marki 16—15. Var þetta fyrsti tapleikur FH á heimavelli í vetur. Lið Víkings Lið Víkings er vel að íslands- meistaratitlinum komið. Þeim þriðja í röð sem liðið vinnur til. Ekkert handknattleikslið á Islandi í dag er skipað jafn leikreyndum mönnum. Liðið vinnur saman sem ein sterk heild og býr yfir mörgum góðum leikkerfum sem ekki er auðvelt að stöðva. Varnarleikur Víkings var mjög sterkur í leiknum gegn FH, þar áttu þeir Þorbergur Aðalsteinsson og Arni Indriðason ásamt Páli Björgvinssyni bestan leik. Þá kom Steinar vel frá sínu. Kristján Sig- Víkingar íslandsmeistarar þriðja árið í röð: Þeir voru vonsviknir, sem frá þurftu aö hverfa á laugardag- inn, vegna þess aö þeim tókst ekki aö fá miöa á úrslitaleikinn í íslandsmótinu í handknattleik. íþróttahúsið í Hafnarfirði var yfirfullt og stemmningin á áhorfendapöllunum alveg ólýs- anleg. Eftir leikinn var spjallaö viö nokkra áhorfendur og sögðu þeir álit sitt á leiknum. Eitt voru þeir sammála um, dómgæslan var fyrir neðan allar hellur. Og var það mál manna að hún hefði sett leiðinlegan svip á annars skemmti- legan úrslitaleik. Lið Þróttar: Ólafur Benediktsson 7 Ólafur H. Jónsson 7 Gunnar Gunnarsson 6 Lárus Lárusson 7 Jens Jensson 6 Magnús Margeirsson 5 Páll Ólafsson 7 Sigurður Sveinsson 8 Einar Sveinsson 5 Gunnar Gunnarsson 5 Arnór FriðjónssornSkemmti- legur leikur, úrslitaleikur getur ekki verið betri. Sigurinn lenti bara hjá vitlausu félagi, það hefði verið flott að fá bikarinn í Fjörð- inn. Það var enginn sem skaraði fram úr í leiknum, frekar var þetta leikur liðsheildanna. Dóm- gæslan var fyrir neðan allar hellur, en þó högnuðust bæði liðin jafnt á því. ig«- Hjónin Árni Guðjónsson og Lilja Guðjónsdóttir: Þetta var góður leikur en nokkuð grófur. Spennan var mjög mikil eins og á að vera á ekta úrslitaleik, en dóm- ararnir voru slakir. Það var bara verst að FH skyldi ekki vinna, því sigurinn gat lent hjá hvoru liðinu sem var. Annars er það gömul trú að ef kvennaliðið vinni leik á und- an, þá tapi karlaliðið. Einkunnagjöfln Lið Vals: Jón Gunnarsson 4 Þorlákur Kjartansson 6 Þorbjörn Guðmundsson 5 Þorbjörn Jensson 4 Theodór Guðfinnsson 7 Gunnar Lúðvíksson 7 Brynjar Harðarsson 4 Jakob Sigurðsson 4 Geir Sveinsson 4 Jón Pétur Jónsson 4 Erlingur Hannesson: Þetta var mjög góður leikur, en dómgæslan var hörmung og hallaðist þá nokk- uð á FH-inga. Liðin voru alveg jafngóð, en mínir menn voru bara heppnari og sigruðu. Lið Fram var geysilega jafnt að þessu sinni og flaut fyrst og fremst á því auk þess sem liðið gerði mun færri skyssur í miklum taugaspennuleik þar sem mikið var um mistök á báða bóga. Sig- urður markvörður bar af í liðinu og af útileikmönnunum má geta Björgvins, Hermanns og Egils. Hjá HK bar Einar Þorvarðarson af eins og svo oft áður, aðrir leikmenn náðu sér ekki á strik. Mörk HK: Ragnar Ólafsson 3, 2 víti, Guðni Guðfinnsson 3, 1 víti, Hörður Sigurðsson, Kristinn Ólafsson og Bergsveinn Þórarins- son 2 hver, Magnús Guðfinnsson eitt mark. Mörk Fram: Egill Jóhannesson 8, 5 víti, Hermann Björnsson og Björgvin Björgvinsson 3 hvor, Hannes Leifsson 2, Hinrik Ólafs- son og Gauti Sigurðsson eitt hvor. Framarar voru utan vallar í alls 10 mínútur, HK-menn í 4 mínútur. Sigurður Þórarinsson varði þrjú víti í leiknum. Góðir dómarar voru Stefán Arnaldsson og Arni Sverr- isson. — gg- Lokastaðan í 1. deild LOKASTAÐAN í 1. deildinni var sem hér segir: Vík. 14 12 0 2 