Morgunblaðið - 17.08.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1982
19
Urslitakeppni yngri flokkanna
Landsmótiö í golfi í Grafarholti
Páll Grímsson, fyrirliði 4. (lokks Fram, hampar hér íslandsmeistarabikarn-
um, eftir að lið hans hafði lagt Val að velli í úrslitaleiknum á Akureyri á
sunnudaginn. Sjá nánar um keppnina og einnig um keppni 5. flokks á bls.
26. Mynd Reynir Kiríksson.
Hér má sjá alla verðlaunahafa á landsmótinu í golfi sem fram fór um helgina. Þessi mynd var tekin í lokahófinu á
Hótel Sögu á laugardaginn. Sjá nánar um landsmótið á bls. 22 og 23.
Mvnd Öskar Siemundsson.
Karlalandslióin
þegar tilkynnt
STRAX að aflokinni keppni í meist-
araflokki karla í Grafarholti á laug-
ardag voru karlalandsliðin, sem
keppa eiga fyrir íslands hönd á mót-
um erlendis í haust, tilkynnt.
Þrír efstu menn í meistara-
flokknum, Sigurður Pétursson og
Ragnar Ólafsson, báðir GR, ásamt
Björgvin Þorsteinssyni, GA, munu
keppa fyrir íslands hönd á HM
áhugamanna, sem fram fer í Sviss
í september. Er það Eisenhower-
keppnin svonefnda.
Á sama tíma fer fram keppni í
undanriðlum World Cup í Belgíu.
Þar keppa tólf þjóðir og komast
fjórar áfram. ísland er eina þjóð-
in, sem teflir fram áhugamönnum,
allar hinar eru með sína bestu at-
vinnumenn. Það eru þeir Hannes
Eyvindsson, GR, og Óskar Sæ-
mundsson, GR, sem keppa þar.
Fyrsta kvenna-
landsliðið
valið um helgina
FVRSTA kvennalandsliðið í golfi var
tilkynnt í lokahófi, sem efnt var til á
Hótel Sögu, að landsmótinu loknu á
laugardagskvöld. Val liösins kom
ekki verulega á óvart, enda virtist
nokkuð einsýnt hvernig það kæmi til
með að verða skipað.
Það voru þær Sólveig Þorsteins-
dóttir, GR, Ásgerður Sverrisdótt-
ir, GR, og Þórdís Geirsdóttir, GK.
Sólveig hélt utan til Bandaríkj-
anna til náms á sunnudag. Gæti
farið svo að varamaður yrði að
koma í hennar stað. Ef af því
verður tekur Jóhanna Ingólfsdótt-
ir, GR, sæti hennar.
Kvennalandsliðið heldur utan
til keppni í undanriðlum Evrópu-
keppni landsliða i haust.
Stórleikur
í kvöld
EINN stórleikur er í 1. deildinni í
knattspyrnu í kvöld, Víkingar og
Vestmanneyingar leika í Laugar-
dalnum kl. 19.00. Leikur þessi var á
dagskrá fyrr í sumar en var þá frest-
að.
KR skaust í annað sætið
FRAMARAR náðu ekki að lyfta sér
af botni 1. deildarinnar í knatt-
spyrnu, er þeir léku gegn KR-ingum
í gærkvöldi. Knattspyrnan sem liðin
sýndu var ekki rismikil, en KR-liðið
var þó töluvert skárra. Lauk leikn-
um þannig að þeir skoruðu tvö mörk
gegn engu marki Fram. Staðan var
1-0 i hálfleik.
Sigurinn var fyllilega sann-
gjarn. KR-ingar fengu betri færi
og voru líflegri á allan hátt. Á
fyrstu 10 mín. fengu þeir tvö mjög
góð færi, fyrst Óskar Ingimund-
• Óskar Ingimundarson skorar hér annað mark KR í gærkvöldi. Á inn-
felldu myndinni hleypur hann fagnandi í burtu ásamt Hálfdáni Örlygssyni.
Mynd GuAjón Birgúaon.
Arnðr búinn að
skrifa undir
„Ég skrifaði undir eins árs samn-
ing við Lokeren á mánudaginn fyrir
viku, daginn eftir að ég kom út
aftur,“ sagði Arnór Guðjohnsen,
knattspyrnumaður hjá Lokeren í
Belgíu, er blm. spjailaði við hann í
gærkvöldi.
Vitað var að nokkur fræg félög
höfðu reynt að fá Arnór til sín, en
ekkert varð úr því að hann færi
nú. En að ári liðnu sagðist Arnór
alveg eins vilja breyta til, annars
væri hann ekki mikið farinn að
hugsa um það ennþá þar sem hann
hefði gert nýjan samning við Lok-
eren.
