Morgunblaðið - 03.07.1982, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ1982
Unglingameistaramótið í golfi
á Akureyri í dag og á morgun
Unglingameistaramót íslands í
golfi 1982 fer fram á Jaðarsvelli á
Akureyri, í dag og á morgun. I»etta
er i áttunda sinn sem haldið er sér-
stakt íslandsmót unglinga.
Keppt er í fjórum flokkum; stúlk-
ur 15 ára og yngri og stúlkur 16 ára
— 21 árs, og piltar 15 ára og yngri og
piltar 16 ára — 21 árs. Miðað er við
almanaksár.
Margir af okkar bestu og efni-
legustu kylfingum munu keppa á
Akureyri þessa daga, m.a. í eldri
stúlknaflokki verður núverandi ís-
landsmeistari, Sólveig Þorsteins-
dóttir GR o.fl. í yngri flokki pilta
verða m.a. Guðmundur Arason
GR sem nýkominn er frá Doug
Sanders-mótinu í Skotlandi. Ulfar
Jónsson GK, Héðinn Gunnarsson
GA og Kristján Hjálmarsson GH
o.fl. í eldri flokki pilta eru margir
af okkar betri kylfingum í dag.
M.a. núverandi unglingameistari,
Gylfi Kristinsson GS, Páll Ket-
ilsson GS, Sigurður Sigurðsson
GS, Magnús Jónsson GS, Jón Þór
Gunnarsson GA, Magnús Ingi
Stefánsson NK, Hilmar Björg-
vinsson GS og núverandi drengja-
meistari, Karl Ómar Jónsson GR
o.fl. Búast má við harðri keppni í
öllum flokkum á fyrsta íslands-
móti sem haldið er á Jaðarsvelli
eftir að hann varð 18. holu völlur
sl. sumar. Hafa Akureyringar
undirbúið hann vel undir átökin.
Mót þetta mun hafa mikið að
segja um verkefni sumarsins fyrir
unglingana, en þau eru m.a. Evr-
ópumeistaramótið í París í ágúst,
alþjóðlegt unglingamót í Brússel í
ágúst og verið er að vinna að ungl-
ingamóti á írlandi í september.
Golfklúbbur Akureyrar mun sjá
um framkvæmd mótsins fyrir
hönd GSÍ. Leiknar verða 72 holur,
36 holur hvorn dag.
• Hér er Frans Beckenbauer fyrir kveðjuleik sinn í Hamborg fyrir
skömmu. Með honum eru tveir aðrir fyrrum fyrirliðar þýska landsliðs-
ins í knattspyrnu, Fritz Walter (t.v.) og Uwe Seeler (th.). Tekur
Beckenbauer knattspyrnuskóna fram að nýju eftir stutt hlé?
Leikur Beckenbauer
med Köln næsta vetur?
MIKLAR likur eru nú taldar á því
að Frans Beckenbauer taki fram
knattspyrnuskó sína á ný og leiki
með F(' Köln í þýsku Bundeslig-
unni næsta vetur. Aðeins rúmur
mánuður er síðan Beckenbauer
lék kveðjuleik sinn með Hamburg-
er SV og var hann ákveðinn að
hætta fyrir fuilt og allt.
Hann starfar sem blaðamaður
á HM á Spáni og þar var fram-
kvæmdastjóri Köln, Hannes
Löhr, staddur og bauð hann
Frans samning. „Eg hélt í fyrstu
að hann væri að grínast," sagði
Beckenbauer. En þegar Löhr
orðaði þetta aftur varð honum
ljóst að hér var um fúlustu al-
vöru að ræða.
„Þrátt fyrir að margir snjallir
leikmenn séu hjá Köln hafa þeir
átt í erfiðleikum með miðvallar-
leikmenn, og ég kunni vel við
mig á miðjunni hjá Hamburger,
þegar ég loksins var orðinn góð-
ur af meiðslunum," sagði Beck-
enbauer. Hann lék sem kunnugt
er um árabil með Bayern
Múnchen og þýska landsliðinu
og var þá sem aftasti maður
varnarinnar.
