Morgunblaðið - 23.03.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1982
29
ri lát-
unni“
- sagði Kristín
Bjarnadóttir sem var
með 5 og 6 ára börn
sín í skemmtiferð
íristiii Bjarnadóttir ásamt börnum
ínum, Viktori og Ernu, sem voru
ngstu farþegarnir í flugvélinni.
Ljósmynd Mbl. KAX.
Fokker-vélin hefur rétt stöðvast eftir nauölendinguna, flugstjórinn er kominn út og flugfreyjan er að hlaupa fri afturdyrunum eftir að hafa aðstoðað alla
farþegana út úr vélinni. Slökkviliðsmenn af Keflavíkurfhigvelli eru komnir á vettvang, en þeir fylgdu vélinni í nauðlendingunni á mörgum bílum.
Ljósmynd Mbl. Kaj»nar Axolsson.
ekki hafa verið hrædd, enda hafi
vélin flogið eins og hún átti að
fljúga, en Viktor, sem er 5 ára,
kvaðst hafa verið mikið hræddur.
„Ég var svo hræddur um að deyja,“
sagði hann, „en svo dó enginn og*
þetta er allt í lagi og bráðum fer ég
aftur heim í flugvél."
,,1'akklát farþej(unum fyrir
góða samvinnu“
„Farþegarnir voru almennt mjög
rólegir á meðan þetta stóð yfir, við
fórum í rólegheitum ytir öll atriði í
sambandi við nauðlendingu og
ræddum málin og ég fékk hjálp frá
farþegum, sérstaklega einum sem
ég veit nú að er svifflugmaður. Ég
talaði stanzlaust við fólkið í lend-
ingunni og allir gerðu eins og ráð-
gert hafði verið og þetta gekk því
allt vel. Við vissum fyrirfram hvor-
um megin við áttum að fara út úr
vélinni eftir lendinguna og við í
áhöfninni erum mjög þakklát far-
þegunum fyrir yfirvegun og góða
samvinnu í sambandi við þetta
óhapp.“
Athyglin beinist að bilun
í forþjöppu
Sveinn Sæmundsson, blaðafull-
trúi Flugleiða, sagði í samtali við
Mbl. að menn frá Flugleiðum væru
nú farnir til Noregs til þess að
skoða Fokker-vél sem er til leigu og
er reiknað með að verði komin til
landsins eftir nokkra daga, en á
meðan verður Boeing 727, sem Flug-
leiðir eru með á leigu frá Afganist-
an, í innanlandsflugi milli Akureyr-
ar og Reykjavíkur,
Mótorinn, sem bilaði í Fokkern-
um frá Isafirði, kom til landsins
sem varamótor með vélinni þegar
hún var keypt frá Japan 1972. Búið
var að fljúga með mótornum 10 þús-
und tíma hér, en mótorinn fór í
endurnýjun til Rolls Royce sl. haust
og þá var m.a. skipt um það stykki
sem athyglin beinist nú að í sam-
bandi við sprenginguna. Síðan mót-
orinn kom úr endurnýjun hefur
hann verið í notkun í um það bil 600
klukkustundir.
Það stykki sem ath.vglin beinist
að er fremri forþjappa, sem virðist
hafa brotnað með fyrrgreindum af-
leiðingum, að sögn Sveins Sæm-
undssonar.
íslenzka loftferðaeftirlitið hefur
óskað aðstoðar frá brezka loftferða-
eftirlitinu og mun maður koma það-
an næstu daga, menn frá Rolls
Royce koma á morgun og einnig
menn frá Fokker-verksmiðjunum.
— á.j.
flugstjóri, en við hlið hans eru Guðrún
ir Viktorsson, aðstoðarflugmaður. Mynd-
na. Ljósmynd Mbl. KAX.
Þessi mynd er tekin á sömu mínútunni og sprengingin varð i vinstri
hreyfli Fokker-vélarinnar yfir ísafirði sl. laugardag, en flugmönnum
vélarinnar tókst að slökkva strax eldinn sem varð laus og sést á
myndinni að það hefur tekist en reykjarmökkurinn situr eftir.
Ljósm. Yestfirska fréltablaóió.
Vinstri hreyfill Fokker-vélarinnar var illa farinn eftir sprenginguna og fremsti hluti
hans var nær brotinn af eins og sjá má. ijésm.vnd Mbi. kav.
í/ ■■ „i* £ i m * á
ÆwM -'t * v % r I
U í J f ■ * I
Brúðuleikhúshátíð
á Kjarvalsstöðum
Brúðuleikhúshátið hófst að Kjar-
valsstöðum um helgina og stendur
alla þessa viku. Það er IINIMA á
íslandi sem stendur fyrir hátíðinni,
en IINIMA eru samtök brúðuleik-
húsmanna og áhugafólks um brúðu-
leikhús um allan heim.
Tvö íslensk brúðuleikhús taka
þátt í hátíðinni, Islenska brúðu-
Myndin var tekin á brúðuleik-
húshátíöinni um helgina á Kjar-
valsstöðum.
leikhúsið og Leikbrúðuland, og
frumsýndu þau bæði ný verk að
Kjarvalsstöðum um helgina. Þá
sýndi einnig hópur frá Kanada og
kenndi pappírsbrúðugerð. í vik-
unni verða einkum sýningar síð-
degis og á kvöldin.
Þýski brúðuleikhúsmaðurinn
Albrecht Roser sýnir í kvöld,
þriðjudaginn 23. mars, kl. 20.30 að
Kjarvalsstöðum leikinn Gústaf og
félaga hans. Sýning þessi hefur
þá sérstöðu að hún er bönnuð
börnum yngri en 15 ára. Auk þess
mun Roser halda fyrirlestur í dag
kl. 15 að Kjarvalsstöðum.
Franski leikflokkurinn Theatre
du Fust sýnir kl. 17 í da'g, mið-
vikudag, og fimmtudag Söguna
um Melampous. Þetta verk er
byggt á grískri sögn.
Leikbrúðuland sýnir þrjár þjóð-
sögur á fimmtudagskvöld, en
föstudagskvöld sýnir bandaríski
leikhúsmaðurinn Eric Bass. Hann
mun endurtaka sýningu sýna kl.
16 á laugardag.
Má geta þess, að íslenskir leik-
arar túlka allar erlendu sýn-
ingarnar. Brúðuleikhúshátíðinni
lýkur síðan um næstu helgi.
Verða sýningar allan laugardag
og sunnudag í fjórum sölurn að
Kjarvalsstöðum.