315—239 24 FH 14 10 1 3 338—311 21 Þróttur 14 10 0 4 315—280 20 KR 14 9 1 4 314—291 18 Valur14 6 0 8 281—284 12 Fram14 3 1 10 276—326 7 HK 14 2 1 11 249—284 5 KA 14 2 0 12 262—335 4 Markahæstu menn voru eftirtaldir: Alfreð Gíslason KR 109 Kristján Arason FH 97 Sigurður Sveinsson Þrótti 91 Þorbergur Aðalsteinss. Vík.78 Friðjón Jónsson KA 72 Páll Ólafsson Þrótti 64 Ragnar Ólafsson HK 63 Handknatlielkur ______________________✓ • Sigurður Gunnarsson skoraði þrjú falleg mörk með upphoppum og hnitmtöuðum föstum skotum. Hór sést Sigurður lyfta sér yfir vörn FH. A myndinni mé sjá hversu pakkað var af áhorfendum í húsið. Ljó«m. Emiiía. Gífurlegum baráttuleik lauk með sigri harðskeyttra Víkinga mundsson var í marki í fyrri hálf- leik en Ellert í þeim síðari. Báðir vörðu þeir vel. í sóknarleiknum átti Ólafur Jónsson mjög góðan leik. Skoraði fimm falleg mörk úr horninu. Er þetta sennilega besti leikur Ólafs með Víking í vetur. Mörk þau sem hann skoraði voru á mjög þýðingarmiklum augnablik- um í leiknum. Þorbergur var tekinn stíft í sókninni og skoraði aðeins eitt mark í leiknum. Steinar, Guð- mundur og Sigurður komu allir vel frá sóknarleiknum og voru mjög ógnandi. Þetta var sigur sterkrar liðsheildar. Til hamingju Víkingar með íslandsmeistara- titilinn. Lið FH Þrátt fyrir að lið FH hafi tapað leiknum komu hinir ungu leik- menn liðsins mjög vel frá leiknum. Léku reyndar oft alveg ótrúlega vel miðað við þá miklu pressu sem á þeim var. Sér í lagi var varnar- leikur liðsins sterkur allan leik- inn. En sóknarleikur liðgins var ekki nægilega beittur þegar Kristján var tekinn úr umferð í síðari hálfleiknum. Kristján Ara- son er yfirburðamaður í liðinu og varla má á milli sjá hvort hann sé sterkari sem sóknar eða varnar- maður. Hann sýndi mjög góðan leik og er einn okkar besti hand- knattleiksmaður í dag, þó ungur sé. Þá átti Hans Guðmundsson mjög góðan leik gegn Víking. Var mjög sterkur jafnt í vörn sem sókn. Hans er greinilega mjög vaxandi leikmaður. Sæmundur var sterkur í vörninni en hefði mátt beita sér meira í sókninni. Sérstaklega er Kristján var tekinn úr umferð. Það sem liði FH vantar einna helst er meiri breidd. En hinir ungu leikmenn liðsins geta vel við unað að hafa náð öðru sæt- inu í mótinu í vetur. Það var meira en margir bjuggust við. Dómgæslan Þeir Gunnlaugur Hjálmarsson og Óli Olsen dæmu úrslitaleikinn og voru þeir mjög mislagðar hend- ur í dómgæslunni. Sérstaklega þegar leikmönnum var vísað af leikvelli. Ýmist fengu leikmenn að fara útaf fyrir smávægileg brot, eða að þeir fengu ekki einu sinni gula spjaldið fyrir að bókstaflega snúa menn niður með báðum höndum. Þá var eins og dómararn- ir þyldu ekki spennuna í leiknum og undir lokin slepptu þeir aug- ljósum brotum. Oft á tíðum vissu hvorki leikmenn eða áhorfendur á hvað var verið að dæma. Nei, það verður að gera betur en þetta í úrslitaleik í íslandsmóti. Gífurleg stemmning var í húsinu Þeir voru margir sem urðu frá að hverfa á laugardaginn við íþróttahúsið í Hafnarfirði. Upp- selt var á leikinn og víst rúmlega það. Þetta sýnir vel hversu gífur- legur áhugi er á handknattleik þegar stórleikir eru annarsvegar. Þá var stemmingin í húsinu allan leikinn slík að með ólíkindum var. En það er hún sem gefur úrslita- leikjum mikið og sérstakt and- rúmsloft. I stuttu mali: íþróttahúsið Hafnarfirði. FH—Víkingur 15:16 (9:8). Mörk FH: Kristján Arason 7 3 v, Hans