Morgunblaðið - 17.08.1982, Side 32

Morgunblaðið - 17.08.1982, Side 32
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1982 tttmm Ast er... ... ad slökkva á lampan- um íyrir hana. TM Rag. U.S. Pat. Ott.-all rlflhts rwarvad • 1981 Los Anfl«l«s Tlmas Syndlcate Er nauðsynlogt að drasla ferða- töskunum einmitt á þessum tíma sólarhringsins inn á herbergin hér í hótelinu? Leyfist mér að spyrja: Á forstjórinn ógifta dóttur. HÖGNI HREKKVÍSI Þorkell Hjaltason skrifar: Undir slíkt jarðarmen kommúnista mun meiri hluti Alþingis aldrei ganga Það varð strax ljóst við myndun núverandi ríkisstjórnar, að þar höfðu kommúnistar tryggt sér einræðis- eða neitunarvald í ör- yggis- og varnarmálum Islend- inga, á þann veg, að ekki mátti hyggj a flugstöð á Keflavíkurflug- velli nema kommar samþykktu það. Eg spyr, er það heilbrigt lýð- ræði að minnihlutinn geti kúgað meirihlutann undir vilja sinn og á slíkt samkomulag nokkurn rétt á sér lagalega séð. En auðvitað er utanríkisráðherra dómbærastur um það mál. Öll réttarvitund al- mennings stríðir á móti þannig lagaðri vitleysu. Nei, undir slíkt jarðarmen kommúnista mun mik- ill meirihluti Alþingis aldrei ganga, hvað hátt sem „Glókollur" hrín og galar um það mál. Stjórnarliðar segja, að aldrei hafi aðrir eins erfiðleikar steðjað að þjóðarbúinu og nú, en eru menn búnir að gleyma erfiðu árunum 1967 og 1968. Þá varð verðfall ís- lenskra afurða erlendis miklu meira en nú, og þó komst allt af, já, af hverju, af því að á þeim ár- um var allt önnur og viturlegri stjórnarstefna viðhöfð en nú er. Augljóst er að rangar stjórnarað- gerðir eiga nú mesta sök á afkomu og erfiðleikum í öllum atvinnuveg- um landsmanna. Þarna eiga stjórnarliðar sjálfir mesta sök á þeim kröppu kjörum er nú þjaka þjóðina mest. Þessum málum verður ekki breytt í betra horf fyrr en eftir að næstu alþingis- kosningar hafa farið fram, sem ekki verður síðar en á næsta ári. Besti kosturinn væri að kostn- ingar færu fram nú þegar, á haustdögum á þessu ári, svo að hreinar línur næðust á milli hinna pólitisku flokka, og kommúnista- einræðinu yrði þá endanlega aflétt til frambúðar. Það er fyrir löngu komið út í fífldirfskuöfgar hvað kommúnist- ar hafa hér mikil völd, og mál er að linni. Sjálft fjöregg þjóðarinn- ar, frelsið, sem öllu öðru er dýrm- ætara, er í veði. Þessa dagana fær pólska þjóðin að reyna það, hvað frelsið er mik- Þorkell Hjaltason ils virði þegar allt sjálfstæði þeirra er af þeim tekið og drepið í dróma miskunnarlausra herlaga, þar sem pyntingar og aftökur eru daglegir viðburðir í fangabúðum og þjóðfrelsishetja Pólverja, Lech Walesa, er innilokaður í fúlum fangaklefa. Frelsisþrá pólsku þjóðarinnar verður aldrei kæfð eða slökkt með kúgun, heldur mun hún styrkjast og eflast við hverja raun og vinna sætan sigur að lok- um, það eitt getum við öll verið viss um. En að lokum varðandi flug- stöðvarbygginguna á Keflavíkur- flugvelli vil ég segja þetta: Utan- ríkisráðherra þarf að beita sér betur og af miklu meiri hörku en hingað til. Já, berja hreinlega í borðið og segja hingað og ekki lengra. Lýðræði og réttlæti hafa forgang í þessu máli. Þessi hlekk- ur ykkar kommanna er þið hömr- uðuð inn í stjórnarsamninginn, sem óslítandi haldreipi mun hrökkva, sem brunninn þráður í höndum ykkar, þegar á reynir á næsta stjórnarfundi, um þetta flugstöðvarmál. Það þarf engan fljúgandi fugl til að komast yfir þennan stjórnarsamning. Þetta umdeilda atriði samningsins er dautt plagg og dottið upp fyrir að mínu mati, ef lýðræði á að ríkja. Einbeittur vilji meirihlutans án nokkurrar linkindar við kommún- ista á að mínum dómi aö gilda í þessu máli. Vilji er allt sem þarf. Og ég endurtek. Hvað sem „Gló- kollur" segir og galar hátt og hrín á móti flugstöðinni, — þá kemur hún samt. Fyrir- hyggjusemi Færeyinga Fyrirhyggjusemi Færeyinga gagnvart komandi kynslóð kem- ur fram í takmörkun á fólks- fjölda komandi kynslóðar, þar sem öllum eru tryggð mannsæm- andi kjör og mannréttindi. Það er því engin fólksfjölgun fyrir- huguð þar í landi án þess að viss grundvöllur sé fyrir hendi. Ferðamaður Talið av barns- burðum minkandi Burðaravlnpið I f j*r var 9.9 fyri hverjar 1000 ibúgvar Tað verða fadd alt faarrl og Imrri barn 1 Faroyum 1 fjar vóru aoatatt bert fadd 728 barn. aum ar tað aama aum 16,6 fyri hvarjar 1000 Ibúgvar. Talið av barnum fadd a llvið «r .taðuRt minkandi I 1966 vAru 967 barn fadd. og Uð er minkað niður 1 743 I 1980 og aum aagt 728 I fjar Fyri hvarjar 1000 ibúgvar er tahð falbð frá 26 I 1966 tU 17,1 I 1980 og 16,6 I fjar Talið av dcyðum I fjar var 293, aum er 6.6 fyri hvarjar 1000 fbúgvar Arið frammanundan var talið 309 og 7,1 fyri hvarjar 1000 ibúgvar havur 1 tlðarakeiðinum 1966 81 ligið um 6 til 8. ultan nakra greiða helling Burðaravlopið I fjar var 9.9 fyri hvarjar 1000 Ibúgv- ar. og hetta var tað uma. eum árið fyri Annara er hetta talið minkað alðan 1966. tá burðaravlopið var 18.7 fyri hvarjar 1000 Ibúgvar. ruður I 9.91 ár 99% av allum barnaburð- um I Faroyum fara nú frara á ajúkrahúei Av teimum 309, sum doyðu 11980 vóru 183 menn og 126 kvinnur. Deyðsor- aekin var I 149 farum hjarta og mðraa)úka og I 58 ferum krabbaajúka lleai telini fyri 1981 eru ikki við I Deyðtlttleikm Arsfrágraiðingini 1981. im degum er út-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.