Morgunblaðið - 28.09.1982, Blaðsíða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1982
... þá vitum vid þmð ... Og áfram plægdi bíllinn í hrauninu.
Ljóímyndir Eirikur Eiríksson.
í þessari stellingu stöðvaðist Datsun Húsvíkinganna Jóns Haraldssonar og
Ólafs Sigurðssonar, en þeir héldu ótrauðir áfram eftir að bíllinn var kominn
á réttan kjöl.
Nýliðar sigruðu í Sprett-ralli á Reykjanesi
ÞAD var mikil barátia ■ »preu-i«a.
inu, sem fram fór á Keykjanesi á
laugardaginn. Sigurvegarar urðu
Þorvaldur Jensson og Kristján
Bernburg á Ksrort 1600. í öðru sæti
urðu Birgir Bragason og Magnús
Arnarsson á Skoda 130 RS, aðeins
fimm sekúndum á eftir sigurvegur-
unum. I*ó munurinn á milli fyrsta og
annars sætis væri lítill, þá var hann
enn minni á milli þess annars og
þriðja. Jóhann Hlöðversson og Ingv-
ar Oskarsson lentu í þriðja sæti á
Escort 2000, aðeins þremur sekúnd-
um á eflir Birgi og Magnúsi.
Alls hófu 12 keppendur Sprett-
railið og tókst einum bílnum að
ljúka keppni á fyrstu 500 metrun-
um, Fiat tveggja nýliða enda-
stakkst út fyrir veg eftir að hafa
slegið afturendanum utan í klett.
Má segja að þar hafi verið stutt
gaman. Félagarnir Hafsteinn
Hauksson og Birgir V. Halldórs-
son á Escort RS 2000 voru óheppn-
ir í byrjun. A fyrstu leiðinni af
fjórum ráku þeir sig í takka, sem
setti lélegri bensíndælu bílsins í
gang. Urðu þeir að aka í fyrsta gír
um 13 km leið áður er „bilunin"
uppgötvaðist. Töpuðu þeir þar
dýrmætum mínútum og þar með
Sigurvegararnir í Sprett-rallinu, Þorvaldur Jenssen og Kristinn Bernburg óku Escort 1600.
LjÓ8in. Gunnlau|pir.
hugsanlegum sigri. Þeir gáfust þó
ekki upp og á leiðunum sem eftir
voru settu þeir hraðamet, voru
langt á undan keppinautunum, en
náðu ekki að vinna upp tímatapið.
Slógu þeir m.a. gömlu hraðameti
Ómars Ragnarssonar auðveldlega
við. í Sprett-rallinu ók Rally-
cross-kappinn Jón S. Halldórsson
BMW, sem tapaði einum gír á
hverri sérleið af þeim þremur
fyrstu. Tókst honum að skrönglast
í mark í fyrsta gír á síðustu leið-
inni. Jóhann Hlöðversson tapaði
af öðru sætinu undir lokin þegar
gírkassinn í Escort hans brotnaði,
rann bíll hans síðustu metrana í
mark. Nægði það Birgi Bragasyni
á Skoda RS til að hreppa annað
sætið. Að sögn sigurvegarans,
Þorvalds, var keppnin mjög
skemmtileg, en það hefði sannar-
lega komið honum á óvart að hann
skyldi sigra. Var þetta hans fyrsta
keppni, aðstoðarökumaðurinn,
Kristinn Bernburg, var einnig ný-
liði. Taldi Þorvaldur sig vanta
meiri æfingu og yfirvegun til þess
að standa jafnfætis þeim köppum
er fremstir eru í rallakstri, í fram-
tíðinni.
— GR.
Bolungarvík:
Eldur í aðveitustöð
Kolungarvík, 27. Neptember.
(Jm klukkan 12.20 á laugardag
kom upp eldur i aðveitustöð
Orkubús Vestfjarða. Húsið sem
aðveitustöðin er i, er stálgrindar-
hús, sem stendur hér rétt utan við
bæinn. í húsinu er verkstæði
Orkubús Vestfjarða, lager og raf-
stöð, en það var einmitt í rafstöð-
inni, sem eldurinn kom upp. í
rafstöðinni eru þrjár dísilvélar,
sem keyrðar eru sem varaafl og er
hver vél 1200 kílóvött.
