Morgunblaðið - 03.07.1982, Síða 14

Morgunblaðið - 03.07.1982, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ1982 Kými er mjög gott í bílnum Ljósmynd Mbl. Kmilía. Volvo GLT TURBO reynsluekið Mjög góðir aksturseiginleikar — Kraftmikill — Rúmgóður SÍFKLLT fleiri bílaframleidendur bjóöa nú bíla sína búna meö túrb- ínu. Kinn þeirra er Volvo, en fyrir nokkru reynsluók ég Volvo GLT TIJKBO, sem er 240-línu bíll með túrbínu, auk þess sem hann er bú- inn ýmsum aukahlutum, sem ekki er aó finna í heföbundinni útfærslu bílsins. Kg þurfti ekki að aka bíln- um lengi til að finna, að ég var með mjög skemmtilegan hraðakstursbíl í höndunum. TURBO-inn hefur allt aðra svörun en hin hefðbundna út- færsla af Volvo 240. Hann er allur mun stífari og skemmtilegri til hraðaksturs á malbikinu. I>að hvarflaði því óneitanlega að mér, að bíllinn yrði nánast ókeyrandi úti á mölinni, en svo reyndist ekki vera, reyndar skiptum við um hjólbarða og settum mýkri barða undir hann. Almennt má segja um Volvo GLT TIJRBO, að hann fái góða einkunn fyrir aksturseigin- leika. Eins og með aðra túrbínubíla, þarf ekki að kvarta undan kraftin- um, það er eins og bíllinn fái víta- mínssprautu, þegar honum er gef- ið inn. Það er því mjög skemmti- legt að skjótast á honum innan- bæjar. Þá kemst krafturinn að sjálfsögðu til skila, þegar maður ekur honum á langkeyrslu. Volvo GLT TURBO er fjögurra dyra og er 4—5 manna. Mjög þægilegt er að ganga um dyr bíls- ins, hvort heldur farið er inn að framan eða aftan. Þá falla hurð- irnar vel að stöfum. Volvo-bílar hafa löngum verið þekktir fyrir góð sæti, sérstaklega framsætin, og svo er einnig í þessum. Sætin eru klædd þægilegu tauáklæði og mjög gott er að sitja í þeim. Þau hafa ýmsa stillingarmöguleika. Bakið má færa fram og aftur eftir óskum hvers og eins, auk þess sem stilla má stífleika þess. Um setuna er það að segja, að hægt er að stilla hallann á henni eftir vild, sem er mikill kostur. Þá er auðvit- að hægt að færa sætin fram og aftur að vild. Aftursætið er enn- fremur þægilegt ísetu, sé um tvo að ræða. Reyndar má segja, að þrír fullorðnir geta ekki setið aft- ur í Volvonum með góðu móti. Sætið er þannig formað. Þegar maður er setztur í bíl- stjórasætið fer vel um mann, að öðru leyti en því, að kassinn milli sætanna er alltaf frekar hvimleið- ur og er í raun furðulegt, að Volvo skuli ekki hafa breytt hönnun hans. Þegar meðalstórir menn og stærri sitja undir stýri, liggur hægri fóturinn óþægilega utan í kassanum, sem verður pirrandi til lengdar. Mjög vel sést út úr bíln- um, sama hvert litið er og er það mikill kostur. Mælaborðið í Volvo er mjög vel hannað, mjög vel sést á alla mæla og stjórntækin eru flest innan seilingar. Stýrishjólið er af góðri stærð og hallinn á því er að mínu mati góður. Maður þreytist ekki á því að keyra bílinn langar vega- lengdir. Það vill oft brenna við í bílum, að maður þarf sífellt að vera að skipta um stellingar gagn- vart stýrishjólinu. í bílnum eru allir nauðsynlegir mælar, þannig að mjög auðvelt er að fylgjast með gangi mála. Miðstöðin er þriggja hraða og mjög kraftmikil. Það tekur aðeins skamma stund að hreinsa rúður bílsins allan hring- inn. Rúðuupphalarar eru allir rafdrifnir í TURBO-num og er það mikið hagræði. Auk þess er bíllinn búinn miðstýrðri læsingu á öllum hurðum. Það þýðir, að þegar bíl- stjórahurðinni er lokað með lykli Bílar Sighvatur Blöndahl Volvo Gerð: Volvo GLIT TURBO Framleiðandi: Volvo Framleiðsluland: Svíþjóð Umboðsmaður: Vettir hf. Verð: 262.000.