Morgunblaðið - 28.09.1982, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.09.1982, Blaðsíða 46
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1982 íþróttaþing ÍSÍ: Heildarkostnaður við rekstur íþrótta- hreyfingarinnar 70 milljónir króna • Fulltrúar á íþróttaþingi ÍSÍ. Myndin var tekin að Kjarvalaatöðum eftir hádegiaveróarboó borg- aratjórnar Reykjavíkur. • Frá aetningu íþróttaþings ÍSÍ. Sveinn Björnason forseti ÍSÍ í ræðustól. aðrir á myndinni eru framkvæmda- stjórar ÍSÍ þeir (f.v.) Björn Vilmundarson og Hermann Guðmundsson. Stjórnarmenn Alfreð Þorsteinsson, Jón Ármann Héðinsson, Þóröur Þorkelsson og Hannes Sigurðsson og Gísli Halldórsson heiðursforseti ÍSÍ. 56. íþróttaþing ÍSÍ var haldið 4. og 5. september í Reykjavík. Um 130 fulltrúar sóttu þingið víösveg- ar að af landínu. Meðal gesta viö þingsetninguna voru Gísli Hall- dórsson, heiðursforseti ÍSÍ, Al- bert Guðmundsson, forseti borg- arstjórnar Reykjavíkur, Reynir Karlsson, íþróttafulltrúi ríkisins, og Árni Guðmundsson, skóla- stjóri íþróttakennaraskóla ís- lands. iþróttaþing var sett af Sveini Björnssyni, forseta ÍSÍ, og í upphafi ræðu sinnar minntist hann starfa Þorsteins Einarssonar, fyrrv. íþróttafulltrúa ríkisins, en hann lét af störfum á sl. ári. Fór Sveinn miklum viðurkenningaroröum um störf Þorsteins að uppbyggingu íþróttamannvirkja og að íþrótta- málum yfirleitt. Síðan bauö Sveinn sérstaklega velkominn hinn ný- skipaða íþróttafulltrúa ríkisins, Reyni G. Karlsson. Sveinn minntist síðan látinna forystumanna iþróttahreyfingarinnar, sem látist höföu frá síðasta íþróttaþingi. í setningarræðu Sveins Björns- sonar, forseta ÍSÍ, kom m.a. fram, að á árinu 1981 voru iökendur iþrótta innan íþróttahreyfingarinn- ar rúmlega 77.000 og viö ýmiss konar leiðbeinendastörf 5.400 manns. Þá gat hann þess, aö á þessu ári mætti gera ráð fyrir aö heildarkostnaöur við rekstur íþróttahreyfingarinnar yrði nærri 70 milljónum króna. Ræddi hann síðan um gildi íþrótta, líkamsrækt- ar og útivistar og nauösyn þess aö glæöa betur áhuga almennings á slíku. Þingforsetar voru kjörnir Sveinn Jónsson, Reykjavík, og Freyr Bjarnason, Húsavik, en þingritari Hreggviður Jónsson, Reykjavík. Framkvæmdastjórn ÍSI lagöi fram vandaöa ársskýrslu, þar sem getið er flestra mála er komiö hafa til afgreiöslu stjórnarinnar frá 28. júní 1980 til 15. ágúst 1982. Þá lagöi stjórnin fram endurskoðaöa reikninga fyrir árin 1980 og 1981. Mörg mál lágu fyrir íþróttaþingi og geröar voru ýmsar ályktanir og samþykktir og verður hér getiö þeirra helstu: I.Samþykkt voru strangarl ákvæöi um eftirlit meö notkun örvandi lyfja og aö kynna betur þær reglur sem gilda um þessi efni. 2. Þingið fagnaði því, aö nú eru hafnar framkvæmdir við ný íþróttamannvirki viö íþrótta- kennaraskólann aö Laugar- vatni og færöi Alþingi sérstak- ar þakkir fyrir. Skoraöi þingið á fjárveitinganefnd Alþingis aö samþykkja aö byggja fyrirhug- aö íþróttahús í fullri stærð í einum áfanga. 