Morgunblaðið - 28.09.1982, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.09.1982, Blaðsíða 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1982 rteiiAAftn „Ainnna, cf pá keyptir (?br- sk’eHiriöSru, ydCtum \Ji& notafe samcno!" Með morgimkaffinu Þart gctur veriA að þú sért ekki ánægð með það sem ég geri hér á heimili ykkar, en það er þó mér að þakka að maðurinn þinn er heima á kvölrlin! HÖGNI HREKKVfSI y/ KETTlRMife B iPJA (JM VMSÖ6N.'" „Ilvers konar bæjarfélag er Selfoss eiginlega, ef þeir sem dæmdir eru til fangelsisvistar fyrir afbrot í öðrum bæjum landsins, geta gengið þar um sem frjálsir menn jafnt í skólunum sem og annars staðar? Myndu ekki dómar yfir afbrotamönnum breytast, þannig að þeir yrðu bara dæmdir til þess að flytjast austur að Selfossi?" Skólanám fanga á Selfossi: Fer fram á að fyllsta ör- yggis sé gætt í hvívetna Sclfyssingur skrifar. Hér á Selfossi hafa að undan- förnu farið fram allmiklar umræð- ur manna á milli um skólagöngu fanga af Vinnuhælinu á Litla- Hrauni í Fjölbrautaskólanum á Selfossi. Hófst þetta reyndar á síð- astliðnum vetri, þegar það fór að kvisast út manna á millí, að í skól- anum væru refsifangar af Litla- Hrauni, sem hefðu fengið þunga dóma og gengju þeir um eftirlits- laust á meðal unglinganna. Voru nú fæstir sem vildu trúa því að þetta væri staðreynd, en þegar Ijóst varð að svo væri urðu flestir furðu lostn- ir. Varð þetta ekki almennt ljóst, fyrr en skóla var um það bil að Ijúka. Var því lítið aðhafst í málinu þá. Nú í byrjun skólaárs voru menn hins vegar betur á verði og viti menn, þegar skólinn hófst voru þar komnir fangarnir, sem hófu skóla- göngu í fyrra. Að því er ég best veit allir dæmdir fyrir hlutdeild að morðmáli. Eru menn eitthvað hissa þótt Selfyssingar fari nú að gera athugasemdir við þetta? Hverjir taka ákvarðanir um að þetta skuli leyft? Eru þeir tilbúnir til þess að taka afleiðingunum sem af þessu geta hlotist? Hversu mörg ár myndu líða þangað til allir dæmdir fangar á Litla-Hrauni myndu ganga lausir á Selfossi frá kl. 8.00 á morgnana til kl. 16.00 á daginn, ef þetta fordæmi hefði verið látið óátalið? Hvers vegna þyrfti heilan her fangavarða til þess að gæta þeirra hinn hluta sólarhringsins, þegar þeir ættu að vera að læra heima og hvíla sig fyrir næsta skóladag, sem þeir yrðu innan um Selfyssinga og börn þeirra? Hvers skonar bæjarfélag er Sel- foss eiginlega, ef þeir sem dæmdir eru til fangelsisvistar fyrir afbrot í öðrum bæjum landins, geta gengið þar um sem frjálsir menn jafnt í skólunum sem og annars staðar? Myndu ekki dómar yfir afbrota- mönnum breytast, þannig að þeir yrðu bara dæmdir til þess að flytj- ast austur að Selfossi? Myndu ekki foreldrar á Selfossi verða hamingjusamir, þegar dæturnar færu að bjóða heim með sér skóla- bræðrunum, sem biðu eftir skóla- bílnum af Litla-Hrauni? Þessar og fjölmargar fleiri spurningar hafa leitað á margan Selfyssinginn und- anfariö. Ég átti tal við einn skólanefnd- armann Fjölbrautaskólans, rétt eft- ir að skólinn hófst og hafði hann þá ekki hugmynd um tilvist fanganna í skólanum í vetur og sagði að það hefði ekki komið til umræðu í skólanefndinni. Ég hef líka heyrt haft eftir manni, sem á sæti í fang- elsisstjórn Litla-Hrauns, að honum hafi verið ókunnugt um þetta líka. Þá vaknar sú spurning hverjir hafi vald til þess að taka slíkar ákvarð- anir án samráðs við stjórnir stofn- ananna? Rektor skólans, fangelsis- stjórinn og margir nemendur hafa lokið upp einum munni um það, að framkoma fanganna í skólanum hafi verið til fyrirmyndar. Það dreg ég ekkert í efa, því þeir hafa allt að vinna í þessu máli, en ég vil benda á, að sú músin sem læðist getur ver- ið hættulegust þegar færi gefst og hún stekkur. En hvenær yrði það? Nú hafa þessir menn verið látnir hætta að ganga frjálsir um meðal unglinganna, en þess í stað munu þeir eiga að hefja nám í svokallaðri öldungadeild, þ.e. í fullorðins- fræðslu. Er sagt að þeir eigi að vera þar í umsjá fangavarða. Þetta tel ég vissulega vera spor í rétta átt, en samt sem áður hlýtur þetta að telj- ast varasamt þegar um svona menn er að ræða. Því hvers vegna þurfa að vera járngrindur fyrir gluggum og dyrum fangelsisins, auk mann- heldrar girðingar, ef ekkert slíkt þarf í skólanum, þar sem ég dreg í efa að verði þó nema einn fanga- vörður? Við sem ekki erum sátt við þessa tilhögun, höfum ekkert á móti því að þeir sem eru í fangelsi hafi möguleika á aukinni skóla- fræðslu. Sú fræðsla hlýtur hins vegar að þurfa að fara fram innan veggja fangelsisins. Vísir að því var kominn upp á vegum Iðnskólans á Selfossi, en það leið víst undir lok þegar Fjölbrautaskólinn tók við hlutverki hans. Ég tel að ég mæli fyrir munn margra, þegar ég fer fram á að þessu verði breytt í þá veru að fyllsta öryggis sé gætt í hvívetna. Að endingu fer ég fram á að þetta verði birt undir dulnefni vegna þeirra aðila er hlut eiga að máli, en ég tel þá geta verið það varasama að nafnleynd sé nauðsyn. Með fyrirfram þökk fyrir birting- una.“ Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimil- isföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.