Morgunblaðið - 28.09.1982, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.09.1982, Blaðsíða 30
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1982 + Móöir okkar, GUDRUN ÁGÚSTA JÚLÍUSDÓTTIR ELLINGSEN frá Keflavík, er látin. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Steinunn Ólafsdóttir, Einar G. Ólafsson. Maöurinn minn. + JÓN GUDMUNDSSON fró Hafnarfiröi, lézt í Hrafnistu Reykjavík 26. september. Jaröarförin auglýst siöar. Sigríöur Guömundsdóttir og aörir vandamenn. + Eiginkona mín, ODDGERÐUR ODDGEIRSDÓTTIR, Stórholti 24, Reykjavík, andaöist í Landspítalanum 25. september. Ólafur Vilhjálmsson. + Sonur okkar og bróöir, EIRÍKUR VALBERG, Kambsvegi 34, andaöist sunnudaginn 26. september. Guöný og Samúel Valberg, Aóalbjörg Valberg, Lárus Valberg, Kristmundur Valberg, Ingibjörg Valberg. + Móöir okkar, tengdamóöir og amma, KARÍTAS GUOMUNDSDÓTTIR, andaöist i Borgarspítalanum 22. þ.m. Jaröarförin fer fram frá Dómkirkjunni i Reykjavík, fimmtudaginn 30. þ.m. kl. 10.30. Benta Briem, Valgarö Briem, Guðný Schrader, William Schrader, Sfeingrímur Jónsson, Molly Clark Jónsson, Kristín Sólveig Jónsdóttir, Ólafur örn Arnarson, og barnabörn. + Utför SOLVEIGAR MAGNÚSDÓTTUR ritara í Sendiráöi fslands í Brlissel, fer fram frá Dómkirkjunni, miövikudaginn 29. september kl. 14.30. Ragnheióur Þóróardóttir, Magnús Hjálmarsson, Halldóra Magnúsdótfir, Lára Magnúsdóttir, Þóröur Magnússon, Grímur Jónsson, Egíll Arnaldur Ásgeirsson. + Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma, GUDBJÓRG VETURLIOADÓTTIR frá fsafirói, til heimilis aö Hafnargötu 47, Keflavík, veröur jarösungin frá Kefla- víkurkirkju, þriöjudaginn 28. september kl. 14.00. Magnús Guónason, Jón Ólafur Jónsson, Sigurbjörg Gunnarsdóttir, Finnur Magnússon, Valgerður Karlsdóttir, Guórún Magnúsdóttir, Einar Jónatansson, og barnabörn. + Útför sonar okkar og bróöur, ÞORGEIRS ÞÓRÐARSONAR Staóarselí 3, sem lést af slysförum 20. september, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. september kl. 15. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á Barna- spítala Hringsins. Inga M. Árnadóttir, Þóröur Þorgeirsson, Árni Þóröarson, Inga Jytte Þóröardóttir. Minning: Guðbjörg Ágústa Veturliðadóttir Fædd 27. ágúst 1918 Dáin 20. september 1982 I dag verður til moldar borin í Keflavík, tengdamóðir mín, Guð- björg Veturliðadóttir. Guðbjörg andaðist á Sjúkrahúsi Keflavíkur, fyrir aldur fram, tæpu ári eftir að ljóst var, að hún var haldin þeim sjúkdómi, sem læknavísindin hafa enn ekki fundið neitt svar við. Guðbjörg fæddist í Súðavík 27. ágúst 1918, dóttir hjónanna Guð- rúnar Jónsdóttur og Veturliða Asgeirssonar sjómanns. Guðbjörg var næst yngst níu systkina. Að- eins fimm ára gömul missti hún föður sinn af slysförum. Eins og tíðast var í þá daga hjá efnalitlu fólki þýddi fráfall föður óhjá- kvæmilega, að fjölskyldan tvístr- aðist. Guðbjörg fylgdi móður sinni, ein systkinanna. Fyrst að Hlíðarhúsum í Alftafirði, þar sem móðir hennar réð sig í