Morgunblaðið - 28.09.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.09.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1982 19 Öflug sprenging Kldtungur teygja sig til himins og svartir reykjarmekkirnir byrgja sýn, eftir að öflug sprenging varð i vöruhúsi brezku járnbrautanna við Hall Street i Salford, sem er skammt fyrir utan Manchester i Englandi, á laugardagskvöld. Svo öflug varð sprcngingin að rúður brotnuðu í húsum í nærliggjandi götum, og varð að flytja 700 manns á brott frá heimilum sínum af þeim sökum. Vöruhúsið brann til grunna, en þar voru m.a. geymd cldfimar og skaðvænlegar efnablöndur. Lodnustríd vid Svalbarða: EBE skerst í deilu Dana og Norðmanna Osló. 27. seplember. Al*. VON bráðar mun fiskveiAinefnd Efnahagsbandalagsins eiga við- ræður við dönsk stjórnvöld um hinar umdeildu loðnuveiðar Dana við Svalbarða. Viðræðurnar fara fram vegna þrýstings frá Norð- mönnum, sem krefjast þess að Danir hætti þessum veiðum. Dalai Lama í Evrópuferð Kómabori;. 27. september. Al*. DALAI Lama, andlegur leiðtogi rúmlega sex milljóna Tíbeta, kom í dag til Rómaborgar, sem er fyrsti viðkomustaður hans í ferð hans til ýmissa Evrópuríkja. Eftir komuna til Leonardo da Vinci-flugvallar var Dalai Lama ekið til ráðhúSs Róma- borgar þar sem hann hitti Ugo Vetere borgarstjóra, en hann er kommúnisti. Dalai Lama Á morgun, þriðjudag, heldur Dalai Lama til Bareelona, en þaðan fer hann svo til Frakk- lands og Vestur-Þýzkalands áður en hann snýr aftur til þriggja daga heimsóknar til Rómaborgar, þar sem hann mun m.a. eiga viðræður við Jó- hannes Pál páfa annan. Dalai Lama hefur tvisvar gengið á fund páfa, fyrst 30. september 1973, þegar hann ræddi við Pál páfa fimmta, og 9. október 1980, þegar hann átti fund með Jóhannesi Páli öðrum. Dalai Lama er leiðtogi tíb- ezkrar útlagastjórnar, sem hefur aðsetur í Indlandi. Kín- verjar lögðu Tíbet undir sig á sjötta áratugnum. Gífurleg reiði er í Noregi vegna loðnuveiða Dana við Svalbarða, en Danir hafa haft mótmæli norsku stjórnarinnar við veiðunum að engu. Dönsk skip hafa stundað Ioðnuveiðar á friðunarsvæði við Svalbarða frá því í ágúst. Þegar engu tauti var komið við dönsku stjórnina sneru Norðmenn sér til Efnahags- bandalags Evrópu og hótuðu að fresta viðræðum um nýja fisk- veiðisamninga, ef bandalagið skærist ekki í leikinn. Þessa stundina eru engir danskir bátar við Svalbarða, þeir eru á leið til hafnar með aflann. Norðmenn hafa neitað dönsku bátunum að landa afla sínum í Noregi. Óljóst er hvort skipin halda aftur til Svalbarða. íranir vilja ekki sættir Nikosíu, 27. s<‘ptember. Al'. ÍRAKAR og franir létu um helgina fallbyssuskothríðina dynja á stöðv- um hvorra annarra við Shatt-AI- Arab-sund og í írönskum borgum var víða efnt til fjöldafunda i tilefni af því, að tvö ár eru liðin frá upphafi stríðsins milli þjóðanna. Saddam Hussein, forseti íraks, sagði á fundi með breskum blaða- mönnum sl. sunnudag, að stríðið stæði á milli „upplýsingarinnar og miöaldamyrkursins". Hann sagði, að klerkarnir í íran notuðu trúna sem átyllu fyrir útþenslustefnu sinni og skefjalausri kúgun ólíkt því, sem væri með íraka, sem bæru virðingu fyrir lífinu og trúnni. Sama dag lýsti Hussein Musavi, forsætisráðherra írana, yfir því, að stjórn hans myndi hafna nýrri tilraun múhameðstrú- arríkja til að koma á sáttum milli þjóðanna. Víða var efnt til fjöldafunda í íran á sunnudag vegna þess að tvö ár eru liðin frá byrjun stríðsins og í fréttum írönsku fréttastofunnar sagði, að þúsundir írakskra stríðsfanga hefðu tekið þátt í þeim og hrópað niður stjórnina í Bagd- að. Einnig var sagt, að Musavi hefði gengið á fund Khomeinis til að skýra honum frá efnahags- ástandinu í landinu, sem er orðið afar bágborið af völdum styrjald- arinnar og upplausnarinnar í landinu. Styrkið og fegrið líkamann Dömur og herrar Ný 4ra vikna námskeið hefjast 4. október. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri. Hinir vinsælu herratímar í hádeginu. Hressandi — mýkjandi — styrkjandí — ásamt megrandi æfingum. Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eöa meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af vöðvabólgum. Vigtun — mæling — sturtur — gufuböö — kaffi og hinir vinsælu sólarí- umlampar. Innritun og upplýsingar alla virka daga frá kl. 13—22 í síma 83295. Júdódeild Ármanns Ármúla 32. _ 710krónur* og pú getur ekið Golf einsogþig lystirí heilansólarhring! Við bjóðum bílana okkar til leigu á sérstöku haustverði þar sem ótakmarkaður akstur er innifalinn. Trygging er einnig innifalin í verðinu og sjálfsábyrgð er engin! Þetta er því kostaboð, sem sjálfsagt er að athuga nánar. Hvemig væri t.d. að bjóða fjölskyldunni að skoða haustlitina á Þing- völlum eða í helgartúr norður í land. Eða kannski sjálfum sér og félögunum í gæsa- leiðangur! Svo er þetta líka upplagt tækifæri fyrir þá sem ætla að láta yfirfara einkabílinn á verkstæði fyrir veturinn og geta ekki verið bíllausir á meðan. Hringdu í Bílaleigu Flugleiða í síma 21190 eða 21188. Það er líka sérstakt haustverð á Mitsubishi jeppunum. *Tímabundið tilboðsverð. Söluskattur er meira að segja innifalinn í.verðinu! FLUGLEIÐIR Gott tólk hjá traustu tétagi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.