Morgunblaðið - 17.08.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1982
21
Víkingar halda for-
ystunni — tóku stig af
UBK á Blikadaginn
BLIKAR og Víkingar deildu stigun-
um er liðin mættust á Kópavogsvelli
á laugardag. í heildina var leikurinn
jafn og jafnteflið því við hæfi. Bæði
lið geta betur en þau sýndu í þessum
leik, en á milli sýndu leikmenn
beggja liða skemmtilega takta og
byggðu upp laglegar sóknarlotur,
sem yljuðu áhorfendum.
Blikar héldu knattspyrnudag
sinn á laugardaginn og stóð hann
frá morgni fram á miðja nótt. Þeir
hafa eflaust ætlað sér sigur á Vík-
ingum í þessum leik, en urðu að
sætta sig við jafntefiið. Með sigri
hefðu þeir komist í hóp efstu liða,
en fyrst það tókst ekki geta þeir
tæpast gert sér vonir um sigur á
mótinu. Þeir eru nú með 14 stig
eins og nokkur önnur lið. Víkingar
eru hins vegar efstir í deildinni
með 17 stig, en hver verður á topp-
UBK —
VÍKINGUR
inum í lokin er ómögulegt að segja
fyrir um. Slík er flækjan í deild-
inni að nánast allir geta sigrað og
flestir fallið.
Víkingar byrjuðu leikinn á laug-
ardaginn með miklum látum og
þeir Sverrir Herbertsson, Helgi
Helgason og Ómar Torfason áttu
skot að Blikamarkinu. Er stund-
arfjórðungur var liðinn tók Sig-
urður Grétarsson mikla rispu frá
miðju valiarins og prjónaði sig í
gegnum vörn Víkinga. Er hann
var að komast i ákjósanlegt skot-
færi varð honum fótaskortur og
tækifærið, sem virtist svo upplagt,
ÍM
rann út í sandinn. Skömmu síðar
bjargaði Vignir Baldursson á línu.
Á 28. mínútu leiksins skoraði
Helgi Bentsson laglegt mark fyrir
Blikana. Sótt var upp vinstri kant-
inn, skipt yfir á hægri og að lokum
var knettinum rennt inn í teiginn
á Helga. Hann lék á Stefán Hall-
dórsson, miðvörð Víkings, og skor-
aði örugglega framhjá Ögmundi.
Ögmundur Kristinsson bjargaði
tvívegis snilldarlega á 14. mínútu
seinni hálfleiks er Helgi Bentsson
komst í gegn. Af Ögmundi hrökk
hnötturinn eftir skot Helga fyrir
fætur Hákons Gunnarssonar, sem
skaut að markinu, en enn varði
Ögmundur. Þórarinn Þórhallsson
bjargaði síðan á línu áður en Vík-
ingar skoruðu mark sitt. Auka-
spyrna frá miðju vallarins hitti
koll Sverris Herbertssonar, sem
..^v &
• Helgi Bentsson á hér í höggi við varnarmann og markvörð Víkings. Helgi skoraði mark Breiðabliks.
Mynd KrLstján Einarmon
• Sverrir Herbertsson sækir hér að Guðmundi markverði UBK. Sverrir
jafnaði fyrir Víking í leiknum.
Mynd Kristján Kinarsson
skallaÖi örugglega netið frá
markteigi. Staðan 1—1 og fleiri
mörk voru ekki skoruð.
Beztu menn liðanna að þessu
sinni voru Ólafur Björnsson hjá
UBK og Helgi Bentsson. Þá sýndi
Þorsteinn Hilmarsson skemmti-
lega hluti og sömu sögu má segja
um fleiri leikmenn Breiðabliks, en
á milli féll leikur þeirra niður í
meðalmennskuna. Af Víkingunum
voru þeir drýgstir Þórður Mar-
elsson, sem lék síðari hálfleikinn,
Stefán Halldórsson og Sverrir
Herbertsson. Annars virðist
skorta leikgleði hjá alltof mörgum
leikmanna Víkings. Ef þeir hins
vegar ná að einbeita sér að verk-
efninu og beina kröftunum að
þeim leikjum sem eftir eru þá ætti
Víkingum að takast að verja titil-
inn, því liðið er heilsteypt.
í stuttu máli:
Islandsmótið 1. deild, Kópavogs-
völlur 14. ágúst.
Breiðablik—Víkingur 1—1 (1—0)
Mark UBK: Helgi Bentsson á 28.
mínútu.
Mark Vikings: Sverrir Herbertsson
á 70. mínútu.
Dómari: Þóroddur Hjaltalín,
dæmdi leikinn ágætlega og var
samkvæmur sjálfum sér.
Áhorfendur: 640.
niður og skaut á markið en þvert
fyrir það svo Akurnesingum tókst
ekki að nýta þetta tækifæri.
Akurnesingar voru greinilega
sterkari þó þeir léku undan vind-
inum og markið lá í loftinu. Þegar
38 mínútur voru liðnar af leiknum
fékk Árni Sveinsson laglega send-
ingu inn í vítateig Keflvíkinga, tók
knöttinn niður á brjóstið, sneri sér
við og skaut hörkuskoti á markið,
en markvörður Keflvíkinga,
Þorsteinn Bjarnason, varði glæsi-
lega, en fékk knöttinn í andlitið og
var því ekki tilbúinn er Skúli Rós-
antsson sendi knöttinn inn á hann
augnabliki síðar. Sigþór Ómarsson
var hins vegar tilbúinn og náði að
komast inn í sendinguna, lék á
Þorstein og skoraði örugglega úr
eina marktækifæri fyrri hálfleiks-
ins. Yfirburðir Akurnesinga voru
umtalsverðir í fyrri hálfleik, en
þeim tókst þó ekki að skapa sér
• Guðjón Þórðarson, besti maður
vallarins.