hús- mennsku og síðar að Hlíð i Súða- vík. Á fimmtánda aldursári sínu réði Guðbjörg sig i vist, fyrst á ísafirði, en þaðan lá leiðin í Pálsbæ á Seitjarnarnesi, þar sem Guðbjörg vann um tíma á heimili Sigurðar Péturssonar skipstjóra á Gullfossi. Guðbjörg snéri síðan til ísa- fjarðar aftur, þar sem hún hitti unnusta sinn Jón Ólaf Júlíussonar sjómann. Þau opinberuðu trúlofun sína árið 1940.1 desember sama ár fæddist þeim sonur. En drengur- inn var aðeins tveggja mánaða gamall, er faðirinn fór í sjóferð þá er hann kom aldrei úr aftur. Son- urinn var skírður Jón Ólafur eftir föður sínum og starfar nu sem bankafulltrúi í Utvegsbankanum í Keflavík. Guðbjörg kvæntist síðan eftir- lifandi eiginmanni sínum, Magn- úsi Guðnasyni vélstjóra frá Selja- landi i Álftafirði, 5. desember 1942. Þau stofnuðu heimili á ísa- firði, þar sem þau bjuggu allt til ársins 1971, að þau fluttu til Keflavíkur. Guðbjörgu og Magn- úsi varð þriggja barna auðið. Elst- ur var Sigurður Magnús, er lést af slysförum árið 1974 við eggjatöku í Hælavíkurbjargi, einn fræknasti fyglingur sem menn muna. Þá Finnur Veturliði, kaupmaður í húsgagnaversluninni Hreiðrinu í Kópavogi og Guðrún Bjarnveig, tónlistarkennari í Bolungarvík. Öll þau ár sem Guðbjörg og Magnús bjuggu á ísafirði, stund-( aði Magnús sjómennsku. Það kom því að mestu í hlut Guðbjargar að stjórna heimilinu. Auk þess vann Guðbjörg flest árin eitthvað utan heimilisins, ýmist í fiskvinnu eða við ræstingu og aðra heimilis- hjálp. Vinnusemin var henni í blóð borin. Frá barnæsku varð hún að vinna hörðum höndum, henni féll aldrei verk úr hendi. Guðbjörg var í eðli sínu lífsglöð kona, þrátt fyrir hið mikla and- streymi sem hún mátti þola á lífsleiðinni. Hún hafði gaman af að blanda geði við fólk og gladdist vel með glöðum. Hún hafði yndi af að taka á móti gestum og naut sín vel í húsmóðurhlutverkinu, þegar stofan var full af fólki. Barnabörnin hændust mjög að Guðbjörgu, enda var hún einstök amma. Þolinmæði hennar var stundum með eindæmum við börnin. Þó var hún föst fyrir ef farið var út fyrir þau takmörk er hún sett.i leikium beirra. Guðbjörg var alla tíð mjög heilsuhraust og kenndi sér einskis meins, þar til fyrir tæpu ári síðan að hún var flutt í skyndi á sjúkra- hús, þar sem framkvæmd var skurðaðgerð og illkynja æxli fjar- lægt. Um tíma var talið að aðgerð- in hefði heppnast fullkomlega. En + Faöir okkar, gIsli eiríksson, Laugavegi 4, lézt í Hrafnlstu sunnudaglnn 26. september. Kriatín Gísladóttir, Gylfi Gíslaaon. + Móöir okkar, MARSELIA JÓNSDÓTTIR, Njálsgötu 86, Reykjavík, veröur jarösungin, miövikudaginn 29. september trá Fossvogs- kapellu kl. 13.30. Drífa Seiwell, Jóna Einarsdóttir. + Útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, SIGURDAR HALLDÓRSSONAR, Hávallagötu 33, fer fram frá Fríkirkjunni i Reykjavík, fimmtudaginn 30. september kl. 15.00. Kristín Þorláksdóttir, Arnfríður Síguröardóttir, Roger P. Burke, Ásgeir Sigurósson, Marín Pétursdóttir, Erna Siguröardóttir, Halldór