Morgunblaðið - 17.08.1982, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 17.08.1982, Blaðsíða 42
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1982 S/ENHKI tcnnislcikarinn Björn Borg hcfur um nokkurt skeið verð talinn sá bcsti i heimi. Nú hafa Svíar eignast „nýjan Borg“, en það er hinn 17 ára Mats Wilander, sem skaust upp á stjörnuhimininn fyrr í sumar er hann sigraði mjög óvænt á Opna franska meistaramótinu. Mann verður ekki 18 ára fyrr en 22. þ.m. og er hann því sá yngsti sem sigrað hefur á franska mótinu til þessa, en Borg varð 18 ára á meðan mótið fór fram árið 1972, er hann sigraði. Fastlega er reiknað með þvi að Wilander verði valinn tennismaður ársins, titill sem ávallt fellur i skaut þcim sem mest kemur á óvart á keppnistímabilinu, og má ekki rugla saman við heimsmeistaratitilinn. Fyrir utan það getur hann búist við því að verða kjörinn „heiðursmaður ársins" fyrir framkomu sína í und- anúrslitunum í Frakklandi gegn José-Luis Clerc. Wilander hafði sigrað í tveimur fyrstu lotunum, 7—5 og 6—2 og leiddi 6—5 i þeirri þriðju. Hann vantaði því aðeins eitt stig til sig- urs, og dómarinn dæmdi leikinn búinn eftir eitt „smass" Clerc, þar sem hann taldi boltann hafa lent utan vallar. Wilander var þó ekki á sama máli og benti dómaranum á það. Síðan hélt leikurinn áfram og Wilander bar sigur úr býtum. Mörg hundruð blaðamenn, frá fjórum heimsálfum, urðu vitni að þessu, og hylltu þeir Svíann unga óspart fyrir þessa „einstæðu • Eftir sigurinn í Pcrís. Mmts (Lv.) og Guillermo Vilas. Vilas er hér að hrósa hinum unga Svía eftir að hafa tapað fyrir honum í úrslitaleik opna franska meistaramótsins fyrr á þessu ári. Mats Wilander — „nýi Borg“ Svíanna: „Gæti slegið á fiöl sem hvfldi á bolta án þess að skrika fótur" íþróttamannslegu framkomu." Wilander segir sjálfur: „Það er gegn minni samvisku að sigra á dómaramistökum. Það eyðileggur gleðina sem er samfara því að sigra.“ Kom ekki öllum á óvart En einn var sá maður sem lét sér hvergi bregða þó Wilander kæmi svona skemmtilega fram, Áke Magnusson formaður Vaxjo TS, þar sem Mats hlaut sína tennis-skólun. „Þetta er dæmigert fyrir Mats,“ segir hann. „Hann vill ekki fá neitt gefins, þvert á móti. Hann elskar mótlæti, og einhvern veginn fær hann alltaf innblástur þegar leikirnir eru erfiðir. I von- lausum stöðum verður Mats alltaf betri og betri og hefur þá mest gaman af því að spila." Kenning Áke þessa Magnusson, um það, hvers vegna Mats Wiland- er hefur nú á mettíma breyst í einn besta tennisleikara í heimi, er athyglisverð. 1980 var hann sá 283 í röðinni í heiminum og í fyrra var hann númer 69. Magnusson segir: „Þegar Mats var lítill lék hann sér í tennis, á meðan jafn- aldrar hans, sem höfðu mun betri aðstöðu til æfinga, keyrðu sig al- gjörlega út við æfingar. Mats gekk ekki of langt við æfingarnar, og skemmdi ekki líkamlegan styrk sinn. Það kemur honum til góða nú.“ Leikstíll Wilanders hefur ekkert breyst síðan hann sigraði á meist- aramótinu í Smálöndum, fyrir 13 ára og yngri, en þá var hann að- eins 9 ára gamall. Þá voru stór- hættuleg bakhandarslög hans einnig baneitruð í augum and- stæðinganna, og komu þeim iðu- lega í mikil vandræði. Hann hefur mjög gott auga fyrir leiknum og mikla tilfinningu fyrir því sem hann er að gera. Þá er hann einnig mjög sterkur líkamlega. Wilander er afskaplega metnað- argjarn. Árið eftir að hann sigraði á mótinu í Smálöndum var hann alveg viss um að hann næði að verja titilinn. Svo viss raunar, að hann vildi ekki eyða tíma sínum í að keppa á mótinu, og sneri sér þess í stað að íshokký. „Nýr Borg“ Philippe Chatrier, maðurinn á bak við Opna franska meistara- mótið, segir að Wilander sé „nýr Björn Borg", og telur ekki útilokað að honum takist að sigra sex sinn- um á mótinu, eins og Borg gerði. „Hann er nægilega teknískur, spurningin er aðeins hvort hann hafi taugar og skapsmuni til þess,“ segir Chatrier. Hann segir ennfremur: „Mats Wilander er besta dæmið um það, að hæfi- leikamikill tennisleikari getur náð á toppinn án þess að vera „pró- grammeraður". Hann er ekki „framleiddur" af einum né nein- um, heldur hefur hann náð þess- um árangri algjörlega af sjálfs- dáðum. En hversu góður er Wilander miðað við Borg? „Borg er fljótari, en ég þori ekki að fullyrða að hann hafi verið betri á sama aldri," seg- ir