Morgunblaðið - 17.08.1982, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.08.1982, Blaðsíða 20
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1982 Verða félagarnir Hafsteinn Hauksson og Birgir Viðar Halldórsson fyrstu atvinnurallökumenn landsins? Hafsteinn Hauksson og Birgir Viðar Halldórsson: „Stefnum á sigur 1 Ljóma- rallinu og atvinnu- mennsku í framtíðinniu Áskorunjtil ríkis- stjórnar íslands vegna innrásar Isra elshers í Líbanon Keppni i rallakstri fer sifcllt harðn- andi hér á landi og útbúnaður rallbíla, sem taka þátt í Ljómarallinu, ber þess glögg merki. Bílakostur islenskra rall- ökumanna hefur tekið stórstígum framförum og nægir þar að nefna bíl bræðranna Omars og Jóns Ragnars- sona. liinsvegar er hér á landi keppn- isbíll, sem er betur búinn en Renault bræðranna. Er það Ford Escort RS 2000 þeirra Hafsteins Haukssonar og Birgis Viðars Halldórssonar. Bíllinn sigraði í Tommaralli ’82 og Húsavík- urrallinu '82, en þá undir stjórn llafsteins Aðalsteinssonar, sem nú hef- ur dregið sig í hlé. Keypti Hafsteinn Hauksson hlut nafna síns Aðalsteins- sonar og á nú helming í bílnum á móti Birgi Viðari. Hafsteinn Hauksson er vel þekktur sem rallökumaður og hef- ur marga sigra að baki, sem ættu að hjálpa mikið i Ljómarallinu, en þar mun keppnisreynslan vega þungt. Morgunblaðið ræddi við þá Hafstein og Birgi um Ljómarallið og framtíðaráætlanir þeirra og kom þá margt fróðlegt í Ijós. En áður en við spjöllum við þá félaga er rétt að lýsa bíl þeirra, en það er eins og fyrr segir Ford Escort RS 2000. RS- skammstöfunin stendur fyrir „rally sport“, en þá nafngift hljóta bílar sem smiðaðir eru samkvæmt kröfum keppnisdeildar Ford í Englandi. Nú- verandi heimsmeistari, Ari Vatanen, ekur samskonar bíl og þeim er um ræðir, nema hvað vélin í bíl íslend- inganna er ekki sú rétta. Til bráða- birgða munu þeir nota 160 DIN- hestafla 2000-vél, en í framtíðinni verður notuð 200 DIN-hestafla BDA-vél, sem bíllinn er reyndar smíðaður fyrir. Hún er hinsvegar ekki tilbúin enn. í RS Escort Haf- steins og Birgis er m.a. að finna fimm gíra kassa, læst drif, sérhann- að lokað olíukerfi og mesti kostur bilsins er fjöðrunin. Fjaðrirnar eru lausar frá hásingunni, sem fest er upp með stífum og gegna því fjaðr- irnar eingöngu því hlutverki að fjaðra og myndast ekkert tog frá hásingunni. Gefur þetta mun betri rásfestu en venjuleg fjöðrun býður upp á. Að framan eru stillanlegir Bilstein-gasdemparar, sem gefa þann möguleika að hækka má bílinn um 10 sentimetra. Að lokum er vélin búin tveim tvöföldum Weber- blöndungum og sérhönnuðum púst- flækjum. Hafsteinn og Birgir, nú eruð þið með samning við Ford hér á landi, upp á hvað hljóðar hann, t.d. í Ljómarallinu? „Samningurinn við Ford er hag- stæður að okkar mati. Við fáum fulla viðgerðarþjónustu frá Ford á meðan á rallinu stendur og verður einskonar móðurstöð starfrækt, þar sem aðrir Ford-bílar geta fengið að- stoð. Varahlutalager okkar sér Ford um og verða m.a. hásingar, fjaðrir og stærri varahlutir hafðir í viðgerð- arbílnum." Verðið þið ekki í vandræðum vegna varahlutaleysis, þar sem þetta er eini bíll sinnar tegundar hér á landi? „Nei, a.m.k. ekki í sambandi við vélina. Við stílum reyndar upp á að hún bili, ef eitthvað þarf að bila. Það er varla hætta á öðrum bilunum, nema ef eitthvert sérstakt óhapp verður." En nú bila þessir bílar oft i röllum erlendis, reyndar i mun stífari keppni en hér fer fram. Er hætta á svipuðu hjá ykkur? „Þeir kunna bara ekkert að keyra þessir menn ...