Fréttaritari ræddi við Jón E.
Guðfinnsson, staðarfulltrúa
Orkubús Vestfjarða í gær og
honum sagðist svo frá: „Ég fór
þarna fram eftir rétt fyrir há-
degi til eftirlits og mælaálesturs.
Ég varð aldrei var við neitt með-
an ég var inni í rafstöðinni. Þó
var ég að lesa af mælum þarna
rétt við hljóðkúta vélanna, þar
sem eldurinn kom upp. éftirliti
mínu tók ég eftir því, að dæla
sem dælir vatni upp í kæliturn
gekk stöðugt og fór ég því að að-
gæta flotrofa á vatnstank fyrir
ofan húsið. Þá sá ég hvar eldur
logaði út með pústi vélanna, út
úr kæliviftu, sem er rétt þar við.
Þetta virðist hafa blossað nokk-
uð snögglega upp, því að þegar
ég kom í húsið aftur, var kominn
allnokkur reykur. Ég stöðvaði
vélarnar strax og tæmdi síðan
slökkvitæki á eldinn og sá þá að
ég réð ekkert við þetta og
hringdi í slökkviliðið. Það liðu
ekki nema ca. 7—8 mínútur, þar
til slökkviliðið kom og gengu
þeir rösklega fram í baráttunni
Unnið að slökkvistörfum.
Ljósm Mbl. Gunnar Hallsson.
við eldinn. Það fóru strax 5—6
reykkafarar inn í húsið og gátu
komist beint að eldinum. Þetta
var að mínu mati, það sem skipti
sköpum um það, hversu vel gekk
að ráða niðurlögum eldsins.
Slökkviliðið kom frá ísafirði og
var á það kallað til öryggis, en
þeir komu um það leyti sem
slökkvistarfi var að ljúka. En
það var hægt að hleypa rafm-
agni á bæinn aftur um klukkan
þrjú.“
Jón sagði, að það væri búið að
gera lauslega könnun á skemmd-
um, en þær eru allnokkrar á hús-
inu, sérstaklega á þaki. Sperr-
urnar eru ónýtar að hluta til yfir
rafstöðvarhúsinu, en skemmdir
á aflrofum og stjórnskápum eru
ekki alveg fullkannaðar ennþá,
en ljóst er að þær eru einhverjar.
Sjálf aðveitustöðin virðist hafa
sloppið og einnig vélarnar. Því
ætti ekki að verða um skort á
rafmagni að ræða, að öðru leyti
en því, að við höfum ekkert vara-
afl á meðan á viðgerð stendur.
Hversu lengi það verður er ekki
hægt að segja um fyrr en eftir
eina til tvær vikur, þegar búið
verður að gera nánari könnun á
tjóninu.
„Nákvæm rannsókn á elds-
upptökum hefur náttúrlega ekki
farið fram,“ sagði Jón, „en líkur
benda til þess að kviknað hafi í
út frá púströrum vélanna, að þar
hafi orðið um einhvern óeðli-
legan hita að ræða, sem orsakað
hafi íkveikju í einangrun."
Gunnar
Úr myndinni „Tvisvar sinnum
kona“.
Nýja bló:
Tvisvar
sinnum
kona
NÝJA bíó frumsýnir í dag banda-
rísku kvikmyndina Tvisvar sinnum
kona, sem á frummálinu heitir
„Twice a Woman“. Framleiðandi og
leikstjóri er George Sluizer. I
leikskrá segir kvikmyndahúsið að
myndin fjalli um mjög náið sam-
band tveggja kvenna og óvæntum
viðbrögðum eiginmanns annarrar.
í aðalhlutverkunum eru Bibi
Anderson, Anthony Perkins og
Sandra Dumas. Myndin er bönnuð
börnum innan 16 ára aldurs.