Kölnarmenn höfðu augastað á
Johan Cruyff, hollenska snill-
ingnum, en ekkert varð úr því
þannig að Beckenbauer kom inn
í myndina.
Fer Ardiles til Frakklands?
— óvíst hvaö verður um Ricardo Villa
arinn sammála í þetta skipti.
Brassarnir voru miklu betri í
seinni hálfleik og skoruðu þá tvö
mörk sem Zico byggði upp. Það
fyrra kom á 67. mín. Zico sendi
frábæra sendingu inn fyrir vörn
Argentínu, til Falcao sem vippaði
boltanum yfir Fillol í markinu, á
fjærstöngina þar sem Serginho
skallaði af krafti í netið, einn og
óvaldaður. Snillingurinn Zico var
algjörlega óstöðvandi og á 74. mín.
sendi hann glæsilega sendingu inn
fyrir vörnina á bakvörðinn
sókndjarfa, Junior, sem skoraði
með þrumuskoti hjá Fillol. Heims-
meistararnir létu mótlætið fara
mjög í skapið á sér og á síðustu
mínútum leiksins brutu þeir
nokkrum sinnum mjög gróflega af
sér. Eins og áður sagði þurfti Zico
að fara út af eftir gróft brot Pass-
arella, og Batista, sem kom inn
fyrir hann, var tekinn í bakaríið
af Maradona og sá stjarnan rauða
spjaldið fyrir.
Ramon Diaz lagaði stöðuna að-
eins einni mín. fyrir leikslok er
hann skoraði með föstu skoti rétt
utan teigs. Auðveldur sigur Brass-
anna var í höfn og nægir þeim
jafntefli gegn Ítalíu á mánudag-
inn til að komast í undanúrslit.
• Zico fagnar marki. Hann sýndi
stórkostlegan leik í gær gegn Arg-
entínumönnum og var stjarna leiks-
ins.
• Knska knattspyrnufélagið Tott-
enham hefur tilkynnt að það hafi
fallist á þá kröfu Osvaldo Ardiles, að
selja hann frá félaginu. Eru nú hafn-
ar samningaviðræður við franska lið-
ið Paris St. Germain. Ardiles er sem
kunnugt er Argentínumaður og eftir
að Falklandseyjadeilan braust út
tók hann ákveðna afstöðu með
heimalandi sínu og ákvað i kjölfarið
á ósigri Argentinu að stiga aldrei
fæti aftur á breska grund. „Búið er
að ganga frá samningum í flestum
aðalatriðum," sagði Peter Day,
stjórnarmaður hjá Tottenham í sam-
tali við AP.
Framtíð Ricardo Villa hjá félag-
inu er ótrygg, en hann er sem
kunnugt er einnig Argentínumað-
ur. Day sagði; „Við getum ekkert
sagt á þessu stigi málsins, Villa er
um þessar mundir í sumarleyfi
• Osvaldo Ardiles leikur sennilega
með franska liðinu Paris St Ger-
main næsta vetur.
heima í Argentínu og við höfum
ekkert heyrt frá honum um hríð.
Allir leikmenn félagsins hafa
fengið boð um að mæta til æfinga
19. júlí og Villa fékk einnig slíkt
boð og því má segja að við væntum
hans. Þó verður að skoða málið frá
fleiri sjónarhornum en horni fé-
lagsins, það er ekki víst að það sé
æskilegt hans vegna að leika
áfram með okkur. A hinn bóginn
hðfum við engin tilboð fengið í
hann og þvi á huldu hvaða stefnu
málið tekur.
Fari svo að Tottenham sjái af
báðum Argentínumönnum sínum,
er missir liðsins mikill. Þeir hafa
verið lykilmenn hjá liðinu sem
hefur haslað sér völl sem eitt
besta knattspyrnulið Bretlands-
eyja. Skörð þeirra verða ugglaust
vandfyllt.