“ sagði Hafsteinn skellihlæjandi. Birgir tók þarna við: „Nei, í alvöru talað þá þurfa kapp- arnir úti að þjösnast á bílunum til að ná árangri. Það eru svo margir bílar jafngóðir okkar ...“ Þarna skelltu félagarnir uppúr og linntu ekki lát- um fyrr en eftir smátima. Voru þeir reyndar gamansamir á meðan á við- talinu stóð og léku á als oddi. Nú er bíll ykkar góður, en nægir það á keppnisreynslu Ómars og Jóns? „Eg álít að við séum á betri bíl en Ómar,“ svaraði Hafsteinn, „en á móti kemur að ég hef aldrei ekið hílnum í keppni, einnig höfum við Birgir aldrei keppt saman. Það er því Ijóst að hörkukeppni verður um toppsætin. Við stefnum á fyrsta sæt- ið, en erum langt frá því að vera búnir að bóka sigur. Það má segja að við séum hæfilega bjartsýnir." Eigið þið ekki fleiri keppinauta en þá Omar og Jón Ragnarssyni? „Jú, alveg örugglega." Ilverjir munu veita ykkur keppni? „Það verður náttúrlega enginn stutt á eftir okkur, svona hálfum degi á eftir ...“ sagði Hafsteinn hlæjandi. „Við reiknum með fyrst að telja Ómari, síðan má nefna Eggert Sveinbjörnsson á Escort og Braga Guðmundsson á Lancer og síðast en ekki síst má búast við a.m.k. einum ítala í toppbaráttunni," sagði Haf- steinn og Birgir skaut inn í: „Það er líka spurning hvað Birgir Bragason á Skoda RS gerir. En þeir fyrsttöldu verða ofarlega." Hvað með Jóhann Hlöðversson, sem keppinaut á toppnum? Jóhann er tvímælalaust ökumað- ur, sem ekið gæti til sigurs. Bíll hans er hinsvegar dálítið gamall og óvíst hvort hann þolir álagið af rallinu áfallalaust. Jóhann er toppökumað- ur,“ sagði Hafsteinn. Ilvaða aðferð eða tækni munuð þið nota í akstrinum í Ljómarallinu? „Stefnan er að aka af öryggi. Við ætlum ekki í neinn sunnudagsakstur og stefnum á sigur. Við munum hugsanlega taka því rólega fyrsta daginn og sjá síöan að morgni ann- ars dags hvernig staðan er. Miklar líkur eru á því að þeir, sem detta úr keppni, falli út á fyrsta degi ralls- ins,“ svöruðu Hafsteinn og Birgir. Hvernig verða aðal keppnisleiðirnar, Kjölur og Fjallabaksleið, eknar? Hafsteinn varð fyrir svörum: „Þessar tvær leiðir munu skipta öllu máli. Þar verður refsitíminn spurn- ing um minútur, en ekki sekúndur eins og á flestum hinna leiðanna. Hraðinn hjá okkur verður mikill á þessum leiðum, en öryggið í fyrir- rúmi.“ Þið takið þá enga áhættu? „Enga áhættu," svaraði Hafsteinn. „Ég hef að mínu mati aldrei tekið áhættu þó stundum hafi þannig litið út. Það er erfitt að meta aðstæður rétt í hvert einasta skipti og tvisvar hefur það brugðist hjá mér (innskot blm.: Hafsteinn á þar við veltu á Húsavík á sl. ári, og síðan útafakstur í Tommaralli þar sem bíll hans eyði- lagðist). „Það er þetta atriði sem gerir rall spennandi. Það er margt óvænt sem gerist, sem jafnvel kallar fram ósjálfráð viðbrögð. Samvinna ökumanna skiptir máli, þegar að- stæður eru erfiðar. Rall á Islandi er skemmtilegt sökum þess að við höf- um réttu vegina, þetta er óháð veðr- áttu. Viðgerðarþjónusta, dekk, út- búnaður bíls, likamlegt ástand öku- manna, allt þetta skiptir máli í rallkeppni. Þetta gerir rallakstur skemmtilegan. Rallakstur er einnig alveg kjörinn fyrir íslenskar aðstæð- ur.