Guðmundsson 3, Valgarð Valgarðsson 2, Sæmundur Stef- ánsson, Pálmi Jónsson, og Guð- mundur Magnússon 1 mark hver. Mörk Víkings: Ólafur Jónsson 5, Sigurður Gunnarsson 3, Steinar Birgisson 2, Guðmundur Guð- mundsson 2, Páll Björgvinsson 2, og Þorbergur Aðalsteinsson 1. Brottrekstur af leikvelli: FH: Sæmundur Stefánsson í 4 mín., Hans Guðmundsson í 4 mín., Kristján Arason í 3 mín., Valgarð Valgarðsson í 4 mín. Víkingur: Árni Indriðason í 4 mín., Hilmar Sigurgíslason í 2 mín., Steinar Birgisson í 2 mín., Þorbergur Aðalsteinsson í 2 mín. Eitt vítakast mistókst í leikn- um. Kristján Arason lét Kristján Sigmundsson verja frá sér á 19. mínútu. — ÞR. Ómar Waage: Mér fannst þetta mjög góður leikur, eða eins og úrslitaleikir eiga að vera. Spennan var gífurleg allan tím- ann, og maður var aldrei öruggur með sína menn, það er Víkingana. Þá fannst mér dómgæslan léleg og hallaðist þá frekar á Víkingana. Það er alltaf erfitt að koma í íþróttahúsið hér í Firðinum og var maður með smá í maganum útaf því, en það var betra liðið sem vann. Guðmundur Þorvarðarson: Þetta var skemmtilegur leikur, ekta úrslitaleikur. Dómgæslan fannst mér ágæt. Leikurinn var nokkuð harður en alls ekki grófur. Leikurinn einkenndist af góðum varnarleik. Þótt ég sé FH-ingur hafði ég á tilfinningunni að Vík- ingarnir myndu sigra. Góð byrjun dugði HK ekki og Fram vann góðan sigur ÞAi) var hluLskipti liK að falla í 2. deild í handknattleiknum ásamt KA frá Akureyri og eftir úrslitaleik HK og Fram um fallsætið að V'armá á laugardaginn „tolleruðu" Framarar markvörð sinn Sigurð Þórarinsson. Það var mjög við hæfi, Sigurður lék sjálfsagt sinn besta leik á þessu keppnistímabili, varði samtals 16 skot í leiknum, þar af þrjú vítaköst á þýðingarmiklum augnablikum. En það var ekki einungis frábær frammistaða Sigurðar sem færði Fram sigurinn. í miklum tauga- spennuleik var það mun betra liðið sem sigraði eins og lokatölurnar 18—13 gefa til kynna. Ef frá eru taldar fyrstu mínútur leiksins hafði Fram forystuna allan leikinn og var leikur IIK allan tímann svo gloppótt- ur að varla var við því að búast að liðinu tækist að jafna eða síga fram HKrFram 13:18 úr. 1 hálfleik var staðan 9—5 fyrir Fram. HK hefur löngum þótt erfitt lið heim að sækja og liðið fékk sann- arlega byr undir báða vængi er bræðurnir Ragnar og Kristinn Ólafssynir skoruðu tvö fyrstu mörkin, staðan 2—0 fyrir HK og Famarar allt annað en yfirvegaðir og stilltir á taugum. En svo fór allt saman að smá koma hjá Fram, Egill Jóhannesson jafnaði með tveimur mörkum, en HK svaraði með tveimur í viðbót, 4—2. Egill minnkaði muninn í 4—3 og síðan kom vendipunktur. Sigurður Þórarinsson varði vítakast Ragn- ars Ólafssonar og voru þá aðeins níu mínútur liðnar af leiknum. HK skoraði aðeins eitt mark í viðbót í fyrri hálfleik, á síðustu sekúndunum. Sigurður varði í millitíðinni víti frá Herði Sig. og félagar hanas skoruðu 6 mörk í röð, staðan 9—4, en HK breytti svo stöðunni í 9—5. HK-menn skoruðu 4 af 5 fyrstu mörkum síðari hálfleiks, staðan því 10—9 fyrir Fram og 11 — 10 er síðari hálfleikur var hálfnaður. Sigurður varði þriðja víti sitt og Fram komst í 12—10 með víta- kasti Egils, Guðni svarði fyrir HK úr víti, en HK vantaði herslumun- inn og Framarar höfðu yfirburði síðustu mínúturnar, tryggðu sér mjög sanngjarnan sigur miðað við gang leiksins. Hvað sögðu áhorfendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.