3. íþróttaþing hvatti til áfram- haldandi uppbyggingar fræðslustarfs á vegum íþrótta- hreyfingarinnar innan marka þess skipulags sem mótaö hef- ur veriö á undanförnum árum. 4. Þingið skoraöi á sambandsaö- ila aö vanda útfyllingu á kennslu- og ársskýrslum. 5. Þingiö þakkaöi íþróttanefnd ríkisins og íþróttafulltrúa auk- inn styrk til íþróttahreyfingar- innar vegna íþróttakennslu. Þá þakkaöi þingiö velvilja bæja- og sveitastjórna. Jafnframt skoraði þingið á ríkisstjórn og fjárveitinganefnd aö hækka verulega styrk til íþróttasam- bands íslands á fjárlögum 1983. 6. íþróttaþing skoraöi á öll aöild- arfélög ÍSÍ að auka sem mest hlutdeild sína í sölu á get- raunamiöum til þess aö auka tekjur sínar og efla með því iþróttastarfsemina í landinu. 7. iþróttaþing fagnaöi auknum áhuga almennings á líkams- rækt og útiveru og skoraöi á öll ungmenna- og íþróttafélög aö beita sér fyrir auknu kynn- ingarstarfi og fræöslu um al- menningsíþróttir. Þá beindi þingið þeim tilmælum til sveitastjórna aö greiða fyrir slíku starfi meö því að veita meiri fé til uppbyggingar íþróttamannvirkja. 8. iþróttaþing skorar á fjármála- ráðherra og nefnd þá, sem unniö hefur aö endurskoöun tollalaga, aö fella niöur tolla af íþróttavörum. 9. Iþróttaþing samþykkti þá til- lögu framkvæmdastjórnar aö félagsgjöld væru ekki lægri en svo að þau yrðu umtalsveröur þáttur í fjáröflun félaganna. 10. iþróttaþing samþykkti aö fela framkvæmdastjórn ÍSi aö skipa 3ja—5 manna nefnd er kanni ítarlega hvernig nota megi tölvu í þágu íþróttahreyf- ingarinnar. 11. íþróttaþing beindi þeim tilmæl- um til Noröurlandaráös aö auknu fé verði variö til íþrótta- legra samskipta innan Noröur- landanna, annars sé hætta á aö leitaö veröi til annarra landa í þessum efnum. 12. íþróttaþing skoraöi á sam- bandsaðila ÍSí aö vinna af alefli gegn áfengis- og tóbaksneyslu og styöja þau félagasamtök sem hafa aö markmiöi og berj- ast gegn slíku. Fjárhagsáætlun íþróttasam- bandsins var til umræöu á íþrótta- þingi og um hana fjallað af fjár- hagsnefnd þingsins. Var hún sam- þykkt eins og framkvæmdastjórnin lagöi hana fyrir þingiö. Niöurstööu- tölur fyrir áriö 1983 eru kr. 7.287.000,- í stjórn ÍSI til næstu tveggja ára voru einróma kjörnir: Sveinn Björnsson, forseti, Hannes Þ. Sig- urðsson, Alfreö Þorsteinsson, Þóröur Þorkelsson og Jón Ármann Héðinsson. Á meðan íþróttaþing stóð yfir þáöu þingfulltrúar boð mennta- málaráöherra og borgarstjórnar Reykjavíkur. í kvöldveröarboöi, sem fram- kvæmdastjórn ÍSÍ hélt i lok þings- ins voru tvær konur, þær Sigríöur Lúthersdóttir og Svana Jörgens- dóttir, heiöraðar meö gullmerki iSÍ. Báöar hafa þær unniö mikið starf fyrir íþróttahreyfinguna, bæði sem þátttakendur í íþróttum og síöar tekiö aö sér margvísleg trún- aöarstörf. Verðlaunamyndir Iþróttiru er skemmtilegt viðfangsefni fyrir Ijósmyndara. Hér má sjá fjórar myndir sem allar hafa fengið verðlaun í Ijósmyndasamkeppni. Þær eru hvor annarri skemmtilegri og allar eru þær teknar á hárréttu augnabliki eins og sjá má.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.