Morgunblaðið - 28.09.1982, Síða 20

Morgunblaðið - 28.09.1982, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1982 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 130 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 10 kr. eintakiö. Óheillaþróunin heldur áfram Þrátt fyrir margítrekaöar yfirlýsingar ráðherra um að meö bráðabirgðalögunum nú í ágúst hafi orðið þátta- skil í efnahagslífi þjóðarinnar, blasir við öllum að óheilla- þróunin heldur áfram. Ráðherrarnir vilja ekki fallast á þá skýringu, að vandinn sé að verulegu leyti af mannavöld- um. A meðan það viðhorf ríkir við landstjórnina er ekki von að úr rætist. Dr. Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, nefndi hér í blaðinu á sunnudag þrjár höfuðástæður fyrir því, að ekki sé tilefni til bjartsýni vegna afkomu íslenska þjóðarbúsins og tók þar mið af umræðum á ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Toronto á dögunum. Jóhannes sagði: „I fyrsta lagi er ljóst, að enn er mjög tvísýnt um það hve fljótt megi vænta efnahagslegs afturbata er nægi til þess að létta Islendingum róðurinn. Horfurnar eru sér- staklega alvarlegar þegar hugað er að því að koma á fót ýmsum nýjum iðngreinum til að auka útflutning, einkum að því er varðar orkufrekan iðnað. í öðru lagi bendir flest til þess að bilið milli íslands og annarra landa sé að aukast bæði þegar litið er til verð- bólgu og viðskiptajafnaðar. Flest hin þróuðu ríki í kring- um okkur hafa verið að ná dýrkeyptum árangri í þessum efnum. Hins vegar horfum við íslendingar nú; meðal ann- ars vegna sérstakra aðstæðna, bæði fram á vaxandi verð- bólgu og meiri viðskiptahalla en áður. I þriðja lagi felst í þróuninni á erlendum lánamörkuð- um alvarleg áminnig til íslendinga um að draga úr er- lendri skuldasöfnun og bæta stöðu sína út á við, svo að efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar verði ekki stefnt í alvarlega hættu.“ Séu þessi áminningarorð seðlabankastjórans borin saman við þróunina í efnahagsmálum þjóðarinnar þau ár síðan 1978 sem vinstri stjórnir hafa setið við vöfd, kemur í Ijós, að það er alls ekki einungis vegna ytri aðstæðna að svo er komið sem raun ber vitni. 4 ára seta Hjörleifs Guttormssonar á stóli iðnaðarráðherra hefur valdið stöðnun á sviði orkufreks iðnaðar. Ríkisstjórnin ætlaði sjálf að sjá til þess, að í ár yrði verðbólga hér svipuð og í nágrannalöndunum. Undir þessu yfirskyni hafa allar verðlagsforsendur í landinu verið skertar svo illilega, að stjórnvöld hafa jafnvel fyrirskipað vel reknum opinberum fyrirtækjum að fjármagna rekstur sinn með erlendum lánum. Söfnun erlendra skulda á rétt á sér, ef leitað er eftir fjármagni er skilar arði og útflutningstekjum. Á 4 ára ferli vinstri stjórna síðan 1978 hefur erlenda skulda- byrðin verið þyngd án þess að hugað sé að gjaldeyris- sparnaði, arðsemi eða útflutningstekjum. Með þessum hætti hefur efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar verið stefnt í voða. Undanlátssemi staðfestulausra stjórnmála- manna er meginorsökin fyrir óskynsamlegum lántökum í útlöndum. Hver trúir því, að sú ríkisstjórn sem nú situr muni allt í einu nokkrum mánuðum fyrir kosningar sýna staðfestu og draga úr erlendri skuldasöfnun? Með þessa ríkisstjórn við völd mun óheillaþróunin markvisst halda áfram, því að stjórnin sjálf er að verulegu leyti undirrót vandans. Betlilýðveldið Orðhagir innlendir menn og ómyrkir í máli hafa nefnt ísland betlilýðveldið, þegar þeir fjalla um stjórn efnahagsmálanna. Eftir málsmeðferð þeirrar ríkisstjórn- ar sem nú situr og afleiðingar þess að þar hafa ráðherrar lotið neitunarvaldi Alþýðubandalagsins í flugstöðvarmál- inu, kann þetta ógeðfellda heiti, betlilýðveldið, að verða notað um landið víðar en marga grunar. Og spyrja má: Hefði ekki verið meiri sæmd í því að sprengja stjórnina á þessu máli áður en beiningastafurinn