Morgunblaðið - 17.08.1982, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1982
Dalvík:
Söguleg ráðn-
ing bæjarritara
Dalvik, 12. *ífUHt.
B/EJARRÁÐ Dalvíkur hefur nú ráðið nýjan bæjarrilara í stað Karls Guð-
mundssonar sem tók við starfi sveitarstjóra i Hveragerði nú um miðjan
águst. Hefur ráðningin gengið sögulega fyrir sig og tekið langan tíma. Fimm
umsóknir voru um stöðuna.
I frétt í Degi á Akureyri var
tilkynnt hver ráðinn yrði í stöð-
una áður en fjallað var um málið í
bæjarstjórn eða bæjarráði. Er
málið kom til umræðu í bæjarráði
hafði viðkomandi dregið til baka
umsókn sína. Þegar bæjarráð
hafði nú komið sér saman um hver
þá skyldi ráðinn barst tilkynning
um að hann hefði einnig dregið
umsókn sína til baka. Þá flutti
Helgi Þorsteinsson tillögu um að
staðan yrði auglýst að nýju. í tví-
gang óskuðu framsóknarmenn
frestunar á afgreiðslu á tillögu
Helga, en að lokum var tillagan
felld með tveimur atkvæðum gegn
einu og samþykkt með tveimur at-
kvæðum að ráða Snorra Finn-
laugsson, erindreka Framsóknar-
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra, í starfið. Fréttaritarar.
Almenna bókafélagið:
Fyrsta bindi Dalalífs
eftir Guðrúnu frá Lundi
ALMENNA bókafélagið mun í haust senda frá sér fyrsta bindi hins kunna
ritverks Guðrúnar frá Lundi, Dalalíf. Skáldsagan Dalalíf kom á sínum tíma
út í fimm bindum, á árunum 1946 til 1951, en bækurnar hafa verið ófáanleg-
ar um langt skeið. Nú er ætlunin að gefa Dalalíf út í þremur bindum.
„Okkar á milli“ frumsf nd
KVIKMYND Hrafns Gunnlaugs-
sonar, „Okkar á milli, í hita og
þunga dagsins", var frumsýnd á
laugardaginn að viðstöddum sér-
stökum boðsgestum, eins og venja
er þegar um frumsýningu er að
ræða. Mátti þar þekkja ýmsar
þekktar persónur úr íslensku þjóð-
lífi, bæði úr stjórnmálalífínu og
menningarlífínu og var ekki annað
að heyra en myndin hlyti góðar
viðtökur meðal frumsýningargesta.
A meðfylgjandi mynd, sem Ijós-
myndari Morgunblaðsins, Ragnar
Axelsson, tók skömmu fyrir frum-
sýningu, má sjá Hrafn Gunnlaugs-
son bjóða Vilhjálm Hjálmarsson,
fyrrverandi menntamálaráðherra,
velkominn og við hlið Hrafns er
nóbelskáldið Halldór Laxness.
Eiríkur Hreinn Finnbogason
norrænufræðingur hjá Almenna
bókafélaginu sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins, að
sögusvið Dalalífs væri íslensk
sveit fyrir 50 til 100 árum. Sagan
væri öll eitt verk, þar sem hver
kynslóðin tæki við af annarri, og
því tæki hún yfir langt tímabil.
„Þetta lýsir heimi sem okkur er að
mestu eða öllu horfinn nú,“ sagði
Eiríkur Hreinn, „og á sínum tíma
voru þessar bækur bókstaflega
lesnar upp til agna. Þetta minnir í
sumu nokkuð á sögur Jóns
Trausta, þar sem sögusviðið er
stórt og fjöldi fólks kemur við
sögu. Á verkum Guðrúnar og Jóns
er þó sá mikli munur að bækur
hennar eru rómantískar en Jón
Grænlandsflug
með farþega af
Mermoz
í SAMBANDI við komu franska
skemmtiferðaskipsins Mermoz nú
um helgina til Reykjavíkur, hafði
Arnarflug tekið að sér að flytja
furstahjónin af Monaco til Kulusuk
á Grænlandi ásamt fleiri farþegum á
skipinu. Þegar Ijóst var að komu
skipsins myndi seinka mikið ákváðu
furstahjónin aö hætta við Græn-
landsferðina, en flestir farþegar
skipsins höfðu eftir sem áður áhuga
á útsýnisflugi yfir Grænland.
Þrátt fyrir heldur slæma spá og
fremur hryssingslegt veður, tókst
að verða við óskum farþeganna. Á
laugardag var flogið með 110 far-
þega í þotu Arnarflugs frá Kefla-
víkurflugvelli í útsýnisflug yfir Is-
land, þar sem Grænlandsflug
reyndist óráðlegt. Daginn eftir
reyndist veðrið heldur hagstæðara
og flaug þotan þá tvívegis til
Grænlands með samtals 187 far-
þega. Að auki flugu tvær Fokker
Friendship-vélar Flugleiða með
134 farþega í fjórum ferðum. 25
manns fóru í smærri flugvélum.
Bræla haml-
ar hvalveiðum
HVALVEIDAR hafa að mestu legið
niðri síðustu daga vegna brælu á
miöunum. I»ó veiddist einn búrhval-
ur í gær, en hvalbátarnir hafa ýmist
verið í höfn eða landvari.
Trausti var á hinn bóginn raunsæ-
ismaður mikill. Dalalíf er um
margt merkilegt ritverk, og per-
sónurnar eru mjög trúverðugar."