“ Er einhver skrekkur í þér Hafsteinn eftir útafaksturinn í Tommarallinu? „Já, svona ómeðvitað. Ég finn ekki fyrir honum í akstri, en líklega er ég meira hikandi en ef ég hefði ekki lent í þessum útafakstri. Vonandi ekki of hikandi," svaraði Hafsteinn hugsi og Birgir bætti við: „Við erum búnir að ræða öll hugsanleg atriði í sambandi við aksturinn og við mun- um ræða saman í hvert skipti, sem okkur finnst eitthverju ábótavant . . . þetta er fyrsta keppni okkar sam- an og hver keppni gefur okkur kost á að kynnast betur, og ... já, þú skil- ur,“ nú skelltu félagarnir rétt einu sinni uppúr og Hafsteinn bætti um betur og sagði: „Eða þannig sko.“ Hvað gerið þið ef bilar hjá ykkur á sérleið í Ljómarallinu? „Hvað gerum við? Við hvetjum bara þá sem á eftir koma,“ sagði Hafsteinn, en Birgir kvað þá nátt- úrulega reyna að finna bilunina af fremsta megni, en þeir væru sann- arlega engir bifvélavirkjar. „Það er helst að við lögum rúðupissið," sagði Hafsteinn. „Við kunnum ekkert að gera við, við björgum því sem bjarg- að verður og reynum að fá góð ráð gegnum talstöðina í bílnum." Nú hafið þið hug á að keppa í er- lendu ralli á næsta ári. Horfið þið eitthvað til Ford i Englandi í sambandi við framtíð ykkar i rallakstri? „Já, vissulega. Við ætlum utan til keppni á næsta ári og verðum þá vonandi með sigra hér heima í bak- höndinni," svaraði Hafsteinn. Þið erum semsagt að leita eftir ein- hverskonar samningi við Ford í Eng- landi? „Já, við gerum okkur vonir um að komast á samning hjá Ford. Það má segja að það hafi komið grænt ljós frá þeim á siðastliðnu ári. Við höfum hug á því að sýna lit í skoska al- þjóðarallinu í júní nk., og ef árang- urinn verður góður munum við leggja aðaláhersluna á að keppa er- lendis. Keppnisdeild Ford er opin fyrir okkur ef við náum góðum árangri í skoska rallinu, en þar verða yfir 100 keppendur. Við þyrft- um helst að ná tíunda til fimmtánda sæti í þeirri keppni. Við förum í haust að fylgjast með RAC-rallinu og verður það liður í undirbúningi okkar fyrir utanförina." Hafið þið leitt hugann að hinum nýja Escort RS, sem núna virðist ætla að slá eldri rallbílum við? „Já, hann er framtíðin hjá okkur. Við notum núverandi bíl út þetta ár og næsta. Nýi Escortinn er það sem koma skal. Reyndar er þetta undir því komið hvernig okkur gengur í skoska rallinu. Við höfum hugsað okkur að taka bílinn með um 200 DIN-hestafla vél. Það má í rauninni segja að við séum að byrja rallakstur fyrir alvöru í dag,“ svöruðu þeir Haf- steinn og Birgir að lokum. - G.R. Morgunblaðinu hefur borizt eftir- farandi áskorun frá sjö kunnum ís- lendingum: „Við undirrituð teljum okkur vini Gyðinga, og höfum látið okkur anntum tilveru ísraels. Því erum við harmi slegin vegna árásarstríðs Israelsríkis í Líban- on, árásarstríðs sem bitnar á þús- undum saklausra manna í flótta- mannabúðum, þorpum og borgum Líbanons. Þótt við á undanförnum árum höfum orðið vitni að því, að samúð heimsins við málstað ísraels hefur dvínað, ekki sízt vegna óbilgirni Ísraelsríkis gagnvart arabískum þegnum sínum og íbúum herteknu svæðanna, höfum við þagað. Við vonuðum ef til vill, að ísrael sæi sig um hönd. En eftir innrás ísra- elshers í grannríkið Líbanon og þær ægilegu blóðsúthellingar og þá óskaplegu eyðileggingu, sem hún hefur haft í för með sér, þá getum við ekki þagað