Morgunblaðið - 24.07.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.07.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ1982 13 Sverrir Kristinsson og Hrafnhildur Schram við eitt verkið á sýningunni; málverk eftir ísleif Konráðsson. Þessi mynd mun prýða frímerki sem Póst- og símamálastofnunin gefur út í haust í tilefni árs aldraðra. Trúlega eitt þekktasta verkið á sýningunni; Vorleikur eftir Stefán Jónsson frá Möðrudal, olíumynd frá 1950. Myndin vakti hneykslan margra og kallaði jafnvel á lögregluaðgerðir, þá er listamaðurinn sýndi hana fyrst á Lækjar- torgi sumarið 1950. Mynd eftir hinn misskilda listamann, Sölva Helgason. Margir hafa orðið til þess að segja að Sölvi hefði getað orðið mikill listmálari, hefði hann notið undirstöðukennslu og ytri aðstæður sem innri verið honum hagstæðari. — Myndin er í eigu Þjóðminjasafns. Friðrik G. Friðriksson við lauf og annan gróður, sem áður og fyrri var notaður til að lita vaðmál er íslendingar hafa klæðst um aldir. ippusson á Hólabrekku í Mýrar- hreppi. í sýningarskránni gerir Friðrik G. Friðriksson svofellda grein fyrir sýningunni: „Þegar undirbúningur og vinna hófst að handmenntasýningu í til- efni öldrunarársins 1982, varð í upphafi ljóst að velja þurfti til sýningar úr mörgum ágætum munum. Ýmsir möguleikar komu einnig til greina við uppsetningu og fyrirkomulag sýningargripa. Þegar um slíkan vanda er að ræða, er ekki augljós farsælasta leiðin til úrlausnar. Það varð úr, að leit- að var aðallega til hagleiksfólks úti á landi eftir góðum gripum, en jafnframt var reynt að hafa það í huga að sýningin gæfi svolítið yf- irlit yfir hluti gerða úr ólíkum efnum. Þeir sem hér koma við sögu, vinna úr járni, tré, leðri, steini, ull, jurtum o.fl. Hugmyndinni um notagildi hlutanna, form og feg- urð, kemur síðan hver og einn til skila eftir sínu höfði, eins og að- stæður leyfa. Á þessari sýningu er gerð til- raun til að gæða sýningarmunina lífi með því að sýna á myndbandi það hagleiks- og snilldarfólk sem að verkunum stendur. Fleiri koma einnig fram í myndinni. Þetta fólk er allt orðið roskið en í fullu fjöri eins og sjá má. Myndbandatæknin býður upp á ýmsa möguleika en hefur einnig sínar takmarkanir. Þau tæki sem hér eru notuð, gefa ekki möguleika á klippingu. Sýningargestir eru því beðnir um að sýna umburðar- lyndi gagnvart tæknigöllum og hafa það í huga að hér eru leik- menn að verki. Hér er ekki um að ræða tæmandi heimildarmynd, heldur aðeins sýnishorn af vinnu einstaklinga sem vinna úr mis- munandi efnum og tjá sig með ólíkum hætti. Tilgangur þessarar sýningar er fyrst og fremst sá að vekja fólk á öllum aldri til umhugsunar um skapandi kraft hvers einstaklings. En sá kraftur er óháður aldri.“ Málþing um öldrunarmál í tengslum við sýninguna á Kjarvalsstöðum er þar efnt til málþings, umræðufunda um ýmis mál er snerta elli og samfélagið. Það er Samband lífeyrisþega ríkis og bæja sem sér um þennan þátt. Þá má nefna að landssamtökin Líf og land efna til síðdegisvöku á Kjarvalsstöðum í dag, laugardag, þar sem flutt verða erindi og leik- in tónlist í tilefni árs fatlaðra. Enn má nefna, að á meðan sýn- ingu stendur, eru gefnar út sýn- ingarfréttir um efni það sem á dagskrá er dag hvern, mynd- bandasýningar, fyrirlestra og fleira. Má fá fréttablöðin hjá gæslufólki sýningarinnar alla daga sýningarinnar. Sýningin er opin alla daga milli klukkan 14 og 22 og stendur til 8. ágúst. Spænskir togarar veiða í óleyfi við Svalbarða Osió, 22. júlí. Frá fréttariUira Mbl. Jan-Krik Lauré. UM ÞAÐ bil tíu spænskir togar- ar eru nú á ólöglegum veiðum á norsku yfirráðasvæði við Sval- barða. Norska utanríkisráðu- neytið hyggst mótmæla þessum veiðum formlega einhvern næstu daga. Upp komst um veiðar skipanna um síðustu helgi og varðskipið Grimsholm er nú á leið á svæðið. Að sögn Finns Bergersens skrifstofustjóra í norska sjáv- arútvegsráðuneytinu leikur ekki vafi á því að Spánverj- arnir veiði undirmálsfisk. Bergersen segir ennfremur að engu sé líkara en spænsk yfir- völd hafi ekki stjórn á veiðum spænsku togaranna, því þeim hafi fyrr í þessum mánuði verið vísað af miðunum yið Svalbarða eftir formlegar viðræður norskra og spænskra stjórnvalda. v\ö sVnura'da9 Sumarbústaði Höfum til sýnis og sölu 45 fm sumar- bústaöi, íslenzk völdunarsmíö og hönnun. Húsin eru teiknuö af Gunnari G. Ein- arssyni, arkitekt. Sýningin stendur yfir í dag laugardag, sunnudag og mánudag kl. 13—17 aö Melabraut 24, Hvaleyrarholti, Hafnar- firöi. Trésmiðja Magnúsar og Tryggva, Melabraut 24, Hafnarfiröi, sími 52816. vantar þi3 3Ódan bíl? notaóur - en í algjörum sérf lokki Til sölu þessi Skoda 120 LS, árg. '80. Sérlega fallegur bfll, vínrauö- ur og ekinn aöeins 24.000 km. Ath. 10% afsláttur á notuöum bilum til mánaðamóta. Opið í dag frá 1—5. yíSS*) JÖFUR hf Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.