Gullermo Vilas, en hann tapaði einmitt fyrir Svíanum unga í úr- slitaleiknum í París. En hvað sem öðru líður er það á hreinu að Wilander er jafn vinsæll meðal landa sinna og Borg. Dag- inn sem úrslitaleikurinn var leik- inn í París, var heil umferð í All- svenskan, 1. deiidinni í fótboltan- um. Tenniskeppnin hófst kl. 14.00 og var leiknum að sjálfsögðu sjón- varpað beint. Knattspyrnuleikirn- ir hófust kl. 18.00, eða fjórum klst. síðar. Það hafði mjög slæm áhrif á aðsókn að leikjunum að Wilander skyldi vera lengur en 4 tíma að sigra Vilas, því að á fimm völlum af sex var áhorfendatalan sú lægsta á keppnistímabilinu. Len Heppell, sérfræðingur 5 lík- amshreyfingum og stjórnun vöðva, hefur séð bæði Borg og Wil- ander leika á árinu. Borg sá hann í keppni í Portúgal í mars, stuttu eftir „come-back“ hans í Kaup- mannahöfn, og segir Heppell að hann hafi minnt sig á klaufabárð, hann væri svo þungur og að hreyf- ingar hans væru ekki réttar. „Ég sagði þjálfara hans hvað væri að og hann vildi að ég segði Borg það sjálfum. En mér fannst það ekki rétti tíminn til þess. Borg verður að komast í andlegt jafnvægi, fyrr er ekki hægt að laga vitleysurnar sem eyðilagt hafa leik hans. Besta ráðið sem ég get gefið honum nú er að fylgjast gaumgæfilega með Wilander, því hann er sá tennis- leikari í dag sem er mýkstur í hreyfingum. Hann rennur um völlinn með sama glæsileik og ör- yggi og einkenndi Borg er hann var ungur." Þessi sami Heppell segir að Wil- ander sé eins og eftirprentun af Borg. „Hann hafi einnig þann hæfileika að slá boltann himin- hátt yfir netið, en samt sem áður látið hann lenda innan vallar. Og eins og Borg, á hann engar „dúnd- ur“ uppgjafir, en hann gerir held- ur ekki mikil mistök í þeim. En það sem minnir mest á Borg eru hreyfingar hans. Hvernig hann hreyfir höfuðið og búkinn á undan fótunum. Wilander er í svo góðu jafnvægi er hann slær boltann, að hann gæti staðið á fjöl, sem hvíldi á bolta, án þess að skrika fótur.“ Flytur hann til Monte Carlo? Eitt og hálft ár er nú síðan Wil- ander gerði samning við fyrirtæk- ið International Management Group, en fyrirtækið sér um að koma íþróttamönnum og lista- mönnum á framfæri, og meðal þeirra er Björn Borg. Miklar líkur þykja á því að IMG vilji flytja heimli Wilanders frá Vaxjö, eitthvert þar sem skattaálögur eru ekki jafn gífurlegar á menn, t.d. til Monte Carlo, Monaco, smá- ríkisins við Miðjarðarhafið. Hefur mönnum dottið sá staður í hug vegna þess að þar búa bæði Björn Borg og Ingimar Stenmark, auk þess sem sænski knattspyrnumað- urinn Ralf Edström leikur með liði Monaco, þannig að Wilander ætti að geta haft góðan félagsskap þar. Wilander fékk u.þ.b. 840.000 krónur íslenskar fyrir sigurinn í París, en það virtist ekki hafa veruleg áhrif á hann. „Peningar skipta ekki öllu máli, heldur að þrífast sem tennisleikari — og að verða betri í íþróttinni," sagði Mats á blaðamannafundi eftir keppnina. Seinna var hann spurður að því hvort hann væri enn ákveðinn í að búa í Svíþjóð í minnst 10 ár til viðbótar, sagði hann, að kannski væri ekki rétt af sér að halda slíku fram eins og hann hefði gert, þeg- ar peningar væru í spilinu. „McCormack (yfirmaður IMG) hefur ákveðnar hugmyndir í sam- bandi við mig. Þegar ég kanna þær nánar getur vel verið að ég muni flytja." Það hefur ekki stigið Wilander til höfuðs að hljóta slíka frægð og frama. „Ég tek þessu bara eins og það kemur," segir hann. „Auðvitað er ég mjög glaður með árangur minn á franska mótinu, en ég tel að það hafi verið mér í hag hve óþekktur ég var. Andstæðingar mínir hafa eflaust búist við að sigra mig léttilega." Wilander hóf að leika tennis er hann var 7—8 ára. Faðir hans og eldri bræður hvöttu hann til dáða og Bjfirn Borg varð fljótlega fyrir- mynd hans. „Ég og Borg minnum hvor á annan á ýmsan hátt, en þrátt fyrir það er leikur okkar mjög frábrugðinn," segir Mats. „Forhöndin hjá mér er t.d. ekki eins góð og hjá honum, og þess vegna leik ég öðruvísi." Unnusta Wilanders er 18 ára, Annette Olsen að nafni. Þau kynntust fyrir fjórum árum, og segir John-Anders Sjögren, þjálf- ari Wilanders, að með hana við hlið sér sé Mats miklu öruggari og ákveðnari í keppni. Þá vitum við það. Þýtt og endursagt — SH. • Mats ásamt unnustu sinni, Annetiu Olsen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.