lengur. Við mótmælum harðlega þessari innrás og fordæmum blóðsúthell- ingar og eyðileggingu þá, sem Israelsher er valdur að. Við scndum hinum hrjáðu Pal- estínumönnum og Líbönum sam- úðar- og stuðningskveðjur, og lýs- um jafnframt stuðningi við þær þúsundir hugrakkra Gyðinga í Israel, m.a. ísraelskra hermanna, sem hafa lýst sig andvíga stríðinu og styðja þjóðarréttindi Palestínumanna. Við vekjum athygli á eftirfar- andi: — ísrael hefur haft að engu allar ályktanir Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna og Ör- yggisráðsins um brottför her- liðs síns frá Líbanon. — ísrael hefur virt að vettugi all- ar ályktanir Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna og Ör- yggisráðsins, er beindust gegn innlimun austurhluta Jerúsal- em og Golanhæða í ísrael. — Palestínumenn, sem nú eru um fjórar milljónir, hafa misst ættjörð sína í Palestínu. For- Bjp, llöfdafitrönd, 16. ijpist. 15. ÁGÚST var venjuleg Hólahá- tíð haldin á Hólum í Hjaltadal. Veður var gott eins og vant er að vera á Hólahátíð, en kólnaði held- ur, þegar leið á daginn. Skaga- fjörður skartaði sínu eins og venjulega. En snækrýndir fjalla- toppar eru þó alls staðar eftir, eftir mikið úrfelli, sem gerði 9. og 10. ágúst. Um 160—170 manns sóttu Hólahátíð og voru 14 prestar hempuklæddir, sem gengu til kirkju. Hólahátíðin fór fram eft- ir áður auglýstri dagskrá, og var ystusamtök Palestínumanna, PLO, eru viðurkennd sem full- trúi Palestínuþjóðarinnar af 117 ríkjum, þar á meðal Is- landi. — Ymsir helstu forystumenn PLO hafa gefið í skyn vilja samtakanna til að viðurkenna Israelsríki. Við fögnum því að ríkisstjórn Is- lands hefur samþykkt að leggja fram kr. 800.000 til hjálparstarfs í Líbanon og skorum jafnframt á hana að beita sér fyrir því — að hún geri ríkisstjórn Israels það ljóst, að það geti haft al- varlegar afleiðingar fyrir sam- skipti Islands og Israels, ef hún láti ekki tafarlaust af árás- arstríði sínu í Líbanon og dragi herlið sitt þaðan, — að stjórn Israels og PLO hefji þegar í stað viðræður um sam- búð þjóðanna á grundvelli gagnkvæmrar viðurkenningar, — að Norðurlöndin veiti PLO fulla viðurkenningu sem full- trúa Palestínuþjóðarinnar og hafi samráð við líknarstofnan- ir Palestínumanna og Líbana um brýna aðstoð, — að hún geri Bandaríkjastjórn grein fyrir áhyggjum sínum vegna stuðnings Bandaríkj- anna við árás Ísraelsríkis á Líbanon. Áskorun okkar ljúkum við með ósk um, að íslendingar megi með einhverjum hætti stuðla að friði og kærleika meðal þeirra þjóða, sem nú berast á banaspjót í Land- inu helga. Reykjavík, 11. ágúst 1982. Árni Bergmann, ritstj., séra Árni Pálsson, Elías Davíðsson, kerfisfr., Haraldur Ólafsson, dósent, dr. theol, Jakob Jónsson, Jóhanna Kristjónsdóttir, blaðamaður, . Vilmundur Gylfason, alþingismaður. í alla staði mjög ánægjuleg sam- koma fyrir þá, sem hana sóttu, og eiga þeir góðar minningar frá henni. Stjórnaði Árni Sigurðsson formaður Hólafélagsins sam- komunni. Miklum heyskap er nú senn lokið á Hólum. Annars er hey- fengur misjafn í Skagafirði. Sums staðar er nokkuð mikið eft- ir óslegið enn. En sprottið hefur nú eftir að rigningar hófust. í dag er norðan kuldastormur og úrkoma á útsveitum. Mjög haust- legt er orðið í Skagafirði. — Björn í Bæ Hólahátíð - ánægju- leg samkoma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.