Morgunblaðið - 03.07.1982, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ1982
Kými er mjög gott í bílnum
Ljósmynd Mbl. Kmilía.
Volvo GLT
TURBO
reynsluekið
Mjög góðir aksturseiginleikar
— Kraftmikill — Rúmgóður
SÍFKLLT fleiri bílaframleidendur
bjóöa nú bíla sína búna meö túrb-
ínu. Kinn þeirra er Volvo, en fyrir
nokkru reynsluók ég Volvo GLT
TIJKBO, sem er 240-línu bíll með
túrbínu, auk þess sem hann er bú-
inn ýmsum aukahlutum, sem ekki
er aó finna í heföbundinni útfærslu
bílsins. Kg þurfti ekki að aka bíln-
um lengi til að finna, að ég var með
mjög skemmtilegan hraðakstursbíl
í höndunum. TURBO-inn hefur allt
aðra svörun en hin hefðbundna út-
færsla af Volvo 240. Hann er allur
mun stífari og skemmtilegri til
hraðaksturs á malbikinu. I>að
hvarflaði því óneitanlega að mér,
að bíllinn yrði nánast ókeyrandi úti
á mölinni, en svo reyndist ekki
vera, reyndar skiptum við um
hjólbarða og settum mýkri barða
undir hann. Almennt má segja um
Volvo GLT TIJRBO, að hann fái
góða einkunn fyrir aksturseigin-
leika.
Eins og með aðra túrbínubíla,
þarf ekki að kvarta undan kraftin-
um, það er eins og bíllinn fái víta-
mínssprautu, þegar honum er gef-
ið inn. Það er því mjög skemmti-
legt að skjótast á honum innan-
bæjar. Þá kemst krafturinn að
sjálfsögðu til skila, þegar maður
ekur honum á langkeyrslu.
Volvo GLT TURBO er fjögurra
dyra og er 4—5 manna. Mjög
þægilegt er að ganga um dyr bíls-
ins, hvort heldur farið er inn að
framan eða aftan. Þá falla hurð-
irnar vel að stöfum. Volvo-bílar
hafa löngum verið þekktir fyrir
góð sæti, sérstaklega framsætin,
og svo er einnig í þessum. Sætin
eru klædd þægilegu tauáklæði og
mjög gott er að sitja í þeim. Þau
hafa ýmsa stillingarmöguleika.
Bakið má færa fram og aftur eftir
óskum hvers og eins, auk þess sem
stilla má stífleika þess. Um setuna
er það að segja, að hægt er að
stilla hallann á henni eftir vild,
sem er mikill kostur. Þá er auðvit-
að hægt að færa sætin fram og
aftur að vild. Aftursætið er enn-
fremur þægilegt ísetu, sé um tvo
að ræða. Reyndar má segja, að
þrír fullorðnir geta ekki setið aft-
ur í Volvonum með góðu móti.
Sætið er þannig formað.
Þegar maður er setztur í bíl-
stjórasætið fer vel um mann, að
öðru leyti en því, að kassinn milli
sætanna er alltaf frekar hvimleið-
ur og er í raun furðulegt, að Volvo
skuli ekki hafa breytt hönnun
hans. Þegar meðalstórir menn og
stærri sitja undir stýri, liggur
hægri fóturinn óþægilega utan í
kassanum, sem verður pirrandi til
lengdar. Mjög vel sést út úr bíln-
um, sama hvert litið er og er það
mikill kostur.
Mælaborðið í Volvo er mjög vel
hannað, mjög vel sést á alla mæla
og stjórntækin eru flest innan
seilingar. Stýrishjólið er af góðri
stærð og hallinn á því er að mínu
mati góður. Maður þreytist ekki á
því að keyra bílinn langar vega-
lengdir. Það vill oft brenna við í
bílum, að maður þarf sífellt að
vera að skipta um stellingar gagn-
vart stýrishjólinu. í bílnum eru
allir nauðsynlegir mælar, þannig
að mjög auðvelt er að fylgjast með
gangi mála. Miðstöðin er þriggja
hraða og mjög kraftmikil. Það
tekur aðeins skamma stund að
hreinsa rúður bílsins allan hring-
inn. Rúðuupphalarar eru allir
rafdrifnir í TURBO-num og er það
mikið hagræði. Auk þess er bíllinn
búinn miðstýrðri læsingu á öllum
hurðum. Það þýðir, að þegar bíl-
stjórahurðinni er lokað með lykli
Bílar
Sighvatur Blöndahl
Volvo
Gerð: Volvo GLIT TURBO
Framleiðandi: Volvo
Framleiðsluland: Svíþjóð
Umboðsmaður: Vettir hf.