Guðrún Árnadóttir frá Lundi er
látin fyrir nokkrum árum. Eftir
hana liggja fjölmargar skáldsög-
ur, og lesendahópur hennar var
stór, þótt ekki ætti hún upp á
pallborðið hjá bókmenntafræðing-
um eða öðrum þeim er töldu sig
hafa vit á bókmenntum. Mun þar
einkum hafa komið til hve skorta
þótti á raunsæi samtímans í sög-
um hennar. Á síðari árum hefur
álit manna á verkum Guðrúnar
hins vegar verið að breytast, eins
og hin nýja útgáfa AB á Dalalífi
er glöggt dæmi um. Halldór Lax-
ness ræðir nokkuð um Guðrúnu í
Islendíngaspjalli, og sumir segja
að síðan hafi menn ekki talað illa
um verk hennar. Hvað sem satt er
í því, þá er það staðreynd að Al-
menna bókafélagið mun í haust
hefja endurútgáfu á verkum hinn-
ar vinsælu skáldkonu.
Ríki, Reykjavíkiirborg og VMSS:
Féllust á kröfu trésmiða
um þriggja ára samning
VERKFALLI félaga í Tré-
smiðafélagi Reykjavíkur,
sem starfa hjá ríki, Reykja-
víkurborg og VMSS, hefur
verið aflýst, eftir að aðilar
náðu samkomulagi í gærdag.
Aðilar deildu aðallega um
eitt atriði, en það er lengd
samningsins. Trésmiðirnir
gerðu kröfu um, að samning-
urinn yrði til þriggja ára,
eins og sá samningur, sem
Meistarasamband bygg-
ingarmanna og Samband
Þennan myndarlega guðlax fékk Hvanneyjan I trollið f síðustu viku. Ekki
er kunnugt um að fleiri en þrír guðlaxar hafí veiðzt hér við land.
Hvanney fékk guðlax
llöfn, llomafirði, 13. ágúst.
HVANNEY SF 54 frá Hornafirði fékk guðlax, 37 kíló að
þyngd, í trollið í síðustu veiðiferð sinni. Eftir því sem bezt
er vitað hafa aðeins veiðzt tveir guðlaxar áður hér við land.
Guðlaxinn er nú geymdur í frosti í fiskiðjuveri KASK.
Eins og fram hefur komið í þorski auk guðlaxins.
fréttum fékk Hvanney trollið í í fljótu bragði virðist hér ein-
skrúfuna síðastliðinn mánudag
og var þá dregin inn til Vest-
mannaeyja til viðgerðar. Að
henni lokinni hélt Hvanney aft-
ur á veiðar og að loknum tveggja
daga túr kom hún hingað til
Hafnar með 20 lestir af fallegum
stakt tækifæri til að láta stoppa
guðlaxinn upp og hafa hann til
sýnis í Byggðasafni Austur-
Skaftafellssýslu. Er ekki að efa
að ferðamenn, sem hingað koma,
hefðu gaman af.
Einar
byggingarmanna gerðu með
sér á dögunum, en vinnu-
veitendur á hinn bóginn léðu
ekki máls á öðru en að
samningurinn yrði til liðlega
árs, eins og heildarsamning-
ur ASÍ og VSÍ.
í gærdag féllustu fulltrúar
ríkisins, Reykjavíkurborgar
og Vinnumálasambands
samvinnufélaga á að greiða
laun samkvæmt samningi
þeim er Meistarasamband
byggingarmanna og Sam-
band byggingarmanna gerðu
með sér í vor. Samningurinn
er í megindráttum í anda
samkomulags ASI og VSI,
að öðru leyti en því, að hann
er til lengri tíma eins og áð-
ur sagði.
Hljómbær setur upp
gervihnattarloftnet
HLJÓMBÆR mun setja upp gervihnattarloftnet í september,
en loftnet þetta fær fyrirtækið frá Svíþjóð. Verður það sent
þaðan á miðvikudag. Loftnetsdiskurinn er þrír metrar í
þvermál og verður loftnetið sett upp á þaki húss fyrirtækisins
við Hverfisgötu.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Þorvaldur Sigurðsson, verk-
stæðisformaður hjá Hljómbæ, að
hægt væri að taka við sendingum
frá gervihnöttum sem uppi væru,
en þetta væri einungis gert í til-
raunaskyni. Sagði hann að fyrst
yrði reynt að ná sendingum frá
rússneskum gervihnetti, sem
dreifði sjónvarpsefni um Sovétrík-
in. Sagði Þorvaldur að loftnetið
kostaði um 300 þúsund krónur, en
ekki væri ljóst hver yrði kostnað-
ur við uppsetningu þess. Ekki kvað
hann ætlunina að dreifa sjón-
varpsefni því sem fengist með til-
komu loftnetsins.
Hermann Pálsson
Skipaður
prófessor
í Edinborg
Dr. Hermann Pálsson hefur veriö
skipaður prófessor í norrænum fræð-
um við Edinborgarháskóla.
Samkvæmt frétt í skoska blað-
inu „The Scotsman" hefur Her-
mann starfað við háskólann í
rúmlega 30 ár og er sérfræðingur í
íslendingasögum. Átti hann m.a.
þátt í því að haldnar voru alþjóð-
legar ráðstefnur norrænna bók-
mennta- og málfræðinga, „The
International Saga Conferences".