- Ryðvðm: 2.700.- Þyngd: 1.394 kg. Lengd: 4.890 mm Breidd: 1.709 mm Hæð: 1.427 mm Skottrými: 400 litrar Benzintankur: 60 lítrar Vól: 4 strokka + túrbfna Hestöfl: 155 DIN Bremsur: Diskabremsur fram- an og aftan Hjólbarðar: Pirelli P6, 195/60HR-15 Tími í 100 km/klst: 8,5—8,9 sekúndur Innifalið í verði: Sanseraður litur + sportfelgur læsast allar aðrar hurðir bílsins einnig. TURBO-inn er beinskiptur, fjögurra gíra með yfirgír, sem kalla má 5. gír. Ekki er hægt að fá bílinn sjálfskiptan frá verksmiðju. Skiptingin er mjög þægileg, stutt er milli gíra og auðvelt að skipta. Yfirgírinn, eða 5. gírinn, kemur inn þannig, að stutt er á lítinn hnapp ofan á gírstönginni. Bíllinn vinnur vel í öllum gírum, enda krafturinn nægur. Það má reynd- ar segja, að hann verði aldrei afl- vana, nema ef vera skyldi, ef hon- um er ekið of hægt í yfirgírnum. Túrbínan kemur yfirleitt inn við tæplega 3 þúsund snúninga og það þarf því ekki að gefa bílnum mikið inn áður en túrbínan fer að virka. Fyrst farið er að tala um túrbín- una, má reyndar skjóta því að, að hægt er að fá hana keypta hjá um- boðinu og setja í venjulegar gerðir af Volvo. Þá kostar hún með öllu tilheyrandi um 30 þúsund krónur. Bíllinn verður seint aflvana í gír- unum, en óneitanlega fannst mér hann skemmtilegastur þegar mað- ur var að skjótast áfram í 3ja gírnum. Eins og ég sagði í upphafi hefur Nýr frá Mitsubishi: Pajero-jeppinn á götuna í haust MIKIÐ líf hefur færst i jeppamarkaö- inn hér á landi á síðustu misserum, eftir mikla ördeyðu allt frá árinu 1974. Sá nýjasti er frá Mitsubishi-verksmiðj- unum japönsku og heitir Pajero. Fyrstu bílarnir munu væntanlega sjást á götunum hér með haustinu. Pajeroinn er með óvenjulega mikla veghæð, þ.e. fjarlægð frá vegi að lægsta punkti undirvagns, sé miðað við jeppana eins og þeir koma frá framleiðanda. Jeppaeigendur hér á landi hafa hins vegar iðulega hækkað þá upp til þess að gera þá betur fallna til aksturs í vegleysum. Þrátt fyrir hina miklu veghæð er Pajeroinn að mínu mati stílhreinn og hefur eðlilegar línur. Annar hlutur, sem vekur athygli við fyrstu skoðun, er hversu vel bú- inn bíllinn er að innan. Það má segja, að hann sé búinn góðri fólks- bílainnréttingu, sem maður á ekki að venjast í jeppum. Framsætin eru eins og maður þekkir þau úr Mitsu- bishi fólksbílunum, með góðum bakstuðningi, auk þess sem þau eru með fjaðrandi undirstöðu, sem kem- ur sér vel þegar ekið er um í ójöfnur utan vegar. Það má kannski segja um aftursætið, sem er bekkur, að það sé af einfaldari gerðinni, sé mið- að við fólksbila. Mælaborðið er vel búið mælum og tækjum, sem nauðsynleg geta talizt í jeppum. Má þar nefna olíuþrýst- ingsmæli, hallamæli, snúnings- hraðamæli, spennumæli, tölvu- klukku og fleiri hluti, sem oft eru látnir mæta afgangi við framleiðslu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.