Verð: 262.000.-
Ryðvðm: 2.700.-
Þyngd: 1.394 kg.
Lengd: 4.890 mm
Breidd: 1.709 mm
Hæð: 1.427 mm
Skottrými: 400 litrar
Benzintankur: 60 lítrar
Vól: 4 strokka + túrbfna
Hestöfl: 155 DIN
Bremsur: Diskabremsur fram-
an og aftan
Hjólbarðar: Pirelli P6,
195/60HR-15
Tími í 100 km/klst: 8,5—8,9
sekúndur
Innifalið í verði: Sanseraður
litur + sportfelgur
læsast allar aðrar hurðir bílsins
einnig.
TURBO-inn er beinskiptur,
fjögurra gíra með yfirgír, sem
kalla má 5. gír. Ekki er hægt að fá
bílinn sjálfskiptan frá verksmiðju.
Skiptingin er mjög þægileg, stutt
er milli gíra og auðvelt að skipta.
Yfirgírinn, eða 5. gírinn, kemur
inn þannig, að stutt er á lítinn
hnapp ofan á gírstönginni. Bíllinn
vinnur vel í öllum gírum, enda
krafturinn nægur. Það má reynd-
ar segja, að hann verði aldrei afl-
vana, nema ef vera skyldi, ef hon-
um er ekið of hægt í yfirgírnum.
Túrbínan kemur yfirleitt inn við
tæplega 3 þúsund snúninga og það
þarf því ekki að gefa bílnum mikið
inn áður en túrbínan fer að virka.
Fyrst farið er að tala um túrbín-
una, má reyndar skjóta því að, að
hægt er að fá hana keypta hjá um-
boðinu og setja í venjulegar gerðir
af Volvo. Þá kostar hún með öllu
tilheyrandi um 30 þúsund krónur.
Bíllinn verður seint aflvana í gír-
unum, en óneitanlega fannst mér
hann skemmtilegastur þegar mað-
ur var að skjótast áfram í 3ja
gírnum.
Eins og ég sagði í upphafi hefur
Nýr frá Mitsubishi:
Pajero-jeppinn
á götuna í haust
MIKIÐ líf hefur færst i jeppamarkaö-
inn hér á landi á síðustu misserum,
eftir mikla ördeyðu allt frá árinu 1974.
Sá nýjasti er frá Mitsubishi-verksmiðj-
unum japönsku og heitir Pajero.
Fyrstu bílarnir munu væntanlega sjást
á götunum hér með haustinu.
Pajeroinn er með óvenjulega
mikla veghæð, þ.e. fjarlægð frá vegi
að lægsta punkti undirvagns, sé
miðað við jeppana eins og þeir koma
frá framleiðanda. Jeppaeigendur
hér á landi hafa hins vegar iðulega
hækkað þá upp til þess að gera þá
betur fallna til aksturs í vegleysum.
Þrátt fyrir hina miklu veghæð er
Pajeroinn að mínu mati stílhreinn
og hefur eðlilegar línur.
Annar hlutur, sem vekur athygli
við fyrstu skoðun, er hversu vel bú-
inn bíllinn er að innan. Það má
segja, að hann sé búinn góðri fólks-
bílainnréttingu, sem maður á ekki
að venjast í jeppum. Framsætin eru
eins og maður þekkir þau úr Mitsu-
bishi fólksbílunum, með góðum
bakstuðningi, auk þess sem þau eru
með fjaðrandi undirstöðu, sem kem-
ur sér vel þegar ekið er um í ójöfnur
utan vegar. Það má kannski segja
um aftursætið, sem er bekkur, að
það sé af einfaldari gerðinni, sé mið-
að við fólksbila.
Mælaborðið er vel búið mælum og
tækjum, sem nauðsynleg geta talizt
í jeppum. Má þar nefna olíuþrýst-
ingsmæli, hallamæli, snúnings-
hraðamæli, spennumæli, tölvu-
klukku og fleiri hluti, sem oft eru
látnir mæta afgangi við framleiðslu