Morgunblaðið - 28.09.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.09.1982, Blaðsíða 1
* r 48 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI 214. tbl. 69. árg. ÞRIÐJÍJDAGIJR 28. SEPTEMBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Stjórn Begins: Rannsóknarnefnd vegna fjöldamorð- anna skipud í dag? Tel Aviv, Beirúl, 27. september. Al*. ÍSRAELSKA sjónvarpið sagði frá því í kvöld, að allir ráðherrar í stjórn Menachem Begins væru reiðuhúnir að styðja þá ráðstöfun að fram færi skilyrðislaus réttar- rannsókn á fjöldamorðunum á l’al- estinumönnum í Beirút á dögunum. Þegar leitað var álits Begins á mál- inu vildu aðstoðarmenn hans ekki staðfesta að sjónvarpsfréttin ætti við rök að styðjast, en sögðust þó ekki verða hissa þótt tillaga um skipun rannsóknarnefndar yrði samþykkt á ríkisstjórnarfundi í Tel Aviv á morgun. Haft er eftir ónafngreindum aðstoðarmanni Begins, að forsætisráðherrann væri kominn á þá skoðun að það hefði óheppileg áhrif á orðstír ísraels- manna að neita að láta fara fram slíka rannsókn. Franskt og ítalskt herlið tók sér í dag stöðu í Sabra og Chat- illa, palestínsku flóttamannabúð- unum í Beirút, þar sem fjölda- morðin áttu sér stað um daginn. Bandaríska gæzluliðið mun ekki koma til borgarinnar fyrr en Israelar eru farnir til síns heima, að því er skýrt var frá í Hvíta húsinu í dag, en ísraelska her- stjórnin segir, að á morgun verði ísraelskt herlið farið frá V-Beirút en síðan geti tekið nokkra daga Bretland: Irafár vegna rannsókna á „glasafóstrum“ Lundúnum, 27. september. AP. SAMTÖK lækna í Bretlandi hafa beint því til félaga sinna að taka ekki þátt í rannsóknum á til- raunaglasafóstrum, en Robert Edwards, ásamt Patrick Steptoe, fann upp aðferð til að frjóvga egg konu utan líkamans og koma því síðan fyrir i leginu, lýsti því yfir á læknaráðstefnu í gær, að hann hefði gert tilraunir á meira en tólf tilraunaglasafóstrum, sem gengið hefðu af þegar valin höfðu verið frjóvguð egg og þeim komið fyrir í móðurlífum. Yfirlýs- ing Edwards hefur valdið mikl- um ýfingum í Bretiandi og hafa margir orðið til þess að fordæma þetta athæfi harðlega. Talsmaður læknasamtak- anna segir lækna hafa miklar efasemdir um siðferðilegt réttmæti rannsókna af þessu tagi, þar sem frjóvgað egg „kunni að hafa möguleika á að þroskast í mannveru". Ekki hefur tekizt að fá álit Steptoes á þessu máli, en þeir Roberts reka í sameiningu „frjósem- isstöð" þar sem egg eru frjóvg- uð í tilraunaglösum og síðan látin aftur í líkama móðurinn- ar. Síðan fyyrsta „glasabarn- ið“, Louise Brown, leit dagsins ljós fyrir fjórum árum hafa fimmtíu glasabörn fæðzt, þar af tvennir tvíburar. að flytja allt ísraelskt herlið úr austurhluta borgarinnar. ísra- elska herstjórnin lýsti því yfir í kvöld að á sunnudagskvöld hefði komið til skotbardaga milli ísra- ela og Palestínumanna í A-Líb- anon og hefðu Palestínumenn átt upptökin. Til mikilla mótmælaaðgerða vegna fjöldamorðanna kom í ísrael um helgina, en í gær var Yom Kippur, sá dagur sem Gyð- ingar hafa hvað mesta helgi á. Sjá nánar á bls. 18. Leiðtogar Frjálsra demókrata í Ilessen, Klaus-Jiirgen Hoffie og Ekkehard Gries þegar úrslitin urðu Ijós á sunnu- dagskvöld, en flokkur þeirra hlaut aðeins 3,1% atkvæða og engan mann kjörinn, þar sem 5% lágmarksfylgi er nauðsynlegt til að fá fulltrúa á ríkisþingið, þar sem 52 eiga sæti. Al’-simamynd. Óvíst um kjör Kohls í kanslaraembættið Frjálsir demókratar bíða afhroð í Hessen Jafnaðarmenn bættu mjög stöðu sína Bonn, 27. septembur. AP. EFTIR úrslit kosninganna í Hessen um helgina, þar sem jafnaðarmenn fengu mun meira fylgi en ætlað var, eru miklar efasemdir um að hinni íhaldssömu stjórnarandstöðu takist að fella Helmut Schmidt kanslara og fá Helmut Kohl leiðtoga kristilegra demókrata kjörinn í hans stað. Þrátt fyrir breyttar forsendur ætlar stjórn- arandstaðan að halda sinu striki, en atkvæðagreiðslan fer fram nk. föstudag. Helmut Kohl staðfesti þetta í dag