Einkunnagjöfln
BKKIÐABLIK:
Guðmundur Ásgeirsson
Ólafur Björnsson
Valdimar Valdimarsson
Þórarinn Þórhallsson
Helgi Helgason
Vignir Baldursson
llákon Gunnarsson
Sigurður Grétarsson
Ilelgi Bentsson
Þorsteinn Hilmarsson
Sigurjón Kristjánsson 5
VÍKINGUR:
Ögmundur Kristinsson 6
Þórður Marelsson (vm) 7
Magnús Þorvaldsson 5
Helgi Helgason 6
Stefán Halldórsson 7
Jóhannes Bárðarson 6
Gunnar Gunnarsson (vm) 6
Ómar Torfason 6
Sverrir Herbertsson 6
Jóhann Þorvarðarson 5
Heimir Karlsson 5
Aðalsteinn Aðalsteinsson 6
Kagnar Gíslason 5
6
7
5
6
6
5
6
6
7
6
Víðir enn á
sigurbraut
Víðir úr Garðinum er enn á sig-
urbraut. Liðið lagði Selfyssinga að
velli 3—0 á föstudagskvöldið og
skoruðu þeir Björgvin Björgvins-
son, Vilberg Þorvaldsson og Guð-
mundur Knútsson mörk Víðis.
Víðir er fyrir löngu kominn í úr-
slit í 3. deildinni og fer með 4 stig
með sér í úrslitakeppnina. Spurn-
ingin er hins vegar sú hvort HV
eða Selfoss fylgja þeim í úrslitin.
Þessi lið vann Víðir bæði tvívegis í
riðlinum.
Öruggur sigur ÍA í
fremur slökum leik
AKURNESINGAR sigruðu Kefivík-
inga örugglega 2:1 (1:0) í fremur
slökum leik í fyrstu deild íslands-
mótsins í knattspyrnu á Akranesvelli
á laugardaginn. Sterkur vindur og
taugastríð setti mark sitt á leikinn,
enda er staðan i fyrstu deildinni
þannig að hver leikur er barátta um
sigur í deildinni eða fali niður í aðra
deild. Fyrir leikinn voru Akurnes-
ingar með 12 stig en Kefivikingar 13
svo nauðsynlegt var fyrir bæði liðin
að sigra í leiknum, bæði til að forð-
ast fall og eiga möguleika á sigri í
deildinni. Með sigri sínum eygja Ak-
urnesingar cnn sigurmöguleika í
deildinni, en falldraugurinn hangir í
skottinu á Keflvíkingum.
Leikurinn var eins og áður sagði
fremur slakur og fátt um tæki-
færi. Akurnesingar áttu þó fyrsta
færi leiksins, en í fyrri hálfleik
léku þeir undan sterkri golu. Á
þriðju mínútu brutust þeir upp
vinstri kantinn og Sigþór sendi
laglega yfir vítateiginn inn á Sig-
urð Jónsson. Hann tók knöttinn
frekari færi fremur en Keflvíking-
um.
í síðari hálfleik réttu Keflvík-
ingar heldur úr kútnum þótt þeir
léku á móti vindinum og á 50. mín-
útu fékk Einar Ásbjörn knöttinn
einn og óvaldaður eftir auka-
spyrnu fyrir miðju marki, en mis-
heppnað skot hans fór framhjá.
Hann bætti hins vegar betur um
er hann fékk knöttinn í svipuðu
færi, aftur einn og óvaldaður er
hann skoraði og jafnaði metin, 1:1.
Eftir þetta mark sóttu Skaga-
menn heldur í sig veðrið, en þurftu
þó aðstoð Keflvíkinga öðru sinni
til að skora sigurmarkið. Það var á
68. mínútu að Keflvíkingar glopr-
uðu boltanum til Sigþórs, rétt
utan vítateigs þeirra, Sigþór þakk-
aði gott boð og æddi einn inn í
vítateig Keflvíkinga og skaut á
markið. Þorsteinn Bjarnason,
markvörður, sá hins vegar við
honum og varði skot hans glæsi-
lega, en boltinn hrökk til Krist-
jáns Olgeirssonar, sem skoraði ör-
ugglega af stuttu færi.
Leikmenn Akurnesinga voru
fremur jafnir að getu, áttu hvorki
slæman né góðan dag, en mest bar
þó á Guðjóni Þórðarsyni. Keflvík-
ingar voru einnig allir fremur
jafnir að getu, enginn skaraði
fram úr nema Þorsteinn Bjarna-
son, markvörður, sem ekki verður
sakaður um mörkin.
í stuttu máli:
íslandsmótið, fyrsta deild, ÍA :
ÍBK 2:1 (l.-O).
Mörk ÍA: Sigþór Ómarsson á 38.
mínútu og Kristján Olgeirsson á 68.
mínútu.
Mark ÍBK: Kinar Ásbjörn Ólafs-
son á 55. mínútu.
Dómari: Hreiðar Jónsson.
Áhorfendur: 680.
HG.
mmmmmmmmmmmmmmma