Morgunblaðið - 17.08.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1982
41
T
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
1L
• Dúlla týnd
Kona úr Vesturbænum hringdi
vegna læðunnar Dúllu, sem eins
og margir muna sendi Velvakanda
greinarstúf er birtist í Morgun-
blaðinu þann 29. júní sl. Nú hefur
Dúila verið týnd síðan um hádeg-
isbilið á fimmtudag. Dúlla er
bröndótt og er mjög forvitinn
köttur. Hún á það til að skjóta sér
inn um hurða- og gluggarifur til
að svala forvitni sinni. Heimili
Dúllu er í Vesturbænum, að Rán-
argötu 23, en hún er merkt með
símanúmerinu 19214. Ef ekki
skyldi svara í því númeri, þá sagði
konan að það væri sjálfsagt að
hringja í símanúmerið 14090, sem
er hennar númer, því hún væri
góður vinur Dúllu og hafi átt með
henni margar gleðistundir í heim-
sóknum hennar til sín.
• Kurteisi
og kúltur
NN hringdi, en hún hefur verið
búsett í Kaupmannahöfn um ára-
bil. „Það sem fer í taugarnar á
mér er, að í hvert einasta skipti
sem ég kem hingað heim, en það er
yfirleitt tvisvar sinnum á ári, þá
verð ég alltaf vör við hversu marg-
ir Islendingar eru ókurteisir og
ómenningarlegir í síma. Það má
hringja og það má hringja í
skakkt númer, en það mætti nota
kurteisi og kúltúr. í Kaupmanna-
höfn og víða ánnars staðar segir
fólk þegar það hringir upp: „Góð-
an daginn, ég heiti...“ þ.e. kynnir
sig kurteislega og segir síðan: „Er
þessi við?“ — eða „Má ég tala við
þennan?" Hér á landi segir fólk
iðulega ókurteist: „Hver er ’etta?"
án þess að kynna sig og skellir
síðan tólinu á ef það finnur, að það
hefur hringt í rangt númer. Er
nokkurt mál að gera bragarbót
hér á?“
• Gremst að
sjá slíkan
sóðaskap
Reiður ökumaður hringdi: „Ég
get ekki orða bundist yfir sóða-
skap, sem ég varð vitni að síðast-
liðinn laugardag. Ég ók Skúlagöt-
una á áttunda tímanum um kvöld-
ið og á undan mér var hvítur Ren-
ault-sendibíll, E 2060. Skyndilega
kom stór rauð pappadolla, sem
notuð er undir kók, fljúgandi út
um hægri hliðarrúðuna og lá eftir
á götunni.
Það er keppikefli flestra höfuð-
borgarbúa sem ég þekki að reyna
að halda höfuðborginni hreinni.
Því gremst manni ósegjanlega að
sjá slíkan sem Skagamanninn í
umræddri bifreið. Hrein torg, fög-
ur borg, er slagorð sem er í fullu
gildi.“
Ekki er hægt að sjá annað á þessari mynd, en að borgin sé hrein og fögur.
Reiður ökumaður sem hringdi varð hins vegar vitni að sóðaskap, sem annar
ökumaður sýndi, er hann átti leið um Skúlagötuna á laugardag.
Skrifið eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða hringja rnilli kl. 10 og 12, mánudaga til
föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituö, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisröng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæöa til að beina því til lesenda blaösins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
GÆTUM TUNGUNNAR
Rétt er að segja: Mig dreymir, þig dreymir, konuna dreym-
ir, manninn dreymir, barnið dreymir, konurnar dreymir,
mennina dreymir, okkur dreymir, mennina dreymir.
Bendum börnum á þetta!
Of r
Dagatal
íylgiblafianna
ALLTAF Á ÞRIÐJUDÖGUM
íÞRórm
ALLTAFA FIMMTUDÖGUM
Alltaf á fostudögum
ALLTAF Á LAUGARDÖGUM
ALLTAF Á SUNNUDÖGUM
Sl^RA
CXi EFNISMEIRA BLAÐ!
Fimm sinnum í viku fylgir
auka fróðleikur og skemmtun
Mogganum þínum!