en lýsti því jafnframt yfir að van- trauststillaga yrði því aðeins borin upp ef hann gerði sér „ákveðnar vonir um meiri- hlutastuðning við hana“ þegar á hólminn væri komið. Talið er að persónulegar vinsældir Schmidts kanslara hafi riðið baggamuninn þegar kjósendur komu að kjörborð- inu í fylkiskosningunum í Hessen, en þar fengu jafnað- armenn 42,8% atkvæða. Úrslit kosninganna eru mikið áfall fyrir kristilega demókrata sem ekki náðu hreinum meirihluta enda þótt þeir séu enn stærsti flokkurinn, en frjálsir demó- kratar hlutu þó enn verri út- reið þar sem þeir fengu engan mann kjörinn. Helmut Schmidt kanslari lýsti því yfir þegar kosninga- úrslitin lágu fyrir að nýjar kosningar væru eftir sem áður nauðsynlegar til að leysa stjórnarkreppuna sem upp kom fyrir tíu dögum þegar frjálsir demókratar hættu stuðningi við samsteypustjórn Schmidts. Samanlagður liðsstyrkur hægri flokkanna á sambands- þinginu í Bonn er 226 atkvæði en til þess að Helmut Kohl fái samþykkta vantrauststillög- una á Schmidt þarf 249 at- kvæði. í liði frjálsra demó- krata er mikill ágreiningur um umsvif leiðtoga flokksins, Hans-Dietrich Genschers, og telja stjórnmálaskýrendur ólíklegt að nægilega margir þingmenn úr flokki hans og hægri flokkanna fáist til að greiða vantrauststillögunni at- kvæði úr því sem komið er. Sjá nánar á bls. 18. Ágreiningur í Kína um af- stöðu til Sovétríkjanna? Peking, 27. septembi^r. AI*. SVO VIRÐIST sem ágreiningur sé á æöstu stööum í Peking um af- stöðu til Sovétstjórnarinnar og bætta sambúö þjóðanna, en könn- unarviöræður um leiðir til að bæta samkomulagið eiga að fara fram í Peking i byrjun næsta mánaðar. I samtölum við utanríkisráð- herra Japans, Suzuki, í Peking í dag sagði Zhao Ziyang forsæt- isráðherra Kína að stjórn hans hefði áhuga á að samskipti þjóð- anna gætu orðið með eðlilegum hætti en Huang Hua utanríkis- ráðherra sagði hins vegar að Kínverjar teldu ástæðu til að ganga harðar fram í því en hingað til að stemma stigu við árásargirni Sovétmanna. Mundu Kínverjar leggja það til á næsta Allsherjarþingi SÞ að krafizt yrði tafarlauss brottflutnings sovézka hersins frá Afganistan, um leið og mótmælt yrði hersetu Víetnama í Kampútseu þar sem sovézkur herafli væri bakhjarl hernámsliðsins. Fundur Verkamannaflokksins í Blackpool: Troskyistar út í kuldann Blackpool, 27. september. AP. 75% FULLTRÍJA á ársfundi Verka- mannaflokksins brczka samþykktu í dag, að banna starfsemi Trotskyista innan vébanda flokksins. Er talið að reiðilestur flokksleiðtogans, Michael Foot, um „öfgasinna lengst til vinstri" rétt áður en atkvæðagreiðsl- an fór fram hafi ráðið úrslitum um þessa eindregnu afstöðu flokks- manna. Foot og fylgismenn hans gera sér vonir um að með því að losa sig við hinn harðsnúna hóp takist flokkn- um að bæta stöðu sina gagnvart íhaldsflokknum í þingkosningum, sem ætla má að haldnar verði á næsta ári. Ýmisleg teikn eru þó á lofti um að innbyrðis átökum i Verka- mannaflokknum sé hvergi nærri lok- iö. Andstaða af hálfu hinna róttæku afla í flokknum gegn tillögunni um bannfæringu Trotskyista var hörð og einn málsvari þeirra, Tom Sawyer, spáði vaxandi sundur- þykkju og síðan beinum klofningi og blóðbaði, eins og hann orðaði það. Tony Benn dró taum vinstri manna í þessum átökum og hvatti flokksfélög, sem styðja þá, að láta samþykkt fundarins sem vind um eyru þjóta. Á ársfundinum hefur orðið vart allmikilla efasemda um að Verka- mannaflokknum takist að sigra íhaldsflokkinn í þeim kosningum sem búist er við að Thatcher for- sætisráðherra boði til áður en kjör- tímabilið er á enda. í setningar- ræðu sinni lét formaður flokksins, Dame Judith Hart, svo um mælt að tapaði Verkamannaflokkurinn kosningunum mætti við því búast að hann yrði utan stjórnar næstu tíu ár. Á dagskrá ársfundarins á þriðjudag er kosning í fram- kvæmdanefnd Verkamannaflokks- ins, en sú nefnd er valdamesta stofnun innan hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.