Heimsmeistarar Argentinu
eru nú úr leik í keppninni
BRASILÍUMENN sigruðu heims-
meistara Argentinu í C-milliriðli HM
í gær með þremur mörkum gegn
cinu í mjög góðum leik. Brasilia yfir-
spilaði andstæðinga sina algjörlega í
leiknum, sérstaklega í síðari hálfleik
er þeir tóku öll völd á miðjunni. Zico
var stórkostlegur í þessum leik,
hann skoraði fyrsta markið og lagði
upp tvö hin siðari, en varð síðan að
fara af velli í lokin, er Daniel Pass-
arella braut mjög illa á honum og
meiddist hann töluvert. Passarella
hafði áður gult spjald i leiknum og
þótti heppinn að vera ekki rekinn af
velli. Stirnið Maradona var siðan
rekinn út af í lokin fyrir hræðilega
gróft brot. Greinilegt að þeir voru
ekki ánægðir með gang mála, heims-
meistararnir.
Argentína byrjaði mun betur í
gær og strax á 2. mín. fékk Peres í
marki Brassanna að taka á honum
stóra sínum. Kempes gaf fyrir og
Barbas skallaði fast á markið en
Peres varði mjög vel. Heimsmeist-
Michel Hidalgo:
vHitinn gæti sligað
Irana verulega“
ÚRSLITALEIKUR eins milliriðils
HM-keppninnar er viðureign Frakka
og Norður-íra sem fram fer í Madrid
á morgun. Georg Schmidt, þjálfari
Austurríkismanna vildi ekki spá um
úrslit leiksins er AP lagði þá þraut
fyrir hann. Schmidt sagði: „Þegar
við drógumst í milliriðil með þessum
þjóðum töldum við að þær væru jafn
liklegar til afreka, önnur þjóðin ekki
lakari en hin. Það reyndist rétt, leik-
ur þeirra getur farið hvernig sem
er.“
Michei Hidalgo, þjálfari Frakka
sagði hins vegar: „Jafntefli íra og
Austurríkismanna voru góð úrslit
fyrir okkur. Nú er undir okkur
sjálfum komið hvað úr HM-
draumum okkar verður. Við vitum
mæta vel hvað býr í írska liðinu,
festa, viljastyrkur, kraftur og
seigla. Þegar leikið er gegn þeim
má aldrei slaka á klónni, það
fengu Austurríkismenn að reyna
er þeir slökuðu á eftir að hafa náð
forystu á ný.“
Norður-írar og Frakkar léku
vináttulandsleik rétt fyrir
HM-keppnina. írar voru þá í öldu-
dal og Frakkar sigruðu 4—0. En
Hidalgo segir: „Þeir eru miklu
betri nú, sérstaklega í vörninni.
Þá eru þeir Hamilton og Brith-
erstone athyglisverðir framherj-
ar. En það er spurning hvort liðið
getur leikið annan eins leik í slík-
um hita á sunnudaginn. Við höf-
um fengið betri tíma til að hvíla
okkur, en hitinn gæti átt eftir að
sliga írana illa.“
Brasilía —
Argentína
3-1
ararnir fengu 2 horn á fyrstu 6
mín. og komu argentínsku vörn-
inni nokkrum sinnum í klípu.
Zico skoraði síðan fyrsta mark
leiksins á 12. mín., í fyrstu hættu-
legu sókn Brasilíu. Þeir fengu
aukaspyrnu 25 metra frá marki og
framkvæmdi Eder hana. Þrumu-
skot hans small í þverslánni, Zico
og Serginhö voru fyrstir á vett-
vang og sá fyrrnefndi potaði bolt-
anum í markið af örstuttu færi.
Fjórða mark hans í keppninni
varð staðreynd. Eftir markið urðu
Argentínumenn daufari en áður
og Brasilía tók völdin. Falcao og
Zico fengu báðir góð færi í fyrri
hálfleik en misnotuðu þau. Falcao
reyndar tvö, í fyrra skiptið hitti
hann ekki markið en seinna skotið
lenti í þverslánni. Peres í marki
Brasilíu varði seint í hálfleiknum
frábærlega vel skalla frá Passar-
ella eftir horn.
Diaz kom inn fyrir Kempes
strax eftir hlé, og sóttu Argent-
ínumenn mun meira fyrstu mín.
Perez varði vel frá Diaz og Mara-
dona heimtaði vítaspyrnu eftir að
hann var felldur, en ekki var dóm-
ESPANA '82