var tekinn fram, heldur en gera það nú í tötrum? Grindavík: Ný sóknarkirkja vígð Síðastliðinn sunnudag vígði biskup Islands, herra Pétur Sigurgeirsson, nýja sóknarkirkju Grindvíkinga að viðstöddu miklu fjölmenni. Leysir hún af hólmi eldri kirkju er vígð var sama dag fyrir 73 árum. Nýja kirkjan tekur 240 manns í sæti og allt af 150 í viðbót geta setið í sóknarheimilinu, sem er sambyggt kirkjunni og er hægt að opna á millí inn í kirkjuskipið. Þrátt fyrir það gátu ekki allir fengið sæti, slíkur var áhugi bæjarbúa fyrir athöfninni. Fyrsta skóflustungan var tekin þann 5. nóvember 1972, þannig að byggingin hefur tekið tæp 10 ár. Ragnar Emilsson arkitekt teiknaði bygginguna og hefur farist það vel úr hendi, því hún er öll hin smekkleg- asta. Margir eigulegir munir hafa verið gefnir kirkjunni og er þar fyrst að minnast á altaristöfluna, en hún er eftirmynd töflunnar úr gömlu kirkjunni, er hún eftir Ásgrím Jóns- son listmálara og heitir: Jesús stillir sjó og vind. Altaristaflan er 18m2 og útfærð í mósaík af þýsku fyrirtæki. I henni eru u.þ.b. 400.000 steinar í 500 litum. Fiskvinnslufyrirtæki í Grindavík gefa töfluna. Lionsmenn hafa gefið þrjár kirkjuklukkur og Kiwanisklúbbur Grindavíkur gaf fullkomið hátalarakerfi. Kostnaður- inn við bygginguna var u.þ.b. 2.720 þús. kr. og var að mestu greiddur með gjafafé hinna ýmsu félagasam- taka og áheitum. Einnig greiddi bæjarsjóður Grindavíkur verulegan hluta. Að vígslu lokinni þáðu kirkjugestir veitingar í Félagsheimilinu Festi. Sóknarprestur í Grindavík er sr. Jón Árni Sigurðsson, organisti og formaður sóknarnefndar Svavar Árnason, form. byggingarnefndar Óiafur Sigurðsson og yfirsmiður var Guðmundur ívarsson. Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, heilsar kirkjugestum. Ljósm.: Einar Falur /•.> Hin nýja Grindavíkurkirkja á vígsluda Sex börn voru skírð við kirkjuvígsluna Stóðréttarstemmning í Sk Það var mikið um að vera hjá skag- firskum stóðbændum á sunnudag þeg- ar réttað var á tveim stöðum í Skarða- rétt og Staðarrétt. Byrjað var að draga upp úr hádegi í Skarðarétt en í Stað- arrétt var byrjað um þrjú leytið. Margt var um manninn í báðum réttunum og voru sumir langt að komnir. í Skarðarétt, sem einnig gengur undir nafninu Gönguskarðarétt eða Tungurétt í Gönguskörðum, voru hátt í sjö hundruð fullorðin hross eða hátt í þúsund með ungviði. Að loknum drætti var framkvæmd nákvæm talning að beiðni ólafs Dýrmundssonar landnýtingarráðu- nauts, en hann hafði hálfum mán- uði áður farið um afréttinn og talið að um ofbeit væri að ræða. í samtali við Ólaf kom fram að ekki væri ákveðið hvaða ráðstafanir yrðu gerðar en ekki væri ósennilegt að hrossum yrði fækkað verulega á af- réttinum í náinni framtíð. Réttar- stjórinn, Úlfar Sveinsson, Ingveld- arstöðum, kvaðst vera sammála Ólafi um það að of margt væri á afréttinum og nýtingu bæri að haga í samræmi við það sem landið þyldi. Sagði hann einnig að fé væri farið að tolla illa á afréttinum og leitaði niður á miðju sumri. I Staðarrétt voru rúmlega þúsund hross að ungviði meðtöldu að sögn réttarstjórans, Sveins Steinssonar, Geitagerði. Aðspurður kvað hann mjög líklegt að Staðarafréttur væri ofbeittur og nefndi í því sambandi að fé leitaði niður í byggð seinnipart sumars. Eins og venja er til í stóðréttum var mikil stemmning í báðum rétt- um. Allir sem vettlingi gátu valdið tóku þátt í áflogunum sem fylgir þegar stóðið var dregið í dilka og nokkrir ofurhugar sýndu þá dirfsku að fara á bak ungum og villtum fol- unum. Þeir sem eldri eru og ráðsett- ari stóðu álengdar með stafprik í hendi og stjórnuðu drættinum. Kon- Ungu piltarnir fljúgast hér á við einn fola, sem ekki vill una frelsisskerðingunni, en Leifur í Keldudal, sem er bæði reyndur og ráðsettur, hefur vit á að halda sig í hæfilegri fjarlægð frá hættunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.