Að sögn Arnórs hefst 1. deild-
arkeppnin í Belgíu annað kvöld, og
leikur Lokeren þá við Waregem á
útivelli.
— SH.
arson er hann átti þrumuskalla af
markteig eftir horn, en Guðmund-
ur Baldursson slæmdi hendi í
knöttinn og bjargaði, og svo er
Ágúst Már Jónsson óð upp allan
völl og skaut miklu bylmingsskoti
frá vítateig. Guðmundur henti sér
niður og varði en náði ekki að
halda knettinum. Varnarmaður
bjargaði síðan í horn á síðustu
stundu áður en Sæbjörn náði að
skora.
Éftir góða byrjun KR vöknuðu
Framarar til lífsins og jafnaðist
leikurinn um tíma, en síðan náðu
KR-ingar yfirhöndinni aftur.
Þeir náðu forystunni á 39. min.
er Marteinn Geirsson, fyrirliði
Fram, skoraði „glæsilegt" sjálfs-
mark með skalla af markteig.
Fyrirgjöf kom frá hægri, og Mart-
einn, sem var aleinn, sneri sér í átt
að markinu og sendi knöttinn í
fallegum boga efst í bláhornið,
óverjandi fyrir Guðmund mark-
vörð.
Eftir leikhlé voru KR-ingar
áfram sterkara liðið og ógnuðu
Fram-vörninni nokkrum sinnum.
Leikmenn voru þó of eigingjarnir,
eða seinir að losa sig við knöttinn
þannig að oft varð lítið úr.
Um miðjan hálfleikinn kom svo
síðara markið. Skoraði það Óskar
Ingimundarson af stuttu færi, eft-
ir að Fram-vörnin hafði galopn-
ast. Voru þeir tveir á auðum sjó,
Óskar og Hálfdán Örlygsson, og
átti Óskar ekki í vandræðum með
að finna leiðina í netið.
Besta færi Fram fékk Valdimar
Stefánsson er hann skaut framhjá
á markteigshorninu. Halldór
Arason skoraði reyndar eitt mark
fyrir Fram en það var dæmt af
vegna rangstöðu, sem undirrituð-
um sýndist vera nokkuð dularfull-
ur dómur.
Staða Fram er. nú mjög slæm í
deildinni, þeir eru neðstir með 13
stig, einu stigi minna en KA og
Keflavík. Liðið hefur leikið 14 leiki
eins og ÍBK, en KA er reyndar
með einum leik meira. Við sigur-
inn skaust KR upp í annað sætið,
er með einu stigi minna en ís-
landsmeistarar Víkings, en hafa
leikið einum leik meira
— SH
Staðan
EFTIR leiki hclgarinnar er staöan í
1. deildinni þessi:
Víkingur 13 5 7 1 21 — 15 17
KR 14 4 8 2 11—10 16
ÍBV 13 6 3 4 16—12 15
Valur 15 5 4 6 16—14 14
ÍA 14 5 4 5 16—16 14
ÍBI 15 5 4 6 22—25 14
Breiðablik 15 5 4 6 13—17 14
KA 15 4 5 6 14—16 13
Keflavík 14 5 3 6 13—17 13
Fram 14 3 6 5 14—15 12
2. deiid
Þróttur R
14
Þór, Akureyri 14
Reynir
FH
Einherji
Njarðvík
Völsungur
Fylkir
Skallagrímur
Þróttur N
1 22—7
2 25—13
20—14 15
16—19 15
19— 21 14
20— 22 13
15—17 12
12—15
14—23
6—20
22
17
12
11
9
Rosberg stendur
best að vígi
• Arnór Guðjohnsen.
ÍTALINN Elio de Angelis sigraði um
helgina í austurríska Grand-Prix
kappakstrinum. Keppnin var mjög
jöfn og spennandi og ekki munaði
nema hálfri bíllengd á sigurvegaran-
um og Finnanum Keke Rosberg.
Sigurvegarinn ók vegalengdina á 1
klukkustund 25 mín. og 2,212 sek.
Finninn reiknaðist 0,125 sek. á eftir
Angelis.
Jacques Laffite, Frakklandi,
varð þriðji, Patrick Tambay fjórði
og Niki Lauda, sem þarna ók á
heimavelli varð að gera sér
fimmta-sætið að góðu.
Finninn Rosberg stendur nú
best að vígi í keppninni um heims-
meistaratitilinn. Hann er annar í
stigakeppninni með 33 stig, en
fyrstur er sem fyrr Didier Pironi,
sem slasaðist mjög alvarlega fyrir
skömmu og keppir því ekki meira.
Irinn John Watson er þriðji með
30 stig, og Lauda er fjórði með 26
stig. Þetta var 13. G-P-keppnin á
tímabilinu og því eru aðeins þrjár
eftir.