Morgunblaðið - 17.08.1982, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.08.1982, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1982 Furstahjónin af Monaco farin af landi brott: Fyrir utan Rammagerðina aö aflokinni verslunarferðinni, en töluverður mannfjöldi haföi safn- ast saman fyrir framan búöina og klappaði fyrir fjölskyldunni, þegar hún kom út. Ljósm. Mbl. KÖE Veifað til mann- fjöldans fi Eins og sagt hefur verið frá í 9 Morgunblaðinu, voru furstahjónin 9 af Monaco ásamt tveim börnum ú sínum, þeim Albert og Caroline, 9 væntanleg hingað til lands á laug- B ardaginn var með franska U skemmtiferðaskipinu Mermoz. 1 Skipið var upphaflega á áætlun Ij hingað á laugardagsmorgninum, en U því seinkaði vegna ísreks fyrir I vestan land og varpaði ekki akker- 9 um í Sundahöfn fyrr en klukkan 8 15.45. Þá hafði mikill mannfjöldi B safnast þar saman til að taka á I móti furstahjónunum, lögreglan fl telur að það hafi verið rúmlega I 2.000 manns, sem þar hafi verið 5* saman komin, og að sögn hennar I var þar áberandi eldra fólk að 9 ræða, svo það má búast við að að- I dáendur Grace Kelly hafi ekki látið :a sig vanta. Það var skýjað og fremur I hvasst niðri við Sundahöfn. Tölu- | verðan mannfjölda mátti sjá á 1 göngum skipsins horfa til lands, en fl ekkert sást til furstahjónanna eða I barna þeirra. „Við höfum reynt að komast yfir að sjá mikið, á mjög stuttum tíma,“ sagði Grace Kelly, furstafrú af Monaco og fyrrverandi kvikmynda- leikkona, þegar Morgun- blaðið náði tali af henni við Geysi, skömmu áður en hún fór af landi brott, og spurði hana hvaða áhrifum hún hefði orðið fyrir af íslandi. „Við hefðum gjarnan viljað hafa lengri tíma. I»að er fal- legt land, sem þið eigið hérna. Land fullt af andstæð- um, og það er það sem gerir það athyglisvert,“ sagði hún einnig. I>egar hún var spurð að því hvernig ferð þeirra hefði verið, sagði hún: „Góð, við höfum átt skemmtilega ferð.“ Grace Kelly, fyrrverandi kvikmyndaleikkona og núverandi furstafrú af Monaco.. Ljósm. Mbl. Emil!*. Komið til kvöldverðar aö Bessastööum. Það hefur verið um það bil klukkutíma eftir aö skipið lagði að, sem kurr fór um mannfjöldann og fólk heyrðist segja: „Þarna eru þau.“ Og mikið rétt, þarna voru þau á efsta þilfarinu, öll fjögur, og veif- uðu til mannfjöldans. Það var klappað fyrir þeim, en þau stóðu ekki við nema örstutta stund. Verslunarferð. Það hefur verið 15 til 20 mínút- um síðar sem Caroline sást í dyr- unum fyrir ofan landganginn. Skömmu síðar komu þau öll saman út og gengu niður landganginn, Kelly fyrst, þá furstinn, Caroline og Albert síðastur. Mannfjöldinn var farinn að þynnast, en þeir sem höfðu haft þolinmæði til að bíða, fylgdu furstahjónunum eftir að bíl- um forsetaembættisins, sem biðu aðeins til hliðar við landganginn. Ekið var beina leið niður í bæ, í Rammagerðina við Hafnarstræti, þar sem furstahjónin og fylgdarlið þeirra versluðu. Þau hafa tafið í versluninni í um það bil klukku- tíma, reikuðu um og skoðuðu það sem var á boðstólum. Miðað við bögglana sem þau höfðu á brott með sér, hafa þau verslað mikið. Það var einkum Grace Kelly, sem var dugleg við að versla. Meðal þess sem þau versluðu var handavinna, skinn, íslenskt keramik og teppi. Af handavinnunni má nefna lopa- peysur, handunnin sjöl, kjóla, húf- ur og vettlinga. Að sögn Gunnars Haukssonar, þess sem afgreiddi fjölskylduna, komu þau honum fyrir sjónir, sem alþýðlegt og gott fólk og hið sama kom fram hjá fleirum sem Morgunblaðið ræddi við og áttu samskipti við fjölskyld- una, meðan á dvöl hennar stóð hér á landi. Að lokinni verslunarferðinni, var farið í útsýnisferð um bæinn. Farið Furstinn viö veiðarnar í Laxá í Kjós, ásamt Þórólfi Halldórssyni, sem er fylgdarmaður viö árnar. Ljósm. Mbl. KÖE — sagði Grace Kelly Ljóóm. Mbl. KÖE var upp Miklubraut, um Hlíðarnar, Háaleytið, Fossvoginn, þaðan upp í Breiðholt og síðan um Elliðavoginn til skips. Kvöldverður á Bessastöðum Furstafjölskyldan var boðin til kvöldverðar að Bessastöðum, til forseta íslands, Vigdísar Finn- bogadóttur. Var gert ráð fyrir, að hún kæmi þangað klukkan 20.15 um kvöldið. Þetta var fámennur kvöldverður, gestir hafa ekki verið nema milli 10 og 15, að frátöldum furstahjónunum og börnum þeirra. Má þar nefna Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, og konu hans, frú Völu Thoroddsen, Albert Guð- mundsson, alþingismann, og konu hans, frú Brynhildi Jóhannsdóttur, franska sendiherrann á íslandi og fleiri. Fóru gestirnir að tínast til Bessastaða skömmu fyrir átta. Um Caroline prinsessa af Monaco mátar íslenska prjónahúfu. Ljósmynd. Mbl. KÖE 20.20 kom furstafjölskyldan. Fengu ljósmyndarar að skjótast inn fyrir dyrnar stutta stund og mynda þau ásamt forseta íslands. Komu ekki hingað í leit að góðu veðri Á sunnudaginn var fyrirhugað að furstafjölskyldan færi í ferð um Suðurland. Aðeins tveir íslend- ingar voru með í förinni, þau dr. Sturla Friðriksson, erfðafræðing- ísland er fullt af andstæóum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.