Þ. Sigurösson, Kristín Huld Siguröardóttir, og barnabörn. + Eiginmaöur minn, faðir, tengdafaöir og afi, GUDMUNDUR HRAUNDAL, Drápuhliö 30, Reykjavik, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju í dag, þriöjudaginn 28. september, kl. 13.30. Jarösett verður aö Lágafelli. Ingibjörg Skaftadóttir, Helga Hraundal, Hinrik H. Friöbertsson og barnabörn. við rannsókn í apríl sl. kom annað í ljós og var þá vitað að hverju stefndi, aðeins var spurning um tíma. Nú þegar æfidagur Guðbjargár er allur ríkir sár söknuður í hug- um eiginmanns, barna, tengda- barna og annarra ættingja og vina. En minningin lifir. Það er björt minning og hrein. Við óskum henni guðs blessunar í nýjum heimkynnum. Kinar Jónatansson. Haustið hefur gengið í garð með sínum mildu litum, náttúran öll undirbýr sig fyrir veturinn, við horfum á blómin hverfa eitt af öðru. Lauf trjánna skipta um lit en falla svo eitt af öðru til jarðar, þar til trén standa nakin eftir. Allt þetta er svo eðlilegt á að horfa, og við vitum að allt vaknar að nýju með vorinu og blómstrar aftur. Okkur mannfólkinu ætti því að skiljast að það sama gildir um okkur, það haustar fyrr í lífi eins fremur en annars, en dauðinn kemur okkur yfirleitt alltaf á óvart, þó hann sé það eina sem allir verða að hlíta fyrr eða seinna. í dag kveðjum við góða vinkonu og frænku sem sárt er að horfa á eftir yfir móðuna miklu. Það er kannski ótrúlegt í öllu því kyn- slóðabilstali sem í dag heyrist, að kona sem tengist lífi manns allt frá því maður fæðist, í gegnum bernsku- og skólaárin, síðan eftir að maður sjálfur eignast sína eig- in fjölskyldu og jafnvel sín eigin barnabörn, þá var hún alltaf Gugga frænka, aldurslaus og óumbreytanleg. Kona sem hægt var að leita til hvort sem um var að ræða skólabarnið úr frímínút- um til að fá kökubita, eða ungling- inn eða fjölskylduföðurinn, með marga litla stráka sem þurftu pössun af og til í lengri eða skemmri tíma, hvort sem var vegna veikinda eða að okkur for- eldrum þeirra fannst við þurfa á upplyftingu að halda. Alltaf var skilningur fyrir hendi og aldrei var svarað öðruvísi en jákvætt, og vorum við þó ekki þau einu sem báöum hana um slíkan greiða. Ekki voru það eingöngu börn og ungt fólk sem naut góðs af þessu, því amma, Guðrún Jónsdóttir, dvaldi hjá henni sín síðustu ár í góðu yfirlæti. Með þessum fátæklegu orðum ætlum við hjónin ekki að skrifa langa minningargrein heldur að- eins að reyna að sýna þakklæti okkar og okkar barna til Guggu fyrir tryggð hennar og vináttu í gegnum árin, hvort sem var á ísa- firði eða hér fyrir sunnan. Við biðjum algóðan Guð að styrkja manninn hennar, börn, tengda- börn og barnabörn í þeirri sorg er nú sækir þau heim með fráfalli og undangengnum erfiðum veikind- um hennar, en vonum að minning- in um glaðværu, góðu konuna lifi sem lengst í hugum okkar allra. Gunnar og Erla Lokaö í dag kl. 2—4 vegna jarðarfarar Sigrún- ar Guðbjarnadóttur. Málarinn hf., Grensásvegi 11.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.